Morgunblaðið - 13.01.1972, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1972
23
Sveinn Guðmundsson;
Áramótaþankar
Miðhúsum, Reykhólasveit, .
g-amlársdag 1971.
Hjá þeim þjóðum, sem telja sig
kristna, er árið 1971 liðið og
heyrir sögunni til og þvi skal
reynt að stanza og horfa
til baka af hinum mismunandi
sjónarhæðum.
TlÐARFAR
Þótt hiti hafi verið undir með
allagi má segja að tíðarfar hafi
verið mjög gott. Vorið kom
snemma og jarðargróðri vegnaði
vel í hinni óvenjulegu kyrrð
vors og sumars. Haustið var í
meðallagi og vetur kom mjög
snemma. Framgangur búfénaðar
má teljast góður og afurðir i
hlutfalli við það.
FRAMKVÆMDIR
Framkvæmdir hafa verið mjög
iitlar, sé miðað við byggðarlag-
ið í heild ,en áfram hefur verið
haldið með fyrsta áfanga
Reyfkhólaskólans og fer þeirri
byggingu senn að ljúka.
Ákveðið mun vera að hefja
byggingu annars áfanga á vori
komanda.
Nú má teljast víst að þaraæv-
intýrinu sé lokið, því að vélar
stöðvarinnar voru fluttar suður
rétt fyrir jólin og eitt húsið enn
Stendur ónotað á Reykhólum.
Ræktunarframkvæmdir hafa
verið litlar á árinu enda fjár-
hagsafkoma ' byggðarlagsins i
heild erfið.
heilbrigðismAl,
Læknislaust hefur verið hér síð
an í júlí í sumar, er
Þórhallur B. Ólafsson fór
frá Reykhólum, en að undan-
fömu hefur læknirinn í Búðar-
dal, Haukur Magnússon komið
hingað á stofu tvisvar í mán-
uði, Hér er starfandi héraðs-
hjúkrunarkona, frú Brynhildur
Sigurðardóttir, kona sóknar-
prestsins hér, séra Sigurðar H.
Guðmundssonar.
Stundum er erfitt að þegja,
þegar komið er inn á heilbrigðis
mál dreifbýlisins, enda læt ég
það eftir mér að leggja orð í
belg, þegar á þau er minnzt, og
jafnvel þó að ég gefi tilefni til
þess sjálfur. Læknisskortur
I dreifbýli er staðreynd, sem
ekki er hægt að mæla á móti.
Hins vegar er enginn hörgull á
skattheimtumönnum. Island er
rekið í dag sem borgríki og hef
ég síður en svo á móti því að
eiga fallega höfuðborg, en með
þeirri stefnu, sem nú ríkir, herð
ir hún sjálf smátt og smátt
snöru að eigin hálsi, og þar með
mun hún draga þjóðina alla
fram af gálgaásnum.
Þingmenn eru flestir reyk
viskir borgarar og má því segja,
að Alþingi sé nokkurs konar yf-
irborgarstjórn Reykjavíkur.
Sú þjóð, sem lætur útlimi sína
visna vegna næringarskorts,
hlýtur fyrr eða síðar að koll-
steypa sér sjálf.
Ekkert byggðarlag getur þrif
Izt nema það hafi heilbrigðis-
þjónustu í lagi og hafi skóla-
kerfi með svipaða aðstöðu og
skólakerfi þéttbýlis. Ekkert
byggðarlaig getur þrifizt án trú
arlífs og því er nauðsynlegt, að
öll prestaköll landsins séu skip-
uð. Svo má þéttbýli ekki arð-
ræna svo dreifbýli að tekjumun
ur verði sjáanlegur.
KOSNINGAR
I sumar fóru fram kosningar
og eftir þær tók við ný stjórn
og er það í fyllsta máta eðlilegt
að hinir mörgu flokkar þjóðfé-
lagsins skiptist á að halda um
stjórnartaumana og hin óliku
sjónarmið fái að sjá dags-
ins ljós.
Hin svonefnda vinstri stjórn
er búin að breyta miklu og
stundum finnst mér að fyrir-
hyggja sé næsta lítil.
Framsóknarmenn reyna að
vera kaþólskari en páfinn,
til þess að koma á sig vinstra
orði og mega þeir gæta sin vel
að verða ekki að trúð á þeim
vettvangi, Ég hafði einu
sinni þá skoðun, að Framsóknar
flokkurinn væri nokkurs konar
bændaflokkur, og þeir þykja nú
vist heldur ihaldssamir, og því
hefði mátt ætla að hann gæfi
bændum annað i jólagjöf en fyr-
irheit um þyngri skatta á árinu
1972. Ég vissi, að Ingólfur Jóns-
son var góður landbúnaðarráð-
herra, en hitt vissi ég ekki, að
Framsóknarmenn hefðu talið
hann það góðan, að sjálfsagt
væri að rýra kjör bænda, og þar
miða ég við nýgerða samninga
við þá lægst launuðu. Af hverju
var bændum ekki leyft að fljóta
með?
FJÖLMIOLAR
Ég verð að játa það, að ég
hlusta frekar lítið á útvarp, en
horfi frekar á sjónvarp,
en stundum heyri ég bæridaþætt
ina í útvarpinu, og er ég oft
undrandi á þvi, hvernig þessir
þættir eru uppbyggðir. Þó fljóta
góðir þættir með svona til bragð
bætis. Sumir tala til bænda eins
og þeir væru andlegir fábjánar,
og skal ég taka dæmi máli mínu
til stuðnings. Einn náunginn var
að tala um garnaveiki og út-
breiðslu hennar og sagði okkur,
að við mættum ekki bólusetja
þannig að stinga nálinni í gegn-
um húðfellingar og sprauta bólu
efninu út í loftið, og sumir okk-
ar teldu, að bólusetningin hefði
eklki heppnazt nema að grætfi í
stungusárinu.
Einu sinni var líka sagt, að ís-
lenzkir bændur væru gallagrip-
ir vegna þess, að þeir gætu tal-
að um fleira en ær og kýr. Sem
betur fer geta flestir bændur tal
að um fleira þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir i þá átt að afmennta
þá. Þess vegna er slíkur mál-
flutningur enn sem komið er
óþarfur.
Það er hægt að hrjóta hlut-
leysi útvarpsins á fleiri en einn
hátt og það er gert ár eftir ár
án þess æmt sé, og þar á ég við
hlutleysisbrot gagnvart hin-
um dreifðu byggðum landsins.
Ríkisútvarpið leitar vart út fyr-
ir borgarmúrana, ef það á kost
á öðru. Okkur á að skiljast, að
fólk standi þar á svo lágu tnenn
ingarstigi, að svo virðuleg stofn
un megi ekki misbjóða Reykvík-
ingum með því að leyfa þeim að
hlusta á raddir utan af landi.
Reyndar kemur það fyrir, að
Sjónvarpið stillir einhverjum
bónda upp á hól og spyr hann á
fávísan hátt og stundum sjást
kýr hlaupa út úr fjósi og er það
góðra gjalda vert. Það væri
ljótt að segja, að þessir f jölmiðl-
ar gengju reykviskan tómagang
svo stuðzt sé við hugmynda-
kerfi Kiljans.
Einn skemmtilegasti viðtals
þáttur, sem sjónvarpið hef-
ur sýnt, var viðtalsþáttur, er
brezka sjónvarpið hafði við
Jónas Árnason. Hann vann þar
stóran persónulegan sigur þótt
ihann yrði að aifneita pólitískum
foreldrum sínum, kommúnistum.
Alþingi hefur veitt málgögn-
um flokkanna styrk til þess að
vernda núverandi flokkakerfi
að mér skilst. Það verður miklu
erfiðara fyrir þá, sem hafa löng-
un til þess að stofna nýjan
flokk að koma málflutningi sin-
um á framfæri. Ég geri þá kröfu
til Alþingis, að það tryggi skoð-
anafrelsi hins almenna borgara.
Ekkert málgagn stjórnmála-
flokkanma hefur skyldur til þess
að birta greinar um stjórnmál,
séu þau ekki sammála efni og
túlkun.
Ekkert dagblað hefur heldur
haft þann þroska að gera slíkt
nema Morgunblaðið.
Reyndar er víst leyfilegt að
láta prenta slikar greinar
og gefa út á kostnað höfundar.
Enginn kjósandi hefur heldur
gefið alþingismönnum neitt
umboð til þess að einoka og
binda skoðanir fólks við hina
fimm flokka. Tökum dæmi. Ef ég
semdi grein, sem ég fengi ekki
með góðu móti birta, og þar
skiptir engu máli mat annarra á
greininni, vil ég geta sent full-
trúa ríkisins hana og hann síð-
an komið henni á framfæri,
svo almenningur ætti þess kost
að sjá hana. Þessi fulltrúi hefði
ekkí íeyfi til þess að leggja
á hana persónulegt mat, ef
greinarhöfundur skrifar und-
ir nafni. Við þessar kvaðir ættu
styrkir til málgagna flokkanna
að vera bundnir og þau gætu
síðan sett krossa þrjá yfir grein-
ina svo auðskilið væri að þeir
væru henni alls ekki sammála.
Ég er hræddur um, að menn á
borð við Einar í Mýnesi
yrðu illa settir, ef þeir þyrftu
að krjúpa fyrir ofstækisblöðum
á borð við Þjóðviljann með birt-
ingu greina sinna.
KIRKJA
Við erum hér svo heppnir að
hafa prest og hefur kirkjusókn
verið allgóð á árinu. Kirkjunni
á Reykhólum hafa borizt vegleg
ar gjafir á árinu og þar á meðal
sæti í kirkjuná teiknuð af Jóni
Ólafssyni í Reykjavík, en kven-
félag og söfnuður bar að mestu
"hita og þunga dagsins af þeirri
framkvæmd. Á aðfangadags-
kvöld féll messa niður vegna
veðurs, en á jóladag var embætt
að, og þrátt fyrir erfiða færð
var nokkuð margt fólk i kirkju.
Á annan jóladag fór svo sókn-
arpresturinn gangandi inn I
sveit til þess að skíra barn.
Það hefur farið í vöxt að
kirkjur séu kynntar í útvarpi
og er það vel. Yfirstjórn kirkj-
unnar skulu færðar þakkir fyr-
ir slíka fyrirhyggju og menning
arframtak. Það eru ískyggilegar
fréttir að vita til þess, að stöð-
ugt fækkar prestum, sem
vilja þjóna úti á landsbyggðinni
og á ríkisvaldið eins og oft áð-
ur stærstu sökina. Á meðan það
sér efcki út yfir Stór-Reykja-
vík, er ekki von á góðu. Hins
vegar hef ég þá trú á presta-
stétt landsins, að hún geri sitt
til þess að leysa þessi vandamál
og gæti verið nauðsynlegt að
breyta mjög prestskosningum og
jafnvel leggja þær niður með
öllu og prestar gengju fyr-
ir brauðum eftir embættisaldri.
Einnig er nauðsynlegt að söng-
málastjóri þjóðkirkjunnar kynni
sér starfsaðstöðu organista og
geri raunhæfar tillögur til úr-
bóta, því að svo er komið mál-
um, að mjög erfitt er að fá org-
anista í kirkjur dreifbýlis-
ins. AUt virðist stefna að sama
brunni hjá ríkisvaldinu is-
lenzka.
I sjálfu sér kemur það ekki
kirkjunni við, nema óbeint, það
sem ég ætla að segja við Rauð-
sokkur og áhuga þeirra á fóst-
ureyðingum. Hins vegar er kom-
ið að viðkvæmu máli bæði frá
þjóðhagslegu og trúarlegu sjón-
armiði,
Min skoðun, þótt léttvæg sé, er
sú, að vart megi slaka á klónni
í þeim efnum, enda ætti ekki
andlega heilbrigðri konu að
vera ofraun að skila þjóðfélag-
inu 3 til 4 einstaklingum, og
verði börnin fleiri verður þjóð-
félagið að hlaupa undir bagga
og veita ríflega aðstoð.
Einu sinni var „afturganga"
hér vestur í Reykhólasveit, sem
bar nafnið Rauðsokka og
hrekkti hún illa fólk, sem átti
leið um Barmahlíð, og einkum
mun það hafa verið í myrkri, og
er sagt að einna verst hafi hún
farið með Jón Pálsson, hrepp-
stjóra á Miðhúsum, en hann var
bróðir Gests Pálssonar skálds.
Annars munu fara af Rauð-
sokku litlar sögur hin síðari ár,
og hver veit nema hún hafi setzt
að hjá nöfnum sínum í Reykja-
vik.
FÓLKSFÆKKUN
Hér um slóðir fækkar fólki ár
frá ári, og það er víst talið eðli-
leg þróun af rikisvaldinu. Hins
vegar mun þetta byggðar-
lag vera komið inn á alvarlegt
svið og verði ekki hraustlega
tekið í taumana nú þegar, gæti
svo farið að við sumarferða-
fóiki blasti auð og yfirgefin býli,
og er ég þá kominn að sama
markinu aftur. Fari sveitirnar í
eyði kallar Reykjavíkursvæðið
yfir sig sinn dauðadóm.
Hins vegár virðist stjórnmála-
mönnum lítill akkur í að við-
halda jafnvægi í byggð landsins
nema þá helzt 1 kosninga- og
skálaræðum. Eða með öðrum orð-
um: Sveitafóllk virðist búa fyrir
utan lögsagnarumdæmi Reykja-
víkur.
Einu sinni hrundi í rúst borg-
ríki, sem var talið eitt mesta
stórveldi, er uppi hefur verið.
Einn stór þáttur í þvi, að þetta
heimsveldi valt, var, að þeir
tæmdu sveitirnar af fólki. Hvað
í>á um lítið borgriki norður við
heimskautsbaug. Sú hætta fylgir
ætið lýðræðisskipulagi, að hin-
um ýmsu þáttum þess verði of-
boðið vegna sjálfsmetnaðar og
valdalöngunar hinna ýmsu
stjórnmálamanna. Ég hefði hald
ið, að okkur hefði vantað annað
meira en stytting vinnutímans,
eða tókst Viðreisnarstjórninni
að gera efnahagskerfi okkar svo
traust ,að vinstri stjórnin telji
að ekki sé hægt að velta því um
koll og því sé hægt að láta eins
og börn í boltaleik. Ef tölva Há-
skólans sýnir ekki þá útkomu
sem ríkisstjórnin óskar helzt að
fá, er talið að tölvan hafi fengið
innanverki, og þá segir stéttar-
bróðir minn Björn á Löngumýri
að tölvan gangi vitlaust.' Er ég
alveg hissa á Birni, þar sem
hann hlýtur að vera fom-
býll að gefa ekki tölvunni verk-
og vindeyðandi dropa. Það þótti
einu sinni allgott húsráð og var
til á flestum heimilum.
Hvað sem hver segir þá er það
staðreynd, að mjög verður erfitt
að fá fólk til þess að flytjast úr
borg í sveit, þegar öll tengsl
hafa rofnað við sveitina.
Ég hef gaman af því að sjá
Framsóknarmenn skýra það út
fyrir húsmæðrum og öðrum vel-
unnurum Kvenfélagasambands
Islands, hvers vegna þeir þing-
menn þeirra studdu þær Ingu
Birnu Jónsdóttur og Svövu
Jakobsdóttur að setja sam-
tök kvenna í úrkast á meðan
þeir verðlauna „friðardúfur“
kommúnista. Ég held að liturinn
einnig farið, að endalok málsins
á þeim sé vel svartur og hefði
átt að vera hverjum lýðræðis-
sinna auðþekktur.
ÝMSAR FRÉTTIR
Á gamlárskvöld urðu prestur,
séra Sigurður H. Guðmundsson
og organisti, að snúa til baka
vegna þess að Laxá í Reykhöla-
sveit var að ryðja sig. Þá varð
messufall í annað sinn í Garps-
dalssókn á þessum jólum. Það
má segja, að um meirihluta sýsl-
unnar séu aðeins ruðningsvegir
og vegagerð sér um að opna að-
eins i Króksfjarðarnes á þriðju-
dögum. Hvers vegna ekki í Reyk-
hóla. Svona eru allar bækur rík
isvaldsins. Það er sparað þar
sem á ekki að spara og krón-
unni fleygt þar sem engin þörf
er á.
Nokkru fyrir jólin brann lítið
hús á Ingunnarstöðum í Geira-
dal til ösku og varð nær engu
bjargað. 1 þessu húsi
bjuggu öldruð hjón, Daníel Ól-
afsson og Ragnheiður Árnadótt
ir frá Tröllatungu í Stranda-
sýslu, og standa þau uppi slypp
og snauð. Þessi hjón eru vel
þekkt hér fyrir vestan. Daniel
fyrir margháttuð félagsstörf í
sinni heimabyggð um langt ára
bil, en Ragnheiður ljósmóð-
ir. Hún hefur ræktað einn feg-
ursta garð vestur hér og sýnt
með því, að góð umhyggja getur
keppt við óblíða veðráttu
og sigrað. Tröllatunga var höf-
uðból um þeirra daga og mun
geyma minningu þeirra um ókom
in ár.
Nú fer þessu áramóta-
rabbi mínu að ljúka. Ég
geri mér það Ijóst, að það hefði
mátt gera hinum ýmsu þáttum
betri skil. Ég veit, að sumir
verða mér gramir og telja að ég
snobbi ekki nóg fyrir hinum svo
nefndu vinnandi stéttum. Ég er í
þeirri sveit og þarf því ekki á
því að halda að smjaðra fyrir
sjálfum mér. Sumir reyna að
finna annað út úr greininni en
þar stendur og gera þeir
það fyrir sjálfa sig.
Lesandi góður, ég þakka þér
og óska þér árs og friðar.
Framh. af bls. 7
Þessí númer hlutu 2000 kr. vínníng hverti
0070 18696 18193 24601 29299 83653 89049 .43822 48199 52837 56995 81010
0091 13782 18405 24605 29494 83706 89061 43900 48200 62877 '57050 61103
0148 13835 18633 24724 29537 83789 89263 44058 48275 53062 57082’ 61188
0210 13893 18665 24745 29538 84064 39310 44081 48490 63130 67157 6158T
0294 13932 Í871S 24923 29606 34066 89355 44110 48711 Ö3Í37 57220 61725
0371 13978 18721 24937 29681 84252 89393 44262 48723 53226 57245 61761
0422 14171 18780 24964 29710 34288 39435 44403 48775 53271 57313 61803
0439 14191 18960 24990 29723 34426 89444 44490 48907 53329 57334 61903
0514 14276 19050 25085 29763 84706 39693 44551 48909 53490 57360 61920
0522 14301 19183 25116 29949 34707 39764 44599 48940 53512 57364 61963
9533 14380 19439 25229 29979 34839 39769 44648 49045 53519 57380 62100
0818 14524 19445 25291 30018 34853 89770 44775 49107 53564 57400 62199
0823 14618 19469 25407 30121 34874 89806 44797 49217 53566 57468 62861
0840 14649 19610 25747 30177 34947 39827 44912 49233 53580 57473 62183
0844 14674 19903 25780 80178 34958 89856 44920 49309 63627 57563 62610
0871 14700 19928 25794 80194 35121 89886 44960 49395 53719 57624 62690
9887 14828 19970 25822 30295 85219 89996 45019 49429 53769 67693 62619
0994 15013 19994 25893 30400 35266 40117 45038 49439 53785 57701 62719
10159 15058 20034 25938 80410 35459 40148 45154 49549 53788 57710 62724
10224 15065 20057 26035 80464 85496 40197 45241 49644 53831 57724 62878
10290 15384 20152 26104 80476 35572 40292 45258 49652 53868 57820 62904
10562 15403 20356 26163 30520 35575 40433 45404 49866 53873 58033 6294T
10688 15473 20432 26193 30689 85593 40540 4555S 49947 53881 58144 62949
10690 15488 20483 26293 30727 35631 40610 45578 50032 53942 58169 62975
10710 15593 20488 26332 80763 35776 40712 45602 50090 54211 58197 68175
10759 15611 20545 26581 30863 35930 40763 45606 50146 54413 58215 68273
10824 15708 20079 26805 31036 35939 40818 45683 50308 54428 58249 68319
10862 10893 15745 15762 20793 20838 26845 26906 81071 81102 36099 36255 40872 41279 45725 45762 50375 54462 58368 58384 6332T
10967 15973 20852 26915 31130 86295 41298 45812 50472 54500 58399 6335T
10988 15999 20993 27098 31188 86348 41335 45869 50478 54558 58410 68369
11143 16044 20999 27138 31281 36359 41474 45896 50482 54624 58457 63143
11191 16052 21072 27160 31290 36417 41524 45930 50490 54657 58490 63176
11232 16054 21086 27209 31309 36431 41606 46143 50517 54670 58496 63189
11261 16124 21191 27245 31314 36544 41628 46261 50751 54728 58528 63591
11279 16136 21251 27333 31328 36608 41677 46383 50772 54830 58570 63693
11303 16193 21313 27439 31348 36690 41746 46496 50806 54840 58579 63593
11366 16248 21423 27475 31383 36701 41764 46497 50985 54851 58613 63633
11462 16393 21444 27490 31422 36931 41814 46519 50989 54932 58703 63779
11553 16410 21537 27526 31569 S6957 41899 46522 51026 54936 58877 63833
11783 16426 21860 27540 81709 36969 41922 46541 51177 54954 58898 61177
11802 16431 21885 27630 31821 86989 41961 46544 51262 55023 58912 61223
11813 16559 21937 27753 31862 37238 42138 46555 51264 55158 58967 61239
11824 16575 22009 27837 31890 37247 42289 46612 51417 55197 59033 61283
11994 16787 22211 27845 31928 37257 42345 46656 51595 55226 59276 64629
11997 16841 22214 27870 31991 37332 42355 46695 51605 55280 59301 61517
12079 16996 22360 27876 32064 37451 42414 46670 51688 55406 59321 64604
12127 17046 22744 27908 32168 87494 42433 46786 51730 55480 59348 61711
12195 17141 22899 27928 32197 37557 42441 46928 51882 55531 59509 61768
12327 17155 22954 27985 32200 37599 42531 46965 51883 55588 59518 64884
12345 17196 23109 27992 32250 37684 42757 46979 51923 55677 59614 64943
12350 17449 23182 28038 32505 37695 42854 47006 51949 55728 59655 64963
12491 17481 23284 28085 32593 37745 43198 47437 61954 55748 59650 61931
12520 17542 23406 28143 32596 37815 43207 47447 52037 55798 59957
12555 17572 23482 28149 32676 37975 43251 47593 52074 55894 60038
12622 17578 23699 28176 32728 37997 43322 47654 52219 55983 60068
12679 17594 23727 28271 32791 88030 43324 47792 52232 56128 60137
12706 17735 23825 28309 32822 38084 43368 47796 52371 56171 60151
12776 12869 17779 17784 23892 23957 28325 28407 32923 32934 38456 38497 43426 43440 47847 47855 52381 66179 56333 60204 60238
18033 17877 24023 28740 33155 38632 43501 47973 52411 56375 60429
13039 17985 24069 28807 33278 38642 43543 48010 62428 56408 60437
13342 17996 24080 29003 33347 88750 43568 48027 52457 56444 60501
13398 18009 24156 29043 33461 88795 43611 48036 52493 56479 60718
13432 18023 24260 29134 33485 38793 43616 48111 52499 56654 60734
18514 18112 24478 29216 33514 38803 43662 48131 52678 56877 60818
13563 18187 24539 29264 33539 88842 43681 48152 527,03 62737 56884 66978 60858 «0007