Morgunblaðið - 30.03.1972, Síða 12
12
MORGUNBL.AÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1972
TÍMALENGD DÁNARBÆTIB ÖKOHKUBÆTUK DAGPENINGAB A VIKIT IÐGJALD
14 dagar 500.0««.— 2.500.— 271.—
17 dagar 500.000.— 2.500.— 293.—
1 mánuður 500.000.— 2.500.— 399 —
SJÚVÁTRYGGINGARFÉLAG
fSLANDS H
INGÓLFSSTRÆTI 5 REYKJAVÍK
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
SÍMI 11700
Feröa
slysatrygging
Sjóvá
Hvort sem þér farið langt eða skammt — og hvert
sem þér farið, til Spánar eða Sigluf jarðar,
Bandaríkjanna eða Bíldudals, þá er ferðaslysatrygging
SJÓVÁ nauðsyn.
Ferðasiysatrygging SJÓVÁ greiðir haetur við dauða af
slysförum, vegna varanlegrar örorku og vikulegar
baetur, þegar hinn tryggði verður óvinnufær
vegna slyss.
Ennfremur er hægt að fá viðbótartryggingu, svo að
sjúkrakostnaður vegna veikinda eða slysa,
sem sjúkrasamlag greiðir EKKI, er innifalin
í tryggingunni.
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ er nauðsynleg, ódýr og
sjálfsögð öryggisráðstöfun allra ferðamanna.
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ er tryggur förunautur.
Dæmi um iðgjöld af ferðaslysatryggingum SJÓVÁ:
(Söluskattur og stimpilgjöld innifalin).
23
♦ SÍBS
Endurnýjun
Dregið verðnr
miðvikadaginn 5. apríl
PÁSKA-
Hið vinsæla, ítalska par Sophia
Loren og Marcello Mastroianni
(„Sunflower") — Grátklökk
ástarsaga mun skreyta sýningar-
tjald Hafnarbíós eftir páskana.
Þa r mun vera á boðstólum ein
nýjasta mynd hinnar öldnu
kempu Vittorio De Sioa, með
Sophiu Loren og Marcello Mastro
ianni i aðalhlutverkum. Eins fer
hin þekkta, rússneska leikkona
Ludmila Savelyeva með stórt
hlutverk, em myndin er tekin að
nokkru leyti í hennar heimalandi.
Er myndin hin fyrsta sem tekin
er austan járntjaldsins af vest-
rænum framleiðendum.
í stuttu máli er söguþráðurinn
þessi: Sophia og Marcello eru ný
gift er síðari heimsstyrjöldin
skellur á. Er hann sendur á vig
stöðvamar í Rússlandi, er þar
bjargað af rússneskri stúlku, sem
finnur hann nær dauða en lífi i
hörku rússneska vetrarins. —
Stríðinu er þá að ljúka, og snýr
hann ekki til baka til Ítalíu, en
hefur búskap með þeirri rússn-
esku. En Sophia bíður og von-
ar að sinn útvaldi komi aftur, og
þrátt fyrir að sú von dvíni með
árunum, telur hún sig fullvissa
um að bann sé á lifi og heldur
til Rússlands að leita hans . . .
„Hinn brákaði reyr“ —
(„The Raging Moon“)
Hér er okkur boðið upp á mjög
nýlega mynd, sem gerð er af
Bretanum Bryan Forbes, með eig
inkonu hans, Nannette Newman,
sem nú nýlega var tilnefnd fyrir
brezku Osvarsverðlaunin fyrir
leik sinn í þessari mynd i aðal-
hlutverki, ásamt Malcolm Mc
Dowell. Við minnumst hans úr
„If“ og nýverið gat hann sér mik
inn orðstír fyrir frammistöðu
sína í nýjasta meistaraverki
Kubricks, „A Clockwork Or-
ange“.
„Hinn brákaði reyr“ gerist á
hæli fyrir lömunarsjúklinga, og
eru þau Malcolm og Nannette
þar bæði dvalargestir. Takast
með þeim ástir og eiga þau
marga sæludaga, en þau eru
bæði brákaður reyr sem nfá við
litlu. Þegar Nanette kvefast, hef
ur hún ekki nægan viðnámsþrótt
og dregur það hana til dauða.
Öll sund virðast lokuð fyrir Mai
colm, en hann viíll þó ekki gef-
ast upp . . .
Clint Eastwood og Shirley Mc
Laine í „Systir Sara og
asnarnir“
(„Two Mules For Sister Sara“)
Það er ágætis tilbreyting í
því að vera boðið hér upp á
hressilegan vestra, með kóngin-
um sjálfum, Clint Eastwood og
Shirley McLaine í aðalhlutverk-
um. Leikstjóri er Don Siegel.
Clint leikur, líkt og fyrri dag-
inn glæframenni sem kann að
fara með byssu. Er hamn að leita
sér fjár og frama i Mexikó, þeg-
ar hann riður fram á nunnu, (S.
McLaine), sem á i vök að verj-
ast gegn þremur illmennum. —
Bjargar hann sóma hennar og
tekst með þeim vinskapur. Þeg-
ar á líður, kemur í ljós að „nunn
an“ er ekki öll þar sem hún er
séð, og reynist hún Clint góður
félagi og vopnabróðir og tekur
drjúgan þátt í glæfraspilum
hans . . .
Morðingjarnir tveir i
„Með köldu blóði“
Með köldu blóði
(„In Cold Blood“) — Það eru
sjálfsagt margir örðnir langeygð
KVIKMYNDA-