Morgunblaðið - 30.04.1972, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.04.1972, Blaðsíða 28
TVmíG^ STULKA OSKAST. 1 þýðingu Huldu Valtýsdóttur. „Mér þykir þetta leitt, sir Roy, en þessir miðar á rúðun- um hjá ykkur gætu hafa verk- að ögrandi. Haldið þéir það ekki? Ekki þó svo að skilja, að það sé nein afsökun í sjálfu sér.“ „Og hvað voruð þéx svo að að hafast á meðan þetta gaiman fór hér fram? Hafið náttúrlega ver ið að leita uppi ólöglegar bíl- stöður og útrunna stöðumæla." „Nú orðið sjá umferðareftir- litsmenn um slíkt, sir Roy. Ég var í minni tiiskipuðai eftirlits- ferð og mig bar hér að aðeins tveim minútum á undan yður. Því miður ekki nógu fljótt til að stöðva þennan ósóma.“ Ég mætti augnaráði hans í fyrsta og eina skiptið, um leið og hann sagði þetta. Af hátta- lagi hans og svip 9á ég, að hon- um var ekki alveg ókunnug nýja baráttuaðferðin „öefug kröfu- gerð“ og honum væri svo sem ekkert á móti skapi að striða Roy svolítið með því að gefa það í skyn, að yfirvöldin hefðu horft með ánægju á skemmdar- varga eyðileggja hjólbarða fyr- ir frægum andstæðingi skipu- lagsins. Svo bætti hann við með ívið valdsmannlegri tón: „Yður er það Ijóst, að þetta hverfi er dálítið sérstakt. Hér er brezka bókasafn ið til húsa og Carlton- klúbburinn o.fl. Hér fer ails konar fólk um götumar." Harold ók sínum bíl af stæð- inu, án þess nokkurn tíma að líta i áttina til okkar. Roy leit upp og mæðusvipur færðist yfir andlit hans. Svo sneri hann sér að lögregluþjóninum: „Var það nokkuð fleira? Viljið þér fá skýrslu frá mér í þríriti eða læknisvottorð eða . . .“ „Nei, ég ætlaði bara að vita, hvort ég gæti verið til að- stoðar.“ „Nei.“ Lögregluþjónninn bar hönd- itna upp að hjálminum í kveðju- skyni og fór. „Hvað eigum við þá að gera?“ spurði ég. „Hvað eigum við að gera? Jú, nú förum við uppeftir til Craggs og látum dyravörðinn þar taka þetta að sér. Svo fáum við okk- ur konáakið, sem ég minntist á áðan. Eða ég fæ mér það. Þér er það líka vel'komið, ef þú vilt. Reyndar er þetta hjólbarðamál heldur jákvætt, þegar á allt er litið. Saigði ég það ekki líka að einhverjum gæti orðið heitt í hamsi út af spjöidunum. Þetta sýnir einmitt, að í borgaraleg- ustu hverfunum rikir sannur . . . hæ, leigubíill!" 7. kafli. Gaffallinn hans Copes. „Hvað er hann gam.all?" spurði ég Vivienne um kvöldið. „Þótt undarlegt megi virðast, fæst hann aldrei til að segja það. En ætli hann sé ekki um sex- tugt.“ „Og býr einn?“ „Já, síðan móðir mín dó fyrir sex árum. En bræður mínir og ég heimsækjum hann í hverri viku. Eitt okkar í senn. Hann borðar hádegismat á kránni og svo kemur kona til hans á morgn- ana og matreiðir kvöldverð handa honum, sem hann hitar svo á kvöldin. Hún gerir lika hreint." „Og hvað gerir hann á dag- inn?“ „Hann hefur þessa vinnu sina hjá sértrúarflokknum á morgn- ana og stundum síðari hluta dagsins líka. Svo hefur hann gaman að tónlist. Gilbert og Sullivan og vínarvölsum og „Kátu ekkjunni" og þess hátt- ar. En þú telur það víst varla tónlist.“ „Víst geri ég það.“ „Á vissan hátt. Ertu ekki van ur að segja það?“ Þessi athugasemd fannst mér ólík henni. „Ef þú vilt, þá það. En því skyldi mér ekki finnast það tónlist?" „Vegna þess að flest það, sem öðrum finnst tónlist, finnst þér ekki vera það.“ Vivienne hafði vferið venju fremur stutt í spuna og annars hugar jafnvel af mánudegi að vera, nema þessa stund í svefn- herbergi mínu fyrir klukkutima eða svo. Samt fannst mér hún gera sér töiuvert fiar um að láta ekki á því bera. Það var líka nýbreytni. En strætisvagninn, sem við sátum í, var kominn á áfangastaðinn, áður en mér vannst tími til að ræða það við hana. Ég naut þess eins og venjulega að horfa á göngulag hennar, létt en ákveðið, og gleymdi öilu saman. Hún var i klæðilegri brúnni buxnadragt sem kom mér þægilega á óvart. „Það er bara nokkurra mín- útna gangur héðan,“ sagði hún. „Þetta er falleg dragt, sem þú ert í, Viv. Er hún ný? „Já, ég fékk hana í dag. Þetita er í fyrsta skipti sem þú lætur í ljós ánægju yfir því, hvernig ég er klædd.“ „Fyrirgefðu. Ég . . .“ „Það gerir ekkert." Hún tók um handiegginn á mér. „Mér er alltaf mikið í mun, að allt fari vel svona við fyrstu kynni, þeg- ar ég kem með einhvern i heim- sókn. Það fer alltaf vel, en þó er éig dálítið kvíðin.“ Nú hefði verið tækifærið til að spyrja hana, hvers vegna hún vildi, að ég heimsækti föð- ur hennar. En eins og enöranær treysti ég mér ekki til að spyrja án þess að á tóninum hcyrðist, að mér fyndist þetta skrýt- ið uppátæki. „Hefurðu farið með hinn ná- ungann til hans?“ „Hvern?“ „Hinn- náungann . . . þú veizt.“ „Ekki nýlega." „Lömgu áður en þú ákvaðst að fara með mig?“ „Já. Hann tók þvi betur, en ég bjóst við að þú mundir gera.“ „Ég 9kii.“ Við gengum fram hjá íibúðar- húsaröð með litlum blómagörð- um fyrir framan og lituðu gleri í fiorstofuhurðinni. Vivienne gekk upp að einu þeirra og hrimgdi bjöllunni. „Veit hann, að við sofum sam- an?“ „Já, hvort hann veit.“ „Hvað áttu við?“ „Hann hefur aldrei spurt, svo éig hef heldur ekki sagt honum það. Hvorki um þig eða aðra. En auðvitað veit hann það. Hann hlýt-ur að vita það.“ „Það er ágætt." Dyrnar opnuðust og lágvax- inn þreklegur maður hleypti okkur inn. Hann var sköllóttur en með smyrtilegt skegg í vöng- um og á höku. En ekkert á efri vörinni. Þá fannst mér allt i einu hún hafa komið með mi.g til þess að hanm gæti gert saman- burð á mér og hinum náungan- um. En svo skammaðist ég mín fyrir að ætla henni siíkt. Samt fannst mér við og við allt kvöld ið, að ég sæti þarna andspænis leikara, sem Roy hefði leiigt, til að þvæla mér inm í einhverjar ráðagerðir. „Komið þér sælir, Copes." „Gaman að sjá yður aft- ur. Nei, bíðum við . . . voruð það etoki þér sem . . Hann strauk vandræðalega um vanga sér og höku. Mér fannst hamn vera að losa sig við myndima af himum náunganum Ur huga sér, svo ég fór að velta þvi fyrir mér, hvort við værum svona líkir. Þá mundi ég, að Viv hafði sagt, að hann væri lítið hærri vexti en hún og hlaut því að vera töluvert lægri en ég, og tók gleði mina aftur. „Nei', pabbi, þetta er Y-and- ell . . . Douglas Y-andell“, sagði húm og lagði áherzlu á ypsilon- ið, eins og venjulega þegar hún kynnti miig, svo fólk héldi eklki að ég héti Randall. „Já, já, Viví mín, ég skil, ég skil. Komið þið innfyrir, »erið þið svo vel. Við skulum fá okk- ur hressingu." Við komum inn í stofu sem greinilega var lika vinnustofa. Þar var skráfborð sem hægt var að renna loku yfir og á þvi rit- vél, bréfavigt og alls komar handibækur, að þvi mér sýndiisg, Veggirnir voru þaktir myndum. Þar gaf að lita endurprentun af „Ljósi heimsins" eftir Holman Hunt, ljósmyndir af erkibisk- upnum í Kamtaraborg, frægum bandarlskum evanigelista, negra- dýrlingi og einhverjum, sem vel gat verið Samuel Wesley, lit- prentuð mynd af Hayden, blað- síður úr fornum biblíuhandrit- um og myndiskreyttir sálmar. Copes bamdaði með hendinni. „Hér er eitthvað fyrir alla,“ sagði hann og gek'k að spi'la- borði, sem klætrt var bleikum dúk. Á því stóð silfurbakki með borðflösku og þremur glösum. Hamn hellti í glösin og rétti okkur. OnCIECH velvakandi 0 Óskiljanleg afstaða Breta og Þjóðverja Hér er landhelgismálið á dagskrá. „Okkur Islendingum er alveg óskiljanleg sú afstaða, sem Bretar og Þjóðverjar og jafn- vel sumar Norðurlandaþjóðir hafa tekið í sambandi við út- færslu islenzku landhelginnar til verndar fiskstofnum og hrygningarsvæðum hér við strendur íslands. Þessar þjóðir virðast ekki enn skilja hina augljósu hættu, sem stafar frá hinum ægilega fiskveiðiflota, sem stórveldin, svo sem Rússar og Japanir, eru farin að senda um heims- höfin og þar á meðal að þreifa fyrir sér hér á Islandsmiðum. Þeir gefa þessum stórþjóð- um byr undir báða vængi með afstöðu sinni gagnvart út færslu landhelginnar, til að herja á íslenzka fiskstofninn og uppræta hann á einu ári með hinum geysilegu veiði- tækjum, sem þessi skip eru bú- in. í stað þess að styðja mál- stað Islendinga í þeirri við- leitni að vernda fiskstofninn, þá eru þeir reiðubúnir að berj- ast með klóm og kjafti til að koma í veg fyrir það. Hvað gætu t.d. Bretar ímynd að sér, að prósentutala þeirra eða hlutur yrði hár, í sam- keppni þeirra við hin mörgu og stóru veiðiskip þessara þjóða, Rússa og Japana. Ég er hræddur um að sú prósentutala, sem Bretar yrðu að sætta sig við, yrði nokkuð smá. Það er kannski skiljanlegt að þetta eina togarafélag i Þýzka- landi, sem undanfarið hefur sent skip sin til veiða á Islands miðum sé ekki búið að átta sig á hættunni, sem stafar frá þessum miklu fiskiflotum Rússa og Japana. En hins vegar er það óskilj- anlegt að hin framsýna og drengilega rikisstjórn Þýzka- lands skuli ekki sjá hættuna, sem þetta forðabúr Evrópu- þjóðanna er í. Hitt er kannski annað mál, að Bretar hafa alltaf verið sjálfum sér likir með ágang á auðlindir annarra þjóða. Eftir að hafa uppétið fiskinn við strendur heimalands sins, og ekkert hugsað um að verja eða vernda fiskistofninn, hafa þeir ætt úr einu landinu í ann- að og eytt og uppurið auðlind- ir þeirra, og að lokum étið út- sæðið og skilið svo allt eftir í auðn. Og nú ætla þeir að leika sama leikinn við smáþjóðina á Islandi. 1 stað þess að láta Breta æsa sig upp til óhæfuverka, ættu þær þjóðir, sem skilja hina raunverulegu hættu, sem steðjar að hinum einu raun- verulegu hrygningar- og upp- eldisstöðum þorksstofnsins að standa með íslendingum, að vernda þetta forðabúr Evrópu og útiloka ásókn stórþjóðanna áður en allt er um seinan. M. Á. F.“ 0 Óhæfur útvarpsþáttur „Kæri Velvakandi! Gleðilegt sumar! Ég skrifa þér nú vegna þess, að ég get ekki orða bundizt út af þætti, sem ég hlýddi nýlega á í útvarpinu, „Og svo fór ég að skjóta." Ja, það sér á að það er komin ný ríkisstjóm og þar með annað útvarpsráð. Útvarp- ið er orðið svo pólitískt eða réttara sagt kommúnistískt að það er ekki að verða hlustandi á það. — Ekkert skil ég í að þættir á borð við þann, sem að framan greinir, hafi ekki þver- öfug áhrií við það sem þeim er ætlað, jafn ógeðslegur, einhliða áróður og í honum fólst. Nú dettur mér ekki í hug að ætla að fara að hreinþvo alla Banda rikjamenn af öllum hryðju- verkum í Víetnam, enda engin von. Finnst mér að hvorki þeir né aðrir, sem í þann hryllings- leik er atað, haldi heilum söns- um til lengdar. En að fara að draga fram í dagsljósið sannar eða lognar hryðjuverkasögur af Bandarikjamönnum einum og hrópa svo bara: „Það er lygi! Það er lygi!“ þegar átti að fara að bendla Norður-Viet- nam við eitthvað slikt líka, þá hefur nú líklega flestum óblind um verið nóg boðið og mér er spurn: Hefir nokkur heyrt ann an eins málflutning? Eða þá spurningin: „Ef ráðizt væri á þig á þínu eigin heimili, myndirðu ekki reyna að bera hönd fyrir höfuð þér?“ — Ég held að eins væri hægt að orða þetta þannig: „Ef einhver á þínu eigin heimili réðist á þig, til að kúga þig eða drepa, myndirðu þá ekki verða feginn að einhver óviðkomandi veitti þér lið?“ Ef einhver hefur álitið í byrj- un þáttarins, að þeir sem fluttu hann, hafi gert það í einlægri friðarviðleitni, þá skil ég ekk- ert í að flestir hafi ekki séð í gegn, þegar að lokaorðunum kom og einum áróðursmannin- um varð sú óhemju skyssa á að svipta alveg af sér grím- unni og klikkja út með því að fara að tala um herinn á Kefla- víkurflugvelli. Hér áður var oft gaman að þættinum um heims- málin. Nú er ekki orðið hlust- andi á hann fyrir sama áróðr- inum, þvi þegar orðið auðvald og auðvaldsstefna er farið að koma fyrir kannski í annarri hvorri setningu í heilum þætti, þá fer nú að verða þreytandi að hlusta. — Nei, það þarf enginn að láta sér detta í hug að svona áróður sé hafður í frammi af einskærum friðarvilja. Siður en svo. Þá mundi allt ofbeldi dæmt jafn hart, hvort sem Norður-Víetnamar sýna það Suður-Víetnömum eða Banda- ríkjamenn Norður-Vietnömum. — Mér finnst nú að ef útvarps- ráð hið nýja treystir sér ekki til að snarhætta slíkum áróðri þá ætti það að hafa vit á að segja af sér hið fyrsta áður en fólk fer að segja upp eða láta loka útvarpstækjum sínum. Með beztu kveðju. 0 Biðröð í sundlaugum „Kæri Velvakandi. Mikil er ösin á sundstöð- unum þessa dagana. Ég er einn þeirra, sem oft koma í Laugar- dalinn til að synda, stundum á mesta annatímanum. Er þá jafnan biðröð og oft þarf að bíða góða stund eftir að skáp- ur losni. Það fer hins vegar ekki fram hjá fastagestunum, að fjölmargir skápar eru ekki í notkun — vegna þess að lás- ar eru bilaðir o.s.frv. Ég hef gert það að gamni mínu að kasta lauslega tölu á þessa „dauðu" skápa, þeir skipta oft tugum. Einn baðgesta áræddi á dög- unum að vekja athygli af- greiðslunnar á ástandinu og sagði, að þessar biðraðir yrðu e.t.v. úr sögunni, ef allir fata- skáparnir yrðu teknir i notkun — og var mjög kurteis. En hann fékk óblíðar mót- tökur hjá konunni i afgreiðsl- unni, en hún upplýsti m. a. að sundlaugarstjór- anum væri fullkunnugt um þetta — svo að hér var ekki verið að upplýsa neinn leyndardóm. Ég veit ekki skýringuna og spyr því: Hvers vegna er ekki reynt að hafa alla skápa not- hæfa svo að fólk þurfi ekki að bíða í lanigri halarófu eftir plássi? G. G.“ Sundlaugargestur."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.