Morgunblaðið - 30.03.1972, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.03.1972, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1972 t 1 \J Séra Gunnar Kristjánsson þýddi ogr endursagði eftirfar- andi grein úr bókinni „The Christian Year“, eftir Eduard T. Hom. Kristin trú er „söguleg trú“. Kristin saga er hjálpræðissaga, þar sem Guð var að verki og sýndi mátt sinn, vald og kær- leika. Það var hann sem hjálp aði Hebreum yfir Rauða hafið, og þess minntust þeir alltaf síðan; það var hann sem birtist þeim við Sínaí í lögmálinu, og kom fyrir Móse. Kristin trú er grund völluð á þeirri trú að Guð hafi starfað í Kristi í mannlegri sögu; hann hafi á sérstakan hátt grip ið inn í sögu mannanna. 1 þessu atriði greinir kristindómurinn PÁSKABLÓMIN KALLA CLEYMIÐ OKKUR EKKI Opið á SKÍRDAG, LAUGARDAG II PÁSKADAG til kl. 10 að kvöldinu. Vinsamlegast pantið blómin sem fyrst. ÁLFHÓLSVEG111 KÓPAVOGI SÍMI 40380 SLÓMAHÖLLIN sig frá öðrum trúarbrögðum. Kirkjan minnist raunverulegra atburða t.d. á jólum, páskum og hvítasunnu. Hátíðir hinna fornu Hebrea voru haldnar til minnmgar um verk Guðs í sögunni, páskarnir voru haldnir til að minnast þess, að Guð frelsaði þá úr ánauð inni í Egyptalandi. En sú saga hafði um leið samtíðarlega merk ingu fyrir hvern einstakling tii að minna á það að Guð hefur vald til að leysa einstakiingmn úr hvers kyrns ánauð syndar og vonleysis. Fornkirkjan tekur síðan upp hátíðir Gyðinga en leggur í þær nýja merkingu. Páskarnir eru til minningar um fórn páska lambsins til hjálpræðis öllum mönnum undan valdi syndarinn ar, og sennilega hefur Jesús val ið páskana einmitt með hliðsjón af þessu. Þess gætir a.m.k. í Jó- hannesarguðspjalli. Othelling hins heilaga anda á hvítasunnu dag var ski’lin sem stofnun krist innar kirkju á sama hátt og kirkja Hebrea var talin stofn- uð við Sínaí. Sabbatsdagurínn. dagur hvíldar og tilbeiðslu, tök einnig á sig nýja mynd í kristn- inni sem dagur upprisunnar. gleðidagur og var af þeim sök- ivm fluttur á fyrsta dag vikunn ar af hinum sjöunda. Á þennan hátt mynduðu hátiðir Hebr°a nokurn grundvöll undir kirkju- árið. KIRK.mARIÐ Áður en við snúum okkur að föstunni skulum við lítilsháttar ræða um kirkjuárið i heild i stórum dráttum. Páskar voru fyrsta hátíð kirkjuársins að forn um sið og hefur sú hátíð ætið verið stærst hinna kristnu há- tíða. Þess er getið þegar í Jó- hannesarguðspjalli að lærisvein arnir komu saman fyrsta dag vik unnar til þess að minnast upp- risu Drottins. Önnur hátíð kristinna manna var hvítasunnan, stofnuð sjö vik um eftir upprisuna, þegar and- inn kom yfir lærisveinana. Tím- inn milli páska og hvítasunnu verður síðan fyrsta ártíð kirk.ju ársins. Þennan tíma, á milli páska og hvítasunnu, var aldrei fastað, ekki einu sinni á föstu- dögum og bannað var að kné- krjúpa við guðsþjónustu, bví að þetta var fagnaðartími. Þriðja hátíð kristninrar var þrettándinn og má rekja sögu hans til fyrstu aldar. Hann var upphaflega hátíð til að minnast holdtekiunnar, bæði fæðing- ar og skímar Krists. Sérhver sunnudagur var há- tíð upprisunnar og þá var aldrei fastað, ekki einu sinni á föst- u-nni. Sérhver föstudagur var til minningar um krossfestinguna, og þá var fastað. Það ber að hafa stöðugt i hima hegar rætt er um fornkirkjuna. að hún var néðanjarðarhreyf- ing, ólögleg, og var hún það þanpað til árið 313, en þá tekur kirkjan miklum stakkaskintum og getur m.a. farið að bygm'a kirkjuhús. Og áður en f jórða öld in er liðin hafa allar hinar þriár stórhátíðir fornkirkjunnar fætt af sér afkvæmi, föstudagurinn langi bætist við páskana, jólin við þrettándann og uppstigning ardagur við hvitasunnuna. Það ! var ekki fyrr en árið 336, að 25. des. var valinn sem fæðing- arhátið Jesú. Dagurinn var val- inn til höfuðs hinni miklu heiðnu hátið Römverja, hátíð hinnar ósigrandi sólar, sem var haldin um vetrarsólstöður, og hvað hæfði betur þegar dagur, mánuður og jafnvel ár fæðir.g- ar Krists voru óviss að halda hátíð Sólar réttlætisins, þeg- ar sól byrjar að hækka á lofti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.