Morgunblaðið - 30.03.1972, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÖIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1972
23
— Italía
Framh. af bls. 3
han<R nálgaðist hana, lyfti
hann sér í sætinu, og þeg-
ar hjólið kom upp úr dældinni
blátt áfram flaug það upp í sitj
andann á honum og hann hélt
áfram sinni glæfralegu för. Það
varð mér að vana að hendast
út á vegarbrún er ég heyrði
hom þeytt einhvers staðar i
námunda og það brást ekki að
fyrir næsta hom kom fara-
tæki á fullri ferð.
Hress og endurnærður kom
ég úr þessum morgungöngum á
hæfilegum tíma til að setjast að
morgunkrásum með hinu ágæta
rauðvíni Rocco Riviera sem
þorstadrykk.
Þannig liðu dagarnir og nú
var kominn aðfangadagur jóla.
Sænsk stúlka og amerisk höfðu
safnað nokkru fé hjá okkur,
sem vildum taka þátt í jóla-
gleði, sem þær efndu til í einu
herbergjanna. Þær keyptu öll
ósköpin af jólagjöfum, flestar
ódýrar auðvitað og i sumum
pökkunum var aðeins epli eða
appelsína. En pakkarnir voru
því fleiri. Nú kom að því að
deila gjöfunum. Þær gerðu það
með þvi að taka nokkra pakka
og henda þeim í loft upp en
við hin gripum eftir því sem
við náðum til. Mér hlotnaðist
forláta lyklahringur, rakvatn,
appelsína og sitthvað fleira smá
dót. Þetta er skemmtilegasta
jólagjafafyrirkomulag, sem
ég hef upplifað og fylgdi þvi
mikill hlátur og kátína. Þann-
ig er hægt að gera mikið gam-
an úr litlum efnum.
Og blessuð jólin hurfu í.sól,
snjó og gleði. Dansað var á sið
kvöldum, eða setið og hlustað
á hljómlist, skrafað og skegg-
MORGUNBLAÐSHÚSINU
rætt. En þessir sæludagar voru
alltof fljótt á enda.
Skyndilega vorum við aftur
á leið með rútubíl til Milanó
og siðan með Caravellu aftur
ofar skýjum Alpafjallanna.
Ákvörðunarstaðurinn var
enn Kaupmannahöfn. Þar var
hráslagakuldi, en íslenzk hjón
tóku á móti okkur og drifu
okkur til miðdegisverðar, sem
við Islandsfararnir þágum af
Sunnu.
Næsta dag var svo litið
í búðir og undir kvöld haldið
á flugvöllinn þar sem Loftleiða
vélin flutti okkur á ný norður
á gamla Frón.
Sólin á Ítalíu var að baki en
framundan grámóska norð-
ursins. Við gátum þó huggað
okkur við að sólin heima tæki
brátt að hækka á lofti og í sál
okkar mundi Italíusólin endast
fram á vorið.
-vig-
VOLGA GAZ 24
NÝTÍZKULEGT ÚTLIT
LIPUR í AKSTRI
ÞÆGILEGUR FERÐABÍLL
Þessi bíll hefur sannað ágæti sitt við erfiðar
íslenzkar aðstæður.
Hæð undir lægsta punkt 19 cm. (Drifkúla).
Vélin 4 cyl. 110 HA SAE við 4.500 snún.
Fjögra gíra alsamhæfður gírkassi með lip-
urri skiptingu í gólfi.
Tvöfalt hemlakerfi með hjálparátaki frá vél.
VERÐ AÐEINS KR. 360.124.00.
HAGSTÆÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR.
Biíreiðar & Landbúnaðari élar hí.
Biírei
Suðurlandsbraut 14 - Reykjavík - Sími 3IH>00
Sjálfvirku stýrisvélarnar hafa verið settar í
fjölmörg íslenzk skip, og reynzt afburða vei.
Kynnið yður HYDRAPILOT-stýrisvélarnar
frá Frydenbö.
Stuttur afgreiðslutími. Allar upplýsingar
fyrirliggjandi.
Erum einnig umboðsmenn fyrir margs konar
úrgerðarvörur og veiðarfæri frá heims-
þekktum firmum.
Sími 20-000.
Veitingohúsið Volaskjdlf
óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra páska
og ávallt velkomna.
Veitingaliúsið VALASKJÁLF,
Egilsstöðum, sími: 97-1261.
Gistihúsið Djiipavogi
býður viðskiptavinum sýnum
GLEÐILEGRA PÁSKA
með þökk fyrir viðskiptin.
Bílaleiga Akureyrar
KAUPVANGSSTRÆTI 3
SÍMI: 96-11515.
Nýir VOLKSWAGEN og LAND ROVER bílar hvert á land
sem er.
Hringiö. og bíllinn býður yðar er þér stígið út úr flugvélinni!
Fermingargjafir
SPEGLABÚÐIN
Laugavegi 15 — Sími: 1-96-35.
HÚSMÆÐUR: REYNIÐ
■■
K O L D U
ROYAL BÚÐINGANA
$uða
Bragðtegundir: Karamellu, Vanilla,
Hindberja og Sákkuiaði
Báði ngarino er tilbádinn til mat
reiáslu, adems þarf að hræra hann
(Bmio viá 1/2 liter af mjólk, lóta
hann staada í nokkrar míuútur og
framreiða sfðao I glásum eða skél.