Morgunblaðið - 08.03.1973, Side 32
lEsm
jHgrjnnl’Int.tt
SfiS* ss
«*»■«* KMV a veouw
oncLEcn
insgttttfiIftMfr
FIMMTUDAGUR 8. MARZ 1973
JMttðgtlttMllMfc
RUGivsincmi
#^-»22480
Enn
skor-
• ^ >•
ío a
tvo
SKORIÐ var á togvíra
tveggja brezkra togara í gær.
Hefur þá alls verið skorið á
togvíra 27 brezkra togara frá
því er landhelgin var færð
út í 50 mílur og einnig úr
þremur vestur-þýzkum, eða
samtals 30 togurum. Frá því
á mánudag hefur verið skotið
á veiðarfæri 11 brezkra tog-
ara, en þeir hafa allir verið
að veiðum norður af Mel-
rakkasléttu nema einn, sem
var að veiðum út af Húna-
flóa í Reykjafjarðarál.
Svo sem getið vair í Morgun-
blaðiinu í gær lýsti brezka sjávar-
útvegsmálaráðuineytið þvi, er
sfkorið var aftain úr brezka togar-
amum Arctic Vandal H 344, ein
Uamdihelgisgæzlain haíði ekki gef-
ið þanm togara upp á skrá yfir
þá, sem klippt hatfði verið afitan
úr. 1 gær tálkynmti svo Landheig-
isgæzlan, að sl. mánudag, er
Framhald á bls. 20
Seljandi
ófundinn
YFIRHEYRSLUM var í gær
haldið áfram í Sakadómi
Reykjavíkur vegna rannsókn-
arinnar á tilvist og ferli Skild
ingamerkjaumslagsins, sem
sagt hefur verið frá í Mbl., en
ekkert hefur komið fram í
þeirri rannsókn um það, hver
hafi selt umslagið úr landi.
Brezkir togaraeigendur:
Hafa boðið Eyja-
mönnum aðstoð
Sjó var stóðugt dælt á hraunið
við syðri-hafnargarðinn í
Eyjum í gær, en í fyrrinótt
stöðvaði dæiing hrauntung-
una, sem rann að miðjum
hafnargarðinum t.v., en á
miðri mynd sést Sandey dæla
við hratinjaðarinn með sinum
kraftmiklu dælum. Sandey
getur ekki verið í Eyjum
nema 7 daga til viðbótar. Sjá
frétt á biaðsiðu 2.
— Ljósm.: Mbl.: Sigurgeir.
Kanna m.a. möguleika á að fá
Statesman til dælustarfa í Eyjum
BREZKIR togaraeigendur hafa
hoðið aðstoð við björgunarstörf
í Vestmannaeyjum og er m.a.
verið að kanna möguleika á því
að fá björgunar- og (lráttarskipið
Statesman til dælustarfa í Eyj-
um. Fulltrúi brezkra togaraeig-
enda hafði samband í síðustu
viku við Tryggva Jónasson um-
boðsmann brezkra togaraeigenda
í Vestmannaeyum og bauð fram
aðstoð og tillögur um það í
hverju hún yrði fólgin. Var tal-
að um að helzt væri þörf í sam
Einar Ágústsson:
Erum
nýrra
reiðubúnir
viðræðna
til
— um leið og einhver von er um samkomulag
VEGNA ummæla sir Alec
Douglas-Home, utanríkisráð-
herra Breta þess efnis að
hann hefði hinn 22. janúar
síðastliðinn sent Einari Ág-
ústssyni tillögur um að við-
ræður yrðu teknar upp aftur
og að hann hefði nú aftur
minnt hann á þær, sneri Mbl.
sér til Einars og spurði hann
um þetta atriði. Einar Ágústs-
son sagði: „í síðustu orðsend-
ingu sögðum við að við vær-
um tilbúnir til að ræða þessi
mál strax og einhver von væri
til að viðræður leiddu til ár-
angurs. Þessi orðsending var
send í janúar og hún stendur
enn, þrátt fyrir atburði síð-
ustu daga,“ sagði Einar.
E nar Ágústsson sagði að
sir Alec hefði ekki sent neinar
tillögur hinn 22. janúar og
engar tiLlögur hefðu komið frá
honum síðan í desember í
Brússel á NATO-fundinum
þar. Hins vegar sagði Einar
að hann hefði ítrekað svör við
því hin,n 22. janúar, en þó
sagðist hann ekki muna það
nákvæmlega, en geta kannað
málið nánar.
í>á gat Einar Ágústsson
þess að John McKenzie, sendi
herra Breta á Islandi, hefði
komið og mótmælt síðustu
togvíraklippinguim auk þess
sem hann mótmælti skriflega
öllum togvíraklippingum frá
1. september 1972 eins og þær
leggja sig, eða um 30 að tölu.
Send herrann mótmælti við
skrifstofustjóra utanríkisráðu
neytisins Ingva Ingvarsson.
bandi við hreinsun ösku úr bæn-
um eða dæluskip til þess að
kæla hraunið við innsiglingnna.
Þótti fulltrúum brezkra togara-
eigenda æskilegra að velja síðari
kostinn.
Tryggvi sagði í viðtaii við Mbl.
í gærkvöldi að búast hefði mátt
við niðurstöðu í þessari viku frá
brezkum togaraeigendum.
Þessi mál gengu þannig fyrir
sig að boð um aðstoð komu í
símskeyti til Vestmannaeyja og
hafði Tryggvi þá samband við
Magnús H. Magnússon bæjarstj.
og bað hanm um uppástungur
um hvar þörfin væri mest. —
Magnús mun m.a. hafa nefnt að
helzt væri þörf á tækjum í sam-
bandi við hreinsun bæjarins eða
kröftugum dæluskipum til þess
að dæla vatni á hraunið við höfn
ina til kælingar og reyna að
verja innsiglinguna.
Framh. á bls. 20
Lönd-
unar-
bið
LOÐNUVEIÐI var allgóð i gær
þrátt fyrir brælu á miðunum og
síðdegis í gær höfðu 39 skip til-
kynnt ,um afla, alls 9500 lestir.
Aðalveiðisvæðið var við Faxa-
flóa og voru flest r bátarnir þar
en einnig var góð veiði vestan
við Ingóifshöfða, en þar voru 16
skip að veiðum. Á Suðvestur-
landi eru aliar þrær fullar, og á
Vestfjörðum voru allar þrær að
fyllast. Þróarrými var aðeins í
Vestmannaeyjum og á nyrztu
fjörðum Austfjarða. Víða er löng
löndunarbið hjá loðinubátunum.
Enn frekari
hækkanir
Á FUNDI hjá verðlagsstjóra í
gær var samþykkt hækkun á unn
um kjötvörum og sagði Kristján
Gislason verðlagsstjóri að sú
hækkun væri afleiðing af síðustu
kjöthækkun. Kjötfars hækkar nú
úr 115 kr. i 135 kr., vínarpylsur
hækka úr 169 kr. í 200 kr. kg,
bjúgu hækka úr 161 kr. í 177 kr.
kg og kæfa hækkar úr 260 kr. í
280 kr. kg.
Þá var einnig heimiluð
hækkun á útseldri vinnu
hjá iðnaðarmönnum og er
hækkunin samsvarandi 12.16%
launahækkuninni hjá þeim fyrir
skömmu, en taxtahækkunin er þó
minni því álagnlng hækkar ekki.