Morgunblaðið - 06.06.1972, Síða 16

Morgunblaðið - 06.06.1972, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNl 1972 Otgefandi Hf Átvolttii', Rfeykjavík Frarrvkvæmdaatjóri Ha-ratdur Svemsoon. Rítstjórar Matthías Johannessen, Eyjólifur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjó'i Styrm-ir Gun-narsson. RitstjornarfuHtrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jólhannsson Augilýsingastjóri Ámi G-arðar Kriatinsson Ritstjórn og afgreiðsla Aðaistræti 6, sími 1Ö-100. Augilysingar Aðaistræti 6, sfrni 22-4-60. Áskriftargjafd 225,00 kr á 'mámuði innanlands I iausasölu 15,00 Ikr eintakið A síðasta Alþingi voru sett ný skattalög og ný lög um tekjustofna sveitarfélaga. Skattgreiðendur kynnast um þessar mundir í raun þeirri nýju skattastefnu, er ríkis- stjórn Ólafs Jóhannessonar hefur markað með þessum nýju skattalögum. Eitt megin einkenni þessarar löggjafar kemur m.a. fram í því, að tekjuöflunarmöguleikar sveit arfélaganna eru skertir til mikilla muna. Þannig hefur sveitarfélögunum verið gert mjög óhægt um vik að afla tekna til nauðsynlegustu framkvæmda. í nýju lögunum er ákveðið að fasteignagjöld skuli vera 0,50% af fasteignamati íbúða. Lögin heimila sveitarfélögun- um hins vegar að ákveða fasteignagjöldin 0,75% af fast eignamatinu. í stað þess að fastákveða álagningargrund- vöílinn í lögunum sjálfum, var horfið að því ráði, að láta sveitarfélögin sjálf ákveða, hvort tekjustofn þessi yrði fullnýttur eða ekki, enda þótt allir vissu þá þeg- ar að nota yrði þessa heimild. Ríkisstjórninni var vitaskuld fullljóst, að tekjumöguleikar sveitarfélaganna höfðu verið skertir svo verulega, að þau áttu ekki anarra kosta völ en að nýta þessa heimild til fulls. Með þessu heimildar- ákvæði hugðist ríkisstjórnin hins vegar reyna að skjóta sér undan ábyrgð á eigin skattastefnu, sem hún vissi að myndi mæta verulegri andspyrnu hjá almenningi í landinu. Ríkisstjórnin knúði sveitar- félögin til þess að nýta þenn- an tekjustofn; þeim var nauð- ugur einn kostur, ef þau ætluðu að standa undir eðli- legum framkvæmdum og þjónustu við borgarana. í ljósi þessara staðreynda eru það sérstaklega óskammfeil- in og ógeðfelld vinnubrögð hjá talsmönnum ríkisstjórn- arinnar, þegar þeir nú ásaka kjörna fulltrúa fólksins í bæj- ar- og sveitarstjórnum um land allt fyrir að framkvæma þá skattastefnu, sem stjórnin sjálf beitti sér fyrir að ákveð- inn yrði með lögum á sein- asta Alþingi. Blekkingavefur talsmanna ríkisstjórnarinnar hefur sjaldan verið jafn aug- Ijós og gegnsær eins og í þessu máli. Sú meginhugsun liggur að baki stefnu ríkisstjórnarinn- ar í þessum efnum, að gera almenningi erfiðara um vik að búa í eigin húsnæði. ísland hefur um langa hríð haft al- gera sérstöðu að þessu leyti; hér hefur verið stefnt að því að tryggja fjárhagslegt sjálf- stæði fólksins með því móti að stuðla að því, að sem flest- ir gætu búið í eigin húsnæði. Árangurinn hefur orðið sá, að hér búa fleiri í eigin íbúðum en þekkist í nokkru öðru landi. Þessi þróun hefur ver- ið eitur í beinum sósíalista, enda heftir hún augljóslega framkvæmd sósíalismans og dregur úr áhrifamætti mið- stjórnarvaldsins í þjóðfélag- inu. Kommúnistar hafa ráðið mestu við stefnumótun og í störfum núverandi ríkis- stjórnar. Áhrifa þeirra gætir verulega í skatta- og tekju- stofnalögunum, og almenn- ingur fær nú að finna fyrir þeirri stefnu í framkvæmd. Markmið sósíalista er fyrst og fremst að skerða eignar- rétt einstaklinganna í þjóð- félaginu og efla um leið for- sjá ríkisvaldsins. Þeim er ljóst, að þessu markmiði verður bezt náð með því að hindra að almenningur eign- ist sínar eigin íbúðir. Nýju skatta- og tekjustofnalögun- um er m.a. ætlað að varða leiðina að þessu marki. Flest- um eru þó ljósar þær óheilla- vænlegu afleiðingar, sem af þessari stefnu geta hlotizt. Þess vegna snýst fólkið í landinu gegn skattastefnu ríkisstj órnarinnar. Fulltrúar úr öllum stjórn- málaflokkum í bæjar- og sveitarstjórnum víðsvegar um landið hafa verið knúðir til þess að framkvæma þá stefnu, sem ríkisstjórnin hef- ur markað með lagasetningu. Það er því hrein firra, þegar talsmenn ríkisstjórnarinnar halda því fram, að fulltrúar stjórnarandstöðunnar/í borg- arstjórn Reykjavíkur og bæj- ar- og sveitarstjórnum úti á landsbyggðinni hafi beitt sér fyrir hækkun fasteignagjald- anna. Þetta eru mjög grófar og ósæmilegar ásakanir, sem lýsa þó einkar vel ráðleysinu meðal stuðningsmanna ríkis- stjórnarinnar. Hér er um grundvallar- atriði að ræða við uppbygg- ingu þjóðfélagsins. Sósíalist- ar vilja skerða fjárhagslegt sjálfstæði hins almenna borg- ara; frjálshyggjumenn, sem nú standa utan ríkisstjórnar- innar munu berjast gegn þessari stefnu, enda getur hún einungis leitt til ófarn- aðar. RIKISSTJORNIN VEGUR AÐ EIGNARRÉTTINUM Bréf til kirkju þagnarinnar; Hvers vegna er Rússland svipt sinni fornu prýði — sinni fegurstu rödd? Bréf Nóbelsverðlaunaskáldsins Solzhenitsyn til Pimens, patriarka í Moskvu Þess var getið í fréttum í marz, að rússneska Nóbeliskáldið G.I. Soizhenitsyn hefði ritað patriarkan- um Pimen i Moskvu hréf þar sem hann ávitaði kirkjuna fyrir aðgerð- arleysi. Hér fer á eftir þýðing þessa bréfs, sem skýrir þessa frétt nánar. Þýðingin er gerð eftir enskri þýð- ingu i New York Times af séra Sig- urði Pálssyni. Yðar heilagleiki. Efni þessa þréfs, er það, sem þrýstir höfuð og brjóst hins dauða- dæmda rétttrúaða (orþodoxa) fólks Rússlands —- eins og legsteinn. All- ir þekkja þetta og það hefur verið hrópað hástöfum, en allir þeir, sem hrópað hafa, hafa aftur horfið inn í hina fordæmdu þögn. Og ekki þarf meira en steinvölu til viðbótar hin- u«i stóra steini til að gera þögnina óbærilega. Boðskapur yðar á jóla- nótt var sú steinvala, sem dugði mér. Mér hlýnaði um hjartað er þér loksins tökiðuö um börnin — ef til vil'l í fyrsta sinni á hálfri ö!d — Solzhenitsyn. og lögðuð til að foreldrar — jafn- framt þvi að innræta börnum kær- leika til lands síns — skyldu og kenna þeim að elska kirkjuna (og þá auðvitað sjálfa trúna) og að þeir ættu að fóstra þá elsku með því að gefa börnunum gott fordæmi. Þegar ég heyrði þetta, rifjaðist upp bernska mín, er ég stundaði kirkjugöngur (helga liturgiu) og þau byrjunaráhrif, einstaklega fersk og hrein, sem engir myllusteinar eða hugmyndasmiðir gátu síðar þurrkað út. En hver er tilgangurinn með þessu tali? Hvers vegna er þessari alvar- legu áminningu beint að Rússum er- lendis. Hvers vegna eruð þéi að krefjast kristins uppeldis fyrir þeirra börn? Hvers vegna áminn- ið þér aðeins hina fjarstöddu hiörð um að gæta sín fyrir „slúðri og falsi" og að „standa stöðug í sam- leika og réttlæti?" Hvað um oss — hvers ættum vér að gæta? Ættum vér, eða ættum vér ekki, að fóstra vor börn í kærleika til kirkjunnar? Jú, — Kristur kenndi oss að leita hins hundraðasta sauðar, sem týnd- ur er þegar níutíu og níu eru fundn ir. En ef níutíu og niu vantar — ættum vér þá ekki fyrst og fremst að leita að þeim? Hvers vegna var nauðsynlegt fyr- ir mig að sýna passa minn.þegar ég fór i kirkju með son minn til skírn- ar? Hvers konar kirkjulög krefjast þess, að patriarkaemhættið í Moskvu skuli skrásetja þær sálir, sem skírn þiggja? — Aðdáanlegt er það andlega þrek og aldagróið ómæl isþolgæði foreldra, sem ganga gegn- um sakfellingarskráningu og verða síðan að mæta ofsóknum á vinnu- stað eða opinberri einangrun af hálfu heimskingja. En þegar hér er komið, (þ.e. barn- ið er skírt og skráð) megnar þessi þrautseigja ekki meir. Eftir skírnina er öllum tengslum barnsins við kirkj una venjulega lokið. Þátttaka þeirra i messunni og sakramentinu er hindr uð, jafnvel eru þau hindruð í að vera áhorfendur. Vér rænum börn vor með því að hindra þau í að njóta þess, sem ekki er síðar auðið að öðl- ast — himneskrar skynjunac mess- unnar (Mburigiiunniar) ■— sem fuilorð- insárin fá aldrei bætt, né jaínvel skil ið hve miklu er glatað. Rétturinn til að ala börn vor upp í trú feðra vorra hefur verið rofinn og jafn- framt réttur foreldra til að ala börn sin upp í sinni eigin lífsskoðun. Og þér, leiðtogar kirkjunnar, haf ilð gemgizt inn á þetta og látizt ekki sjá það með því að viðurkenna þá Framhald á bis. 30 Götumynd frá Moskvu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.