Morgunblaðið - 17.03.1972, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐ]©, FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1972
7
DAGBOK
BARMNNA..
BANGSIMON
og vinir hans
þá. Þegar Jakob fór úr
frakkanum og Grislingur-
inn sá að axlaböndin voru
alveg eins blá og falleg og
hann minnti, þá var hon-
um alveg sama, hvað Asn-
inn sagði, brosti bara til
hans og hélt í frakkahorn-
ið við hliðina á Asnanum.
Og Asninn hvíslaði: „Ég
segi ekkert ákveðið um
það, hvort hér verður slys
núna. Skilurðu það. Slys-
in eru svo einkennileg.
Þau koma alltaf að óvör-
um.“
Þegar Kengúrubarnið
hafði skilið, hvað það átti
að gera, varð það himinlif-
andi og kallaði: „Tígrisdýr,
Tígrisdýr, við eigum að
hoppa. Sjáðu, hvernig ég
hoppa, Tígrisdýr. Þegar
ég hoppa, er alveg eins og
ég fljúgi. Geta Tígrisdýr
gert það?“ Og það skríkti:
„Ég kem, Jakob.“ Og svo
hoppaði það .... og lenti
á miðjum frakkanum, En
það var svo mikill hraði á
því, að það þeyttist upp
aftur, næstum eins hátt og
það hafði verið .... og
það hentist upp aftur og
aftur og sagði: „Ó-ó-ó,“ oft
áður en það hætti að hend-
ast. En þegar það stöðvað-
ist loks, sagði það: „Þetta
var yndislegt." Og svo sett-
ist það niður í grasið.
„Flýttu þér, Tígrisdýr,“
kallaði það. „Þetta er eng-
inn vandi.“
En Tígrisdýrið ríghélt
sér í greinina og sagði við
sjálft sig: „Það má vera, að
þetta sé enginn vandi fyr-
ir „stökk“-dýr eins og
kengúrur, en öðru máli
gegnir um „sund“-dýr, eins
og Tígrisdýr.“ Og það sá
sjálft sig í huganum sigl-
andi á bakinu niður eftir
á, eða syndandi á milli
eyja úti í vatni og það var
alveg sannfært um, að
slíkt ætti mjög vel við
Tígrisdýr.
„Komdu nú,“ kallaði
Jakob. „Þú getur þetta
vel.“
„Bíðið þið augnablik,“
sagði Tígrisdýrið. „Það
hefur eitthvað farið upp í
augað á mér.“
„Flýttu þér nú bara.
Þetta er enginn vandi,“
skrikti Kengúrubarnið og
um leið fann Tígrisdýrið,
að þetta var enginn vandi.
„Æ, æ, æ,“ hrópaði það,
þegar það sá tréð þjóta
fram hjá sér.
FKflMttflbÐS
Srfl&fl
FERDINAND
Finnboga saga ramma
Teikningar eftir Ragnar Lár.
51. Hann kemur á Hlaðir, þar sem jarl réð fyrir.
Gekk Finnbogi með Ragnhildi til systurdætra
jarls, TJlfhildar og Ingibjargar. Þær spurðu, hver
sá var, er svo mikið afbragð er annarra manna.
Finnbogi sagði til sín. Þær undruðust, hve Álfur
hefði fengið honum dóttur sína í hendur, en hann
bað þær gera vel til hennar.
52. Finnbogi leigði sér skemmu og bar þar inn í
það, er hann átti. Hann hélt margt manna með sér.
Einhvern dag gekk Finnbogi fyrir jarl og kvaddi
hann vel. Hann tók kveðju hans og spurði, hver
sá maður væri hinn mikli og hinn vænlegi. Hann
segir til nafns og ættar, og kannaðist jarl við
frændur hans.
brotawiAuviur
Kaupi allan brotamálm hæ-sta
ver6i, staögreiðsla.
Nóatún 27, sími 2-58-91.
TH. LEIGU
bótel með öHu tiiiheynaindi,
starfandii allt árið. Tttlboð,
merkt Hótel 1001, senti«sit
afgir. Mbl. fyrir 29. þ. m.
INNRÖMMUM
myndir og málverk. Ramma-
listar frá Þýzkalandi, Hollendi
og Kina. Matt gler.
Rammagerðin.
Hafnarstræti 17.
HÚSEIGENDUR
Gerum tilboð í þéttingar á
steinsteyptum þökum —
sprungur í veggjum og fleira,
5 ára ábyrgð.
Verktakafélagið Aðstoð,
sírni 40258.
8—22 SÆTA
hópferðabifreiðir til leigu
Einnig 5 manna „Citroen
G. S." leigður út en án bíl-
stjóra. Ferðabílar hf., sími
81260.
NÝKOMIÐ FRA KlNA
Otsaumaðir borðdúkar, stól-
setur og bök, púðaborð og
klukkustrengir. Vandaðar vör-
ur — mjög lágt verð.
Rammagerðin Hafnarstræti 17
Rammagerðin. Austurstræti 3
MEÐEIGENDUR ÓSKAST
Vantar meðútgefendur að
tímariti um þjóðfél.má-l, bó'k-
merintiir o. fl. Tillboð sendist
afgr. Mbl. f. 25/3, merkt Tíma-
rit 1947, eða til undimtaðs
Sveinn Kriistin-sson
Þórufelli 16 (4. hæð) R.
MORGUNBLAÐSHÚSINU
| HUNT |
INNANHÚSSKÓR
HUNT
TÖSKUR
PÓSTSENDUM
SPORTVÖRUV.
Ingólfs
*
Oskarssonar
Klapparstíg 44
simi 11783.