Morgunblaðið - 09.06.1972, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNl 1972
21
Dr. Richard Beck sjötíu
og fimm ára
HIÐ eilífa ungmenni, dr. Richard
Beck, verður sjötíu og fimm ára
í dag. Þó að ég gefi honum
þessa einkunn, efa ég ekki, að
á ýmsan hátt hlýtur dr. Richard
að finna til eli, en hitt er víst,
að engan hefi ég þekkt, sem svo
lengi hefir varðveitt meira af
eigindum æskunnar en hann.
Richard Beck er Austfirðingur
að ætt og uppruna, fæddur að
Svinaskálastekk í Reyðarfirði 9.
júní 1897. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum I
Reykjavik 1920, en fluttist vest-
uir um haf ásamt móður sinni
haustið 1921. Dr. Richard vaur
námsmaður með afbrigðum, eins
og- m.a. má marka af því, að
árið 1924, þremur árum eftir að
hann hélt vestur, lauk hann M.A.-
prófi í málvísindum og bók-
menntum frá Comellháskóla og
doktorsprófi frá sama skóla
tveimur árum síðar.
Að námi loknu lagði dr.
Richard stund á háskólakennslu
og varð prófessor i Norðurlanda-
málum og bókmenntum við
University of North Dakota I
Grand Forks 1929, en lét af störf-
um fyrir aldurs sakir 1967.
Nobkru síðar fluttist hann til
Victoria í British Columbia í
Kanada.
Richard Beck er þríkvæntur.
Fyrsta kona hans (1920) var
Ólöf Daníelsdóttir frá Helgu-
stöðum í Reyðarfirði, en hún lézt
1921. Önnur kona Richards var
Bertha, fædd Samson, og eign-
uðust þau tvö börn: Margaret
Helen, sem lauk B.A.-prófi í
bókmenntum við háskólann i
Grand Forks, og Richard, sem
lauk verkfræðiprófi og stundar
verkfræðiistörf. Bertha lézt árið
1958. Þriðja kona Richards er
Margaret, fædd Brandson, og
lifir hún enn i farsælu hjóna-
bandi með manni sínum. Mar-
grét stundaði einn vetur ís-
lenzkunám við Háskóla Islands.
Átti ég þess þá kost að kenna
henni og kynnast.
Æviatriði Richards skulu ekki
nánara rakin hér, enda til um
þau aðgengileg gögn.
Ég gat þess í upphafi, að ég
þekkti engan mann, sem Varð-
veitt hefði meira af eigindum
æskunnar en dr. Richard Beck.
Skal ég nú reyna að finna þess-
um orðurn mínum stað. Áhuga-
mál hans eru óvenjulega fjöl-
þætt, þótt bókmenntir og þjóð-
ræknismál beri þar hæst. Hann
gengur aldrei að neinu með
hangandi hendi, heldur af brenn-
andi áhuga og krafti. Vinnu-
þrek hans virðist vera óþrjót-
andi. Mann óar við að lesa skrá
yfir rit hans og ritgerðir, svo
löng er hún. Það er vart hægt
að trúa þvi, að einn maður hafi
fengið svo miklu áorkað. En
þetta hefir Richard tekizt, þótt
mikill tími hafi farið í félags-
störf og ferðalög. Leyndardóm-
urinn hlýtur að einhverju leyti
að llggja í því, að dr. Richard
nýtir hverja stund til hlitar.
Hann situr aldrei auðum hönd-
um. Hér skal engin tilraun gerð
tiil þess að telja rit dr. Richards
né meta þau, enda ógerningur
í stuttri blaðagrein. En fram
skal tekið, að þau bera öll vitni
einhverjum fremsta eiginleika
dr. Richards, góðvildinni. 1 bók
menntaritum og rifgerðum
Richards leitast hann alltaf við
að finna þau einkenni, sem orð
ið gætu til sóma þeiim höfund-
um, sem hann fjallar um. Það,
sem miður hefir farið, lætur
hann fremur liggja milli hluta.
Dr. Richard er hagmæltur vel,
og bera kvæði hans vitni um
hlýhug, trúrækni og góðvild.
1 þjóðræknisstarfi hans koma
fram sörnu einkennm:- áhugi,
elja og góðvild. Hann hefir bar-
izt hinni góðu baráttu til þess
að varðveita þjóðleg einkenni
íslenzka þjóðarbrotsins vestan
hafs, að vemda tunguna og ís-
lenzka menningararfleifð. Með
ritgerðum, hvatningarræðum og
annarri félagsstarfsemi hefir
hann unnið svo mikil stórvirki, að
teija verður hann meðal fremstu
afreksmanna í þvi að viðhalda
sambandinu milli tslendinga
vestan hafs og austan.
Þó að dr. Richard Beck hafi
lifað öll sin manndómsár vestan
hafs, hefir hann varðveitt sitt
islenzka tungutak, svo að undr-
um sætir. Þegar hann stigur út
úr flugvél á íslenzka grund, talar
hann sama mál með sama hreim
og hann gerði, þegar hann á
æskuárunum steig út úr skekt-
unni eftir sjóróður. En jafn-
framt hefir hann fylgzt með
breytingum tungunnar, t. d.
breytingum orðaforðans, enda
les hann reglulega íslenzk blöð
og bækur og fylgist með öllu
markverðu, sém gerist hér
heima. Þessa íþrótt, hygg ég, að
fáir leiki eftir dr. Richard, jafn-
vel þótt þeir komi heim á nokk-
urra ára fresti.
Fyrir störf sín hefir dr.
Richard Beck hlotið margvislega
viðurkenningu. Hér skal aðeins
nefnt, að hann var kjörinn fé-
lagi í Visindafélagi Islendinga,
og á fimmtíu ára afmæli Há-
skóla Islands var hann sæmdur
titlinum dr. phil. h. c.
Kona min og ég áttum þess
kost að búa á heimili þeirra
Margrétar og Richards í Grand
Forks árið 1963. Meiri alúð milli
hjóna en þar ríkti er vart hugs-
anleg. Og ekki var gestrisnin
af skornum skammti. Fjör og
glaðværð húsbóndans. hreif okk-
ur og umhyggja húsmóðurinnar
um fegurð heimilisins og bú-
stjórn alla ekki síður. Þar var
gott að vera.
Á þessum merkisdegi óskum
við hjónin þeim Margrétu og
frænda mínum Richard Beck
allra heilla og óskum þeim
bjartrar framtíðar.
Halldór HalUlórsson.
EINN af frægustu bókmennta-
fræðingum vorum, dr. Richard
Beck, prófessor í Norðurlanda-
málurn og skáldskap við Ríkis-
háskólann í N-Dakota um ára-
tuga skeið, nú til heimilis að 28
Marlborough Street, Victoria,
B. C., verður hálf-áttræður 9.
júní næstkomandi.
Meðal þekktustu verka Ric-
hards Becks er History of Ice-
landic Poets 1800—1940, eitt
bezta rit um ljóðagerð Islend-
inga á þess-u tímabili, er ég hef
lesið; Ættland og erfðir, rit-
gerðasafn; og rit um síra Jón
Þorlákss-on og þýðin-gar hans á
Pope og Milton. En auk þess
he-fur hann skrifað margt og
mikið um islenzk skáld og is-
lenzkan skáldskap vestan hafs
og austan og flutt á annað þús-
und erindi og ræður báðum meg-
in Atflantshafs, verið óþreytandi
í að kynna og kenna yfir 40
ár.
Hér eru engin tök á að telja
allt upp, sem Rikharður hefur
rætt og ritaþ, því siður gera
grein fyrir öðrum þeim þjóð-
þrifa- og menningarmálum, sem
hann hefur unnið að. Dr. Beck
er skáld gott bæði á islenzku og
ensku og hefur gefið út nokkr-
ar ljóðabækur. Hann er heiðurs-
doiktor Háskóla íslands og Ríkis-
hásikólans í N-Dakota, heiðurs-
félagi Hins íslenzka bókmennta-
félags, Þjóðræknisfélags Islend-
inga í Vesturheimi og Stórstúku
Isl-ands, svo að nefnd séu fáein
dæmi um heiður þann, sem hon-
um hefur hlotnazt.
I marga áratugi hefur hann
skrifað um bækur og höfunda
í blöð og tímarit austan hafs og
vestan. Hann hefur lengi verið
meðlimur Félags islenzkra rit-
höfunda og mjög áhugasamur
um hag þess. 1 tilefni af 75 ára
afmæli Ríkharðs og sökum mik-
illa verðleika han-s, kaus rit-
höfundafélag þetta hann á aðal-
fund'i sínum 27. apríl sl. ein-
róma heiðursfélaga sinn, enda
sízt óeð-lilegt um mann, sem bæði
Háskólinn og Bókmenntafélagið
hafa fyrir löngu veitt hliðstæð-
an heiður.
Richard Beck er austfirzkur að
uppruna, fæddist á Svínaskála-
stekk í Helgustaðahreppi og
mun bafa alizt upp þar eystra,
m.a. við sjómennsku, enda er
hann hliðhollur sjómannastétt-
inni, trúr átthögum sinum, en
um fram allt mikill Islendingur
og ættjarðarvinur, hefur þrá-
sinnis komið „heim" í sumar-
leyfum sínum, þó að lengst af
hafi hann gegnt borgaralegu
st-arfi vestur á Fimbulfold, eins
og Matthías Jochumsson kall-
aði land Leifs heppna eitt sinn
í frægu ljóði.
Sem vinur og bréfafélagi dr.
Becks áratugum saman og fyrir
hönd Félags islenzkra rithöfunda
óska ég hon-um og hans ágætu
konu, Margrétu Einarsdóttur,
innilega til hamingju með 75 ára
afmæli hins mikilvirka fræði-
manns og rithöfundar, trygg-
lynda íslendingis og góða drengs
Og ég veit með vissu, að fjöl-
margir vinir þeirra Becks-hjóna
austan hafs og vestan taka und-
ir þá ósk af heilum hug.
Þóroddur Giiðmundsson.
HÁLFÁTTRÆÐUR er i dag
Richard Beck fyrrum prófessor
í málvísindum ög Norðurlanda-
bókmenntum við ríkisháskólann
í Grand Forks í N-Dakota. Eigi
þarf að kynna manninn fyrir
lesendum Morgunblaðsins svo
þjóðkunnur sem hann er. En
stutta afmæliskveðju langar
m'ig til að senda honum, þó svo
að hún sé ekki eins og ég hefði
helzt kosið, nefnilega í ljóðum.
En nú er þiöngt fyrir dyrum
hjá þeim sem iðka slíka list í
Stór Reykjavik. Svo mikil er
firring vorra tíma af völdum
alls konar hávaða og hraðaláta
innanhúss sem utan að jaðrar
við sturlun. Vegna yngri mennta-
manna, þjóðlegra, ef nokkrir
eru, verður getið bókmennta-
verka hans og þó stiklað á
stóru.
Það var mikil gæfa fyrir Is-
land menningarlega séð, að dr,
Ríkharður skyldi setjast ■ að í
Vesturheimi. Jafnmikill Islend-
ingur, sem hann, er raunar
vandfundinn. Hann gæti því með
réttu lagt sér á tungu eftirfar-
andi ljóðlínur:
„Svo ertu Island i eðli mitt fest,
að einungis gröfin oss skilur.“
Ritstörf hans um íslenzk fræði
eru býsna mörg og merk. Hér
verður eigi nefnt nema fátt eitt.
Ég heí hér fyrir framan mig úr
bókasafni mínu nokkrar bækur
frá hans hendi. T.d.: History of
Icelandic Poets 1800—1940 (þ. e.:
Saga íslenzkra Ijóðskálda í
hundrað og fjörutíu ár) útgefin
1950 af Cornell-háskölabókasafni
Itihaca N. Y. Það er sjálfstætt
rit en er jafnframt XXXIV.
bindi af Islandica, hinu gagn-
merka vísindariti sem Halldór
prófessor Hermannsson var rit-
stjóri að um árabil. Þá má
nefna: Icelandic Poems and
Stories 1943 (útgefin af Amer-
íska-Norræna fornfræðifélaginu)
ög Icelandic Lyrics útgefin 1930.
Dr. Ríkharður bjó þá bók til
prentunar og ritaði formála en
þýðingar ljóðanna á ensku eru
sumar hverjar eftir öndvegis-
skáld austan hafs og vestan.
Það er alkunnugt að afmælis-
barnið er gott Ijóðskáld og hef-
ur sent frá sér tvö ljóðasöfn á
móðurmáli sinu. Fyrri ljóðabók
hans á islenzku nefnist „Ljóð-
mál“ og kom út í Winnipeg,
Manitoba, Kanada 1929. En hin
síðari heitir „Við ljóðalindir" og
var útgefin á Akureyri 1959. Bók
hans „Ættland og erfðir", safn
ritgerða, kom út 1950.
Er dr. Ríkharður varð sextugur
1957 var gefið út á Ákureyri
nokkurs konar afmælisrit hon-
um til heiðurs og veittist mér
sú ánægja að taka lítillega þátt
í útgáfu þess.
Ungur komst dr. Rikharður í
kynni við hið mikla bókasafn
prófessors Wililard Fiske, sem er
frábærlega auðugt að fornum
bókum íslenzkum og ritum um
islenzk efni á erlendum málum..
Eitt alflra bszt sinnar tegundar
á erlendri grund, nú í , eigu
Cornells-háskóla. Bókaskrár þess,
sem eru visindalegar, eftir Hall-
dór Hermannsson, voru gefnar
út í þremur stórum bindum í
New York á árunum 1914—1942.
Fáar handbækur eru mér hug-
leiknari en einmitt þær. Enda
ungur heillazt af bókfræðilegum
rannsóknum og enn er ég að
auka þar við þekkingu mína. Dr.
Ríkharður er vel að sér í ís-
lenzkri bókfræði að ekki sé
meira sagt. Gegnir það engri
furðu um jafn fjölhæfan mann
og glöggan. Hann er ef svo má
segja alls staðar heima.
Það rifjast upp fyrir mér að
einu sinni er ég átti persónulegt
viðtafl við Guttorm J. Guttorms-
son eitt mesta ljóðskáld íslenzkt
í Kanada, lét ég í ljós svartsýni
á framvindu islenzkrar menn-
ingar meðal landa vestra. Gutt-
ormur kvað öllu óhætt meðan
við ættum menn eins og dr.
Rikharð. „Já, og dr. Stefán Ein-
arsson," bætti ég við. Vorum
við hjartanlega sammála um álit
okkar á þeim. Þessar viðræður
okkar (sem voru raunar miklu
lengra mál) áttu sér stað 4. júlí
1963 (á þjóðhátíðardegi Banda-
ríkja N-Ameriku). Eigi all-
löngu siðar andaðist Guttormur
og Stefán Einarsson er nýlátinn.
Ég sakna þeirra beggja sem
góðra vina, þeirra sæti eru auð.
Enn er hér ótalið fjölmargt
sem dr. Rikharður hefur lagt
gjörva hönd á. Svo sem störf
hans i ýmsum félögum. Verður
eigi að sinni gerð tilraun til
þess, það yrði of langt mál. Að-
eins skal minnzt á óskabarnið,
þjóðræknisfélagið okkar gamla
og góða. Hann hefur borið hita
og þunga þess um áratuga skeið
og er þá nokkuð sagt.
Það er að vonum að dr. Rík-
harði hafi hlotnazt margvisleg-
ur sómi ýmissa félaga og stofn-
ana. En bæði er það að greinar-
höfundur er ekki nógu kunnug-
ur því öllu og eins hitt að per-
sónulega gef ég lítið fyrir sumt
af þvi dinglum-dangli. Því eins
og þjóðskáldið Steingrímur
Thorsteinsson segir í visu sem
hann nefnir „Ytri og innri
kranz" og prentuð er fyrst í
ljóðabók hans 1881 og er þannig:
„Ytri kranz, sem ýtar fá,
einatt blómgun tinir.
Óvisnandii er aðeins sá,
sem innri manninn krýnir."
Nokkrum sinnum hefur fund-
um okkar dr. Ríkharðs borið
saman, Þar fer hjartahlýr mað-
ur sem hann er. Undirritaður
þakkar þessum útverði íslenzkr-
ar menningar í Vesturheimi fyr-
ir hlýleg orð í sinn garð
oftar en einu sinni og eitt
eða fleiri sendibréf sem eru vel
geymd. Megi ævikvöldið verða
bjart og fagurt, þess óska ég af
heilum hug.
Reykjavik, 9. júní 1972,
Stefán Rafn,
Miðstræti 3A.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í sölu á einni bifreið með vökvadrifinni lyfti-
körfu, eða bifreið sérstaklega og lyftikörfubúnaði til ásetningar
á bíl, sérstaklega, fyrir Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 5. júlí n.k.
kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
UNIR0YAL
NÆLON DEKK ORUGG OG ODYR.
520—10—4 Kr. 1.419 725—13—6 Kr. 2.422
550—12—4 Kr. 1.532 520—14—4 Kr. 1.741
520—13—4 Kr. 1.542 700—14—4 Kr. 2.472
560—13—4 Kr. 1.671 750—14—6 Kr. 2.816
590—13—4 Kr. 1.820 560—15—4 Kr. 1.959
640—13—4 Kr. 2.006 1000—20—16 Kr. 14.662
HdÁ^cm G.GjaIoaqjiF
SIMI 20000.