Morgunblaðið - 06.01.1973, Page 11

Morgunblaðið - 06.01.1973, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1973 11 Ðr. Gunnlaugur l>ór5arson: Listasafn íslands Fr íkirkj u vegi 7 lm aAdraganda þess að Lista- safnið eignaðist Austnrstræti 12 og makaskipti safnsins við Franisóknarflokkinn. Afráðið hefur verið, að Lista- safn Islands verði til húsa að Frikirkjuvegi 7 i framtíðinni, en á sL sumri voru gerð makaskipti við Framsóknar- flokkinn á þeirri húseign ásamt lóð við Laufásveg og Austur- stræti 12. Verða bréfaskipt- in vegna makaskiptanna birt hér á eftir almenningi til upp- lýsinga. En fyrir þá, sém ókunn- ugir eru aðdraganda þess, að Listasafn Islands eignaðist Aust urstræti 12, skal um hann rætt nokkrum orðum. Hjónin Sigriður Benediktsdótt ir og Stefán Gunnarsson skó- kaupmaður byggðu húsin Aust- urstræti 12 og Sóleyjargötu 31. Þau voru listvinir og hjálpuðu mörgum listamönnum, m.a. hafði Jóhannes Sv. Kjarval vinnu stofu sína i risi hússins Austur- stræti 12, endurgjaldslaust að heita má. Jóhannes Kjarval mat þessa höfðingslund þeirra hjón- anna og eftir fráfall þeirra gaf hann Gunnari, syni þeirra, öll málverk, sem hann hafði mál að á vegg i vinnustofu sinni. Fylgdu þessi málverk með i yfir töku Listasafns íslands á eign- inni, að mínum dómi. Við fráfail þeirra hjóna komu umræddar fasteignir í hlut barna þeirra þriggja, Guð- ríðar, Gunnars og Sésselíu. Við fráfall Sesselíu kom Va hlutd húseignarinnar Austur- stræti 12, að frádreginni 1. millj. kr., í hlut Listasafns íslands, samkvæmt erfðaskrá. Listasafn- ið leysti til sín milljón króna hlutinn. Skömmu siðar var að til hlutan undirritaðs gerður samn- ingur um yfirtöku Listasafnsins á hinum % hlutunum með svo- kölluðiu ,,proventu“-fyirirkomu- lagi, þ.e. árlegum gxæiðslum til þeirra Guðriðiar og Gurunars með an þau lifðu, og var miðað við nafnvirði 16.000 bandariskra doll ara í islenzkum krómum. Þessi ráðagerð mæt:ti nolklkurri and- stöðu i Stjómarráðinu í fyrstu, en er undirritaður hafði gert þá verandi fjármálaráðiherra Ijóst hve liöu væri hér tál hætt, var ráðstöfúniin samþyikkt árið 1966, eftir rúmlega árs samningaþóf. Nú vdll engiinn muina þá and- stöðu. Gunnar Stefánsson féli frá 5. júní 1967, og lækkaði þá árleg „proventu“-greiðsla fyrir hús eignina í jafnvirði 9.000 doll- ara á ári, og skyldi hún renna til frú Guðríðar Stefánsdóttur og eiginmanns hennar, með- an bæði væru á lífi. Gunnar Stefánsson hafði áð- ur gert erfðaskrá, þar sem hann arfleiddi Listasafn Islands að Va húseigninni Sóleyjargötu 31 og hálfu málverkasafni foreldra sinna. Annaðist undirritaður um formlega hlið málsins. Húseign- in Sóleyjargata 31 var seld og fór hluti andvirðisins til kaupa á hinum hluta málverkasafns dánarbús þeirra Sigríðar Bene- diktsdóttur og Stefáns Gunnars- sonar. Var málverkasafnið mest megnis Kjarvalsmálverk og ein beztu verk meistarans. Þá eir koimið að Fríkirkjuvegi 7. Er makaskiptin fóru fram á sl. sumri, var húseignin Austur- stræti 12 metin á 27 millj. kr., og fram að þeim tíma hafði rík- issjóður ekki þurft að leggja út eyri vegna umræddrar fjárfest- ingar Listasafns Islands. Húsið Frikirkjuvegur 7 er byggt 1908, og er teiiknað af danska arkitektinum Alfred Jen sen, bróður Thors Jensens. Þak- ið á þvi húsi var með sams kom- ar valmaþak og húsið Fríkirkju- vegur 11, sem byggt var um 1907, en það hús tedlfcnaði Thor Jensen sjáifúr, og Eimar Erlends son gerði sérteikningu. Thor- Jensen réð miklu um úöif húss- iins og vildi að það félli i uim- hverfið, samkv. því sem Riehard forstj. Thors upplýsti mig urn á sinuan tima. Þetta atriði er aug- ljóst, þegar húsin eru borin sam an, þar er um all greinilegan rómanskan stíl að ræða, sem sómdi sér betur á íshúsinu en íbúðarhúsinu, en átti naumast erindi hingað. Mun það hafa ver ið vamdaðasta húis siinnar tegund ar, þegar það var byggt og væri betur að við hefðum fylgt þvi fotrdæmi. Veitingahúsið Glaumbær var j um árabil til húsa að Fríkirkju- vegi 7, og í því húsi voru tvö | stór sjómannamálverk eftir | Gunnlaug Scheving, en voru af ! hendingu fjarlægð rétt áður en j húsið brann. Segja má, að það hafi verið skemmtilegur fyrir- boði lokahlutverks hússins, er málverk eftir Gunnlaug Schev- ing voru hengd þar upp, og af hendingu bjargað. Þar séu góð öfl að verki. Til gamans skal þess getið að ! ég átti þvi láni að fagna að vera I húsvinur Richards heitins Thors og fjölskyldu allt frá þvi ég varð bekkjarbróðir Richards læknis 1936 í M.R. Gestrisni þeirra hjóna Jónu og Richards og vinátta var mér hollt vega- nesti. Ég var velkominn á heim- ili þeirra á nótt sem degi. Rich- ard er meðal mikilhæfustu per- sónuleika, sem ég hef kynnzt, mikili samningamaður og list- unnandi. En hvorugt þeirra hjóna vildi vera í sviðsljósinu. Richard keypti á árunum 1942— 1956 tugi málverka eftir Snorra Arinbjarnar, Gunnlaug Schev- ing og Þorvald Skúlason að minni áeggjan. Á námstíma mín- um í París 1952 skrifaði ég Richardi Thors bréf og bað hann senda mér kr. 100.000,- sem ég skvldi kaupa tíu mynd- ir handa honum eftir óþekkta listmálara í dag, þvi einhver þeirra yrði tvímælalaust þekkt- ur á morgun. Bréf þetta mun vera í bréfasafni Richards, svo sem börn hans gætu vottað. Þvi miður varð hann ekki við þess- um furðulegu tilmælum, en allir umræddir listamenn eru heims- þekktir í dag og eitt máiverk eftir hvern og einn kostar ekki undir milljón krónum nú. Það dugar ekki að harma sllkt, en gaman hefði verið að þetta hefði getað orðið veruleiki, þvi lista- verk á heimsmælikvarða jafnvel i einkaeigu er hluti af þjóðár- auðnum. Þá skulum við lita á bréfa- skipti um þetta merka hús Frí- kirkjuveg 7. Bréf 18 listamanna til húsafriðunar- nefndar „Vakandi listamenn1* Okkur undirrituðum hefur borizt til eyma, að húsafriðun- arnefnd hafi óskað eftir þvL að þak hússins Frikirkjuvegur 7, hér í borg, sem Listasafn Is- lands eignaðist s.L vor, verði fært i upphaflegt horf, það er mænirinn á aðalbyggingunni verði styttur um 50 sm I hvom enda, en fyrri eigendur höfðu eftir húsbrunann látið lengja mæni hússins sem því nam. Teljum við húsafriðun- arnefnd leggja óeðlilega mikla áherzlu á þetta atriði, þvi ólik- legt er að arkitektinn, sem teikn aði húsið á sínum tima, hafi tal- ið það skipta höfuðmáli hvort izt bréf, undirritað af 18 lista- mönnum, þar á meðal yður, um húsið Frikirkjuvegur 7, sem Listasafn Islands hefur nýlega eignazt og er að hefja viðgerð á fyrir safnhús. Nokkurrar mis- sagnar og misskilnings gætir í bréfinu og vill húsafriðun- amefnd leyfa sér að leiðrétta það og skýra afstöðu sína. I fyrsta lagi er húsið ekld frið lýst enn, en nefndin hefur stutt ákveðið varðveizlutillögur Harðar Ágústssonar og Þor- steins Gunnarssonar um einstök hús og hverfi í Reykjavík, en þar á meðal er þetta umrædda hús. Tillögumar liggja fyrir Borgarráði, en hafa ekki hlotið afgreiðslu. Hús Listasafns íslands við Fríkirkjuveg. — maEin.i ,nn væri 100 sm lengri eða styttri. Skoðun okkar er sú, að hér sé um svo augljóst aukaatriði að rfeða að ekki komi til mála að skerða í neinu notagildi húss- ins af þeim sökum. Fáum við ekki séð, að þessi breyting geti í neinu spillt útliti hússins né umhverfi þess. Þess vegna beinum við þvi til háttyirtrar húsafriðunamefndar að hún endurskoði afstöðu sína Eiö þessu leyti, þar sem núver- sndi afstaða nefndarinnar hef- ur að því, er ætla má, tafið fram k\ æmdir við bygginguna. Jafnframt viljum við beina því til allra, sem hlut eiga að máli, að framkvæmdum við fyr- irhugað Listasafn Islands að Frf kirkjuvegi 7 verði hagað þann- ig, að heildaruppdrættir af lista safnsbyggingunni verði gerð- ir þegar í stað, sem sé af öllum marmvirkjum, sem gert er ráð fyrir að verði á lóð listasafnsins, sem nær allt upp að Laufásvegi, einnig að byggingarframkvæmd um verði hagað þannig, að hið fyrsta verði hafizt handa um framkvæmdimar i heild, en ekki látið við það eitt sitja að endur- byggja brunarústina, sem fjrrir er. Væntum við þess að allir legg ist á eitt um að vinna að fram- gangi þessa mikilvæga menning- armáls, sem þvi miður hef- ur ekki alls staðar mætt þeim skilningi og velvilja, sem vera ber. Bréf húsafriðunar- nefndar - Þröngsýni og þekkingarleysi Reykjavík, 20. nóvember 1972. Húsafriðunarnefnd hefur bor- Það, sem gerir húsið merkilegt að dómi nefndarinnar er tvennt, staða þess í húsaheildinni aust- an Tjarnarinnar svo og bygging arstíll hússins, rómanskur still, og er húsið ágætt byggingar- verk. Það veldur þvi, að hin ytri hlutföll, einkum framhlið- in, eru mjög viðkvæm fyr- ir breytingum, og gegnir að sjálf sögðu hið sama um þakið, enda hefur það sitt að segja fyrir út- lit hússins. Hallinn á endum þaksins, valmamir, er greinilega teiknaður út frá hinu rómanska byggingarlagi, sem glöggt sést t.d. ef teikning af hiisinu er skoðuð. Raskist hann fer form hússins úr skorðum. Þetta ætti að vera augljóst. Það er ekki rétt í bréfinu, að mænirinn á aðalbyggingunni sé nú, eftir breytinguna sl. vetur, 50 sm lengri í hvorn enda en áður var og nefndin kýs að verði áfram. Samkvæmt teikn ingu af húsinu, er safnráð Lista safns íslands hefur sent húsafrið unarnefnd, en þar eru merktar inná breytingar á þakinu, er hér um að ræða 250 sm leng- ingu í hvom enda, eða 5 metra alls, fimm sinnum meira en segir í bréfi yðar. Það er því alls ekki hægt að segja, að hér sé um „augljöst aukaatriði að ræða“, þar sem um er að ræða að lengja mæninn um 44,2%. Er slæmt ef sá, er stílaði bréfið, hefur vísvitandi reynt að blekkja yður í þessu atriði. Húsafriðunarnefnd gat þvi ekki farið að mæla með (hún hefur ekkert vaild til að banna) breytingu, sem braut í bága við það, sem hún hafði áður mælt með (þ.e. friðun hússins L sínu upphaflega formi), en hins veg- ar gerði hún ekki athugasemd- ir við aðrar breytingar á hús- inu, sem fyrirhugaðar eru, enda eru þær mun minna áberandi. j Hvað viðvíkur síðasta lið bréfsins getur nefndin ekki tek- ið hann til sín, heldur hlýtur hann að hafa átt að sendast öðr- um aðila. i Bréf dr. Gunnlaugs - Hús getur aldrei veriö dauð teikning Reykjavik, 20. desember 1972. Undirrituðum hefur borizt í hendur bréf háttvirtrar Húsa- friðunarnefndar til eins Iista- manns og 17 betur, dags. 20. f.m., varðandi ábending- ar þeirra í formi yfiriýsingar til Húsafriðxmarnefndar, dags. 21. okt. sL, út af útlitsbreytingu Fríkirkjuvegar 7, sem Listasafn íslands er orðið eigandi að. Það skal fúslega játað, að bréfíð var samið af mér og einum þeirra sem undirrit- aði bréfíð. Yfíriýsingin var eig- inlega fyrst og fremst ætluð Húsafriðunamefnd til íhugunar almennt, en ekki á því stigi öðr- um, enda þótt okkur höfundum yfíriýsingarinnar dytti í hug, að mál gætu snúizt þannig, að rétt væri að senda hana öðrum, ef svo ólíklega tækist tiL að henni yrði svarað. Siðari hluti bréfs- ins er því frekar ábending al- tnenns eðlis. Lokáorð yfirlýsing- arinnar taka þeir til sín, sem finnst þau ummæli beinast gegn sér. Lokaorðin voru eimiig al- rrenns eðlis og komin til vegna þess tómlætis, sem Listasafni ís- lands hefur verið sýnt af þorra lyrirmanna islenzku þjóðarinn- ar. Samkvæmt því töldum við engu máli skipta að taka fram, hverjir hefðú samið bréflð. Málin hafa hins vegar þróazt svo, að óhjákvæmilegt er að láta það atriði koma fram, því ekki vil ég, að við höfund- ar bréfsins liggjum undir þeirri sök að hafa „vísvitandi reynt að biekkja um tiltekin atriði“. Vil ég senda slíkar glósur til föður- húsanna. Upplýsingar um lengda- brejrtingu mæniássims, sem mál þetta snýst um, fékk ég hjá Jó- hannesi Jóhannessyni, Iistmál ara, en hann hafði þær eftir Herði Ágústssyni, skólastjóra, sem á sæti í Húsafriðunamefnd. Reynt var að fá upplýsingarn- ar staðfestar hjá byggingarfull- trúa, en hann hafði enga upp- drætti af breytingurmi. Þegar bréfíð var samið, var óþarft að minu mati að rökstyðja ástæðumar fyrir afstöðu 18- menninganna. Aðalatriði máis ins hlutu að liggja i augum uppi, en mikilvægt, að bréfið yrði stutt en gagnort. öllum má vera ljóst, að þar sem ráðgiert væri að hafa ofan- Ijós á þákinu, væri lengd mæni- ássins grundvallaratriðí að þvl leyti, að því lengri sem hann væri þvi betri birta, en það er talið eitt þýðingarmesta atriði I sambandi við listasöfn. Einnig hljóta allir að gera sér ljóst, að það er oft æði vafa- samt að beita vísindalegri ná- kvæmni í leit að einhverju gull- insniði eða álíka lögmáli. Slíkt getur orðið til þess, að tilgang- urinn gleymist. Hér skilur í rauninni á milli stirðrar centi- metra formúlu og Iifandi list- rænnar tilfinningar. Þannig þykja mér 44,2% góðu eitt með spaupilegri atriðum, sem ég hef séð í opinberu bréfí. 1 fáum orðum sagt, er ijóst, að listamönnunum 18, sem stóðu að yfirlýsingunni frá 21. okt. sl., leizt ve! á hugmyndina um að breyta Frikirkjuvegi 7 i lista- safn. Á þann hátt væri þjóðinni gefið fordæmi um nýtingu bygg- ingar, sem misst hefur uppruna- I legt notagildi sitt. Þeir vilja ekkert hálfkák í þessu máli, heldur að byggingin verði full- kláruð. Undirrituðum hefur kom ið til hugar, að auðvelt væri að byggja á allrí baklóðinni og spursmál um, hvort ekki vært rétt, að sá hluti yrði á súlum i Fr i*<1 á his. 2.3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.