Morgunblaðið - 26.10.1972, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1972
HALLUR JÓNAS-
SON - MINNING
HALLUR Jónasson fæddist að
Silalæk í Suður-Þingeyjarsýslu
8. janúar 1903.
Foreldrar hans voru Jónas
Jónasson, f. 1. okt. 1868 á Síla-
feek, og Sigríður Friðjónsdóttir,
f. 20. des. 1875 að Sandi, sem er
næsti bær við Sílalæk. Þau hjón
voru af merkum ættum. Sigríð-
ur var hálfsystir hinna kunnu
skálda Sigurjóns og Guðmundar
á Sandi. Jónas var albróðir Vil-
hjálms Jónssonar, föður Konráðs
skálds og fræðimanns á Hafra-
læk.
Foreldrar Halls, þau Jónas og
Sigríður giftust 2. nóv. 1898 og
bjuggu á Siialæk á fjórða áratuig
af mikilli rausn að mér hefur ver
ið sagt. Einmitt á þessum árum,
sem ekki var rikidæmi fyrir að
fara. En að eðlisfari voru þau
hjón mjög gestrisin, enda bærinn
í þjóðbraut. Bændur í innsveitum
sóttu björg í bú til Húsavíkur-
kaupstaðar á sleðum, en ís og
hjam var yfir á vetrum. Einnig
Móðir okkar,
Ragnheiður S.
Guðmundsdóttir,
frá Heydalsá,
andaðist í Landakotsspitala
24. okt.
hef ég það fyrir satt, að þau hjón
hafi verið ræðin og skemmtileg.
Húsbóndinn vel að sér í fomum
sögum, sem og íslendingasögum
og húsmóðirin margfróð í bók-'
menntalegu tilliti og sér í lagi
ljóðelsk. Og þess skal getið að
Sílalækur var nyrzti bær fyrir
botni Skjálfandaflóa á vestur-
bakka Laxár, skammt frá ósi
hennar. Þar var oft misveðrótt
ekki sízt í skammdeginu, þó að
útsýni sé þar fagurt þegar bjart
er og sólin skín og hin háu fjöll
í vestri, er geta stundum spegl-
azt í haffleti Skjálfandaflóa.
Á þessum slóðum átti Hallur
Jónasson æsku sína. Hann var
næstelzta barn af átta, sem þau
eignuðust, Sigríður og Jónas. Hin
bömin voru: Friðjón, Hámund-
ur, Helga, Kristin, Sólrún, Hólrn-
fríður og Jónas. Friðjón og Krist-
ín em látin fyrir allmörgum ár-
um.
Það er ævintýri likast á þess-
uim árum hins gamla heims, eins
Móðursystir mín,
Ólöf Guðmundsdóttir,
frá Ásvallagötu 59, Reykjavík
andaðist þann 19. þ. m. á
Borgarspítalanum. Jarðarför-
in fer fram föstudaginn 27.
þ.m. kl. 10.30 frá Fossvogs-
kirkju.
og sumt ungt fólk talar um í dag,
hvernig hjón 19. aldarinnar og í
upphafi þeirrar tuttugustu gátu
komið til fullorðinsára svo stór-
um barnahópi sem Jónas og Sig
níður á Sílalæk.
En við sem höfum hálfa öld að
baki vitum það kannski svolítið
betur en sú tvítuga glæsilega
æska, sem land vort á í dag. í
gamla heiminum var það vinna
og aftur vinna á mörgum harð-
býlisstöðum lands vors.
Hins vegar var lesin hver bók,
sem kom í hendur fólks, þótt víða
væri bókakostur fábrotinn.
Á þessum árum tóku ungir
menn á Silalækjarbæ og víðar
fram skotfæri ef vera kynni að
sæist selur í flæðarmálinu eða
rjúpa í heiði eða hrauni. Svona
var nú lífið í þá daga, við fjöll,
dali og fjörð. Fyrst og fremst til
að hafa í sig og á. Um skóla-
göngu var ekki talað daglega,
eins og í dag.
Hallur Jónasson fór snemma
að vinna er ekki veitti af í svo
stórum systkinahópi. Hann las
hverja stund, ef hann hafði tíma.
Það sagði móðir hans mér eftir
að hún var komin til Reykjavík-
ur til barna sinna í hárri elli. Þau
feðgin hafa verið mjög lík. Bæði
bókhneigð og igátu því talað um
margt saman þegar er Hallur var
á ungum aldri.
Þegar Hallur fói fyrst að
heiman frá æskuslóðum vann
hann við ýmis störf, m.a. á ver-
tíð á Siglufirði og Vestmanna-
eyjum. Hann var um skeið gæzlu
roaður á sjúkrahúsi í Reykjavik.
Á þessuim árum varð Hallur mik-
ill verkalýðssinni og einn af þeim
sem gerðu sér vonir una bjartari
og betri heim.
Og víst komiu bjartari dagar
inn í líf hans. Það var daginn, er
hann mætti Bergljótu Guttorms-
dóttur hjúkrunarkonu, er varð
kona hans. Bergljót fæddist á
Seyðisfirði 3. des. 1906. Foreldr-
ar hennar voru Guttormur Ein-
arsson og Oddbjörg Sigfúsdóttir
á Arnarheiðarstöðum í Fellum.
Hallur Jónasson og Bergljót
Guttormsdóttir giftu sig 3. nóv.
1935 og hófiu búskapinn á Síla-
læk árið 1934. Þau eignuðust
fimm börn og eru fjögur þeirra
á lifi. Einar fæddux á Sílalæk
1934 fórst af slysförum 1936.
Erhngur f. 15. marz 1936 á Síla-
læk. Hann er búsettur í Garða-
hreppi, kaupmaður í Híbýla-
t
Útför systur okkar,
Sigríðar Sigurðardóttur,
Háteigsvegí 15,
fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 27. október kl.
13.30. Blóm afþökkuð.
Sesselja Slgurðardóttir
Sigurður Sigurðsson
Gils Sigurðsson.
prýði, kvæntur Ástu dóttur
Tryggva Péturssonar banka-
stjóra og konu hans Guðrúnar
Jónasdóttur.
Börn Erlings og Ástu eru: Jón-
as Pétur, Einar, Guðrún, Tryggvi,
Hallur f. 17. júlí 1964, d. 28. marz
1967, og Erlingur.
1937 fluttust þau til Húsa-
víkur, Bergljót og Hallur. Þar
fæddist þeim þriðji sonurinn
1938, AðaLsteinn, sem er kaup-
maður í Híbýlaprýði og á heima
í Kópavogi, kvæntuir Ebbu Stef-
ánsdóttur, vélismiðs Einarssonar
og Guðlauigar Jóhannsdóttur.
Börn Ebbu og Aðalsteins eru
þrjú: Atli Stefán, Bergljót og
Brynja. Enn fæddust þeim Berg
ljótu og Halli tvö börn á Húsa-
vik, og voru það tvær dætur:
Ingunn f. 6. apríl 1942, starfar
hjá Loftleiðum í New York og
Sigriður Björg, f. 1945, gift Guð-
mundi Geir Jónssyni tæknifræð-
ingi. Þau eru búsett í Danmörku
og eiga einn son, Jón Eggert að
nafni.
Hallur Jónasson var um skeið
verkamaður á Húsavík. Þar þótti
hann sem víðar, harðger og lag-
inn til allra verka og góður mál-
svari sinnar stéttar. Hann var
einn af forgöngumönnum að
stofnun Byggingarfélags verka-
manna á Húsavík og fyrsti for-
maður þess.
En svo kemur það atvik fyrir,
sem mest hefur breytt lifi Halls
Jónassonar. Hann er búinn að
koma húsi yfir sína fjölskyldu á
vegum byggingarfélagsins, þeg-
t
Maðurirm minn, faðir og
sonur,
Eiríkur J. Eyþórsson,
sem andaðist 17. þ. m., verð-
ur jarðsungimn frá Fossvogs-
kirkju í dag 26. okt. kl. 3 e.h.
Sigríður Arnkelsdóttir
Eyþór Ármann Eiriksson
Jóhanna Sigurðardóttir.
ar kona háns Bergljót varð
bráðkvödd 21. sept. 1946. Nú
stóð Hallur úppi einn með f jögur
börn á þeim stað, sem hann hélt
sig vera orðinn rótgróinn. En líf-
ið er stundum ha.rðieikið. Hann
fylgir konu sinni ásarrut frænda-
liði í hina hinztu för til sonar
þeirra Einars, sem áður er getið,
og hvíldi í Neskirkjuigarði. Og
þá munu Halli hafa komið I hug
j af n 1 jóðelskúr og hanrt var,
þessar ljóðlínur móðurbróðir
síns, Guðmundar á Sandi:
Sérðu ekki dularheim drauma
og dáskyggniskvöld,
ást mín einmana á reiki
og örbjarga vonir?
Sérðu ekki öndina og ána
með ungana og lambið
umhygigju ástrikrar móður,
sem afkvæmis gætir?
Mundi þér móðurást dulin,
sem móðurást sýndir
gullhreina guðsanda dóttir?
Geturðu sofið?
Þegar svona var komið afréð
Hallur að leysa upp heimili sitt,
sem og hann gerði síðar um
haustið. Yngri dóttur sína lét
hann í fóstur. Erlingur fór til
frændfólks sins að Bergi í Aðal-
dal. Sjálfur kom Hallur suður til
Reykjavíkur með þau Ingu og
Aðalstein, og hefur átt hér heima
síðan eða til dauðadags. Það skal
tekið fram að Hallur var mjög
heilsuveill maður lengi ævinnar,
þótt hann ynni öll störf sem buð-
ust. Oftar en einu sinni átti
hann spítalalegur fyrir sina .síð-
ustu sl. sumar. Og síðan áxið
1965 var hann lengst af vistmað-
ur á Reykjalundi og vann þar,
eins og heilsa hans leyfði.
Ég sem þetta rita þekkti raun-
ar Hal! Jónasson furðulitið per-
sónulega, þótt alsystrasynir vær-
um. Leiðir okkar lágu nær
aldrei saman þau 25 ár, sem ég
átti heima hjá móðurbróður
hans, Sigurjóni Friðjónssyni,
sem bjó að Laugum í Reykjadal
frá árinu 1913. En unga fólkið
frá Silalæk og Sandi kom oft í
heimsókn að Laugum og man ég
það vel að það varð nokkur
breyting á heimilinu og ekki sízt
fyrir mig unglinginn. Þó Hallur
kæmi aldrei á þetta heimili á min
um dögum þar, fannst mér ég
raunar þekkja hann eigi að síð-
ur þegar hann kom fyrst á heim
ili mitt og konu minnar haustið
1946. Hann kom nokkuð oft til
okkar í ein þrjú ár, og var alltaí
með böm sín með sér ag þá oft-
ast Aðalstein, því Inga var mik-
ið hjá föðursystur sinni, Helgu.
t
Þökkum auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og jarð-
arför eiginmanns mins og
föður okkar,
Guðmundar Jóns
Guðnasonar,
frá Hælavík.
Jóhanna Bjarnadóttir
og börnln.
t
Þökkum aif alhug þeim sem
sýndu okkur samúð og hlý-
hug við amdlát og útför son-
ar okkar og bróður,
Gunnars Jónasar.
Sérstakar þakkir til Kennara-
skóla Islands, stjórnar skóla-
félagsins og bekkjarsystkina
hans í Kennaraskólanrim.
Auður Einarsdóttir,
Lárus Jónasson
og systklnin, Hellu.
Börn og tengdabörn.
Guðmundur Jóhannesson.
Eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR MARKÚSSOIM,
skipstjóri,
lézt 25. október.
Unnur Erlendsdóttir.
Útför föður okkar,
GUÐMUNDAR MAGNÚSSONAR,
fyrrverandi bónda frá Blesastöðum,
verður gerð frá Ólafsvallarkirkju laugardaginn 28. okt. og
hefst með húskveðju að heimili hins látna kl. 1 e.h.
Ferð verður frá Umferðamiðstöðinni kl. 11 f.h.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeir, sem vildu minnast hins
iátna er vinsamlegast bent á Sjúkrahús Selfoss.
Börnin.
Faðir okkar.
JÓNAS RAFNAR,
fyrrv. yfirlæknir.
verður jarðsettur frá Akureyrarkirkju laugardaginn 28. þ.m.
kl. 13.30.
Þórunn Rafnar,
Bjarni Rafnar,
Jónas G. Rafnar.
t Faðir minn, t Þökkum af alhug auðsýnda
Þorsteinn Jakobsson, samúð og vináittu við andiát og jarðarför föður okkar,
sem andaðist að heimili sinu, Skólastræti 3, 22. október sl. tengdaföður og afa, Ólafs Eiríkssonar,
verður jarðsunginn frá Foss- Skálakotl.
vogskirkju laugardaginn 28. október kl. 10,30 f. h. Böm, tengdabörn
Karl Þorsteinsson. og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför
ÖNNU BJÖRNSDÓTTUR
frá Felli.
Sérstaklega þökkum við læknum og starfsfól’ki lyfjadeild 3A,
Landspítalanum fyrir framúrskarandi umönnun.
1 Synir, foreldrar og aðrir vandamenn.
t
Faðir okkar,
Kristinn Guðlaugsson,
vélstjóri, Karlagötu 22,
lézt á Landakotsspítala þann
24. þ. m.
Böm hins látna.
t
t
Jón Sigurþórsson,
bifvélavirki,
verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 27.
október kl. 1.30. Blóm af-
þökkuð.
Jónína Bárðardóttir
Sigurbjörg Jónsdóttir
Sólveig Jónsdóftir
Eyjólfur Jónsson
______Sigurþór Jónsson.
t