Morgunblaðið - 09.06.1972, Side 16

Morgunblaðið - 09.06.1972, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNl 1972 Otgefandi hf Árvalcui'^ Ríjykjavfk Fnamkvaamda»tjóri Haraidur Svamaaon. Rirtstjórar Mattfiías Johanness&n, Eyjóltfur Konráe Jónsson. Styrm-ir Gunrvarsson. tíorbijöm Guðmundssofl. Bj örn Jóhann sson. Árrri Garðar Kristinsson. Aöeriatræti 6, sími 1Ö-100. Augifýsingar Aðatetraati 6, sfmi 22-4-00 Ásikriftargjald 225,00 kr á mánuði innanlands t laiusasöTu 15,00 Ikr eintakið Aðstoðarritstjóri Rftstjórnarfullrtrúi Fréttastjóri Auglýsi nga stjöri Ritstjórn og afgreiðsla með 50% útgjaldaaukningu. Skattar skyldu innheimtir síðar. „Einn hring enn,“ sögðu dansherrarnir eins og Hruna- prestur forðum. Milljarðalán voru tekin innan lands og utan, og dansskemmtun hinna sjálfumglöðu stjórnarherra gat haldið áfram. Gripið var til sjálfvirkrar aðferðar til að fella gengi krónunnar, og loks komu ráðherrarnir auga á, að gjaldeyrissjóðurinn var ekki uppurinn ennþá. dýrtíðar ríður nú yfir.“ í>au auknu útgjÖld, sem nú hafa lagzt á atvinnuvegina, þýða nýjar verðhækkanir, sem launamenn munu bera; þær dynja yfir á næstunni. Tilburðir í þá átt að skera niður nauðsynlegar hækkan- ir til fyrirtækjanna, meðan sjóðir þeirra endast, bera auðvitað þann eina árangur, að hækkanirnar þurfa að verða ennþá meiri síðar. Það er aðeins verið að safna eldi- viði undir katlana. Hvaða DANSINN DUNAR egar ríkisstjórn Ólafs Jó- hannessonar birti mál- efnasamning sinn á miðju sumri í fyrra, varð ljóst, að hún hugðist bjóða landslýð öllum gull og græna skóga. Hún tók við digrum sjóðum, sem tekið var til við að út- deila. Góðæri hafði aidrei verið slíkt hér á landi og þess vegna var talið óhætt að eyða fyrningunum. Kjörorð- ið var: Góða veizlu gjöra skal. Sá afrakstur, sem þjóðin hafði sparað saman á undan- förnum árum, entist vel fram an af og nýr fengur varð meiri en áður hafði þekkzt vegna einstaks góðæris og þeirrar aðstöðu, sem sköpuð hafði verið til aukinnar tekjuöflunar með marghátt- aðri uppbyggingu. Allt lék í lyndi, dansað var og dansað var á rósum. En loks tók að ganga á veizluföngin, og þá voru góð ráð dýr. Tekjurnar voru að vísu gífurlegar, en ekki nægðu þær til að dansinn yrði stiginn af jafn miklum áhuga og áður. Þá var brugð- ið á það ráð að gefa ávísanir á framtíðina. Fjárlög voru í desembermánuði afgreidd „Einn hring enn,“ segja þeir eins og í þjóðsögunni, og Hrunadansinn heldur áfram. Hrunadans, hver gaf stjórn arstefnunni þetta snilli- heiti? Það voru aðalforvígis- menn Framsóknarflokksins á Akureyri, þeir sem stjórna Kaupfélagi Eyfirðinga. Þeir sögðu m.a.: „Útlit er því fyr- ir, að nú eigi að mæta Hruna- dansi kostnaðarverðbólgu með taprekstri fyrirtækja,“ og þeir bættu við: „Holskefla bjálfi, sem er, getur auðvit- að um stundársakir strikað yfir þær hækkanir, sem stjórnarstefnan hefur í för með sér, en annað hvort verða hækkanirnar þá bara meiri í næsta umgangi eða fyrirtækin draga saman segl- in og gefast upp. Kannski er það ósk sumra í ríkis- stjórninni. Ljóst er hins veg- ar, að ábyrgum öflum í Fram- sóknarflokknum blöskrar nú gjörsamlega stjórnleysið og óráðsían og bera yfirlýsingar KEA og . fiskvinnslufyrir- tækja á vegum SÍS þess glöggt vitni, en þau vara alvarlega við þróuninni og segja síðan: „Ljóst er, að brátt kreppir enn meira að, ef þeirri verðbólgu, sem nú gengur yfir, linnir ekki.“ Fjöldi framsóknarmanna gerir sér grein fyrir því, að hagsmunum flokksins er voði búinn af undanlátsseminni við kommúnista og glæfra- legri stefnu — eða öllu held- ur stefnuleysi — í efnahags- og atvinnumálum. Hinar skel eggu ályktanir ýmissa for- vígismanna flokksins bera þess glöggt vitni. Þær eru áreiðanlega fyrst og fremst hugsaðar sem aðvörun til forsætisráðherra og annarra áhrifamanna í Framsóknar- flokknum. En þeir svara um hæl með höfundi vísunnar í þjóðsögunni: „Hátt lætur í Hruna hirðir þángað bruna; svo skal dansinn duna, að dreingir megi það muna. Einu sinni til forna var prestur í Hruna í Árnessýslu, sein mjög var gefinn fyrir skemmtanir og gleð- skap. Það var ávalt vani þessa prests, þegar fólkið var komið til kirkju á jólanóttina, að hann emb- ættaði ekki fyrri part næturinnar, heldur hafði dansferð mikla í kirkj- unni með sóknarfólkínu, drykkju og spil og aðlrar ósæmilegar skemt- anir Iángt fram á nótt. Presturinn átti gamla móður, sem Una hét; henni var mjög móti skapi þetta at- hæfi sonar síns, og fann opt að því við hann. En hann hirti ekkert nm það, og hélt teknum hætti í mörg ár. Eina jólanótt var prestur leingur að þessum dansleik, en venja var; fór þá móðir hans, sem bæði var DANSINN í HRUNA Úr þjóðsögum Jóns Árnasonar forspá og skygn, út í kirkju og bað son sinn hætta leiknum og taka til messu. En prestur segir, að enn sé nægur tími til þess, og segir: „Einn hríng enn, móðir mín.“ Móðir lians fór svo inn aptur úr kirkjunni. Þetta geingur í þrjár reisur, að Una fer út til sonar síns og biður hann að gá að guði, og hætta heldur við svo búið, en ver búið. En hann svarar ávalt hinu sama og fyrri. En þegar hún geingur fram kirkju-gólfið frá syni sínum í þriðja sinn, heyrir hún, að þetta er kveðið og nam vísuna: „Hátt lætur í Hruna hirðir þángað bruna; svo skal dansinn duna, að dreingir megi það muna. Enn er hún Una, og enn er hún Una.“ Þegar Una kemur út úr kirkj- unni, sér hún mann fyrir utan dyrn- ar; hún þekti hann ekki, en illa leizt henni á hann, og þókti víst, að hann hefði kveðið visuna. Unu brá mjög illa við þetta alt saman, og þykist nú sjá, að hér muni komið í óefni, og þetta muni vera djöfullinn sjálf- ur. Tekur hún þá reiðhest sonar síns, og ríður í skyndi til næwta prests, biður hann koma og reyna að ráða bót á þessu vandkvæði, og frelsa son sinn úr þeirri hættu, sem honum sé búin. Prestur sá fer þegar með henni, og hefir með sér marga menn; því tíðafólk var ekki farið frá honum. En þegar þeir koma að Hruna, var kirkjan og kirkjugarður inn sokkinn með fólkinu í, en þeir heyrðu ýlfur og gaul niðri í jörð- inni. Enn sjást rök til þess, að hús hafi staðið upþi á Hrunanum, en svo heitir hæð ein, er bærinn dregur nafn af, sem stendur undir henni. En eptir þetta segir sagan, að kirkjan hafi verið flutt niður fyrir Hrunann, þángað sem hún er nú, enda er sagt, að aldrei hafi verið dansað síðan á jólanótt i Hrunakirkju. — Sjá leiðara ojb: Staksteina —

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.