Morgunblaðið - 23.01.1973, Blaðsíða 13
—Lij—!--------------i---lj--:----- ---------- ------------ ----------------*—
MORGUNBLAÐIÐ, BRIÐJUDAGUR 23. JANtJAR 1973 13
Eéiéu 9 í
gíslillgu
— í tvo
sólarhringa
New York, 22. janúar
NTB—AP.
FJÓRIR félagar samtakanna
Svartir Múhameðstrúannenn,
sem haldið höfðn níu raanns í
gíslingn í sportvöruverzlun
nokkurri í Brooklyn í New York
frá þvi á föstudag, gáfust upp
fyrir lögreglunni á sunnudags-
kvold, fjórum klukkustundum
eftir að gísliinum hafði tekizt að
flýja. Hafði lögreglan setið um
byssumennina í tvo sólarhringa,
þar sem blökkumennirnir fjórir
— einn þeirra alvarlega særður
— höfðu búið um sig með mikið
magn af skotfærum og skotvopn-
um. Einn lögreglumaður beið
bana og tveir særðust í skot-
hrið fjórmenninganna við lög-
regluna.
GLslunum níu — þremur karl-
raönnum og sex konum — hafSi
tekizt að koanast undan upp á
þak verzlunarinniar, þar sem
þeim hafði verið haldið föngn-
um. Ndklkrum klukkustuindum
síðor kornu blökkumennimir út
hver af öSrum með hendurnar
fyrir ofan höfuð og gáfu sig á
vald lögreglunni, nema sá fjórði,
sem saerzt hafðL Hann var
fluttur burt á sjúkrabörum,
illa særður, þvi að hann hafði
hlotið kúlu í magann.
Lögreglan er þeirrar sfcoðunar,
að fimmti maðurinm hafi verið
i hópi blökkuimanna, er þeir
komu inn í verzlunima á föstu
dagskvöld í því skyni að ræna
hana, em hafi tekizt að komast
umdan í bifreið, þégar lögreglan
kom á vettvang á föstudag.
Richard Nixon sver eið sinn sem Bandaríkjaforseti í annað sinn sl. laugardag. Forseti hæsta-
réttar Bandarikjánna, Warren B. Bnrger, stendnr andspænis honum, en kona Nixons heldur á
biblíu fjölskyldnnar, sem forsetinn styðnr hendinni á, um leið og hann sver eiðinn.
Lengsta og erfiðasta
stríði okkar að ljúka
— sagdi Nixon forseti
í innsetningarræöu sinni
Washington, 21. jamúar. AP
— NO, þegar lengsta og erfíð-
asta stríð, sem Bandaríkjamenn
hafa nokkru sinni háð, er senn
á enda, sknlimi við að nýju taka
að ræða ágreiningsefni okkar af
þegnskap og heiðarleika. Banda-
Blekkti konu
til ásta
— með því að látast vera
eiginmaður hennar
Kaupmaranahöfn, 22. jan.
NTB.
LÖGREGLAN í Birkeröd fyr-
ir norðan Kaupmanmahöifn
leitar mú manns sem hafði geð
í sér til þess að læðast inn i
hús nokkurt að næturlagi og
sæmga þar hjá grunlausri
konu, sem hélt að hann væri
eigihmaður hérihar. Konan,
sem ér 46 ára að aldri, upp-
götvaðí þá fyrst mistök sim,
er aðkoroumaðurinm var að
skreiðast út úr rúmiinu aftur
og hún, sér til skelfdngar,
heyrði mann simn hrjóta í
rúminu við hliðina.
Óp konumnar vöktu eiigin-
manninn og þrjú þörn þeirra
hjóna, sem sváfu i öðrum her-
bergjum. En jafnvel þó að
elzti sonurinn, 18 ára að aldri,
gerði þegar í stað tilraun til
þess að elta a&komuimanninn
uppi, komst hann undan,
stökk upp í bil sinn og brun-
aði burt. Hanm virtist vera
um 45 ára gamal'l.
Að sinni fer lögreglan með
mál þetta eins og þarma væri
um nauðgun að ræða, enda
þótt konan setgist hafa látið
fúslega að vilja aðkoma-
mannsims og kvartaði hvergi,
fyrr en húm uppgötvaði að
elskhuiginn var aðkomumað-
ur.
Brot þetta gæti verið reflsi-
vert samkvæmt gömlu dönsku
lagaákvæði með allt að 4 ára
fangelsisivist fyrir „að blekkja
konu til ásta með því að lát-
ast vera vígður eiginmaður
hennar".
rikjamenn geta verið hreyknír
af þi-i, að í öllum þeim fjórum
meiri háttar styrjöldnm, sem
þeir hafa tekið þátt í, hjálpuðu
þeir öðrum til þess að verjast
árás. Heimnrinn stendur á
þröskuldi nýs friðartímabils, en
Bandarík,jamenn verða að gera
sér grein fyrir þvi, að það tíma-
bil, sem tekur \ið að stríðimi
loknu, verður tímahil mikilar
ábyrgðar. Þannig komst Nixon
Bandaríkjaforsetí m.a. að orði í
ræðu sinni sl. laugardag, er
hann tók við embættí öðru sinni.
Mikil hátiðehöid fóru fraim i
Washington í tiiefni innsetning-
aritnnar, en samtímis áttu sér
stað umfangsmiklar mótmæla-
aðigerðir í borg'nni gegn stríð-
inu í Víetnam. í ræðu sinni
miinntist forsetinn hvergi bein-
um orðum á Víetnamstríðjð og
hann skírsfcotaði aldrei til frið-
arviðræðmanna i París, sem eiga
að hefjast að nýju á þriðjudag.
— Sá friður, sem við sækj-
urnst eftir í heiminum, er ekki
sá stundarfriOur, sem er aðeins
millibilið milli styrjalda, held-
ur friður, sem enzt getur óborn-
um kynslóðum, sagði forsetinn.
Forsetinn skírskotaði til á-
byrgðiar einstaiklinga og þjóða
og sagði: — Við skulum hvetja
einstaklingana heima fyrir og
aðrar þjóðir ainnars staðar í
heimTnum til þess að gera meira
fyrir sig sjálfar og ákveða
meira fyrir s.'g sjáifar. Við skul-
um hvetja til meiri ábyrgðar á
sem fiestum stöðum. Við skul-
um vega og meta, hvað við ger-
um fyrir aðra eftir því, hvað
þeir gera fyrir sig sjálfir.
Áfram í landhelgi:
Hættu við
að sigla heim
London, 22. janúar. AP.
MEÐ naunium meirihluta
samþykktu brezkir togai*a-
skipstjórar á íslandsmiðum
um helgina að hætta við hót-
unina nm að sigla heim af
miðiinum ef þeir fengju ekki
herskipavernd. í staðinn var
þeim heitíð stnðningi dráttar-
bátsins Statesman.
Atkvæðagreiðsilan fór fram
Pólitísk erfðaskrá Cabrals;
Lýst skyldi yfir sjálfstæði
portúgölsku Guineu á þessu ári
Abijdaji, 22. jam. NTB — AP.
SEKOU Toure, forsetí Gnineu
skoraði í dag á lönd Afrikn að
herða baráttuna gegn nýlendu-
stefnunni eftir morðið á afrík-
anska skærnliðaforingjanum,
AniIIcar Cabral. Hann var drep-
tnn fyrir framan heimili sitt í
Oonakry í Guineu á laugardag.
Cabral var 48 ára að aldri og
hafði pm 10 ára skeið verið for-
ingi freísishreyfingarlnnar í
Portúgölsku Guineu. Sagði
Tonre forseti, að það hefðu verið
atvinnu leigumorðingjar, sem
staðið hefðu í sainbandi við
portúgölsk stjómvöld, er myrt
hefðn Cabral.
TaJlismaðuir por'búigöllsfcu stjóm
arim.niair siaigði í Lissaibon í diag,
að Poribúgal hefði ekki haft niein
afskipti af moriðinu á Cabral: —
Þetta er aðferið, sem við beiitum
aklnei. Við beitum aidnei ofbeldi
af þesisu tagi.
1 Dafcar hefur verið birt sfcjai
í blaðirau Le Solei, sem haldið er
firam,' að sé pó®tísfc erifðasfcrá
Cabnals. f skjalicnu, siem er dag-
sett 8. jamúar sl., siegir, að það
hatfi verið ætiuin Oabriais að lýsia
yfir sjállfsitæði nýleinduininiar á
þessiu ári og að saimitimi's sfcyldu
fara fraim aimieninar koningar til
þjóðþings landsins.
EDLENT
x talstöðvum skipstjóranna.
Austen Laing, framkvæmda
stjóri togarasamibandsims
fagnaði úrslitunum og kvað
þau sýna að skipstjóramir
teldu rétt að þeir væru ekki
hraktir frá miðunum vegna
áreitni Islend nga eða neydd-
ir til að takmarka veiðarnar
svo að þær borguðu sig ekki.
Laing s'agði að ahir í- landi
dáðuist að frábærri stiilingu
og þolinmæði sem skipstjór-
arn r hefðu sýnt. Hann sagði,
að nú þegar aðstoð væri á
leiðinni og ef til viil með
nokkrum öðruim ráðstöfun-
um að auki, ættu togararnir
að geta bjargað sér það sem
eftir væri vetrar. Hann sagði
að þegar veðrið batnaði ætti
staðan að breytast Bretum í
vii.
Charles Noble, sk'pherra á
dráttarbátnum Statesman,
ræddi við sérfræðinga land-
búnaðarráðuneytisins og sjó-
hersins fýrir brottförina frá
Leith. Hlutverk Statesman
verður að hrekja burtu fall-
byssubáta sem áreita togara
eða reyna að klóppa á togvira
þeiri'a. Statesman kemur vænt
anlega á miðin í fyrramálið,
þriðjudag.
í stuttu máli
Verðhrun á verð-
bréfum á Lundúna-
markaði
London 22. janúar AP.
VERÐ á hlutabréfum og
verðbréfum féll um 18.1 stig
í kauphöllinni í Limdúnum
í dag og er hér um að ræða
mesta verðhrun í sögn Kaup-
hallarinnar á einum degi.
Þegar Kúpudeiian stóð
sem hæst í nóvember 1962
féltu verðbréf um 18 stig.
Markaðssérfræð’ngar kenna
söluæðinu í dag og fylgjandi
verðhruni efnahagsráðstöf-
unum brezku stjórnarinnar,
sem ti’fcynintar voru í siíð.ustu
viku.
Hæstiréttur Banda-
ríkjanna úrskurðar
fósturevðingar
einkamál konu
og læknis
Washington 22. janúar.
HÆSTIRÉTTUR Bandaríkj-
anna kvað í dag upp þann úr-
skurð að það sé einkamál
konu og læknis hvort hún látí
eyða fóst.ri á fyrstu þremur
mánuðum meðgöngutímans,
7 dómarar voru samþykkir 2
á móti. Málið hefur verið fyr-
ir réttinum í 2 ár.
í V-Þ'^rilanclj
Bonri 22 janúar AP.
MIKLAÓ öryggisráðstafanr|
voru gerðar á fliigvöllum og
landainærum V-Þýzkalands í
dag, er fréttir bámst að einn
af skæruliðumim. sem þátt
tók i hryðjuverkunum á
Ólympíuleikimum í Múnchen
væri kominn til landsins.
Skæru’iðarnir, sem lifðu
skotbardagann voru semv
kunnug* er látnir lausir er
félaga.r þeirra rændu Luft-
hansavél og heimtuðu í stað-
inn fyrir farþegana og áhöfn,
sem þeir héldu í gíslingu.
Frétt þessi er sögð kotnin frá
skirifstofu Inferpool í Paris.
PanArri -qr^rir 890
milljón kr. leigu-
flugsamning
New York 22. janúar AP.
BANDARÍSKA flugfélagið
Pan American skýrði frá því
í dag að það hefði gert samn-
ing við ferðaskrifstofuna
Tourpak International um
297 leiguflug milli Los Angel-
es og New York og London.
Er þetta stærsti samningur
sem gerður hefur verið sinn-
ar tegundar. Fargjöld milli
Lundúna og New York verða
frá 199 dolrurum upp í 243
miðað við báðar leiðir og
verður f ogið þrisvar á dag
milii 15. iúní og 15. október.
3 vikulegar ferðir verða milii
Lc>3 Ange'es og London og
veröa fargjöldin frá 285 doll-
urum báðar ieiðir. Samning-
urinn h’jóðar upp á 890
milljónir ísl. kr. Farþegar
verða 2ð panta far með
3ja mánaða fyrirvara og
greiða þá 25% af fargjaid-
inu.