Morgunblaðið - 06.06.1972, Blaðsíða 10
iG
MORGUNBLAÐÍÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1972
Sjómannadagiirirm í Reykjavlk:
Vel heppnuð
hátíðahöld
í Nauthólsvík
FJÖLMENNI sóttí dagstará
Sjómannadagsins í Reykja-
vik, en dagskráin var fratm-
kvæmd í Nauthóisvík. Rign-
ingarskúrir gengu yfir þegar
fór að líða á daginn, en fólk
var þaulsetið yfir dagskránni,
enda var hún fjölbreytt og
skemmtileg.
Að morgni Sjómannadags-
ins voru fánar dregnir að
húni á skipumim í höfninni
og sjómannamessa var í Dóm-
kirkj'unní, en biskupmim yfir
fslandi herra Sigurbjörn Ein
arsson prédikaði. Hátíðarhöld
in í Nauthólsvík hófust kl.
13,30. Þar fiuttu ávörp full-
trúi sjómanna Guðmundiur
Kjærnested skipherra, full-
trúi útgerðarmanna, Tómas
Þorvaldsson úr Grindavík og
fuil'ltrúi ríkisstjórnariimar,
Lúðvík Jósepsson sjávarút
vegsráðherra.
Síðan afhenti Pétur Sigurðs
son alþingismaður og forrnað
ur Sjómannadagsráðs heiðurs
viðurkenningar til sjómanna,
en að því loknu hófust kapp
róður, stakkasund, sjóskíða-
sýning félaga úr Vík í Mýrdal
þyrla varnarliðsins sýndi
björgun af sjó og seglbátar
kepptu. í stakkasundinu sigr
aði Eggert Jónsson á vb. Gei?
RE og nr. 2 varð Ragnar Lár
usson hjá Etmskipaféljagi ís-
lands.
Dansleikir voru í samkomu-
húsum borgarinnar á sjó-
mannadagskvöld.
Félagar úr björgunarsveitinnl
í Vik í Mýrdal sýndu á sjó-
skíðum.
Þyrla Varnarliðsins sýndi björgun manna úr sjó.
Þeir sem Sjómannadagurinin í Reykjavík heiðraði í ár voru frá vinstri: Einar Sigurðsson á
Aðaibjörgu, líklega sá maður sem flestum Reykvikingtim hefur aflað i soðið, frú Lovísa, eigin-
koua Þorvarðar Hjörleifssonar, síðast skipstjóra á Helgafelli. en liann gat etkki verið viðstadd
ur, Guðjón Pétursson stýrimaður og Stefán Jóhannsson vélstjóri.
Kvennasveit ísbjarnarins sigraði í kvennaróðrinum og fékk bikar frá Hraðfrystistöðinni, en
sl. ár vann sveitin tii eignar bikar, sem ísbjörninn hafði gefið. —
Róðrasveitin á mb. Val sigraði í karlaróðrinum og hlaut lárviðarsveiginn og að auki June
munktélbikarinn. Vegalengdin í róðrinum var 400 metrar
Síðasti riðillinn í kappróðrinum var mjög spennandi og komu sveitirnar svo til jafnt í mark.
Næst er sveit Hótel Esju, þá sveit Eimúkipafélags ísiands og f.jærst er sveit Hraðfrystistöðv-
arinnar. Sveitin í miðið var fyrst í mark. (Ljósrn.: Mbl.: Sv. Þorm.)
Muinnif jöUlinn í Naiitliólsviik.