Morgunblaðið - 26.10.1972, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1972
25
Þórir Baldursson
í þýzka hljómsveit
ORGELLEIKARINN, laga-
smiðurinn, útsetjarinn og
fyrrverandi þjóðlagajsöngvari
Þórir Baidursson var nýlega
staddur hér á Fróni í stuttri
heimsók.n. Undanfarin tvö o-g
háift ár hefur Þórir haft að-
setur sitt í Svíþjóð, leiikið
með tveimur hljómsveituim á
tímabilinu og endasenzt milli
nyrztu og syðstu endimarka
þess lands og flutt innfædd-
um dans- og dægurmúsík.
Þar hefur hann líka leikið
inn á hljómplötur, komið
vikulega fram í sjónvarpinu
um tíma, útsett lög og stjórn-
að upptöku á hljómplötum
fyrir þarlenda poppista. En
meðan á dvölinni hér heima
stóð sneri hann við blaðinu
og notaði tækifærið til að
flytja landanum jass með
innlendum jassleikurum.
,,Já,' það er gott að leika
fyrir Svíann,“ sagði Þórir í
stuttu samtali, „og þetta hef-
ur verið lærdómsrík dvöl. Ég
hef séð mikið af Svíþjóð
þessi tvö og hálft ár, hef ferð-
azt svo að segja um allt land-
ið með þessum tveimur hljóm
sveitum, sem ég hef leikið
með á þessu tímabili. Núna
undanfarið hef ég leikið með
9 manna dægur- og danslaga-
hljómsveit sem kennd er við
hijómsveitarstjórann Bruno
Glenmark sem fengið hefur
viðurnefnið „top-papan“ þar
sem hann er fastagestur í
efstu sætum vinsældarlistans
í Sviíþjóð. Aðalstjarna hljóm-
sveitarinnar er þó eiginkona
hans, söngkonan Ann Louise
Hansen. Hún er einnig mjög
vinsæl sjónvarpsstjama, og
um tíma vorum við með fast-
an þátt í sjónvarpinu á hverju
laugardagskvöldi.“ Auk þess
að leika á orgelið í hljóm-
sveitinni hefur Þórir einnig
útsett fyrir þau hjónin, og
það leiddi til þess að þarlend
popphljómsveit bað hann um
að annast upptöku á 2ja laga
hljómplötu fyrir sig.
En nú hyggur Þórir á vista-
skipti. „Skömmu. áður en ég
kom hingað heim, fékk ég síni
hringingu og mér var boðið
að ganga í þýzlka hljómsveit.
Þetta er 8 manna hljómsveít
og mun leika meira alhliða
músík, svo að þarna gefst
manni taékifæri að leika bæði
rokk og jass. Ég fer núna út
til Gautaborgar og byrja að
æfa með þeim, en síðan er
ætlunin að fara til Sviss og
og leika þar a.m.k. í hálft ár
og ef til vill síðar í V-Þýzka-
landi. Ég hlakka óneitanlega
til að leika með þessari nýju
hljómsveit, þetta verður vafa
laust skemmtileg tiihreyting“,
sagði Þórir.
Ljóst má því vera, að Þórir
mun ekki leika fyrir landa
sína hér á Fróni á næstumni,
og þó er ekki loku fyrir það
skotið að okkur gefist tæki-
færi til að heyra til hans á
öldum ljósvakans, eins og út-
varpið heitir nú orðið á fínu
máli. Þessa stundina er ein-
mitt á döfinni, að Þórir leiki
inn á hljómplötu fyrir SG-
hljómplötur, sem á að vera
í svipuðum dúr og fyrri
platan hans; létt íslenzk dans-
og dægurlög. Hins vegar hef-
ur ekki verið gengið frá því
hvar og hvenær uptakan fer
fram, en Þórir kvað það vel
koma til greina, að hann kæmi
hingað heim og léki inn á
plötuna hér með íslenzikum
hljómilistarmönnum.
Þórir Baldursson
Spánn
sigraði
AUGUSTIN LARA alþjóða
sönglagakeppninni lauk í
Mexikóborg sl. föstudag með
sigTÍ Spánar, sem semdi til
keppninnar Iagið „El mas
feliz del mimdi“ (Sá ham-
ingjusamasti i heimi), sungið
af Jose Luis Minaur. Pólland
lonti i öðru sæti með „Soon
will come the happy days“,
sungið af Urzulu Sipinska, og
Frakkland varð i þriðja sæti
með lagið „Who would have
believed“, flutt af Monique
Piarrta. Fyrstu verðlaun vont
nær 900 þús. ísi. krónur,
önnitr verðiaun um 450 þús.
kr. og þriðju verðlaun píanó.
Meðai þátttakenda í keppn-
inni var söngkonan VViIma
Rmding, sem skemmti í
Glæsibæ fyrir rúmum mánuði
siðan við frábærar undirtekt-
ir.
*» stjdrnu
, JEANEDIXON SP®
r ^
rirúturinn, 21. mai-z — 19. aprlL
Starf |»itt er J»éi all nokkurs meira virfti f dug ©u f gær, og vel
fer á l»ví að þú gerir viðeigandi breytingar.
Nautið, 20. apríi — 20. maí.
Þú tekur verkin eftir röð, og snemma eftir þvf. Þoliumæði er
þér brýn nauðsyn f öllum tiifinningamálum.
Tvíburarnir, 21. niaí — 20. júnf.
Fjárfestiiifcar hafa sína ágalla, þar sem of mikil hógværð veld-
ur of hæefara þróun.
Krabbinn, 21. júni — 22. júlí.
Þú lætur félagu þinn taka fuUan þátt fi sameÍKÍnlegum verkum
ykkar. Allt, sem þróast i dagr, er mjögr sterkt fyrir allau framgang
ykkar.
L.ióniðf 23. júlf — 22. ágúst.
Starf og framí þinn fá meðbyr, og þú ert alveg óhræddur við að
takast á við verkefnin einn þíns liðs.
Mærin, 23. ágúst — 22. septemher.
Tilfinningramálin hafa vlss áhrif á ákvarðanir, sem þú þarft að
taka, þvf að vissir aðilar helmta verk af þér, sem þú ert ekki reiðu-
húinn að vinna.
Vogin, 23. september — 22. október.
Endurskoða þarf vandlegra fjármál ogr rekstdr heimilisins, og:
þar með verður gramalt baráttumál tekið fyrir á ný.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Þér verður sérlegra vel ágrengrt fyrri partinn, en mörgr eru þau
atriði, sem þú verður að fullgrera ogr grangra frá siðar. Framlijáhald
er miklum erfiðleikum bundlð.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þér helzt lftt á penin^unum, ogr freistingrarnar eru alvegr að
sligra þigr. Fólk, sem her ha* þinn fyrir hrjósti rífst við þigr.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Þú legrgrur þigr allan fram við að fullgrera hafið verk fremur en
að byrja á öðru.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Þú leitar víða, o* verður að vlnna einn þíns liðs, en það borgrar
sigr, eins ogr þér verður fljótlegra ljóst.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. man.
Nýir viðburðir grlæða Iftt áhuga þinn, en þú sefar sjálfan þigr
talsvert með því að ljúka dagrlegrum verkum.
Mengun í höfnum
Þessi mynd er tekin í Vest-
ntannaeyjahöfn ©g sýnlr úr-
srangsolín í höfninni. Slíkar
myndir er hægt að taka i flest
um höfnum landsins og er
óhugnanlegt tii þess að vfta
þar sem hægt væri með að-
gæzlu að vera iaus við þenn-
an ósóma. Þannig eru oft stór
ir olíuflákar af úrgangrsolíu
frá bátum og skipum eða rétt-
ara sagt frá þeim mönnum
sem gera sér far um að henda
ölliim úrgangi hvar sem þeir
eru án liugsunar um mögu-
legt tjón.