Morgunblaðið - 28.04.1972, Síða 14

Morgunblaðið - 28.04.1972, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1972 Félag ísl. prentiðn aðarins stofnað — samtök prentiðnaöarins sameinast í eitt félag Milljón tonn á ári: Námurekstur á Grænlandi Fyrirtæki fær leyfi Dana FÉLAG ísl. prentiðnaðarins var stofnað hinn 29. desember sl., en félag þetta er samtök fyrir- tækja prentiðnaðarins á íslandi, þ.e. atvinnnrekenda, sem eiga og reka prentsmiðju, bókbands- vinnustofu, prentmyndagerð og offsetplötugerð. Að stofnun FÍP stóðu fjögur félög atvinnurek- enda í prentiðnaði: Félag ísl. prentsmiðjueigenda, Félag bók- bandsiðnrekenda á islandi, Félag prentmyndagerðaeigenda og Félag offsetprentsmiðjueigenda. Með stofnun FÍP eru eldri félög- in lögð niður sem slík. Markmið Félags ísl. prentiðn- aðarins eru í aðalatriðum eftir- farandi: Að koma fram sem ein heild í öllum þeim málum, sem varða prentiðnað landsins í heild, þ.á m. gagnvart launþegafélög- unum við gerð samninga við þau og túlkun þeirra samninga og framkvæmd/ Að koma á sam- rætni í rekstri þeirra fyrirtækja, er að félaginu standa/ Að vinna gegn óheilbrigðri samkeppni í iðninni/ Að láta x té leiðbeining- ar um rekstrarfonn og vinnu- tækni. Einnig að aðstoða félags- bundna aðila um hagkvæm inn- kaup á þeim vörum, sem þeir þarfnast/ Að semja leiðbeiningar xtm verðútreikninga, gera skrár og bæklinga um verðmyndun og verðskrár fyrir prentiðnaðinn í landinu/ Að afla hagnýtra er- lendra upplýsinga og vinna að hvers konar umbótum og fram- förum prentiðnaðarins í landinu/ Að styðja menntun og tækni- fræðslu í prentiðnaðinum, m.a. með þvi að styrkja starfrækslu skóladeildar fyrir iðngreinar, svo fremi að hið opinbera fullnægi ekki þörfum í þeim efnum. FÍP hélt fyrsta aðalfund sinn hinn 24. marz sl. og á fundinum var stjórn sú, sem kosin var á stofnfundinum, öll endurkjörin. Hana skipa: Baldur Eyþórsson, formaður, Haraldur Sveinsson, varaformað- ur, Eymundur Magnússon, xitari, Stefán Jónsson, gjaldkeri, Arn- bjöm Kristinsson, Gunnar S. Þorleifsson og Kristinn Sigur- jónsson meðstjórnendur. Auk þessara manna hefur forstjóri Rikisprentsmiðjunnar Guten- berg heimild til setu stjórnar- funda, sem og annarra funda félagsins. Fyrirtæki innan FÍP eru nú 75 talsins og auk þess hefur Guten- berg viss ten-gsl við félagið, en er ekki fullgildur félagsaðili — er t.d. sérstakur samningsaðili um kjaramál. Félagið hefur ráð- ið Grétar G. Nikulásson sem framkvæmdastjóra, og mun hann sjá um rekstur skrifstofu FÍP, en hún og félagsheimili eru til húsa að Mjóstræti 6, en félagið á mestan hluta þeirrar húseignar. DÖNSK yfirvöld hafa veitt heim- ild til hagnýtingar á blýi, zinki og nokkru magni af silfii er finnst í Svartenglafjalli á Græn- landi, að því er segir í frétt í danska blaðinu Jyllandsposten. Stórt kanadískt námaxyrir- tæki, Commco, hefur um árabil gert itarlegar rannsóknir á þessu svæði og hefur mælt með því við dótturfyrirtæki sitt, Greenex, að það hefji hagnýtingu þessara náttúruauðlinda. Hagnýting málmanna í fjall- inu kallar á gífurlegar fram- kvæmdir. Leggja verður svlf- braut upp fjallið, sem er 600 m hátt og erfitt uppgöngu. Reynzt getur erfitt að bora í fjailllið, enda er svæðið allt mjög hrjóstrugt. Stór hluti fjal'lsins verður sprengdur í loft upp en grjótið notað við stíflu- og hafniargerð. Höfn hefur þegar verið gerð og geta skip notað harxa fimm til sex mánuði ársins. Þá verður að reisa stórar geymslur fyrir málm grýtið. Gert er ráð fyrir að úr f jallinu fáist á ári um það bil ein milljón lesta af málmgrýti, og af því yrðu um 250.000 lestir zink og 55.000 tonn blý, en ef til vill get- ur fengizt meira magn þar sem rannsóknir á fjallinu byggja á að eins um tuttugu borunum. Áætlað er að Greenax verði að fjárfesta allt að 500 mill.iórium danskra króna til þess að koma námarekstrinum af stað, en rekstrarútgjöld á ári eru auk þess áætluð um það bil 25 mil'lj- ónir danskra króna. Þótt talað sé um að hafizt verði handa á Castro til Moskvu í júní Moskvu, 26. apríl. NTB-AP. TASS fréttastofan sovézka skýrði svo frá í morgun, að Fidel Castro, forsætisráðherra Kúbu, værl væntanlegur til Sovétrikj- anna í opinbera vináttuheimsókn. Miini hann koma þangað síðast í júnímánuði t boði miðstjórnar sovézka kommúnistaflokksins og stjórnar Sovétríkjanna. Castro er Alexei Kosygin, forsætisráðherra Sovétrikjanna, kunnugur frá því hann heimsótti Havana í októ- ber sl. en Leonid Brezhnev, leið- toga flokksins hefur hann ekki hitt að máli. þes.su ári, geta liðið mörg ár þar ti'l útskipun hefst. Greenex hefur staðið í samn- ingum við Græmllandsráðuneytið um Svartenglafjailll siiðan .969. Samkomulag hefur náðst um skilmála sem kveða meðal ann- ars á um að Greenex greiði danska ríkimu 300.000 danskra króna á ári. Gert er ráð fyrir að fyrirtækið greiði í skatta 45% af nettóhagnaði. En fyrst um siinn munar mest um að Greenex skapar fjölda manns atvinnu á Grænlandi. MBL. hefur borizt eftirfarandi athugusemd frá félagsmálaráð- herra: Sem andsvar við árás á mig — sem Morgunblaðið heíur kom- ið á framfæri fyrir 7 húsnæðis- málastjórnarmenn, óska ég birt- ingar á eftirfarandi: Sjömenningamir hafa eftir mér, að leggja beri starfsemi Húsnæðismálastofnunar ríkisins niður. — Þetta er alrangt, og all- ur pístill þeirra þanmig byggður á rangfærslu. Ljóst var af ræðu minni, að ég taidi starfið fuilframkvæmanlegt af einni stofnun í staðinn fyrir tvær. Og ég er andvígur því, að tvær stofnanir annist þau störf, sem ein getur innt af hendi. Þá er það tilbúningur einn og staðlausir stafir, að ég hafi í framsöguræðu minni veitzt að þeim sjömenningunum á nokk- urn hátt. — Ég veittist að flokk- imum fyrir að viðhalda því kerfi, að fjölmenn sveit flokkspóli- tískra fulltrúa sé til þess sett að annast afgreiðslu á jafn sjálf- sögðu og ópólitisku verkefni og afgreiðsla húsnæðislána er. Útlegging sjömenninganna um stjómmálalega rannsóknarstarf- semi á iánsumsækjendum, er þeirra en ekki mín — en þó e.t.v. ekki alveg út í hött. Málið er ofur einfalt: Lögin segja nákvæmlega til um, hve stórar íbúðir geti notið lánafyrirgreiðslu skv. Húsnæðis- málaiöggjöfin '. — Teikningar Teiknistofunnar segja í smáatrið um hvernig íbúðimar skuli vera. Og Veðdeildin annast afgreiðslu lánanna. Og því spyr ég: Hvers vegna þarf tvær stofnanir og fjölmenni flokkspólitiskra full- trúa til að annast þessi einföldu viðskiptaatriði ? Þetta eru mínar skoðanir, og að þeim tel ég mig jafn frjólsan „Andrésar Andar skemmtanir14 £ VETUB hafa klúbbfélagar I Lionsklúhbnum Þór gengizt fyr- ir nokkrum barnaskemmtunum í Háskólabíói, seni kallaðar hafa verið „Andrésar Andar skemmt- anir“, enda hafa allir hinir ungu samkomugestir verið leystir út með gjafapökkiim, sem hafa að geyma ýmsar Disneyvörur. Með samkoniiim þessum hefur klúbb- urinn safnað fé til styrktarTjalda nesheimilinu í Mosfellssveit. Síðasta Andrésar Andar skemmt- unin verður á sunnudaginn kem- ur kl. 1:15 e.h. í Háskólabiói. Myndin var tekin, er fjórir félag- ar í Þór, þeir Stefán íslandi, Guð- mundiir Vignir Jósefsson, Frið- finnur Ólafsson og Haukur Þor- leifsson, voru að afhenda gjafa- pakka að einni santkomunni lok- innL og sjömenningarnir eiu að sin- um, um að það sé persónuleg árás á þá að bent sé á, að bragar- bót mætti gera á ríkjandi lána- kerfi í húsnæðismálum. En lítum þá á verkefni þessar- ar 9 manna húsnæðismálastjórn- ar. Því er rétt lýst í pistli þeirra. Það er þetta: Skoða ber, hvort umsöknir full nægi gildandi lögum og reglum. Þarf til þess flokkspólitíska sveit 9 manna? — Ég segi nei. — Allir þeir, sem sent hafa lög- lega umsókn, eiga nú að fán lám. Þarf flokkspólitiska fulltrúa til að taka ákvörðun um það? -— Ég segi nei. Líta ber á, hvenær umsóknir berast og afgreiða þær í réttri röð. Þarf úbvalda fylkin0u flo-klks- póiitiskra fulltrúa til þess verks? — Ég segi nei. Ganga ber úr skugga um, hve- nær íbúð hafi orðið fökheld, skv. vottorði þar um. Þarf flokkskjöma 9 manna sveit til þessa vandaverks? — Ég segi enn nei. Og þetta er það, sem ég leyfi mér að nefna póli- tísikt þukl. Enn fráleitara en allt þetta, með enn sterkari flokkspólitísk- um keim er þó tilnefning 7 aðal- manna og 7 varamanna, samtals 14 manns, i stjóm verkamanna- bústaða jafnvel í fámennum byggðariögum úti um land. Mundi það líka vera árás á þá sjömenningana að vilja fækka í því liði? Þessar skoðanir minar setti ég fram nú, í trausti þess, að heijl- brigt almennimgsálit mundi sikap- ast í málinu og auðvelda breyt- ingar síðar. Það held ég llka að hafi tekizt. Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna — Einvígið Framhald af bls. 32 fyrir sínum hluta einvigisins, eftir að Fischer hafði krafizt hlutdeildar í hagnaði af ein- víginu. Eftir að undirbúning- ur að einviginu hafði þannig farið úrskeiðis, stakk Euwe upp á því, að nýjar viðræður færu fram um einvígisstað. Það var ósamkomulag milli keppenda um einvigisstað, sem leiddi til þess, að skipta varð einvíginu. Spasský vildi Island en Fischer Júgóslavíu. I símskeytinu segir enn- fremur: „Einvigið verður að halda samkvæmt þeim skil- málum, sem fram koma í bréfi Skáksambands Islands frá 29. desember 1971 að frá- skildu því atriði, sem varðar skiptingu einvígisins í tvo hluta.“ Sovézka skáksamband- ið segir jafnframt, að einvígið eigl að byrja eins og áfoim- að var hinn 22. júní. „Ef FIDE fær varið aðstand endur einvigisins fyrir duttl- ungum Fischers, verður unnt að halda einvígið. Ef banda- ríski stórmeistarinn fellst ekki skilyrðislaust á allar kröfur FIDE, verður að svipta hann réttinum til þess að tefla einvígið. Verður þá sam- kvæmt reglunum að tilnefna nýjan áskoranda," segir í sím- skeyti sovézka skáksambands- ins. í tilefni þessarar fréttar sneri Morgunblaðið sér tii Guðmundar G. Þórarinssonar, forseta Skáksambands ís- lands, og spurði hann álits. Svaraði hann á þessa leið: „Ef það getur orðið til þess að leysa vandann, munum við berjast til þrautar fyrir því, að allt einvígið verði hald ið hér. En margt er óvíst enn, svo sem hvaða ákvörðun Euwe tekur og hvort Fischer myndi samþykkja að tefla ein- vigið hér. Einbýlishús — raðhús eða góð íbúð óskast til leigu ssm fyrst. Há leiga í boði. Tilboð sendist blaðinu fyrir 3. maí nk. merkt: ,Há leiga — 1392". 100-200 fm verzlunorhúsnæði óskast á leigu. Þarf ekki að vera laust fyrr en í haust. Kaup koma til greina. Sími 13562. Athugasemd frá félagsmálaráöherra Hainnibal Valdlmarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.