Morgunblaðið - 15.02.1973, Qupperneq 14
MORGUNB9LAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1973
Jóhann Hafstein:
Stjórnina skortir heildar-
sýn yfir ef nah agslif ið
Framhald af bls. 32
sem ekki vilja styðja þetta frum
varp. Ríkisstjómin mun sætta
sig við niðurstöðu Alþingis. Ef
gagn á að vera að frumvarpinu,
verður að afgreiða það fyrir 1.
marz. Þó að það sé stuttur tími,
ætti eigi að síður að gefast svig-
rúm til að athuga svo einfalt
mál, og gera upp við sig hvort
þeir vilji halda þessu imnan visi-
tölunnar.
Jóhann Hafstein: Ég mæltist
til þess, er þetta frumvarp kom
fram, á mánudag, að það yrði
ekki tekið á dagskrá í dag. Við
í þingflokki Sjálfstæðisflokksins,
höfum ekki haft tækifæri til þess
að ræða þetta frumvarp, og nú
standa fyrir dyrum fundir Norð-
urlandaráðs, og margir þing-
menn á förum út vegna þeirra
strax á morgun. Bæði fara
forystumenn flokka og eins ráð
herrar.
Hér er stórmál á ferðinni.
Frumvarpið er tvíþætt. í fyrstu
greim frumvarpsins er kauplags-
nefnd faliið að færa kaupgjalds-
vísitölu niður um eitt stig, þar
sem ríkisstjómin boði, að hún
ætli að koma á aukimni tann-
læknaþjónustu. — Engar skýr
ingar eru á, hveunig á að fram-
kvæma þá þjónustu. Það á ekki
að bíða og sjá hver hún verður.
og reikna svo út áhrif á visitöl-
una. Ú'treikningur kaupgjaldsvisi
tölu er ekkert smámál. Hún mæl
ir kaup aliira launþega i landinu.
Það er ekki hægt að leyfa sér
að fikta eða fálma með kaup-
greiðsliuvísitöliuna. Krafizt er, að
farið verði að með gát í þessum
efnum, svo sem setíð hefur verið
gert. Hvar á að taka þetta fé,
sem hér er nefnt? Okkur hefur
verið margsagt, að ríkissjóður
sé gjörsamlega fjárvana.
Þessi þjónustuþáttur er ekki
í vísitölugrundveilinum, og fóik
er búið að felila sig við þessa
þjónustu, og nú á að fara að
svipta fólk þessum hlunnind-
um, sem það hefur búið við.
Þessi grein er því efnisiega mjög
slæm og hafa sjáifstæðismenn
margt út á hana að setja.
Hin greinin kveður á um, að
við útreikning kaupgreiðsluvísi-
tölu fyrir marz — mai, júní —
ágúst og september — nóvember
skuli kauplagsnefnd ekki taka
tiilit til þeirrar visitöluhækbun-
ar, sem leiðir af verðhækkun á-
fengis og tóbaks i desember
1973.
Allir eru sammála um, að end
urskoða vísitöluigrundvöllinn, 5
því skyni að reyna að skapa
betri grundvölil fyrir vísitöluna.
Það á ekki að vera með kák,
heldur endurskoða hann í heild,
enda stendur slíik endurskoðun
fyrir dyrum. Þetta er aðeins
Karvel Pálmason
bráðræði hjá rikisstjóminni.
Hana skortir alla heildaryfírsýn
yfir efnahagslíf landsins. Það
eru margir aðrir Mðir i vísitölu-
grundvellinum, sem taka þarf
afstöðu til.
Forsætisráðherra sagði, að
reyna ætti á, hverjir vildu hafa
áfengi og tóbak inn í vísitölunni.
Það reyndi nokkuð á það í júlí
1971. Þá var áfengi og tóbak
ekki í visitöliunni, en rikisstjórn-
inni lá þá mest á að taka þetta
hvort tveggja inn í vísitöluna á
ný. Hann sagði Mka, að það
væri ekki nokkur skynsemi að
hafa þetta tvennt í vísitölunni.
Hvenær vitkaðist forsíetisráð-
herrann? Þegar veizlugleðin í
júlí stóð sem hæst, þá átti að
leiðrétta það rangl'æti, sem fyrri
rikisstjórn hafði beitt, er hún
tók áfengi og tóbak út. En nú er
þetta ekkert vit, og þvi spyr ég,
hvenær vitkuðu-st ráðherramir?
En ákvörðun viðreisnarstjóm-
arinnar um að taka þessa tvo
Mði út úr visitölunni var tekin
við allt aðrar aðstæður. Þá var
sett fram ákveðin efnahagsáætl-
un, sem stóðst. Hún var einkum
í þrem liðum. Skattur lagður á
atvinnurekendur, frestað
greiðslu tveggja visitöliustiga og
hækkun áfengis og tóbaks til að
geta greitt niður neyzluvörur.
Við það bættist, að raunveruleg-
ar tekjur skyldu verða meiri,
kaupmáttur aukast. AMt þetta
var tíundað fyrir Allþýðusam-
bandinu um sumarið 1970 og
fram eftir hausti og þessar stað
hæfingar þáverandi rikisstjóm-
ar stóðust. Nú er kamið í ljós,
samkvæmt útreifcniingum hag-
rannisókniadeMdar Framkveemda-
stofniunarinnar að kaupmáttur
launa jókst á þessum tveimur
árum urn 27,3 prósent. Ráðagerð
ir stjómarinnar stóðust al'lar. 1
raun og veru varð kaupmáttar-
aukning á einu ári frá maí 1970
til maí 1971 18%.
Nú verða helmingi meiri
áhrif af að kippa þessum Mðum
út en áður. Ríkisstjórnin hafði
lofað kaupmáttaraukningu,
en nú er boðað og vit-
að, að ekki verður um neina
kaupmáttaraukningu að ræða á
þessu ári. Ekkert er vitað til
þess, að samið hafi verið við
fulltrúa launþega um þetta frum
varp, og það kemur þeim algjör
lega á óvart. Ég tel að vendilega
þurfi að athuga meðferðina á
þessu frumvarpi og nauðsynlegt
að skoða það í ljósi núgildandi
kjarasamninga, og að í ráði er
heildarendurskoðun á kauplags
grundvellinum.
Ekki hefði verið ástæðulaust
fyrir ríkisstjórnina til að athuga
hvort hún hefði stuðning Alþing
is í málinu, að minnsta kosti
ræða við stjórnarflokkana alla
um það. í greinargerð segir að
rikisstjórnin telji eðlilegt að fá
úr því skorið hvort meirihluti
sé fyrir framgangi þessa máls
á Aliþingi. Það er raunalegt að
sjá slíka setningu í stjórnar-
frumvarpi og stríðir gegn venj-
um og stjórnarháttum í þing-
ræðisþ j óðf élagi.
Nei, það var ekki skynseminni
fyrir að fara, haustið 1970. Þá
var sagt að viðreisnarstjórnin
hefði falsað verðlagsgrundvöllinn
— en hvað er verið að gera nú?
Nú er sagt að 420 miMj. kr., sem
urgreiða nauðsynjavöru, en áður
hafði stjórnin fengið 15% nið-
urskurðarheimild í sama til-
áfengi og tóbak færa ríkissjóði
aukaiega eigi að fara í að nið-
gangi. Nú er mikið talað um
fátækt ríkissjóðs. Ætli það hefði
ekki verið betra að skilja ríkis-
sjóð eftir berrassaðan við fjár-
lagagreiðsluná, með 500 milljóna
greiðsluhalla.
Þegar viðreisnarstjórnin tók
áfengi og tóbak út úr vísitöl-
unni á sinum tima í sambandi
við ákveðna efnahagsáætlun, þá
vantaði ekki stóru orðin hjá nú-
Jóhann Hafstein
verandi stjórnarsinnum. í leið-
ara Þjóðviljans hinn 7. nóvem-
ber 1970 sagðii: „1 öðru lagd er
grundvöllur vísitölunnar falsað-
ur með þvi að taka út úr honum
hækkun á áfengi og tóbaki.“ Þá
hét það fölsun — hvað er verið
að gena nú ? En nú verður vinstri
stjórnin að gleypa þennan bita
eins og svo marga aðra. Nú er
það sem áður var fordæmt orð-
ið gott. Ráðherrarnir eru búnir
að éta ofan í sig verðstöðvun-
ina, sem var svo vond, en þeir
frestuðu síðan sjálfir. Þeir eru
búnir að éta ofan i sig grund-
vallarstefnuna um að fella aldrei
gengið. Og nú þetta. Aðgerðir
ríkisstjórnarinnar fyrrverandi í
þessa átt voru gerðar með áætl-
un sem stóðst, jafnframt sem
mikil kaupmáttaraukning átti
sér stað. Nú er ekki boðuð nein
kaupmáttaraukning, og þvi ekki
hægt að verja þetta með neinum
hætti. Ég tel þetta frumvarp
meinigallað og ég tel að sjálfstæð
iismenn muni segja forsætisráð-
herra umbúðalaust, það sem þeir
finina að því, þó að okkur reyn-
ist erfitt að draga svör umbúða-
laust upp úr ráðherranum.
Ég vil að lokum af góðum
hug, ráðleggja forsætisráðherra
að taka þetta frumvarp tU
baka.
Karvel Pálmason: Mér er Utt
skiljanlegt, hvernig ríkisstjórn-
in getur staðið að slíku frum-
varpi. Lúðvík Jósepsson sagði að
ASÍ-ráðstefnan hefði skotið sér
undan að taka ákvörðun um
þetta mál. Þetta er ekki rétt.
Ráðstefnan taldi að þetta mál
bæri að endurskoða við gerð
nýrra kjarasamninga á haustl
komanda: Ég tei, að með þessu
hafi ASl snúizt ótvírætt gegn
þessari tillögu. Það er mín skoð
un, að verkalýðshreyfingin muni
snúast af alefli gegn því, að gerð
um kjarasamningum sé breytt
með lagaboði. Þessi ríkisstjórn
hefur hingað tU verið talin
stjórn hinna vinnandi stétta. En
það er sama hvort svona frum-
varp er sett fram aif hægri eða
vinstri stjórn. Ég vil að lokum
taka fram, að ég mun greiða
atkvæði gegn þessu frumvarpi.
Vantraust
á dagskrá
FRAM kom i þingræðiu hjá
Jóhanni Hafstein formannl
Sjáilfstæðisflokksins í gær, að
það hefði orðið að samkomu-
lagi milli hans og forsætisráð-
herra að fresta umræðum um
vantraust á ríkisstjórnina, vegna
náttúruhamfaranna í Vestmanna
eyjum. Áætlað hafði verið að
taka vantrauststillöguna tU um-
ræðu 25. jan. En er þing kom sam
an blöstuviðþeirerfiðleikar, sem
upp komu vegna náttúruhamfar
anna, og lausn þeirra þoldi enga
bið. Nú er ráðgert, að vantrausts
tilagan verði á dagskrá, þegar
að loknum fundum Norðurlanda-
ráðs.
AIÞinGI
Gylfi Þ. Gíslason:
Sundruð ríkisstjórn
— stjórnlaust land
GYLFI Þ. Gíslason kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár í Neðri
deild Alþingis í gær. Kvað hann
megin ástæðu þess, að hann
kveddi sér hljóðs vera, að einn
valdamesti maður stjórnarflokk
anna, Björn Jónsson, hefði lýst
því yfir í dagblaði, að hann
myndi greiða atkvæði gegn
stjómarfrumvarpi um, að hækk
un áfengis og tóbaks yrði ekki
reiknuð í kaupgreiðsluvísitölu
hinn 1. marz n.k.
í umræðiinum rakti Gylfi Þ.
Gíslason undanfara frumvarps
um Viðlagasjóð, og fullyrti, að
efni fyrsta frumvarpsins, væri
frá ríkisstjórninni komið, en ekki
aðeins frá embættismönnum, svo
sem iðnaðarráðherra hefur full-
yrt, og sagt var í dagblaðinu Tím
anum. Ólafur Jóhannesson sagði
það rétt, að ekki mætti kenna
embættismönnum það frnmvarp.
Þeim hefði verið falið að orða
það efni í frumvarpi, sem ríkis-
stjómin hefði kynnt þeim á
fundi. Lúðvík Jósepsson sagði
umrætt frumvarp aðeins hafa
verið „vinnuplagg" embættis-
manna.
Miklar umræðiir urðu um það
sundurlyndi, sem fram hefði kom
ið innan rikisstjórnarinnar æ nf-
an í æ, nú síðast í sambandi við
Viðlagasjóðsfriimvarpið, full-
gildingu samningsins við Efna-
hagsbandalagið og loks væri
komið fram, að ekki væri meiri-
hluti á þingi fyrir Iagafrumvarpi
ríkisstjórnarinnar um kaup-
greiðsluvísitöluna.
Gylfi Þ. GMason: Ríkisstjóm-
in er svo sjálfri sér sundurþykk,
að segja má, að landið sé stjóm-
laust. Ég skal gera nánar grein
fyrir þessari fullyrðingu. 1 fyrra
dag var útbýtt stjómarfrumvarpi
um breytinigu á vísitölugrund-
vellinum. Vissulega er hér um
viðamik ð mál að ræða, því að
kaup allra landsmanna breytist
eftir því. 1 dag kemur í ljós, að
einn valdiamesti stuðning.smaður
stjórnarinnar, ætlar að greiða at-
kvæði gegn frumvarpinu. Má og
ráða af því sem Björn Jónsson
segir, að ekki hafi verið haft sam
ráð að hann eða aliþýðusamtök-
in í land'nu, né heldur við þing-
flokk Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna. Augljóst er, að
ríkisstjórnin hefur ekki meiri-
hluta á Alþingi fyrir þessu mjög
svo þýðingarm'kla stjómarfrum
varpi.
Þegar umræður voru um stað
festingu á samningi íslands við
Efnahagsbandalagið í gær, þá tal
aði framsögumaðúr, viðskiptaráð
herra, í raun gegn þvi, að samn-
ingurinn yrði staðfestur fyrir 1.
marz, svo hann gæti hlotið gild:
fyrir 1. apríl. Ég hélit þeirri túlk
un á ummælum hans fram í gær,
og hann’Ieiðrétti mtg ekiki. Hins
vegar er vitað að í ríkisstjórn-
inni er vilji fyrir þvi að samn'ng
Gylfi Þ. Gíslason
arnir verði staðfestir fyrir 1.
marz.
1 sambandi við undanfara að
stofnun Viðlagasjóðs hafa verið
nokkrar deilur í blöðum. Iðnaðar
ráðherra hefur fullyrt, að fyrstu
áætlanir um aðgerðir hafi verið
frá embættismönnum komnar,
en ekki frá ríkisstjórninni. Þess-
ar fulilyrðingar eru algjörlega
rangar. Á fyrsta fundi forsætis-
ráðherra með forystumönnum
stjórnarandstöðunnar lýsti hann
helztu ráðagerðum ríkisstjórnar-
innar. Þær voiru aðallega 5 atriði.
f fyrsta lagi frestun 6—7%
kauphækkumar. í öðru lagi stöðv
un vísitöluibindingar við ákveðið
miarte, óháð raumverulegri kaup-
gjaldsvísitölu, í þriðja lagi bann
gegn kauphækkunum. 1 fjórða
lagi hækkun söluskatts, án þess
að það kæmi fram í kaupi og í
fimmta lagi frestur á opinber-
um framkvæmdum.
Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra: — Ég met áhyggjur
Gylfa út af velferð ríkisstjórnar-
iranar. Mór skilst að hann telji
þörf á að stjómin fengi sér sátta
semjara. Það voru einkum þrjú
atriði, sem hamn drap á. í fyrsta
lagi um útreikning kaupgjalds-
vísitölu. Ríki.sstjórnin mun ekki
gera samþykkt þessa frumvarps
að skilyrði fyrir áframihaldandi
setu. Annað atriðið var spurn-
irngin um fullgildingu samnings-
in® við Efnahagsbanidalagið. Þar
sem ríkisstjórnin sækir eftir
heimild Alþiingis til að fullgilda
samininginn, þá geng ég að því
sem vísu, að sú heimild verði
notuð. Þriðja atriðið var varð-
andi forisögu Viðlagasjóðs vegna
jarðeldanma. Ég tel ekki rétt-
mætt, að eigna embættismönnun-
um Jóhannesi Nordal og Jóni
Sigurðssyni þau frumdrög að
frumvarpi, sem þingmaðurinnl
minntist á. En mér fyndist
Skemmtillegra eftir að niðurstaða
er fengin, þá verði ekki farið að
pexa um forsögu málskis. En að
gefnu tilefni tel ég rétt að rifja
hana hér upp. Það er rétt, að ég
kvaddi foringja stjórnarandstöð-
unniar á minn fund strax fyrsta
daginn. Gerði ég þeim grein fyrir
þeim megimhugmyndum, sem
komið hefðu fram um, hvemig
skyldi bregðast við. Frumdrög
að frumvarpi höfðu verið rædd
á ríkisstjórnarfundum og sér-
fræðingarnir voru kvaddir á
fund ríkisstjórnarinnar og þeim
skýrt frá hugmyndum hennar,
og á grundvelli þeirra og í sam-
ráði við mig var þeim falið að
orða þessar hugmyndir í frum-
varp. Orðin voru þeirra, og visis
atriði, sem sérfræðin,garnir
töldu óihjákvæmilega afleiðingu
þeirra tiliagna.
Lúðvík Jósepsson sjávarútvegs
ráðherra sagði það ramgtúllkun,
að hann hefði talað á móti því að
samningurimn við Efnahags-
bandalagið yrði fullgiltur, og það
væru slúðursögur að ósamkomu
lag væri iniman ríkisstjórnarinn-
ar. Sagðist hanin hafa sagt, að
ekki lægi mikið á að fullgilda
samninginn gagnvart iðnaðar-
vörum, og reyna ætti að tryggja
réttindi okkar og taka mið af
heildairhagsmunum okkar. Síðan
sagði háðherranm, að hann myndi
ekki hika við að draga að stað-
festa samninginn, ef hann teldi
það rétt.
Framhald á bis. 20