Morgunblaðið - 30.04.1972, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.04.1972, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. APRlL 1972 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30 APRlL 197? Otgefandi hif. Árvakuc R'éyloiavfk Fr.arn'k.vaemdastjóri Harafdur Sveinssen. -Rktstiórar Mattihías Johannessen, Eýj'óilfur Konráð Jórísson. Að'Stoðarritstjóri SÍtyrmir Gunnarsson. RítS'tjórrrarfiullitrúi ÞiorbSörin Guðmundsson Fréttastjóri Björn Jólhannsson Auglýsingastjöri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 1Ö-100. Augilysingar Aðalstraeti 6, sfmí 22*4-60. Áskriftargjald 226,00 kr á 'rrvámuði innanlands I teusasötu 16,00 Ikr einta'kið 1. MAI Á morgun er 1. maí, hátíðis- dagur verkalýðsins. Það gefur tilefni til þess að staldra við, — rifja upp, hvernig umhorfs var í þjóð- félaginu fyrir ári og bera saman við ástandið nú. 1. maí í fyrra ríkti bjart- sýni í þjóðfélaginu. Atvinna var næg um allt land og víða skortur á vinnuafli. Launþeg- ar höfðu bætt hag sinn mjög og var talið, að kaupmáttur meðalkauptaxta verkafólks hefði aukizt frá 1969 um 16% til 17% og ráðstöfunartekna um 20% eða meira. Þetta var ótrúlega mikil breyting á svo skömmum tíma og staðfesti, að stjórnvöld höfðu brugðizt rétt við á erfiðleikaárunum, svo að lífskjör alls almenn- ings voru aftur orðin eins og þau höfðu verið bezt á árinu 1966 og framan af ári 1967. Kaupmáttaraukningin var ekki sízt að þakka verðstöðv- unarlögunum frá haustinu áður, en með þeim tókst að hafa hemil á verðbólguþró- uninni og koma í veg fyrir víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags, sem hefðu á skömm um tíma gert kjarabæturnar frá vorinu 1970 að engu. Þegar íhugað er, hversu geysilegar kjarabætur urðu hér á landi á árunum 1969 til 1971, er eðlilegt, að sú spurning vakni, hvort at- vinnuvegirnir og þjóðarbúið í heild hafi verið undir þær búin. Skýrasta vitnisburð- inn um það er að finna í mál- efnasamningi núverandi rík- isstjórnar, en þar segir m.a.: „Auk þeirra kjarabóta, er að framan greinir, telur ríkis- stjórnin, að með nánu sam- starfi launafólks og ríkis- stjómarinnar sé mögulegt að auka í áföngum kaupmátt launa verkafólks, bænda og annars láglaunafólks um 20% á næstu tveim árum, og mun hún beita sér fyrir, að því marki verði náð.“ Svo vel vill til, að forsætisráðherra hefur sérstaklega látið þess getið á Alþingi um þessa grein málefnasamningsins, að hún hafi verið ákveðin að athuguðu máli og að fengn- um nauðsynlegum upplýsing- um og gögnum. Það fer því því ekki á milli mála, að við stjórnarskiptin voru að mati núverandi ríkisstjórnar allar ástæður til þess að gera frek- ari kjarabætur mögulegar, ef rétt væri á haldið, og það um hvorki meira né minna en 20% aukningu kaupmátt- arins á tveim árum. Það, sem síðan hefur gerzt, þarf ekki að rekja. Fyrir- heit ríkisstjórnarinnar hafa reynzt tálvonir einar. Kjara- bæturnar voru innan seiling- ar, en röng stjórnarstefna hefur leitt til kjararýrnunar. Nú er svo komið, að afrakst- ur desembersamninganna er orðinn minni en ekki neitt, — og enn sígur á ógæfuhlið- ina. Skýrsla viðskiptaráð- herra um verðlagsþróunina síðustu vikurnar er ófagurt en órækt vitni þess, að ríkis- stjórnin hefur gefizt upp við að leysa vandann, en verð- bólguhjólið heldur áfram að snúast með æ meiri hraða. Hvað er framundan? er spumingin, sem brennur á vörum manna. Ætlar ríkis- stjómin að sitja áfram með hendur í skauti, — eða ætlar hún að manna sig upp og gera eitthvað? Reynslan ein getur svarað þessum spurn- F'yrsti maí er að þessu sinni * helgaður baráttunni fyr- ir útfærslu landhelginnar. Þessi ákvörðun verkalýðs- hreyfingarinnar ber sam- stöðu þjóðarinnar órækt vitni, — samstöðu, sem í senn er til þess fallin að veita stjórnvöldum siðferðilegan stuðning í þeirri hörðu bar- áttu, sem framundan er, og vekja skilning erlendra ingum. En 1. maí, á baráttu- degi verkalýðsins, hljóta þær að vera fram bornar, ekki til hátíðisbrigða, heldur af festu og alvöruþunga. Menn minn- ast þess, að ríkisstjórnin gaf sér sjálf einkunnina „ríkis- stjórn vinnandi stétta,“ þótt hljótt hafi farið undanfarna mánuði. Þótt ekki væri nema í minningu þess, ættu ráð- herrarnir að manna sig upp og gera loks hreint fyrir sín- um dyrum, hreinskilnings- lega og undanbragðalaust. 1. maí fyrir ári ríkti bjart- sýni hér á landi, það var vor- hugur í þjóðinni og hún hlakkaði til að geta veitt kröftum sínum útrás. Þótt nú horfi til verri áttar, er ekki ástæða til algjörrar svartsýni. Ríkisstjómir koma, en þær fara líka. manna á þeirri alvöru, sem að baki býr. Nú eru ekki nema fjórir mánuðir, þangað til útfærsl- an tekur gildi. Þennan tíma verður að nota vel, fara með gát og fyrirhyggju, en forð- ast vanhugsaðar yfirlýsing- ar. Það er forsenda þess, að sigur vinnist í landhelgismál- inu. 50 MÍLURNAR JÓHANN HJÁLMARSSON <^STIKUR BÆKUR OG TÍMI FYRIR NORÐAN HÖFUNDAMIÐSTÖÐ Rithöíunda- sambands Islands er stofnuð í því skyni að veita þeim aðilum fyrir- greiðslu, sem óska eítir að fá rithöf- unda á sinn fund til þess að lesa úr verkum sínum. Höfundamiðstöðin hefur einkum annast tengsl rithöf- unda og skóla, fyrst og fremst í Reykjavík og nágrenni. Ingólfur Kristjánsson hefur veitt Höfunda- miðstöðinni forstöðu af alkurmri at- orku og iipurð, en Indriði G. Þor- steinsson hefur verið með honum í stjórn stöðvarinnar. Nýlega fóru rithöfundar norður í land á vegum Höfundamiðstöðvar- innar. Lásu þeir upp úr verkum sin- um í sjö skólum í Húnavatnssýslu, á svæðinu frá Reykjaskóla að Skaga- strönd. Með i förinni var Erlendur Jónsson og flutti hann inngang á hverjum stað um þróun íslenskra samtimabókmennta. Lagði hann áherslu á þær breytingar, sem urðu í íslensku þjóðlifi með síðari heims- styrjöld O'g áhrif þeirra á bókmennt- irnar. Það sannaðist í þessari för, að ekki er nóg að rithöfundar komi í skóla og lesi upp úr verkum sínum án þess að gerð sé að öðru leyti til- raun til að koma til móts við nem- endur. Menn fundu hve mikils virði var að hafa kunnáttumann um bók- menntir til að greiða fyrir skilningi á efninu. Erlendur Jónsson er vanur að tala við ungt fólk í kennarastarfi sínu. Honum lætur einstaklega vel að skýra bókmenntaleg efni. Miklu skiptir að fyrirlesari komi ekki með skrifaða ræðu, heldur láti tal sitt rnótast af stundinni og þeim hópi, sem hlustar i hvert skipti. Hinir ungu nemendur kunnu vel að meta spjall Erlends og áttu fyrir bragðið auðveldara með að tileinka sér það, sem rithöfundarnir fluttu. Það er líka margprófuð staðreynd, að rit- höfundar þurfa að velja efnið eftir áheyrendum. Auðljóst er að heimsóknir rithöf- unda i skóla landsins eru bráðnauð- synlegar og fráleitt að takmarka bókmenntakynningar við höfuðborg- arsvæðið eitt. Ætli rithöfundamir sjálfir hefðu ekki líka gott af því að mótast af stundinni og þeim hópi, menntaáhuga, sem þar er víðja ríkj- andi. Höfundamiðstöðin er ung stofn- un og á vonandi eftir að láta margt gott af sér leiða i kynningu íslenskra bókmennta. Brýnt skal fyrir skóla- stjórum að vera ófeimnir við að not- færá sér þjónustu hennar. ----O---- Nauðsynlegt er að kenna ungu fólki að meta samtimaskáldskap. Hann er áreiðanlega ekki síður við hæfi þess en skáldskapur liðins tíma. Sé tekið dæmi úr Ijóðlistinni er gott að þekkja söguna á bak við ljóð Jónasar Ferðalok: Greiddi eg þér lokka við Gaitará, en það er ekki verra að átta sig á orðum Steins úr Tímanum og vatninu: Frá vitund minni til vara þinna er veglaust haf. Ekki er sanmgjamt að draga i efa, að islenskukennarar geri sér þetta ljóst. Hvarvetna verður vart þeirrar við- leitni að ætla samtímaskáldskap meira rúm í kennslunni en áður. Annars er timinn einkennilegt fyr- irbrigði. 1 hinu vel skipulagða og f jölbreytta byggðasafni í Reykja- skóla er margt merkilegt að sjá, t.d. hákarlaskipið Ófeig, eina skip sinnar tegundar, sem varðveitst hefur. En það, sem vakti athygli ferðalanganna var að sumir munanna í safninu voru ekki eldri en það, að þeir mundu vel eftir þeim úr æsku sinni. Samt virð- ist óralangt síðan þeir gegndu hlut- verki sinu. Þannig leikur tíminn menn. Ekkert stendur kyrrt. Erlendur Jónsson fjallaði meðal annars um það í fyrirlestrum sínum hvemig náttúran hættir að vera aðal- yrkisefni skáldanna en tíminn tekur við: maðurinn í timanum, í staðinn fyrir mancninn í náttúrunni. Hann hafði kenningu T. S. Eliots um Idea of Time að leiðarljósi. Hér er komið að þungamiðju til skilnings á sam- tímaskáldskap, atriði, sem menn verða að hafa í huga ef þeir ætla til dæmis að skilja hvers vegna verk samtímarithöfunda eru öðruvísi en það, sem samið var á nitjándu öld. Skáldin hafa velt fyrir sér timanum og fundið afstæði hans. Hólmganga mannsins við tímann verður upp- spretta skáldverka. ----O---- Á Síðu í Engihliðarhreppi býr Jakob Bjamason. Okkur var sagt frá honum á Skagaströnd. Jakob hefur safnað bókum frá þvi á unglingsár- um og á framúrskarandi vandað bókasafn. Einkum er ljóðabókasafn hans með miklum ágætum. Við feng- um að sjá margar og fágætar bækur, til dæmis frumútgáfur á verkum Jóns Þorlákssonar. Þýðingar Jóns á Kloppstokk (Klopstock) voru dregn- ar fram ásamt Tilraun um manninn eftir Alexander Pope og Paradísar- missi Miltons. Þótt ekki sé vítt til veggja hjá Jakobi Bjarnasyni á hann meiri verðmæti en margir aðrir. Að undamförnu hefur hann verið að hjálpa Landsbókasafninu um sjald- séð eintök bóka og blaða, enda hefur Finnbogi Guðmundsson, landsbóka- vörður, sýnt safni hams áhuga og að- stoðað hann á ýmsa lund. Jakob hefur fallega og skýra rithönd eins og sjá má á skrám, sem hann hefur sjálfur gert yfir bækur sínar. Bækur í hans eign eru ekki færri en sex þús- und talsins. Við fundum í stofunni hjá Ja'kobi Bjarnasyni yl þeirrar menningar, Framhald á bls. 26. Reykjavíkurbréf -----Laugardagur 29. apríl Työ góðskáld látin Nú er skammt stórra högga i milli í íslenzku menningarlífi. Hver listamaðurinn á fætur öðr um hnígur í valinn og nú síð- ast góðskáldin Jakob Thoraren- sen og Jóhannes úr Kötlum. Báð ir eru þeir úr hópi helztu skálda þessarar aldar á Islandi og hafa sett svip sinn á samtíðarbók- menntir, hvor með sínum hætti. Er enginn vafi á, að hið bezta í vsrkum beggja mun lengi lifa og halda minningu þeirra á loft. Jóhannes úr Kötlum og Jak- ob Thiorarensen eru ólíikrar gerð- ar að flestu leyti, þó að báðir væru þeir vaxnir úr íslenzkum jarðvegi og rætur þeirra með næringu úr rammíslenzkri menn ingararfleifð. Jakob Thoraren- sen, sem var nær hálfum öðr- um áratug eldri en Jóhannes úr Kötlum er einhver islenzkasti rithöfundur vor um sína daga, én Jóhannes úr Kötlum varð aft ur á móti fyrir áhrifum þeirrar alþjóðahyggju, sem sótt hefur afl sitt og styrk í verk Marx og Lenins. Þó var hann mjög þjóðlegt skáld, ekki síður en Jakob Thorarensen. Verk beggja þessara skálda bera vitni reisn og krafti þjóðlegrar íslenzkrar menningar. Þegar Jóharanes úr Kötlum varð 70 ára, komst Morgunblað ið svo að orði, að hann nyti mik ilia vinsælda meðal almennings og Ijóð hans væru á hvers manns vörum. Á þessa stað- reynd er ástæða til að minnast við lát skáldsins. Jóhannes náði að hjartarótum íslenzkrar þjóð- ar með ljóðum sínum. Pólitísk- ir andstæðingar skáldsins spurðu aldrei um stjórramála- skoðanir hans, þegar beztu ljóð hans voru annars vegar, svo ís- lenzk voru þau i raun og veru, svo upprunalegur og frjálsbor- inn skáldskapur. Aftur á móti ber ekki að neita þvi að mörg- um varð um og ó, þegar skáld- ið fjallaði um Stalin, bóndann í Kreml, eins og hann ætti erindi við islenzka þjóð. Þá var ástæða til að hætta að leggja við hlust- imar, enda af nógu öðru að taka, sem betra var og merki- legra í skáldskap Jóhannesar úr Kötlum. Á áttræðisafmæli Jakobs Thorarensens sagði Morgunblað- ið m.a. að hann sæti á fremsta bekk þeirrar skáldakynslóðar, sem tók við glæsilegum bók- menntaarfi 19. aldar. Blaðið benti á að ljóð Jákobs Thorar- ensens væru ort á mergjiuðu skáld skaparmáli og nytu vinsælda allra þeirra, sem ást hafa á ís- lenzkri Ijóðlist. En það, sem einkum eirakenndi smásagnagerð Jakobs og gerði hann sérstæðan, væri skopskyn hans, „sem er í senn óvenjulegt í íslenzkum bókmenntum og einkar persónu legt. Er óhætt að fullyrða að Jakob Thorarensen sé í hópi skemmtilegustu rithöfunda ís- lenzkra á þessari öld,“ segir Morgunblaðið. Við andlát Jakobs Thoraren- sens er ástæða til að taka und ir þessi orð, og þá ekki síður að þakka skáldunum báðum, honum og Jóhannesi úr Kötlum, þjónustu þeirra við þá listgrein, sem stendur hjarta íslenzku þjóðarinnar næst. Þeir voru hvor með sínum hætti merkir fulltrúar þess þúsund ára arfs, sem við eigum í íslenzkri Ijóða- gerð, eftirminnilegir boðberar rótgróinnar íslenzkrar menning- ar. 18 ára aldurstakmark Hressandi var að kynnast þeirri víðsýni, sem fram kom í ummælum Guðrúnar Narfadótt- ur í sjónvarpsþætti fyrir nok'kr- um mánuðum. Þar benti hún á, að heppilegt kynni að vera að lækka þann aldur, sem heimild til vínveitinga á opinberum sam- komustöðum er miðuð við. Áð- ur hafði Sigurlaug Bjarnadótt- ir vakið máls á þessu í borgar- stjórn Reykjavikur. Nú hefur verið lagt fram frumvarp á Al- þingi um breytingar í þessu efni, að undirlagi áfengisvam- arráðunauts, Ólafs Hauks Árna- sonar. Er það flutt af þingmönn- um úr öllum flokkum og þess að vænta, að það fái samþykki. Eins og þau nöfn, sem hér hafa verið tilgreind, bera með sér, miðar breyting þessi ekki að því að drykkjuskapur auk- ist, heldur gerir þetta ágætis- fólk sér grein fyrir þvi, að ár- angur næst ekki i barátt- unni gegn áfengisneyzlu nema menn horfist i augu við stað- reyndir. Og i þessu efni er stað- reyndin sú, að útilokað er að hindra áfengisneyzlu hluta þess fólks, sem aðgang hefur að vín- veitingahúsum. Þess vegna er verið að kenna mönnum lögbrot, þegar þeim er umyrðalaust veitt áfengi, þótt ólögmætt sé. Því miður er það staðreynd, að fjölmargir ungliragar neyta áfengis langt undir 18 ára aldri og sumir svo að ömurlegt verð- ur að teljast. Það mun líka vera svo, að unglingum almennt finn- ist fráleitt að miða aldursmark- ið við 20 ár. Hins vegar er hugs- anlegt að vinraa þeirri skoðun al mennt fylgi meðal æskumanna sjálfra, að áfengisneyzla mikið undir 18 ára aldri sé ósæmandi. En hvað sem því líður, þá miða breytingar þær, sem hér um ræð- ir, að því að auðvelda löggæzl'U og eru án efa til bóta. Ummæli framsóknar- þingmannsins Þegar skattalagafrumvörpin höfðu verið lögð fram á Alþingi fyrir jólin, sagði einn af þing- mönnum Framsóknarflokksins við borgarstjórann í Reykjavík að bréfritara áheyrandi eitt- hvað á þessa leið: „Skilurðu ekki ,hvað við er- um að gera. Við erum að taka tekjumar af Reykjavik og þjarma að borgarstjórnarmeirl- hlutanum, svo setjum við fram- sóknarmann til eftirlits með störfum þínum, þegar borgin er orðin greiðsluþrota, og þá tekst okkur loks að knésetja meiri- hluta ihaldsins." Öllu gamni fylgir raokkur al- vara. Þingmaðurinn veit, að ekk ert er meira kappsmál þeirra af!a, sem nú ráða í íslenzku þjóðlífi, en að þjarma svo að höfuðborginni og borgar- stjórnarmeirihlutanum, að unnt verði í næstu borgarstjórn- arkosningum að hrinda þeim meirihluta, sem Reykvíkiragar hafa alla tið kosið sér, meiri- hluta ábyrgra stjómenda, en ekki pólitiskra braskara. Og raunar hafa blöð vinstri flokk- anna ekki farið neitt dult með þetta áhugamál sitt síðustu daga, heldur talað umbúðalaust um það, að nú eigi að ganga af meirihluta borgarstjórnar sjálf- stæðismanna í Reykjavík dauð- ► um. Aðförin að Reykjavík En aðförin að Reykjavík hef- ur ekki reynzt eins auðveld og forsprakkar vinstri aflanna hugðu. Svo vill til, að ekki er unnt að garaga hreint til verks gegn einu sveitarfélagi og setja því önnur tekjustofnalög en öðr- um. Annars hefði það án efa verið gert í baráttunni gegn reykviskum hagsmunum. Vinstri flokkarnir eru ýmist allsráðandi eða í samstjóm með öðr- um í ýmsum bæjar- og sveitar- félögum. Þótt tekjustofnar sveit- arfélaga væru almennt mjög skertir, varð þó að búa svo um hnútana, að þessi sveitarfélög, sem velvilja njóta af hálfu stjórnarvalda, yrðu ekki gjald- þrota. Þess vegna vom í tekju- stofnalögin sett heimildar- ákvæði, sem öll hin stærri sveit- arfélög nota sér. Auðvitað gera þau það ekki, vegraa þess að þau langi til þess að skattpína íbúana, heldur einfaldlega af brýnni þörf. Tekjur sveitarfélaganna verða samt sem áður miklum mun minni en verið hefði eftir eldri löggjöf, en hins vegar er ljóst, að skattar á þegnana almennt hækka verulega, því að rikis- sjóður tekur nú til sin gifurlega fjármuni frá einstaklingum og fyrirtækjum. En þegar ljóst varð, að ekki mundi unnt með þessum hætti að knésetja Reykjavíik, var gripið til ýmissa annarra úrræða. Orku málaráðherra boðar nú ákaft, að skerða eigi eignarhlut Reykja- víkur í Landsvirkjun, og heil- brigðismálaráðherra, sem raunar er sama persónan, berst fyrir því, að borgarlæknisembættið í Reykjavík verði lagt niður. Stofraunum Reykjavíkurborgar eru meinaðar óhjákvæmilegar hækkanir, vegna hins gifurlega útgjaldaauka, sem orðið hefur á síðustu mánuðum. Má þar nefna strætisvagnana, rafmagnsveituna og hitaveituna. Þessum fyrir- tækjum er ætlað að mæta út- gjaldaaukanum með taprekstri, svo að fjárhagur þeirra þreng- ist, saumhliða tekjuskerðingu til borgarsjóðs sjálfs. Hér hafa verið nefnd nokkur dæmi um aðförina að Reykjavík. Þau eru liður í markvissri stefnu vinstri stjórnarinnar til að lama höfuðborgina og koma málefnum hennar á vonarvöl, svo að unnt verði að setja „fram- sóknarmanninn" til höfuðs borg- arstjóra. En gallinn er bara sá, að fram- sóknarmenn þekkja ekki hug þorra Reykvíkinga. Hins vegar þekkja Reykvíkingar framsókn- armenn frá fyrri tið og síðari, og óhætt er að fullyrða, að vinstri stjórnin mun fá sig full- sad'da, áður en yfir lýkur í því stríði, sem hún hefur hafið á hendur höfuðborginni. Borgar- búar muou snúast til varn- ar undir forustu Geirs Hall- grímssonar, borgarstjóra, og borgarstjórnarmeirihluta síns og þeirri vörn mun snúið í sókn e'ns og gert var á tíimum fyrri vinstri stjórnarinnar, sókn sem enda mun með fullnaðarsigri yf- ir vinstri öflunum. Vígið óvinnandi Oft heyrist þessari spurningu varpað fram: „Hvers vegna eruð þið sjálfstæðismenn alveg róleg- ir, þótt nú sé við völd vinstri stjórn. Sú versta og ráðlausasta, sem hér hefur setið?“ Svarið við þeirri spurningu er ekki flókið. Núverandi stjórnarflokkar fengu meirihluta í kosningunum síðast liðið sumar, og þess vegna var eðlilegt að þeir mynduðu stjórn. Þeir höfðu verið í stjóm- arandstöðu og lagt kapp á að hrinda völdum fyrrverandi stjórnar. Þeim bair því Skylda til að sýna, hvers þeir væru megn- ugir við stjórn þjóðmálanna. For ustumenn Sjálfstæðisflokks- ins vissu fullvel, að þessir menn mundi ekki geta stjómað landsmálum saman, nema- skamma hríð — og skal hér ekki tíundað allt það, sem þá skort- ir til þess. 1 öðru lagi var ljóst, að nýj- ungagirni hlaut að valda þvi, að fleiri eða færri vildu reyna aðra stjórnendur en þá, sem með völd höfðu farið í meira en áratug. Þessa „ánægju" verður að veita þeim, sem hennar æsktu, og ekki er nóg, að þeir fái bara að sjá loforðalista vinstri stjórnarinn- ar, heldur verður líka á það að reyna, hvernig takast muni að efna öll hin glæstu loforð. Og nú er einmitt komið að skulda- dögunum, enda eru ráðherrarn- ir ekki jafn upplitsdjarfir og þeir voru fyrstu vikumar og márauðina, þegar þeir héldu, að þeir hefðu himin höndum tekið. En fyrst og siðast er þó ástæð- an til þess, að sjálfstæðismenn horfa brosandi á tilburði ríkis- stjórnartetursins, sú að eitt vígi er óunnið — og það er óvinn- andi. Sjálfstæðismenn ráða höf- uðborginni og þótt ekki væri annars staðar frá þá kemur þeim þaðan meira en nægur styrkur til þess að veita vinstri stjóm- inni það aðhald, sem nauðsyn- legt er, meðan hún hjarir við völd, og þar er líka næg- ur styrkur til að koma þessari stjórn frá völdum, eins og fyrri vinstri stjórninni 1958, ef á þarf að halda — sem raunar þarf ekki, vegna þess að hún er orðin jafn óvinsæl úti á landi eins og í höf- uðborginni. En svona einfalt er nú þetta svar. Harðnandi lífsbarátta Guðmundur Magnússon, próf- essor, gat þess í erindi, sem hann flutti nýlega, að á síðari hluta ársins mundi lifsbaráttan fara harðnandi og fyrst mundi hagur atvinnufyrirtækjanna versna. Raunar hafaTíjör manna mjög verið skert síðustu mánúði og hagur fyrirtækjanna versnar líka dag frá degi. Þess vegna þarf varla að efast um, að spá Guðmundar í þessu efni sé rétt. Vinstri menn hafa löngum haldið því fram, að ástæðulaust væri að afkoma atvinnuveganna væri góð. Þeir hafa ýmist talið, að rétt væri að halda fyrirtækj- unum í svelti eða þá, að hrein- lega bæri að leggja einkarekst- ur að velli, svo að rikisvaldið gæti vasazt i öllum málefnum borgaranna. Aðrir gera sér grein fyrir því, að auðlegð þjóð- •arinnar kemur ekki frá öðrum en atvinnugreinunum. Ef þrótt- ur er dreginn úr atvinnufyrir- tækjunum, hlýtur það að leiða til versnandi hags landsmanna allra, en ekki bara eigenda fyr- irtækjanna. Nú er framundan gífur- leg hækkun útgjalda atvinnu- fyrirtækja, líklega nálægt 15%, ef ekki verður gripið til nýrra vísitöluskerðinga eða haldið áfram fyrri skerðingu hennar, sem ákveðin var 1. marz. Þessi útgjöld þreragja mjög hag út- flutningsframleiðslunnar, og þau gera það að verkum, að óhjá- kvæmilegt verður að leyfa verð- lagshækkanir hjá þeim fyrirtækj um, sem selja á innlendum mark- aði eða sjá um þjónustustörf. Ef slikar hækkanir yrðu ekki heimilaðar, mundi hagur fyrir- tækjanna enn versna og þar með lifsafkoma landsmanraa. Glíman við verðlagið Um langt skeið hefur rikls- valdið háð glímu við verðlagið, ekki aðeins sú rikisstjórn, sem nú situr heldur lika Viðreisnar- stjórnin, og ríkisstjómir þær, sem á undan henni sátu. Hér á landi hefur allt frá þvi á styrj- aldarárunum verið reynt að beita þeim brögðum í þess- ari glímu, sem nefnd eru verð- lagshöft. En verðbólgukappinn hefur staðið öll brögð af sér og hefur aldrei verið sprækari en einmitt nú. En samhliða þvi sem óðaverð- bólga er að ríða yfir, versnar hagur íslenzkra atvinrauvega —• og þar með lika launamanna. Og þess vegna er engin furða, þótt menn velti þvi fyrir sér, hvort verðlagshaftadraugurinn þýði beinlínis meiri verðbólgu en ella mundi vera. Flest ríki Vestur-Evrópu bjuggu við margháttuð höft fyrstu árin eftir styrjöldina, þar á meðal verðlagshöft og hvers kyns vinstrivillu og ofstjórnar- æði ríkisváldsins. Þau hafa öll horfið af þessari braut og innleitt meira frjálsræði. Við íslending- ar einir sitjum eftir í þessu haftaneti, sem nú er verið að fastríða. Satt bezt að segja er engin furða, þótt stjórnarherramir séu nú eins og gapuxar, sem ekki vita sitt rjúkandi ráð. Þeir segjast þjarma að fyrirtækjun- um eins og frekast sé unnt og heimila eins litlar hækkanir og hugsanlegt sé. Samt hefur þeim tekizt að koma af stað hvort tveggja í senn, óðaverðbólgu og verulegri kjaraskerðingu. En það er einmitt þessi reynsla, sem stjómarandstæðing, ar hafa beðið eftir að i ljós kæmi. Stefna ofstjómarmanna, andstaða frjálsræðisstefnunnar hefur leitt til þess öng- þveitis, sem framundan er á öll- um sviðum íslenzks þjóðlífs. Þess vegna dæmir hún sig sjálf og þá verður unnt að hefja nýja og \ þróttmikla uppbyggingu ' á grundvelli frjálsræðis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.