Morgunblaðið - 26.10.1972, Síða 4

Morgunblaðið - 26.10.1972, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBKIt 1972 BÍLALEIGA CAR RENTAL TS 21190 21188 14444 *£* 25555 miFIBIR BILALEIGA-HVEFISGÓTU 103 J 14444 “3 25565 FERÐABlLAR HF. Bilaleiga — sími 81260. Tveggja manna Citroen Mehari. Fimm manna Citroen G. S. 8—22 rnanna Mercedes-Benz hópferðabíiar (m. bílstjórum). SKODA EYÐIR MINNA. LEIGAN AUÐBREKKU 44- 46. SIMI 42600. HÓPFERÐIS Til leigu í iengri og skemmri ferðir 8—20 farþega bílar. Kjartan Ingima sson, sími 32716. STAKSTEINAR Felumyndin Umræður þær, sem nú fara fram á Alþingi um fjármál ríkisins, eru allar í lausu lofti. Framlagning frumvarps að fjárlögum fyrir árið 1973, er með þeim hætti, að vart er von til, að hægt sé að ræða þau á málefnalegum grund- velli. Ríkisstjórnin, sem með verðbólgu og þenslustefnu sinni hefur vegið að öllum meginatvinnuvegum þjóðar- innar, minnist ekkert á þær efnahagsaðgerðir, sem nauð- synlegar hljóta að vera, í fjárlagafrumvarpi sínu. ÖIlu er frestað fram yfir áramót. Engu «r líkara en ríkisstjórn- in búist við einhverjum jóla- gjöfum úr öðrum heimtim — einhverju kraffcaverki, sem leysi vanda þann, sem hún hefur hlaðið upp síðastliðið eitt og hálft ár. Svo sem Magnús Jónsson, fyrrverandi f jármálaráðhera, benti á, er fjárlagafrumvarp- ið eins konair rammi eða um- gjörð, en myndina sjálfa vant- ar. Ramminn sjálfur er ófag- ur, stór og búldulegur, en þó þurfa menn ekki að búaist við, að stærð hans muni bera myndina ofurliði. Með ráð- leysisstefnu sinini hefur þess- ari ríkisstjórn tekizt á ótrú- lega skömmum tíma, að skerða hinn góða hag, sem í landinu ríkti er hún tók við. Vinstri stjórnin tók við blóm- legru búi, þegar hún tók við völdum sumarið 1971, en er nú hálfu öðru ári síðar kom- in langleiðina að éta sig og þjóðina út á gaddinn. Þessa staðreynd hefur stjómin ekki kjark til að viðurkenna, og því er fjárlagafrumvarpið svo villandi, sem raun ber vitni um. En þrátt fyrir, að ríkisstjómin reyni að skjóta því á frest, að raunveruleik- inn verði birtur landsmönn- um, er Ijóst, að sú mynd, sem að lokum verður að setja inn í fjárlagarammann, verður ófögur — etns konar hryll- ingsmynd. Halldór E. og spádómarnir Núverandi fjármálaráð- herra var helzti talsmaður framsóknarmanna í fjármál- um í hinni löngu eyðimerkur- göngu flokksins í stjórnarand- stöðu. Þóttist hann þá ekki síður spámannlega vaxinn en aðrir. Var honum mikið um „eyðslustefnu“ viðreisnar- stjómarinnar og hafði um hana ófögur orð og miklar illspár. f ræðu, sem Halldór E. hélt við fjárlagaafgreiðslu 1969 þótti honum seim stefna viðreisnarstjórnarinnar væri slík óhófs- og eyðslustefna, að allt benti tU, að á árinu 1975 yrðu fjárlög rikisins orðin 19,5 milljarðar. Með því af- reki ætti viðreisnarstjórnin endanlega að kollsigla þjóðar- skútunni. En nú er þessi sami Halldór E., eftir því sem menn bezta vita, fjármálaráð- herra, og honum hefur á tæp- um tveimur árum tekizt að tvöfalda fjárlög ríkisins og aru líkur nú á að þau fari vel yfir TUTTUGU MILLJARÐA! Hrakspá Halldórs E. stjómar- andstæðings fólst í því, áð 1975 yrðu fjárlög ríkisins komin í rúma 19 milljarða, en með verkum sínum kemur Halldór E. fjármálaráðherra þeim í rúma 20 milljarða það herrans ár 1973. Líklega væri ekkert óhollt fyrir Halldór E. að setjast nú við og lesa ræð- urnar, sem vinur hans Hall- dór E. hinn ráðdeildarsami, flutti á Alþingi fyrir nokkr- um ártim. spurt og svarað I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI Hringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsing. Magnús Finnsson, Álfta- mýri 12, spyr: „Hvenær fá- um við íslendingar stereo- útvarp, eins og Færeyingar hafa nú haft um árabil?" Njörður P. Njarðvík, form. útvarpsráðs, svarar: „Já, þessi spuming hefur lengi gengið milli Heródesar og Pilatusar, en mér vitanlega er ekkert farið að athuga þetta af alvöru. f>að er mín skoðun, að við eigum auðvitað að hafa stereo-útvarp, en fjárþröngin er mikil og nú er útvarpið gert upp með tapi. Ég eygl því ekki stereo-útvarp hér á landi á allranæstu árum." Ása S. Guðmundsdóttir, Hraunbraut 1, spyr: „Hvaða bygging er að rísa sjávarmeg- in hjá horni Kleppsvegar og Langholtsvegar og hvað verð- ur nú um tvöfaida akbraut á Kleppsveginum?" Jóhann Diego hjá skipu- lagsstjóra Reykjavíkur svar- ar: „Þama er í byggingu bensínstöð með þvottaplani. Kleppsvegurifin er þarna endagata, en tvöfaldur vegur kemur úi Elliðavogi og ligg- ur þarna fyrir neðan.“ Inglbjörg Helgadóttir, Hvassaleiti 6, spyr: „Hvernig koma tollalækkainir á erlend- um fatnaði til framkvæmda vegna EFTA-aðildarinnar?“ Valgeir Ársælsson, deildar- stjóri í viðskiptamálaráðu- neytinu, svarar: „ísland varð aðili að EFTÁ 1. rnarz 1970 og þá lækkuðu toHar á faitn- aði frá EFTA-löndunum; sem eru Norðurlöndin fi.mm, Bret- land, Sviss, Austurríki og Portúgal, um 30%. Þessir toll- ar lækka svo um önnur 10% 1. janúar 1974 og síðan um 10% í byrjun hvers árs til 1980, að toliarnir verða burt fallnir. Verði samnimgur Isiands og Efnahagsbandalagsins frá 22. júlí í sumar staðfestur, helzt þessi þróun óbreytt, en sem kunnugt er eru Bretland og Danmörk nú á leiðinni inn í Efnahagsbandalagið." Björn Jóhannsson, Álfa- skeiði 76, spyr: „Eru heimild- arákvæði um það í lögum eða reglugerðum að inn- heimtá megi mánuðum sam- an adlt kaup emstaklinga í skatta?" Guðmiindur Vignir Jósefs- son, g-jaldheimtustjóri í Reykjavik, svarar: „Sam- kværrrt innheimtuköflum reglugerða um tekju- og eignaskatt og tekjustofna sveitarfélaga skal inn.heimta opinber gjöld af hverjum gjaldanda á ákveðnum gjald- dögum. Fyrstu gjalddagamir fimm eru fyrirframgjalddag- ar og skal gjaldandi í Reykja- vík þá greiða 60% gjalda fyrra árs, gj'aldendur utan Reykjavíkur 50%, og á næstu fimm gjailddögum skal inn- heimta það, sem á vantar. Nú eru skattagreiðslurnar í sjálfu sér einfalt dei'lingar- dæmi. En ef það hins vegar æxlast svo, að gjaidandinn ræðuir ekki við simn skammt, þá þýðir það í rauininni, að hann hefur tekið fyrírfram lán hjá því opinbera — lán, sem nú er gjaldfaUdð. Gera verður ráð fyrir því, að menn fái sína eðlilegu skatta eftir eigin framtölum og þeir bera fulla ábyrgð á skuldum sínum til ríkis og bæjar.“ Sigurborg Bragadóttir, Raf- stöð, spyr: „Eigum við ekki að fá strætisvagn héma við Rafstöðina, eins og var fyrir leiðabreytinguna ? “ Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri SVR, svarar: „Nei, þess er ekki að vænta, að strætis- vagnaferðir verði inn í þetta hverfi." Málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar, Axels Einarssonar Aðalstræti 6, III, hæð. Sími 26200 (3 linur). Skozka óperan; J ónsmessudr aumur í Þjóðleikhúsinu ÞANN 1. nóvember n.k. kemur hingað til landsins fjölmennur hópur listamanna frá Skozku ó- perunni og sýnir listafólkið hér á vegum Þjóðleikhússins fjóruim sinnuim þann 2., 3., 4. og 5. nóv. Sýnd verður ný ópera eftir hið þekkta tónskáld Benjamín Britt en og er það Jónsmessudraumur, en ópera þessi er samin eftir samnefndu leikriti Williams Shakespeare. Rétt er að geta þess að leikurinn var sýnduir í Þjóð- leikhúsinu fyrir alknörguim ár- um. Óperan Jónsmessudrauimiur hefur vakið mikla athygli að und anförnu, en þetta er i fyrsta skipti sem hún verður flutt hér á landi. Kópavogur AÐALFUNDUR S.jálfstæðis- kvennafélagsins Eddu í Kópa- vogi verður haldinn í kvöld í Sjálfstæðishúsinu við Borgar- holtsbrant og hefst hann kl. 20.30. Venjuleg- aðalfundarstörf. Féiagskonnr eru livattar til að fjölmenna. Beinn sími í farskrártfieild 25100 Einnig farpantanir og uppiýsingar hjá ferðaskrifstofunum Landsýn simi 22890 - Ferðaskrifstofa rikisins simi 11540 - Sunna simi 25060 - Feröaskrifstofa Útfars Jacobsen simi 13499 - Úrval sími 26900 - Úfsýn simi 20100 - Zoéga simi 25544 Feröaskrifstofa Akureyrar simi t1475 Auk þess hjá umboösmönnum umallt land L0FTLEIDIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.