Morgunblaðið - 08.01.1972, Side 8

Morgunblaðið - 08.01.1972, Side 8
8 MORGUNBLAÐLÐ, LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1972 Ríkisstjórnin skapar óvissuástand 1 f ram- kvæmdum Reykja- víkurborgar r SEINASTI fundur borgarstjóm- ar árið 1971 var haldinn 16, des- ernber sl, Þetta var nokkuð ovenjulegur desemberfundur. Á g'sðari fundi í desember afgreið- ir borgarstjórn ávallt fjárhags- áœtlun þess árs, sem í hönd fer. Þá er alltaf mikið um að vera í borgarstjóm. Umræður langar Og miklar, enda eðliiegt að borg- arfulltrúar hinna ýmsu flokka Hafi á því mlsmunandi skoðanir, hvemig verja skuii áætiuðum tekjum, j>,- Fundurinn 16. desember sl. yar hins vegar með daufara ! móti. Umræður voru litlar og j fundurinn einn sá stytzti á þessu h’austi. Ástæðan var sú, að sá einstæði atburður átti sér stað, að borgarstjóm varð að fresta afgreiðslu fjárhagsáætlunar um óákveðinn tima fram á árið 1972. f: Undirbúningur fjárhagsáætl- unar Reykjavikurborgar er mik- íð verk og vandasamt. Á sL hausti hófst sá undirbúningur eiríS og venja er til. Hinar ein- stöku stofnanir borgarinnar gerðu áætlanir um útgjöld sin á grundveLli þeirra haldbeztu upplýsinga, sem völ var á, og gerðu auk þess grein fyrir fram- kvæmdaþörf sinni á árinu. Þær borgarstofnanir, sem hafa sjálf- Stæðan fjárhag gerðu og sínar tekjuáætlanir. Embættismenn á j slaifstofu borgarstjóra tóku síð- ! an við þessum áætlunum og lögðu þær fyrir borgarráð, þar sem þær voru felldar í eina heíld. Borgarráð sat yfir þessu verki dögum saman. 1 miðju kafi fór að spyrjast að vera kynni að ríkisstjómin hygðist breyta verulega tekju- stofnakerfi sveitarfélaga og jafnframft verkefnum jþeirra. Flestir, sem að vom spurð- ir, jafnt stjómarsinnar sem aðrir, töldu útilokað að slik- ar gmndvallarbreytingar myndu taka gildi fyrr en í árslok 1972. Allir bjuggust við, að siík bylt- ing á kerfinu fengi vandaða málsmeðferð, sem fengi að taka eðlilegan tíma, en sveitarfélög- um ekki haldið í óvissu á meðan. Smám saman fór þessi orð- rómur að breytast. Rikisstjómin hugðist gera breytingar sínar miðað við ársbyrjun 1972 og ráð- herrar staðtfestu þann orðróm. En hvert var jþá efni þessa nýja frumvarps um tekjustotfna sveitarfélaga? Um það fékkst ekkert svar. „Frumvarpið kem- ur væntamlega fram í næstu viku,“ var sagt og þannig leið hver vikan eftir aðra. Þrátt fyrir þetta taldi borgar- ráð sér skylt að halda áfram undirbúningi fjárhagsáætlunar Reykjavikurborgar. Frumvarp að fjárhagsáætlim var síðan til- búið í lok nóvember og fyrri um- ræða um það fór fram 2. desem- ber, eins og venja er til. Þá ból- aði enn ekkert á tekjustofna- Nauðungaruppboð annað og síðasta á fasteigninni Bursthúsum, Miðneshreppi, eign Brynhiidar Bjömsson, fer fram á eigninni sálfri, miðviku- daginn 12, jan. 1972, kl. 3,30 e.h. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu, Nauðungaruppboð sem auglýst var í 59., 62. og 64 tölublaði Lögbirtingablaðsins 1971 á eigninni Hraunbrún 6, 3. hæð ásamt bílskúr og hlut- deild í lóðarréttindum, Hafnarfirði, þingl, eígn Þórðar Bene- diktssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Gr. Sigurðssonar, hdU á eigninni sjálfri þriðjudaginn 11. jan. 1972 kl. 4.00 e.h. Bæjarfógetínn í Hafnarfirði, Nauðungaruppboð sem auglýst var í 59., 62. og 54 tölublaði Lögbirtingablaðsins 1971 á eigninni Háabarði 14, Hafnarfirði þingl. eign Sveins Valtýssonar, fer fram eftir kröfu bæjargjaldkerans í Hafnar- firði og Sveins H. Valdimarssonar, hrl, á eigninni sjálfri þriðju- daginn 11. jan, 1972 ki. 3,15 a.h. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 59.. 62 og 64 tölublaði Lögbirtingablaðsins 1971 á eigninni Faxatón 25, Garðahreppi þingl. eign Magnúsar Jónssonar, fer fram eftir kröfu Einars Viðar, hr!., og Veðdeildar Landsbanka Islands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 11. jan. 1972 kl. 4,45 e.h, Sýslumaðwinn í Gullbringu- ag Kjósarsýslu. N auðungaruppboð sem auglýst var I 59., 62. og 64. tölublaði Lögbirtingabíaðsins 1971 á eigninni Víkorbraut 50, rishæð. Grindavík þingl. eígn Gunnars H. Bíldals, fer fram eftir kröfu Brands Brynjólfssonar, hdl, Vílhjálms Þórhallssonar, hrl. og Helga Guðmundssonar, hdl á eigninní sjálfrí miðvikudagínn 12. jan. 1972 kl. 2,30 e h. Sýslunnaflurinn i Gullbringu- og Kjósarsýslu. frumvarpi rikisstjórnarinnar. Síðari umræða átti síðan að fara fram 16. desember, eins og fyrr segir. Nokkrum dögum áð- ur lagði ríkisstjórnin fram á Al- þingi frumvarp að nýjum tekju- stofnalögum. Það frumvarp fól í sér slíka gerbreytingu. á núver- andi tekjumöguleikum sveitar- félaga og slika óvissu um þeirra fjármál yfir höfuð, að borgar- stjórn sá sig tilneydda að fresta atfgreiðslu fjárhagsáætlunar um óákveðinn timá. Undirbúningur þessa frum- varps er með eindæmum. Eng- inn fuhtrúi Sambands íslenzkra sveitarfélaga var hafður með i ráðum. Rikisstjórnin afþakkaði alla aðstoð sambandsins við und- irbúning frumvarpsins og aftur- kailaði tiinefningu tveggja full- trúa, sem sambandið hafði til- nefnt í nefnd, er starfaði á veg- um fyrri ríkisstjómar. Afturköll- un þessi kom fram í bréfi til Sambands isl. sveitarfélaga dags. 26. júM, ,,með því að ráðuneytið hefði ákveðið að haga téðxi end- urskoðun með öðrum hætti en fyrrverandi fjármálaráðherra ráðgerði“, eins og í bréfinu seg- ir. Samibandið hafði tilnefnt tdl þessa starfs tvo þaulreynda sveitarstjómarmenn, þá Bjama Einarsson, bæjarstjóra á Akur- eyri og Ólaf G. Einarsson, sveit- arstjóra í Garðahreppi. Þvi fór einnig fjarri að nokkur fuMtrúi Reykjavikuirborgar, stærsta sveit arfélags landsins, væri með í ráðum. Ljóst er, að frumvarp þetta er mjög öhagstætt fyrir Reykjavik og stofnar fjárhag borgarinnar í mikla óvissu. Frumvarp það að f járhagsáætlun borgarinnar, sem rætt var í fyrstu umræðu I byrjun desember, er byggt á því tekjustofnakerfi, sem gilt hefur. Það gerir ráð fyrir 6% afslætti frá útsvarsstiga og 60% nýtingu á lögleyfðum aðstöðugjalds- stofni. Þrátt fyrir það, að borg- in hugðist ekki nýta að fuUu heimildir sínar til skattfálagning- ar á borgarbúa, var gert ráð fyr- ir mikiMi aukningu margs konar verklegra friaimkvæmda, t.d. á sviði skóla og barnaheimila. Þó að allir tekjustofnar hins nýja frumvarps yrðu nýttir að fuMu, vantar enn upp á að borgin nái þeim tekjum, sem frumvarpið að fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Það þýðir því einfaldlega niður- skurð verklegra framkvæmda. Stefna rikisstjómarinnar, sem birtist í þessu frumvarpi felur í sér eins konar skattlagningu á sveitarfélögin í þágu ríkisins. Ríkið tekur stærri hlut skatt- anna í sína þágu, en sjálfstæði og sjálfsákvörðunarréttur íbúa sveitarfélaganna skerðist að sama skapi. Hinn óvandaði und- irbúningur málsins, sem m.a. birtist í harðri gagnrýni margra sveitarstjórnamanna, hefur gert það að verkum, að ríkisstjórnin hefur hægt nokkuð á ferðinni og m.a. verður mál þetta tekið fyr- ir á fuMtrúaráðsfundi Sambands ísl. sveitarfélaga 18. og 19. janú- ar nk. Sveitarsitjórnamenn þurfa að kappkosta að ná fram þeim breytinigum, sem tryggja fjárhagsstöðu og eðiilegan við- gang sveitarfélaga. Ljóst er, að mál þetta hlýtur ekki fuUnaðar- afgreiðslu frá Aiþingi fyrr en í febrúar eða marz. Á rneðan er Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum haldið í fullkomimii óvissu um fjár- hagsstöðu sína á þessu ári. Það hlýtur að hafa áhrif á undirbún- ing aUra verklegra framkvæmda á árinu. Getur Reykjavíkur- borg t.d. hafið bygginigu Fella- skóla í Breiðholti á árinu eða við- byggingu við HMðaskóla? Getur Reykjavíkurborg hatfið byggingu nýrra bamaheimila á árinu? Get- ur Reykjavíkurborg gent bygg- ingarhæfar þær lóðir, sem fyrir- hugað hefur verið að úthluita á árinu? AMt er þetta og margt fleira nú í fuHkominni óvissu vegna þess bráðabirgðaástands, sem ríkisstjómin hefur skapað í fjármáium sveitarfélaga. dans skóli Síöasti innritunardagur Kennsla fer fram að Laugavegi 178 og safnaðarheimiii Langholtssóknar. • Barnaflokkar • Sérstakir táningaflokkar — • Stepp, samkvæmis- og einstaklingshópar. Afhending skírteina í Hveragerði í dag laugardaginn 8. jam. í Hótel Hveragerði frá kl. 1—3 og í Reykjavík sunnudaginn 9. jan. í skólanum að Laugavegi 178 frá kl. 2—5. Sími 14081 frá kl. 10—12 og 1—7. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS 000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.