Morgunblaðið - 30.03.1972, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1972
3
Svona lyfta flutti okkur upp 28000 m
sem komu héðan heiman frá
Keflavíkurvelli, við tveiir ís-
lendingar, nokkrir Sviar, Norð
menn og fleiri, sem við náðum
ekki að kymnast. Sumt af þessu
fóliki varð ágætis vdnir otkkar
og góðkunningjar og nutum við
ferðairinnar ekki hvað sízt fyr-
ir elskuleg kynni við þá.
Það var orðið kvöldsett við
Gardavatn, þegar við komum
þangað. Bn okkur var ágæt-
lega tekið á mjög góðu hóteli
rétt fyrir utan smábæinn
Garda. Don Petro-hótelið átti
eftir að færa okkur þau ný-
stárlegustu jól, sem við höfð-
um enn upplifað. Eitt fannst
okkur skritið, að enginn skyldi
tala þar ens'ku, en hins vegar
virtust flestir geta mælt á
þýzka tungu. Allt bjargað-
ist þetta. Við nutum vistarinn-
ar, fengum frábæran viður-
geming og aðhlynningu, bjugg
um i luxus og lifistandi hinu
bezta í mat og drykk og með-
læti öllu.
Strax daginn eftir var haldið
á skíði. Ég verð að segja, að
mér brá nokkuð þegar ég kom
til hótelsins fyrsta kvöldið og
sá hvergi snjókom. Hugsaði
sem svo. Haminigjan sanna! Hér
förum við ekki á skíði.
En koma dagar, koma ráð.
Næsta morgun slengdum við
skíðunum á axlir okkar og
héldum niður í bæ, nokkrir
Ameríkanar, Sviar og við feðg-
in. Við hefðum svo sem getað
sparað okkur þennan gang, þvi
af og til fór bíll frá hótelinu
og niður í bæinn, niður að lyft-
unni, sem lá upp á næsta fjall.
Þar, við lyftuna, sem var feikna
mikið mannvirki, kom ráðning
gátunnar. Raunar voru lyft-
urnar tvær og þær fluttu okk-
ur í lokuðum húsum 2800 metra
upp á fjallið. Þar upp eftir var
nú farið dag eftir dag. Skíða-
brekkur voru við allra hæfi.
Og þarna vom þrjú hötel og
matsölur. Og við gátum fengið
þarna allt sem hugurinn gimt-
ist og það sem mest var af, sól
upp á hvern einasta dag. Bless
uð sól og bjartur snjór var
okkur veitt af allsnægtum þess
ara ítölsku fjalla. Fegurðinni,
þægindunum og ánægjunni af
þessum ferðum gleymi ég
aldrei. Allar heimsins jólagjaf-
ir hefðu ekki getað bætt þetta
upp meðan skammdegið grúfði
yfir okkar elskaða landi norð-
ur við heimskautsbaug.
Ég vaknaði alltaf snemma og
fékk mér þá langa göngutúra
meðfram Gardavatninu, sem er
mjög stórt. Á sumrin skaarta
þar seglskútur og siglingar og
vatnaiþróttir eru þar stundaðar
af kappi. Garda er því gististað-
ur ferðafólks allan ársins
hring. Það er gaman að sitja á
litlu trébryggjunum niðri í
Garda. Ég man sérstaklega eft
ir ednuim morgni þar niðri við
vatnið. Næsta fáir eða engir
voru komnir á fætur. Það var
að birta yfir vatninu og fjalla-
salnum i kringum það. Ég sat
einn og dinglaði fótunum fram
af bryggjunni, en við staurana
gjálfraði meinlaus aldan.
Kyrrðin var algjör, nema þetta
litla gjálfur. Uppi við eina vill
una, en þær eru fjölmargar við
vatnið og í hlíðunum kringum
það, heyrðist hundgá og síðan
vaknaði staðu-rinn hægt og
hægt. Og nú sá ég að ítaiir geta
ekið eins og vitlausir menn, en
þéir aka frábærlega vei, og
þræða krókótta stigu fjalishiið
anna af mikilli leikni. Þeir
þeyta flautur farartækja sinna
við hvert horn og svo hendast
þeir áfram, án þess að hægja
ferðina. Ég sá einn morguninn
sendil koma á mikilli ferð á þrf
hjóli, vélknúnu með vagni aft-
an í. Skammt fyrir framan
var alldjúp dæld í malbikaðan
ve-ginn. Sýnilega var hér mal-
bikað ofan á gamla veginn án
nokkurra annarra breytinga. Ég
hugsaði sem svo, er ég sá að
sendiliinn hægði ekke-rt á sér,
að sá fengi hnykkinn, er i dæíd
ina kæmi. Ekki hægði hann vit
und ferðina. En rétt þegar
Framh. á bls. 23
LOFTLEIDIR
ICELANOIC
»vorið góða
grænt og hlýtt...«
er þegar komið
suður í álfu.
vorlækkun Loftleiða
gildir frá l.apríl -15. maí
FJORIR ,
>, FERÐAFELAGAR”
KASSETTUTÆKI
FRÁ PHILIPS
1. EL 3302 — rafhlöðu kassettu segulbandstæki.
2. N 2202 —„DE LUXE" rafhlöðu kassettu segulbandstæki.
3. N 2204 — rafhlöðu/220 v kassettu segulbandstæki,
4. N 2205 — . DE LUXE" rafhlöðu/220 v kassettu
segulbandstæki.
Auðvitað 4 gerðir, svo þér getið valið rétta ferða-
félagann til að hafa með, hvert sem yður hentar.
Lítið við hjá næsta umboðsmanni og veljið yður
Philips kassettutæki. Það mun henta yður.
— :™l!
-I 'j
iVl
HEIMILISTÆKI SF.
HAFNARSTRÆTI 3 - S(MI 20455