Morgunblaðið - 30.04.1972, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.04.1972, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. APRIL 1972 1. maí - Hátíðisdagur verkafólks |>cir voru ekkert að mylja moðið löndiinarmennirnir i Jóni Þorkelssyni og- sögðn sína meiningu jafn ákveðið og þeir gengu til verks. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm. FYRSTI maí hefur nú um langt árabil verið hátíðisdag- ur verkalýðsins. Að því til- efni fóru tveir af blaðamönn- um Mbl. og ræddu við verka- fólk um daginn og veginn. Fyrsti maí er á morgun og óskar Morgunblaðið öllu vinnandi fólki til hamingju með daginn. Páll Sæmimdsson vaktmaður í toguriinum. Baráttan hefur verið hörð Löndun stendur sem hæst úr togaranum Jóni Þörlákssyni er við hittum roskinn mann aftan- til á skipinu. Hann er vaktmað- ur um borð og starfsmaður Bæj- arútgerðar Reykjavikur. Hann heitir Páll Sæmundsson og er fé lagi í Dagsbrún. — Kjörin eru svona þoianleg í dag — segir Páll og brosir um leið og við hefjum spjallið. Þó hefði ég í raun ekkert á móti þvi að þau væru eitthvað betri, en harkan í þessum málum er svo sem alltaf nóg. Baráttan hefur verið hörð og verður það, þvi að í lok hvers samningstíma- bils er allt upp urið af verð- bólgunni. Þó held ég, að lengri samningur sé heldur hvetjandi til hægfara verðbólgu en hitt. -— Hvað ertu búinn að starfa lengi hjá B.O.R.? -— Ég er búinn að starfa hjá Bæjarútgerðinni í ein 20 ár, var sem sagt rétt að byrja, segir Páll og hlær við. Otgerðin er, að þvi er ég held, um það bil 25 ára, a.m.k. er Ingólfur nú 25 ára og hann var fyrsti togari útgerðar- innar. Sjálfur er ég brátt sjötug ur. Og að endingu biður Páll Sæ- mundsson okkur um að bera fyr- ir sig kveðjur til alls verkafólks, sem hann óskar til hamingju með daginn 1. mai. Ekki hafa kjörin batnað Og karlarnir halda áfram að skipa upp fágurrauðum karfan- um úr Jóni Þorlákssyni. Verk- stjóri þeirra er Bjarni Guð mundsson, sem verið hefur verk stjóri hjá Togaraafgreiðsl- unni frá árinu 1945. Þó hefur hann „unnið á bryggjunniV, eins og hann kallar það sjálfur frá þvi 1938, er hann hætti til sjós. Við spurðum Bjarna að því, hvort ekki hefðu orðið mikl ar breytingar á þessum árum, og hann svaraði: — Jú, það hefur margt breytzt. Þá gat maður valið úr fólki, en nú fæst varla maður í löndun og ástandið versnar með hverju ár inu. Ég veit ekki hvernig þetta endar. Helzti gallinn á þvi skipu lagi sem samningarnir bjóða upp á, er að bilið milli fólks, sem vinnur að löndun á fiski og fólks sem vinnur við almenna uppskipun er alltaf að minmka. Ég er nú aðeins með 24 karla, en þyrfti að hafa a.m.k. 40. Flest ir þeirra, sem hér eru nú, eru fastir starfsmenn mínir, en þeg- ar þeir hætta eða falla frá eru engir til að taka við. Kjörin eru allt of lág. — Hvað gæti orðið þar helzt til bóta? -— Karlarnir þyrftu að hafa meiri fríðindi. Togarasjómenn hafa ýmis friðindi, eftirvinnan ætti að vera skattfrjáls og þeir þyrftu að fá fri hlífðarföt rétt eins og sjómennirnir. Þessir menn þurfa á klofstígvélum og stökkum að halda rétt eins og venjulegur togarasjómaður. — Ertu meðmæltur kjarasamn- ingum til tveggja ára eins og síð ast var samið um? — Nei, í verðbólguþjóðfé- lagi eru slíkir samningar fá- sinna og ekki hafa kjörin batn- að við nýj-a ríkisstjórn. Alit hef- ur versnað. Ég veit t.d. ekki, hvernig gamalmenni komast af, þótt þau séu ef til vill svo hepp in að eiga þak yfir höfuðið. Þá er þeim bara íþyngt með fast- eignasköttum. Það virðist allt hækka um þessar mundir. Og ef talað er nú um það að taka 50%, skattfrádrátt af tekjum eigin- kvenna, þá fer ldtið að verða eftir og heidur að siga á ógæfuhliðina fyrir frystihúsunum, því að það veit hver maður, að konan er að- aluppistaða fiskvinnslustöðv- anna. Og með það kvöddum við Bjarna, sem sagði okkur, að strax og búið væri að losa togarann Jón yrðu þeir að fara yfir í Hallveigu, sem biði losun- ar, því að mannskapurinn væri ekki meiri en svo að ekki væri unnt að losa bæði skipin i senn. Ekki einu sinni hægt að taka sumarfrí Ivar Guðlaugsson hélt áfram að þvo fjalirnar um borð i tog- aranum Jóni Þorlákssyni á með- an við röbbuðum við hann. „Maður er að visu aldrei ánægður með launin,“ sagði hann, „en það er þó verst með skattpíninguna. Að visu höfum við miklar tekjur, en ég er nú orðinn 63 ára og þá þykir manni fjandi hart að vera píndur með sköttum. Dýrtiðin er þá ekki til þess að bæta úr því eins og hún er gasaleg orðin og maður læt- ur sér ekki einu sinni detta í hug að hægt sé að taka sumar- frí.“ „Svo er það nú eitt,“ hélt hann áfram, „það er þetta langa samn ingstímabii, tvö ár, og enginn veit hvað hækkar í dag og hvað á morgun. Að minnsta kosti sízt þeir sem skyldu vita, rikisstjórn in. Enda er það svo að launa- hækkunin fiá í haust er farin fyrir löngu og miklu meir. Ég var að ræða það við bílst.jóra áð- an að líklega er eins gott að hafa 1000 kr. seðil í vasanum nú eins og 10 kr. fyrir stríð.“ ívar Guðlaugsson í einuni togaranum. Mikil kjara- bót í sér- samningunum Við Batteríisgarð, sem nú er í daglegu tali kallaður Ingólfsgarð ur liggja varðskipin. Ægir er þar kominn á flot og snýr stefni að vitaskipinu Árvakri. Við borðstokk Ái'vakurs eru margir gulir olíubilar með vöru- merkinu Shell. Við tökum tali einn af bilstjórum Skeljungs h.f., ungan mann, Bjarna Gunn- arsson að nafni. Hann er félags maður í Dagsbrún og við spyrj- um hann um kjörin. Hann svar- ar: -— Þau eru bara sæmileg. Við fengum mikla bót með sérsamn ingunum nú fyrir skömmu og eft ir að hafa lokið öllum prófum, sem stuðla að hækkunum í kaupi, má segja að maður sé ánægður. Þau próf sem hækka mann í minni stöðu eru meira- prófið og rútuprófið. — Starfar þú á einhverju ákveðnu afgreiðslusvæði? — Ég hef mikið gert af þvi að aka gasolíu eins og hún er köll- uð í hús i vestmrbænuim i Kópa- vogi. Einnig förum við víðar, eins og t.d. í skipin. Billinn tek- ur 6 tonn og það er misjafnt, hve lengi maður er að tæma hann. Aki ég i hús eingöngu, get ur tankurinn enzt í hálfan dag, en sé maður að fylla á olíu- geyma skips, tæmist hann á 20 mínútum. - Ertu búinn að starfa í mörg ár hjá Skeljungi? - Ég er alls búinn að starfa þar í 12 ár, því að ég byrjaði sem sendill. -— Hvað finnst þér um kjara- samninga til tveggja ára? — Mér finnst allt ílagi, að sam ið sé til tveggja ára, þrátt fyr- ir verðbólguna. Að minnsta kosti hefur slíkur samningur síð ur verðbólguhvetjandi áhrif en aðrir. Bjarni Gunnarsson hjá Shell. Og við svo búið kvöddum við Bjarna, sem ræsti bílinn sinn. Hann þurfti nú að fara að sækja meiri olíu, billinn var tómur og viðskiptavinir Skeljungs heimta skjóta og góða afgreiðslu. Útilokað að halda heimili á dagvinnu einni 1 Isbirninum á Seltjarnarnesi er verið að verka fisk. Þegar okkur ber að er fó’.kið að koma úr kaffi. I skrifstaflu verkstjóra situr Ingveldur Filippusdótt- ir, sem búin er að starfa að mikllu leyti í frystihúsinu um 12 ára skeið. Við spyrjum Ing-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.