Morgunblaðið - 30.04.1972, Blaðsíða 1
64 SIÐUR ( TVO BLOÐ )
96. tbl. 59. árg.
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1972
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Færeyingar semja:
Veiðileyfi
við Grænland
Einkaskeyti til Mbl.
Julianeháb, 29. apríl.
I.OKIf) er viðræðum færeyskr-
ar sendinefndar undir forsæti
Atla Dains lögmamns við full-
trúa grænlenzka Landsráðsins
og grrænlenzkra fiskimanna. Eini
árangrur viðræðnanna er sá, að
færeyskir ogr danskir fiskimenn
fá leyfi til þess að stunda fisk-
veiðar innan fiskveiðimarkanna
á svæðinu 60 gráður norðlægrar
breiddar og 44 gráður vestlægr-
ar lengdar — nánar tiltekið á
svæðinu milii Kap Farvei og
Lindenowsfjord á Austur-Græn-
landi. Leyfið gildir aðeins eitt
ár.
Færeyskum og dönskum fiski-
mönnum verður aðeins leyft að
veiða þorsk og aUs ekki lax.
Jafnframt krefst Landsráðið
þess að brýnt verði fyrir fiski-
mönnunum að þeir mengi ekki
sjóinn með bensíni og olíu.
Framhald á bls. 31.
Einstætt afrek:
Fullfrískur eftir
blóðskiptinguna
San Antonio, 29. april. AP.
„MÉR líður vel, alveg eiins vel
og mér leið áður eai ég veikt-
ist,“ sagði Tors Oison lið-
þjálfi, sem skipt \”»r lun blóð
í f.vrir nokkru, d blaðamamia-
fundi í dag. Olson þa,r þungt
haldinn af lifrarsjtíkdómi og
hafði legið í djúpu meðvit-
undarleysi í marga daga, en
náði meðvitund ednum degi
eftir aðgerðina, s«m var fram
kvænid 31. marz.
Læknar segja að aðgerðin
hafi verið „lokatilraun tii þess
að bjarga lítfi Olsons," og er
sagt að hér sé um að ræða ein
stæða aðgerð í sögu læknis-
fræðinnar. „Ég man að ég
vaknaði daiginn eft'r aðgerð
ina og heimsótti foreldra
mina,“ sagði Olson. ,,Við sung
um nokkra sáima.“
„Þetta er kraftaverk. Ég
gaf aidre' upp atla von, en
Framhald á bls. 31.
Belga
sleppt
í Kína
Hong Kong, 29. apríl — NTB
BELGÍSKI bankastjórinn Frank
van Roosbroeck, sem hefnr verið
í haldi í Kína síðan 1950, kom í
dag til Hong Kong eftir að hafa
verið sleppt úr fangelsi í Shang
hai.
Van Roosbroeck var forstjóri
Shanighai-deildar Banqiue Belige
pour l’Étanger á árunium fyrir
1950. Hann var kyrrsettur þegar
hann ætiaði að snúa aftur til
Belgíiu ba.r sem banki hans liaifði
fiutt 10 mUlljónir dollara tii
EUindaríkjanna skömmu fyrir
Framhald á bls. 30.