Morgunblaðið - 26.10.1972, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1972
NÝ
VERZLUN
FVRIR sköminu var opnuð' í
Aiisturstræti 7 í Reyltjavík ný
verzlun fyrirtækisins Týlis hf.
sem um langt skeið liefur rek-
ið verzlun með gleraugna- og
ljósmyndavörur í Austur-
stræti 20. — Verzlunin í
Austurstræti 20 verður þó
ekki lögð niður, heldur rekin
áfram jafnhliða hinni. í nýju
verzluninni verða á boðstól-
um ljósmyndavörur, m.a. frá
Agfa, og gleraugu, auk ýmiss
annars. (Ljósm. Mbl. Brynj-
ólf ur).
v
Skólar í Vesturbæn-
um fullsetnir
1 Morg-unbiaðinu 24. október
er þess getið á baksíðu undir
stórri íyrirsögn, að 1000 ibúða
hverfi eigi að risa i Vesturbæn-
uim á næstu árum. Haft er eftir
skrifstofustjóra borgarverkfræð
ings, að það væri „að
mörgu leyti hagkvæmt að
þarna risi nýtt hverfi, þar eð
gamli Vesturbærinn væri nú
frekar bamfár og því kæmi það
llla út fyrir skólana í Vestur-
bæniun og nýttust þeir ekki sem
skyldi."
Svo mörg voru þau orð. Það
er 1 sjálifu sér ánægjulegit að
byggð aukist í Vesturbænum og
nytjað sé liamdsvæði, sem komið
hefur að liiitlum notum til þessa
dags. Hins vegar skýtur sikökku
við, þegar mimnzt er á skóla i
þessu bæjarhverfi, og óvið-
tinandi nýtinigu þeirra.
Skólar í Vesturbænum hafa
verið fullsetnir ag ofsetnir und-
anfarin ár og eru ekki horfur á
umtalsverðri breytingu í þeim
efnum. Ýmislegt veldur því, að
þróun er ekki him sama hér og í
sitmwm öðrurn hverfum borgar-
innair. Miðbæjarskólinn var laigð
ur niður fyrir fáurn árum og
verulegur hluti af skólahverfi
hans lagður við Vesturbæinn,
þ. á m. svæði eims og Skerjaíjörð
ur, sem er í j'afnri og stöðugri
byggimgu. Vesturbærinm er
stórt bæjarhverfi og hefur
byggzt á mjög löngum tírna; sum
ir hlutar hans eru fremur barn-
fáir, en inn í þá flyzt ungt fólk
til endurnýjunar, aðrir hlutar
hverfisins eru hims vegar barn-
margir; allt jafnar þetta sig upp
og stuðlar að meiri stöðugleika
í barnafjölda en er í sumum
yngri bæjarhverfum. Lokss ber
að geta þess að stöðugt er bygigt
upp og fyllt upp í ýmisar smá-
eyður i hverfinu.
Það er því sagt út í bláinn,
að skólar í Vesturbænum nýtist
ekki sem skyldi. Það er talið
sjálfsagt markmið i skólamálum
að nemendur á gagnfræðastigi
sæki einsetinn skólia; í
Hagaskóla eru nú um 870 nem-
endur — einungi's 600 rúmiast í
einsetnum skóla. 1 Melaskóla
eru enn nokkrar stofur
þrisetnar — það er ástæðulaust
að telja sMkt ófullnægjandi nýt-
inigu eða æskillegt framtíð-
arástand. Ve s t u rbæ j ar s kól'i er
fuillisetinn og starfar i húsnæði,
sem ekki er tii frambúðar.
Það er efalaust góðra gjalda
vert að eflia byggð í Vesturbæm-
um, svo að hvergi finnist ónot-
aður blettur en það er ástæðu-
laust að telja það gert til bjarig-
ar fásetnum skólum hverfeims.
Hitt ber fremur að ætia, að
fræðsluyfirvöld í Reykjavik
hafi vaðið fyrir neðan sig og
byggi nýjan skóla í Vesturbæn-
um samtimis þvi sem uppbygg-
ing áðuimefnds svæðis hefet.
Ingi Kristinsson, Björn .Tónsson.
Fréttabréf úr Rangárvalkisýsíu:
Lömb lélegri til frá-
lags en í fyrra
Vegir víða mjög slæmir
Mykjunesi, 15. okt.
Hér eru nú menn hættiir að
búast við öðru veðri en
rigningu, því flesta daga rignir,
stundum mikið, stundum lítið, en
oftast eitthvað. Þetta er senni-
lega eitt allira mesta rigminga-
sumar, sem hér hefur komið um
langan aldur.. Og þótt hey mæð-
ust öll og mikil að vöxtum, er
þó misjöfn verkun á þeim og
hætt við, að þau verði fremur
létt til fóðurs. Búizt ér við, að
sauðfjárslátrun í siiáturhús-
um Sláturfélags Suðu-rlands
standi til næstu mánaða-
móta. Lömb reynast lélegri til
frálags en s.l. haust og á þetta
sérstaklega við þar, sem jörð er
að eðlisfari votlend. Sums stað-
ar vantar meira en eitt kílió á
meðaltalsvigtina frá í fyrra. Að
vísu má geta þess, að í vor var
víða með mesta móti tvílembt, og
á það að sjállifeögðu ein-
hvern þátlt í þessu, en ekki
nærri að öllu leyti. Brfitt hef-
ur reynzt og seinlegt að
koma áfram ýmsum framikvæmd-
um og hauistverkum vegna tiðar
farsiras, þvi óneitanlega setur
það svip siran á umhverfið og at
hafnir manna.
Búið er að gera tvær leitir í
Landmannaafrétti og munu heimt
ur vera sæmilegar. Nokkuð hef-
u-r snjóað í fjöil síðustu dag-
anva, en ek'ki það mikið, að ófært
hafi orðið, enda umiferð mdkil
ennþá iran á hálendið í sambandi
við virkjunarframkvæmdirnar,
sem ailtaf er unnið að og er nú
orðin föst bCwieta manna við Sig-
öiidu inni við Tungnaá.
Nú eru skólamir teknir til
starfa að venju og faukkar þá
víða fólki á bæjum. Hér við
barnaskólann á Laugalandi
hafa orðið mikil manna-
skipti. Sæmundur Guörnundsson,
sem lengi hefur verið skóla-
stjóri, hefur nú látið aí
því starfi, en við tekið Gunrnar
Bj. Guðmundsson frá Heiðar-
brún, áður skólastjóri á Flúð-
um. Auk þess eru nú við skól-
aran þrir nýir kennarar og eru
keranarar við skólann nú fiirmn
auk skólastjóra. Fyrir tiokkrum
árum var s'kólanum breytt
úr heimavistarskóla i heknain-
gönguskóla, þannig að bönrnn-
um er ekið á milli, pg mura'u all-
ir vera ánægðir með þá bsreyt-
ingu. Að vísu gæti það haft erí-
iðleika í för með sér, ef mikla
snjóa gerði, en á það hefur ekki
reynt siðan breytingin var gerð.
Hér eru vegir viða mjög slæm
ir og eru margar samiverkandi
orsakir til þess. Það eru votviðr
in, mikil umferð og sáralítið við-
hald. Er ekfci annað að sjá, en
að hér verði sumiir vegir bóksstaf
lega að engu, ef ekki verður úr
bætt. Hér hefur verið óvenjuimik
il þungaumiferð í sumar vegna
rafmagnslin'u þeirrar, sem verið
er að teggja frá Búrfelli að
Geithálisi. Vonandi sjá yfirmenn
vegamála að hér þarf að kippa
í liðinn og það sem fyrst.
M.G.
I Hljómur nútímans er 4ra rása
stereo. Hljómdeild FACO hefur
________ jbá ánægju að kynna fyrir viö-
nllVICO skiptavinum sínum 4ra rása
hljómtækí frá Japanska fyrirtækinu JVC
Nivico. Þaö er viöurkennd staöreynd, aó
Japanir eru komnir lengst á sviöi hljómtækni
í heiminum í dag. JVC Nivico eru braut-
riöjendur í framleiöslu 4ra rása hljómtækja.
Viö hjá FACO höfum tryggt okkur umboö
fyrir JVC Nivico á íslandi. Tækin flytjum viö
inn beint frá Japan og getum því boöiö þau
á viðráöanlegu veröi. Komiö og hlustiö á
þessi frábæru hljómtæki í sértilgeröu „ hljómstúdiói"
að Laugavegi 89.
Ath. Stór sendihg tækja nýkomin.