Morgunblaðið - 13.01.1972, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1972
Útgefandl hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjórl Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
AðstoSarritstjórl Styrmir Gunnarsson.
Fréttastjórl Bjöm Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Ami Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsfa Aðaistræti 6, simi 10-100.
Augiýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80.
Áskriftargjaid 225,00 kr. ð mánuði innanlands.
I lausasöiu 15,00 kr. eintakið.
ÞJÓÐARHAGUR f HÆTTU
Ástæða er til að rifja upp,
hvernig hagur þjóðar-
búsins var við stjórnarskipt-
in á sl. sumri. Um það segir
ef til vill skýrasta sögu sá
vitnisburður hinnar nýju
ríkisstjórnar, að hún mat
ástandið á þann veg, að at-
vinnuvegirnir og þjóðarbúið
gætu risið undir 20% kaup-
máttaraukningu, lengingu
orlofs og styttingu vinnu-
viku. Hafði kaupmáttur
launa þó aukizt um 20% frá
því í maímánuði árið áður.
Nu vill svo vel til, að for-
sætisráðherra hefur svarað
því á Alþingi, á hverju þetta
mat ríkisstjórnar hans var
byggt. Honum fórust svo orð:
„Að sjálfsögðu var ríkis-
stjórnin búin að kynna sér
þau gögn, sem lágu fyrir, og
þær upplýsingar, sem hún
fékk í hendur frá ýmsum
aðilum, áður en hún gaf
sína yfirlýsingu út. Þetta var
hennar mat þá á þeim gögn-
um, sem fyrir lágu, að þann-
ig væri hægt að standa að
málum, að því markmiði,
sem þar var sett fram, yrði
náð.“
Er forsætisráðherra gerði
árið 1971 upp í áramótagrein
sinni í Tímanum, kemur
fram, að fyrri skoðun hans
hefur ekki breytzt, en þar
segir hann m.a.: „Þegar á
heildarmynd efnahagsmála
er litið og afkoma atvinnu-
veganna skoðuð, er Ijóst, að
árið 1971 hefur verið gott
ár.“
Það leikur þannig ekki á
tveim tungum, að ríkisstjórn
Ólafs Jóhannessonar settist í
gott bú, — og betra en nokk-
ur ríkisstjórn önnur hér á
landi. Og þess nýtur hún
enn. Stefnubreytingarinnar í
atvinnu- og efnahagsmálum
er enn ekki tekið að gæta að
marki í atvinnulífinu, þótt
þess verði víða vart, m. a. í
stórhækkuðu fasteignaverði,
að nokkur kvíði er farinn að
setjast að mönnum.
Ingólfur Jónsson gerði
þessi mál að umtalsefni í
athyglisverðri grein í Morg-
unblaðinu sl. laugardag.
Hann lýkur grein sinni með
svofelldum varnaðarorðum:
„Síðan ríkisstjórnin komst
til valda er margt breytt.
Stuðningsmenn ríkisstjómar
innar voru bjartsýnir fyrir
sex mánuðum. Þá trúðu
ýmsir því, að ríkisstjórn
„vinnandi stétta“ mundi
veita almenningi bætt lífs-
kjör og aukinn kaupmátt
launa. Nú munu þeir vera
fáir, sem reikna með þeim
möguleika eftir þá reynslu,
sem fengin er. Framfara-
stefnu fyrrverandi ríkis-
stjómar hefur verið kastað
fyrir borð. Stjórn efnahags-
og fjármála er í molum.
Fjárlagaafgreiðslan ber með
sér ábyrgðarleysi og kyndir
undir verðbólguna. Þegar
þannig er að málum staðið,
getur enginn búizt við því,
að kaupmáttur launa verði
aukinn, þótt kaupið hækki í
krónutölu. Við þau skilyrði
má búast við, að þjóðarhag-
ur sé í hættu og lífskjör al-
mennings fari versnandi
með minnkandi kaupmætti
launa.“
Útlánaaukning lá fyrir í vor
að er órækur vitnisburður
um hag landbúnaðarins
eftir erfiðleika- og harðinda-
árin, að á síðastliðnu ári
jukust lán Stofndeildar land-
búnaðarins um 113,5 millj.
kr. eða í 254,7 millj. kr. frá
árinu á undan. Ástæðan til
þess, að þetta var mögulegt,
var að sjálfsögðu sú, að það
lá fyrir þegar í vor, að þá-
verandi landbúnaðarráð-
herra, Ingólfur Jónsson,
hafði fyrir hönd ríkisstjórn-
arinnar ábyrgzt, að Stofn-
lánadeildina mundi ekki
skortá fé til þess að standa
við skuldbindingar sínar, og
var þá miðað við 252,5 millj.
kr., eins og fram kemur í
upplýsingum Búnaðarbank-
ans, sem birtar vom í Morg-
unblaðinu í gær. Eftir að
þessar upplýsingar lágu fyr-
ir í maímánuði, sendi stofn-
lánadeildin út lánsloforð og
gátu framkvæmdir því haf-
ízt með eðlilegum hætti.
Svo kunnug sem þessi saga
er allri bændastéttinni er
það sannarlega spaugilegt,
þegar sá maður, sem titlað-
ur hefur verið „aðstoðar
landbúnaðarráðherra“, gefur
þær upplýsingar í Tímanum,
„að í Ijós hefði komið í. sum-
ar, strax eftir stjómarskiptin,
að lánsfjárþörf hefði reynzt
verulega meiri en undanfar-
in ár, þannig að mikið skorti
á, til að unnt væri að full-
nægja lánabeiðnum miðað
við það fjármagn, sem ætl-
að hefði verið til þessara
verkefna." Hér er hlutunum
algjörlega snúið við. Þegar
stjómarskiptin urðu var lið-
ið á annan mánuð, síðan láns
loforðin vom send út og
framkvæmdir í fullum gangi.
Stjórnarskiptin gátu því
engu breytt um lánsfjár-
þörfina, en hitt hlaut að
reyna á, hvort hin nýja rík-
isstjóm treysti sér til þess
að standa við skuldbindingar
|
Bækur ársins 1971:
Gagnrýnendur
gera upp hug
við áramót
Gagrnrýnendur brezka stór-
blaðsins The Times völdu í árs-
lok þær bækur, sem að þeirra
dómi töldust „bækur ársins
1971“. Gagnrýnendur, sem
völdu, voru 18 talsins og féll val
þeirra á 15 bækur. Þrjár bæk-
ur náðu vali tveggja gagnrýn-
enda „Girl 20“, skáldsaga Kings
Iey Amis, „Henrik Ibsen“ eftir
Michael Mayer og „The Com-
pact Edition of the Oxford Engl
isli Dictionary“, þar sem hið
mikla þrettán binda verk er
dregið saman í tvö bindi.
Brien Alderson velur A Game
of Dark, skáldsögu eftir Willi-
am Mayne, sem hann segir að
skapi fínlega sögu með einföld-
um stíl og hægri kímni.
A.S. Byatt velur sér Spenser,
Shakespeare, Donne eftir Frank
Kermode. Byatt segir þessa bók
byggða á skarpri innsýn í hug-
tök og venjur endurreisnartSma-
bilsins og Kermode sé einkar
lagið að lýsa þeim sérstöku eig-
inleikum þessara rithöfunda,
sem geröu þá að stórskáldum.
Kay Dick velur Katherine
Mansfield. The Memories of
L.M., sem Georgina Joyismith rit
stýrir, og segir þessa bók verð-
uga viðbót við sögu hinnar mik-
ilhæfu skáldkonu.
Philip French velur Los Ang-
eles: The Architecture of Four
Eoologies eftir Rayner Banham
og gefur þær ástæður m.a. fyrir
valinu, að þessi bók veki til um
hugsunar um tengsl milli bygg-
ingalistar, lista og mannlífsins í
borgunum.
Ray Gosling segist hafa byrj-
að nokkuð hikandi á Being
There eftir Jerzy Kosinski, en
segist svo ekki hafa getað lagt
söguna frá sér fyrr en fulllesna
og þá hafi hann staðið á önd-
inni af hrifningu.
John Higgins segir það létt
verk að velja skemmtilegustu
bók ársins og nefnir til þess
skáldsögu Kingsley Amis Girl
20, sem hann segir að beri höf-
uð og herðar yfir aðrar bækur
í sínum huga.
Ohristopher Hitohens segist
efnisins og stílsins vegna velja
fangelsisminningar George
Jackson, Soledad Brother. Jack-
son var myrtur í fangelsinu og
bók, sem nú hafi lifað höfund
segir Hitchens, að þessi
sinn, sé likleg til mikils lífs enn
um sinn.
Richard Holmes velur bók
Arthur Koestlers um Dr. Paul
Kammerer, The Case of the Mid
wife Toad. Kammerer var heims-
þekktur lífeðlisfræðingur, sem
framdi sj'álfsmorð vegna ákæru
um svik við rannsóknir.
Michael Holroyd segir að
1971 hafi verið ár góðra sjálfs-
ævifrásagna og nefnir til H.E.
Bates, David Daiches, Graham
Greene og V.S. Pritohett. Végna
þessara stóru nafna segir hann
hættu á því, að aðrar góðar frá-
sagnir falli nokkuð í skuggann
og segist þvi velja Bound Upon
a Course eftir John Stewart
Collins þar sem hún sé í sjálfu
sér engu síðra verk en hin.
H.R.F. Keating telur þó ekk-
ert vafamál að val hans falli á
bók Graham Greene A Sort of
Life. Segist hann velja hana
hiklaust, þar sem hún sé sjálfs-
ævisaga sanns rithöifundar, sem
skilji til fulls, að skriftir séu
það, sem mestu máli skiptir í lífi
rithöfundar.
Marghanita Laski og Robert
Kingsley Amis.
Nye eru sammála um að velja
tveggja binda Oxford English
Dictionary, sem komi ágætlega I
stað stórverksins, sem telur 13
Times
sinn
bindi. Að vísu er letrið í bind-
unum tveimur smátt, en þeim
fylgir stæfckiínargler, sem leys-
ir vandann fullkomlega.
James Morris velur skáld-
sögu Kingsley Amis Girl 20 og
segir, að hann hafi ekki síður
haft gaman af að lesa bðkina
en Amis hafi greinilega haft af
að skrifa hana.
David Piper lætur val sitt
falla á Is That the Wind in the
Willows? eftir Geoffrey Clarfee
og segist þrátt fyrir margar góð
ar bækur ársins velja þessa
fyndnu pappirskilju þá bezbu.
„(Örugglega eina bókin, sem ég
hef lesið 20 sinnum)“.
Dennis Potter segist lóks hafa
ákveðið að taka Henrik Ibsem
eftir Michael Mayer fram yfir In
a Free State eftir V.S. Naipaul
og Michael Ratcliffe er honum
sammála. Báðir hæla þeir mjöig
þessu verfei Mayers, sem reynd-
ar telur þrjú bindi, og segja, að
ekkert bókasafn geti verið án
þessa verks um skáldjöfurinn
norska,
Philippa Toomey velur Diary
of a Century ljósmyndabófe
Frakkans Jacques Henri Larti-
gue, sem Toomey segir sanna
með þessari bók elsku sína gagn
vart náunganum.
David Williams velur The
English Experience eftir John
Bowle. Segir Williams að Bowle
sfeynji fortíð þjóðar sinnar frá-
bærlega og það hana alla og að
bók hans geymi söguágrip eins
og það bezt geti orðið.
Henrik Ibsen.
fráfarandi landbúnaðarráð-
herra um eðlilega lánafyrir-
greiðslu til handa landbún-
aðinum. Reynslan hefur nú
sýnt, að svo var, enda annað
óverjandi með öllu, úr svo
miklu sem ríkisstjórnin hef-
ur haft að spila til margs
konar þarfa, meira og minna
nauðsynlegra, síðan hún tók
við.
Kennedy
ekki í
framboð
Waahington, 12. jan. — NTB
EDWASD Kennedy ætlar aí
fara þess á leit að nafn hans
verði strikað út af lista detnó-
krata i forkosningunum fyrir
landsþing detnókrata í Flor-
ida 14. marz, að því er frá var
skýrt í dag. Kennedy hefur marg
oft sagt að hann keppi ekkl að
því að verða tilnefndur forsetw
efni demókrata. Edmund Muskie
óldungadeildarmaður nýtur enn
mests stuðnings þeirra seen
beppa að því að verða forseta-
efui demókra'n samkvæmt síð
ustu skoðanatö i ii' lum.