Morgunblaðið - 23.01.1973, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 23.01.1973, Blaðsíða 7
MORGUNBL.AÐ1Ð, ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1973 7 Bridge Noregur sigraði Frakkíaud í opira fiokknuim í Evrópuimótinu 1971 með 15 stigum gegn 5. Hér fer á eftir spil frá þessuim ie.k: Norður S: Á-K-G-9-6 H: 10-6-4 T: K-9-8-4 L: D Vestur Austur S: 7 S: 8-5-3-2 H: Á-D-9-8-3-2 H: — T: G-10-5-2 T: Á-7-6 L: 5-2 L: Á-G-10-7-4-3 Smður S: D-10-4 H: K-G-7-5 T: D-5 L: K 9-8-6 Frómsku spiiararnir sátu N-S við amnað borðið og þar gengu sagnir þannig: N. A. S V. 1 sp. 2 1. 3 sp. P. 4 sp. P. P. P. Mikil bjartsýni hefur rikt hjá frönsku spilurunum, enda er vonlaus't að vinna spiiið. Aust- ur tók laufa ás, lét aftur lauf, drepið var með kóngi, tigul drottning iátin út, austur drap með ás, lét lauí, vestur tromp- aði og sagnhafi trompaði yfir. Sagnhafi lét nú út hjarta, vestur tók ás og drottningu og austur iosnaði við . 2 tigla. Vestur iét þvi nœst tágui, austur trcvmpaði og þannig varð spiiið 2 niður og norska sveitin fékk 100 fyrir það. Við hitt borðið sátu frönsku spi*aramir A-V og spiluðu 2 lauf, dobluð. Spiiið á að vera 2 eða 3 niður, en norsku spilararn ir hittu ekki á réttu vömina. Suður iét út hjarta 5, sagn- haf-i drap í borði með drottn- ingu og tók síðan hjarta ás og losnaði þannig við 2 tigla heiima. Næsí var spaða 7 látið út og síð ar gat hann trompað spaða i borði og fékk þannig 8 slagi, vann spiiið og fékk 180 fyrir. Franska sveitin græddi því 2 stig á þessu spili. Hefði suður látið út tromp í byrjun hefði norska sveitin grætt 10 stig á spiiinu. Áheit og gjafir Gjöf til K á f fat.i arii ar k i r kj«i Við guðsþjónustu í Kálfatjarnar kirkju á jóladag afhenti frú Sveinbjörg Helgadóttir prófasts frú Brekkugötiu 18, Haínarfirði róðukross, mjög faiiegan grip til minningar um foreildra sina Helga Jónsson og Friðriku Þ. Pétursdóttir. Hallgrítnskirkja í Saurbæ frá x 100. Aíhent Mbl. Guðmundur góði. frá Eyjamanni 200, frá ónefnd- um 500, GE 200, Ingimar Finn- björnisson 5000, ánefndur í Hveragerði 100, GMH 5000. Afhent Mbl. Minningarsjóður Hauks Hauk-ssonar (Hjartabillinn) Til minninigar um Finnboga Fáiimason frá Ólafi og Hallfríði 1000, KG 5000, Starfsfólk Hótel Borg 1000, GR 300, GL 250. DAGBÓK BAKYWM.. GIMSTE3NA- AIÍURINN EFTIR ÖNNU WAHLENBERG „Jæja,“ sagði pilturinm og hnykkti til höfðinu. Tröll- in eru svo heimsk, að þau hafa ekkert vit á því hvað er fínt og hvað ekki. „En ég get nú frætt þig á því, að þetta eru fjólubláir ametyststeinar og eims og þú sérð slær fjólubláum bjarma af aliri spildunni. En þú sérð það ef til vill ekki. Og viltu gera svo vel að láta stein- ana mína vera.“ Tröllastelpan lagði steininn varlega frá sér aftur, en þegar hún heyrði hversu dýrmætur hann væri, horfði hún lengi og vel á hann. „Heyrðu,“ sagði hún loks, „nú sé ég að hann er fjólu- blár.“ „Jæja, sérðu það,“ sagði pilturinn. „Heldurðu að þú vildir ekki gefa mér svo sem einn stein, af því þú átt svo márga?“ „Ertu frá þér,“ s-agði pilturinn. „Ég fæ að minnsta kosti tíu krónur fyrir hvern stein á markaðstorginu, þótt hann sé ekki stærri en baun.“ „Já, en ef ég hjálpa þér að tína þá saman, þá gefur þú mér nú einn eða tvo?“ Ingi gaut til hennar augunum eins og hann væri að hugsa sig um. „Þú færð þá einn,“ sagði hann. „Það er meira en nóg. FRHMtfRLÐSSflGflN Og þá verður þú líka að láta hendur standa fram úr erm- um.“ Já, það skylai hún gera. Og svo stóð hún upp og vax þá einis stór og flaggstöng. Svo beygði hún sig og tíndi svuntuna sína fulla af grjóti og fleygði því í hauginn og þannig hamaðist hún alla nóttina, þangað til fór að birta af degi. Þá þorði hún ekki að vera úti lengur, en þá var líka búið að tína grjótið úr einum fjórða af spild- unni svo eftir var ekki nema fínasta gróðurmold. Ingi valdi einn stein handa henni, sem var á stærð við bamishöfuð, en ekki fyrr en eftir langa umhugsun eins og hann væri hræddur um, að hann væri of stór. „Hana . . . þú getur fengið þennan,“ sagði hann. „Eig- inlega er hann fullstór, en þú getur fengið hann samt. Og verði þér hann að góðu.“ Tröllastelpan varð himinlifandi og kyssti steininn og hljóp heim í fjallið í þremur stökkum. Og þegar hún var komin heim í herbergið sitt, tók hún nálina úr háls- klútnum sínum, boraði gat í gegnum steininn og hengdi hann í band um hálsinn á sér eins og aðrar stúlkur hengja gullhjarta í silkisnúru. Það kom sér einmitt vel fyrir hana að eignast nýjan skartgrip, því hún átti að fara í miðdegisverðarveizlu með foreldrum sínum til tröllakóngsins, sem bjó í Stóra- fjalli tíu mílur í burtu, en þangað fóru þau um löng neðanj arðargöng. Hún sagði foreldrum sínum ekkert frá gjöfinni. Hún átti að koma þeim á óvart í veizlunni. HENRY SMAFOLK IJE'LL QUAFF A FED ROOT 6EER5, AN0 UE'LL 5ETTLE OUS PIFFERENCE5 LIKE CIVILIZEP 6ENTLEMEN... — Við skuhim fara heim til — Við skultim bíba svolít- mín . . . 1(5 hvannarótarbrennivín, Bíbí, og jafna ágreining okkar eins oí skynsömum mönnum sæm- ír . . . IT NEVER FAIL^...THI?EE ROOT 8EER5 ANP WOOP^TOCK FALL5 éOUND A5LEEPÍ — Þetta bregzt ekki. Þrír sopar af hvannarót og Bíbí steinliggur! Afhent Mbl. Áheit á Stra.ndar- kirkju BP 500, Guóbrandur 500, SL 100 SR 200, GG 1000, SG 100, NN 500, IH 100,. J 2401 J 500, frá Eyjatnanni 800, MM 100, Katrín Eínarsd. 500, Friða 300, GJ 400, NN 1000, GT 500, ÁÓ 500, Si.gur )aug 250, ÞÞ 200, VF 220, frá ónefnduim 200, NN 200, NN 200, SV 200, ÞSG 200, SF 200, JE 500, RB 400, KNÞ 500, Ónefnd- ur 700, SJ 900, NS 1000. Afhent af sr. Amgrími .Jónssyni: Helga Friðriksdóttir áheit kr. 1000, AB 500, 1 orgelsjóð frá Ásig. Guðjónssyni 1000, Kærar þakkir. Háteiigskirkja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.