Morgunblaðið - 25.08.1972, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 25.08.1972, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR -25. ÁGÚST 1972 Ol X Fær ey j af er ð Framhald af bls. 12 á fliu.gve71mum í Færeyjum, var eniginn farþegi með til Færeyja frá íslandi og 9 voru með til íslainds. Þá átti flugið að taka einn og hálfan tíma, en tók 3 tima vegna mikils mót vinds. Þannig eru erfiðleikarn ir í fluginu. Fólk þyrfti að kynnast betur þeim erfiðleik- um sem geta verið á vegum loftsins í fluginu á veðurhress um stöðum áður en það fer að senda sendingar magnaðar orð kynngi. Hestamaður nokfkur, all hress, grasseraði eitt kvöldið í Kagiganum. Hann var mikill Is landsvinur og bauð mér i upp hafi kvöldsins að koma með sér þegar glaumnum i Kagganum væri lokið og skoða hestana sina þrjá, Freyju, Fúsa og Siggu. Ég játti því kurteislega því langt var til miðnættis. Ein viti menn, þegar stundin rann upp liafði hestamaðurinn pantað fleiri biia og var hverj- um sem vildi hrúgað inn í bíl- ana ti'l þess að aka upp í fjall og skoða íslenzsku hestana. Skyggnið var svipað hjá hestamanninum og í þokunni, en hann hélt sínu striki og lét engan komast upp með moð- reyk. Opnaði hann hesthúsið við hátiðlega athöfn á meðan menn stóðu í höm á haugnum fyrir utan og voru fegnir að komast inn til meranna, þó að hægt væri að hugsa sér vist- legri stað til að dvelja á kl. 2 um nótt. Öll hersingin endaði uppi á hlöðulofti, þvi að þair sagðist hestamaðurinn eiga nokkuð. Fór þá augljós fiðringur um marga, þvi að sumir voru fam ir að verða þyrstir aftur og hugmyndaflugið því nokk- uð þröngsýnt. Datt heldur dul- an af andliti Kaggagestanna, þegar hestamaðurinn dró leyndarmálið un^tn heybing á loftinu. Það var stýrið af Ólafi vökumanni, þeim lands- fræga tólfæringi í Færeyjum, sem einvherjir mestu r^fsókn- arar Færeyinga höfðu róið á auk þess sem skipið f.afði oft- ar en einu sinni notið þ|irrar gæfu að bjarga mönnum úr lífs háska. Þótti mér þetta merki- legur fyrirlestur hli'^uloft- inu, en það var ekki eins mc-iki legur svipurinn á þeim sem voru nú orðnir æði þyrstir. En hestamaðurinn lét ekki þar við sitja og nú kom rúsín- an í pylsuendanum. Gamalt koffort var dregið undan öðr- um heybing. Þetta koffort hafði afi gamli átt og þetta var fyrsta koffórtið sem hann hafði siglt með til Danmerkur fyrir lilkiega 60—70 árum. 1 koffortinu voru einhverjar buxnadulur frá þeirri tíð, en ekki gat ég örugglega greint hvort það voru karlmannsbux- ur eða kvenmannsbuxur. Sýndist mér þó heldur að bux urnar tilheyrðu konulærum, svo að eitthvað hefur sá gamli þvi haft upp úr krafsinu forð- um daga í KaUpin. Þessi hesthúsferð endaði með þvi að hestamaðurinn kvaddi mig með virktum á hlaði hússins, sem ég bjó í, með þeim orðum að ísiendingar og Færeyingar væru í launinni eitt og það væri helvífis lygi að sjóveiku víkingarnir forð- um hefðu á leið til Islands gef- izt upp og daigaði uppi í Fær- eyjum. Auðvitað játti ég því og vitnaði til nokkurra vina minna í Færeyjum, þar á með- al Kristjáns Djurhuus í Trang- isvogi. Þá var hestamaðurinn hinn versti og kvað alla okkar vináttu fyrir björg og á sextugt KEFLAVÍK - SMNES Höfum fengiö til sölumeðferðar eftirtaldar húseignir: GRINDAVÍK 4ra herbergja íbúð í steinhúsi við Túngötu, 2ja herbergja fis- íbúð í sama húsi. Ibúðirnar seljast saman eða í sitt hvoru lagi. 5 herbergja timburhús við Víkurbraut. Fokhelt raðhús við Heiðarhraun, 136 fm. Hér er um endaraðhús að ræða (þar eð húsið stendur á hornlóð). HAFNIR Einbýlishús um 80 fm„ byggt úr timbri. Einnig er til sölu mat- vöruverzuln í fullum rekstri. KEFLAVÍK 5 herbergja íbúð á efri hæð við Vatnsnesveg. Fokheld 4ra her- bergja íbúð, neðri hæð, við Hringbraut. 4ra herbergja íbúð á efri hæð ásamt bilskúr við Vesturgötu. 3ja herbergja kjallaraíbúð í steinhúsi við Vallargötu. Nýtt einbýlishús, 170 fm, við Háholt. Rúmgott iðnaðarhúsnæði ásamt ibúðarhúsi. Matvöruverzlun í fullum rekstri á góðum stað. YTRI-NJARÐVÍK Múrhúðað timburhús 3 herbergi og stofur ásamt góðum bílskúr við Klapparstíg. Raðhúsgrunnur við Hlíðarveg, hagstætt verð. 5 herbergja hæð og 2ja herbergja risibúð við Þórustíg. Ný 3ja herbergja íbúð fullbúin við Hjallaveg. 3ja herbergja íbúðir tilbúnar undir tréverk. Einnig 3ja herbergja íbúðir sem eru skemmra á veg komnar. INNRI-NJARÐYfK Einbýlishús 130 fm. ásamt góðum útihúsum, stór lóð. SANDGERÐI Mjög gott einbýlishús við Suðurgötu, skipti á ibúð eða ein- býlishúsi í Keflavik æskileg. Lítið einbýlishús við Norðurgötu. Sjáum um sölu á fiskiskipum, einnig um kaup og sölu á fyrir- tækjum ýmisskonar. Hafið samband við skrifstofuna. FASTEIGNASALA VILHJÁLMS OG GUÐFINNS, Vatnsnesvcgi 20, Keflavík. Símar 1263 og 2890. dýpi úr því að ég þekkti hann. Sá ég strax að hestamaðurinn, sem er mikill þjóðernissinni, hélt að ég væri að tala um stjórnmálamanninn Djurhuus, en þagar ég hafði leiðrétt það sagði kempan: „Þama sérðu það skiptir öllu máli að skilja hver annan. Auðvitað erum við á sama báti og vertu marg- blessaður og hafðu það gott.“ Eitt kvöldið var ég.á göngu- ferð með Jens Pála Heinesen. Við litum inn í Sjónleikarhús- ið. Það var þá kvikmyndasýn- ing í aðalsalnum á þessu gamla samkomuhúsi, en baka til í ákaflega þröngu húsnæði voru leikarar að æfa hluta úr leikverkum fyrir árshátíð Havnar Sjón 1 eikarféla.g'.s. Sér- staklega snart mig þáttur, sem tvær konur léku. Atriðið gerðist í eldhúsi heima hjá annarri, sjómannsekkju, sem var orðin mjög dul síðan maður hennar drukknaði. Vindurinn gnauð- aði og barði veggina og ganda maðurinn nisti gegnum loft- ið. Hin konan hafði komið í heimsókn vegna ótta, það var ofsaveður og maðurinn henn- ar var á sjó. Þær sátu þarna i rökkrinu við luktartýru og ræddu um hina framliðmu og allt í einu náfölnaði sjómanns- ekkjan, sem vildi ekki trúa að maður hennar væri látinn, og eitthvað leið fyrir gluggann, stxmdi síðan upp að þær væru báðar orðnar ekkjur. Það var magnað að sjá hvað þessar áhugaleikkonur gátu náð miklum tökum á viðfangs- efninu, svo miklum að maður gæti ekki hugsað sér betri meðferð hjá reyndustu at- vinnuleikurum. Um kvöldið þegar við vorum á heimleið litum við inn á árs- hátið hjá Stýrimannaskólanum. Þar var enskur dansur spilað- ur • af fullum krafti, en popdansarnir heita því nafni í Færeyjum. Um kl. 1 um nótt- ina var danshlé og þá var bor in fram heit súpa og girnilegt smiurt brauð. Þykir mér það frábær siður og er ég viss um að næturlæti eftir dansleiki hér lendis yrðu miklu minni ef þessi siðuir væri tekinn upp. Að lokinni súpu og með- læti hófst Færeysikur dansur og þá hitnaði fyrst í kolunum. Þessi aldagamli dans Færey- inga hreif alla með sér og söngurinn upphófst. Þegar við Jens Páli gengum út úr Klúbbanum dunaði færeyski dansinn jafn taktfast og undir- aldan á Nolseyjarsundi. Dynk irnir kváðu við í húsinu og allt af skullu nýjar og nýjar öld- ur á hamrinum úti við sund. — Sadat Framhald af bls. 17 nota þá kenningu, að koptar séu hinir einu „sönnu“ Egypt ar. Þetta er að sjálfsögðu þjóðsaga. Mikili meirihluti egypzkra múhameðstrúar- mannia eriu afkomendur krist- inna mana, oig eru þess vagna jafn „sannir1 Egyptar og hin- ir koptísbu landar þsirra. Ef trúarbrögð skera úr um þjóðerni, þá er aðeins einn „sannur“ Egypti í öl'liu land- inu. Um Seti (G'uðsmóðir), ensk kona á efri árum sieim býr í musteri Seti I að Abyd- os, er eini dýrkandi Ósíris- trúar faróanna sem vitað er um í beiminiuan, en sú trú er nokkur þúsuind áruim eldri en bæði kristindómiur og mú- hameðstrú. Gpnum í dng nýjo verzlun að Óðinsgötu 1. Opið frá kl. 1—6. Úrval af gjafavörum. Önnumst innrömmun á málverkum og Ijósmyndum. Útvegum spegla í öllum stærðum í skrautrömmum. RAMMAIÐJAN, sími 21588. NILFISK um gæðm er að tefla.:. SUÐURGÖTU 10, REYKJAVÍK, SÍMI 24420 SAFARI — SKÖR Okkar vinsælu ECCO—SAFARI nýkomnir í dökkbrúnu rúskinni með hlýju loðfóðri. Nr. 2-8 í V2 nr. - Verð 1.650 krónur. \ SKÓVERZLUN ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR við Austurvöll - sími 14181. Póstsendum samdægurs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.