Morgunblaðið - 15.02.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.02.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. FEIBRÚAR 1973 LEIKFÉL.AG Seltjamamess frnmsýnir á laug-ardagr barna- leikritið „Gosa“. Er það sam- ið af Jóhannesi Steinssyni i Vík i Mýrdal upp úr hinni frægu ítölsku barnasögu um Gosa. Iæikstjóri er Jón Hjart- arson, en I/Uja Hallgrímsdótt- ir hefur samið dansa við leik- ritið. Tónlistin er eftir Magnús Ingimarsson og ljóð- in, sem sungin em, eru samin af Jóni Óskari. Leiktjalda- myndir eru gerðar af Magnúsi Pálssyni. I leikritinu eru 19 hlutverk og með þau fara 17 leikarar. Aðalhlutverkið, Gosa, leikur Þráinn Skúlason, 13 ára, en yngstu leikaramir eru 12 ára. 1 leikritínu leika einnig futlorðnir leikarar, þannig að þar leika bæði böm og fullorðnir. Verður fyrsta sýningin næsta laugardag, sem að framan greinir og fer fram í Félagsheimilinu á Sel- tjaraarnesi. — Þetta er óvenju viðamik- ið verkefni fyrir nýstoEnað áhiugamannafélag, sagðd lei'k- stjórinn, Jón Hjartarson, þeg ar frébtamaður MI>1. hittti hann að mál'i á ætfiingu. — ÁstæA an er einkum, að þetta út- heimtir talsvert mikið af skrauti í tjöldum og búning- um, eins og svo gjaman ger- ist í ævintýraleikritum. t>að er t.d. verið að koma fyrir risastórum hval uppi á svið- inu og eiitt atriðið gerist síð- an inni í hvaln’Um. Annars gerum við okkur vonir um, að þetta leikrit verði vel sótt ag þá ekki ein- vörðungu af Seltirningium, heldur af Reykvíikinguim al- mennt og fleirum, enda þótt við gerum okkur grein fyrir, að við gebum aldrei keppt við leikhúsin í bonginni. En það hefiur komið mér á óvart, hve blómlegit félagsltf- ið er hér á Selitjamamesinu og þá ekki bara á vettvamgi leiklistarinnar. Stafar þetta að sjálfsögðu af hinu góða félagisheimili hreppsins. — Þetta var svolíitið erfitt í fyrstu, sagði aðalleikarinn, Þráinn Skúlason, — en það varð auðveldara, þegar unnt var orðið að táka allt leikrit- ið í heild fyrir í einu, frá byrj un til enda. Ég hef ekki ákveðið að verða leikari, svaraði hann að spurður, — en það er mjög skemmtilegt að taka þábt í þessu. — Við höfum verið með leiklistamámsfceið, eitt í vet- ur og tvö í fyrra og það fjórðá hefst eftir nokkra daga, sagðii Jón Jónsson, formaður Leik- félags SeLtjamarness. — Það er ætlunin að halda þessum námskeiðum áfram eftir föngum til þess að bl'ása sem allra mestu lifi i félagið, sem er með yngistu leikfélögum á landinu, stofinað 13. okt. 1971. Efsta mynd til hægri: Gísli gamli Guðjón Jónatansson) virðir fyrir sér son sinn Gosa (Þráinn Skúlason), eftir að álfadísin hefur snortið þann síðarnefnda með töfrasprota sínnm, svo að hann er orðinn að lifandi dreng. Á myndinni þar fyrir neðan ræða refurinn (Jón Jónsson og klsa (Vera Björk Einarsdótt- ir) við Gosa. Þau telja honum trú um, að enginn sé þeim fær- ari til þess að ávaxta peningana hans. Á neðstn myndinni er farandsalinn (Skúli Skúlason) að bjóða strák (Guðmundi Dav íðssyni) vöm sína. Á myndinni hér fyrir neðan sést Gosi ásamt þeim Palla (Jóhanni Steinssyni) og Kalla (Óiafi Hauk Ólafssyni). Fyrir ofan þá stendur Eldibrandur (Jóhann Thor- oddsen), eigandi brúðuleikhússins. GOSI Ævintýrið sýnt sem barnaleikrit af Leikfélagi Seltjarnarness

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.