Morgunblaðið - 18.02.1973, Page 5

Morgunblaðið - 18.02.1973, Page 5
 Áður flaug hugurinn og farfuglarnir. Nú flýg ég suður — í sól og hvíld — þangað leitar hugurinn í skammdeginu. Fleiri og fleiri átta sig á hve einstök tækifæri bjóðast nú til að njóta • sumarblíðu, hressingar og skemmtunar meðan veturinn ríkir hér í norðri. Eftir sex tíma þotuflug í hásuður erum við komin til Kanaríeyja úti fyrir Afríkuströndum. Þar er sumarveður allt árið — synt í sjónum og legið á baðströndum. Og ótal margt annað um að velja: Skoða mannlífið, náttúruna eða næturlífið, eða verzla — kaupa á spönsku verði. Eyjarnar hafa um langan aldur verið mikil viðskiptamiðstöð og til þess tekið hve verðlag er þar hagstætt. Og svo er einnig hægt að skreppa til Afríku. Við höfum þrjá íslenzka fararstjóra á Gran Canaría og sex mismunandi dvalarstaði til að velja um í 15 eða 22 daga. Flogið er tvisvar í mánuði til loka aprílmánaðar, verð frá 21.000 krónum. FARPANTANIR HJÁ SKRIFSTOFUM FLUGFÉLAGSINS OG UMBOÐSMÖNNUM ÞESS. o

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.