Morgunblaðið - 28.03.1973, Síða 17

Morgunblaðið - 28.03.1973, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MARZ 19T3 17 Aætlanir brezku stjórnarinnar um stjórnskipan Norður-írlands; I Tvö megin lögð William Whitelaw, ráðherra N-írlanlsniála, með Hvitu bókina. til grundvallar Eftir Margréti R. Bjarnason Hinar titt nefndu áætlanir brezku rikisst.jórnarinnar um framtíðarskip an mála á Norður frlandi hafa nú séð dagsins ijós og viðbrögð hinna ýmsu aðila þar i landi verið i fuilu samræmi við rás atburða siðustu ára og aðdraganda þeirra. Hin róttæk- ari og öfgasinnaðri öfl beggja aðiia hafa hafnað þeim og hótað að koma í veg fyrir, að þær nál fram að ganga; öfgasamtök kaþólskra með áframhaldandi hryðjuverkum, öfga- samtök mótmælenda með því að eyði leggja innan frá fyrirhugað þing og stjórnarnefndir, sem áætlanirnar gera ráð fyrir. Sanngjarnari og hóf- samari menn beggja aðila hafa tek- Ið jákvæða afstöðu til áietlananna og vilja að reynt verði að leysa mál hins langhrjáða n-irska samfélags á grundvelli þeirra. Þegar litið er yfir þessar áætlan- ir sýnast þær í fljótu bragði svo sanngjarnar, sem við er að búast, eftir það sem á undan er gengið á N-írlandi og miðað við hina erfiðu aðstöðu Breta í þessu máli. Við gerð þeirra virðist hafa verið gengið út frá tveimur meginsjónar- miðum, annars vegar því, að meiri- hluti íbúa N-frlands kýs að vera áfram hluti af brezka ríkinu og Bret ar verði að standa við gefin loforð um að neyða þá ekki til sameining- ar við írska lýðveldið; hins vegar því, að ekki verði framar unað við það misrétti, sem kaþólski minnihlut inn hefur verið beittur af stjórnum mótmælenda sl. hálfa öld og nokkr- um árum betur eða frá því írlandi var skipt. Kaþólskir höfðu gert sér vonir um, að ákvæði yrðu í áætlununum um skipan sérstakrar nefndar eða ráðs fulltrúa írlands og N-frlands, er fengi það verkefni að vinna að sam vinnu og hugsanlegri sameiningu irsku rikjanna í framtíðinni. Þar með hefði verið stigið skref til móts við grundallarkröfu þeirra, sem vilja sameiningu írsku ríkjanna; þeirra, sem líta svo á, að skipting írlands sé meginorsök átakanna und anfarin ár og staðhæfa, að framtíðar stöðu N-írlands sé ekki hsagt að ákveða nema með atkvæðagreiðslu, er allir írar taki þátt í. John Lynch, fyrrverandi forsætis ráðherra írlands, hafði gengið fast eftir þvi við brezku ríkisstjórnina, að ákvæði yrði um slikt ráð og má á það minna, að eitt af því, sem rak á eftir Lynch að halda þingkosning- arnar i febrúarlok sl., ári fyrr en nauðsyn krafði, var einmitt sú stað- reynd, að hann komst á snoðir um eða hafðá um það grunsemdir, að brezka stjórnin mundi bregðast hon um í þessu efni. Það hefur hún og gert. í álitsgerðinni segir að vísu, að í viðræðum fulltrúa brezku stjórnar- innar við stjórnmálaleiðtoga á Norð- ur-írlandi, hafi þeir flestir getað hugsað sér einhvers konar írlands- nefnd eða Irlandsráð, er sérstaklega fjallaði um samskiptin milli lands- hlutanna, en ekki hafi þótt ástæða til að fella slika hugmynd inn í áætl animar, þar sem áður þyrfti að ræða nánar við alla hlutaðeigandi aðila um form, starfssvið, starfsháttu og markmið sliks írlands-ráðs. Á hinn bóginn segir, að brezka rikisstjórn- in muni, að afstöðnum kosningum til nýs þings á N-lrlandi, bjóða full- trúum írlandsstjórnar og leiðtogum n-írska þingsins til ráðstefnu, þar sem nánar verði rætt um samskipti írsku ríkjanna og um það hvernig koma megi í veg fyrir hryðjuverka starfsemi; ennfremur skuli þar rætt um viðurkenningu á núverandi stöðu N-írlands og hugsanlegar breytingar á henni í framtíðinni, ef meirihluti íbúa N-lrlands skyldi ein hvern tíma vilja breytingar þar á. Þarna gæti virzt sem opna eigi við ræðuvettvang án nokkurra skuld- bindinga er mótmælendúr gætu túlk að sem tilslökun gagnvart kaþólsk um. Þessi afstaða er sögð byggjast á fjórum meginatriðum; 1. Á nýtilkom inni aðild Bretlands og Irlands að Efnahagsbandalagi Evrópu, sem bú- izt er við, að valdi verulegum breyt- ingum á efnahagslífi landanna og högum íbúanna. Sú skoðun hefur um hrið verið mjög sterk meðal þeirra, sem fylgzt hafa með írlandsmálun- um, að framtíðarlausn þeirra liggi einmitt í aðild að EBE. 2. Á þeim ráðstöfunum, sem Dublin-stjórnin gerði á sl. ári tll þess að stemma stigu við hryðjuverkastarfsemi. 3. Á skýrslu Diplock-nefndarinnar svo- nefndu, sem mælti með því í des- erhber sl. að því væri hraðað meira en áður að stefna þeim fyrir rétt, sem taldir voru hafa átt þátt í hryðjuverkum, en taldi sig ekki geta mælt með því, að hætt yrði að halda í varðhaldi án málssóknar, í takmarkaðan tima a.m.k. þeim, sem grunaðir væru um aðilda að hryðju- verkum. 4. Á þjóðratkvæðagreiðsl- unni á N-Irlandi, 8. marz sl. þar sem 591.820 kjósendur, meira en helming ur atkvæðisbærra manna á N-Ir- landi, kusu að vera áfram hluti af Bretlandi, en 6,453 greiddu atkvæði sameiningu við írland. Sem kunnugt er sátu flestir kaþólskir kjósendur heima á kjördag, þar sem þeir töldu atkvæðagreiðsluna marklausa, því að úrslitin væru fyrirfram Ijós. Það er augljóst mál, að Bretar treysta sér ekki til að ganga á bak þeirra orða sinna frá fyrri tímum, að N-írland skuli ekki hætta að vera hluti Bretlands meðan meirihluti íbú anna sé þvi fylgjandi, enda mundi það vafalaust leiða til enn vaxandi ofbeldis og hryðjuverka af hálfu öfgasamtaka mótmælenda; ástandið í landinu mundi ekki batna, einungis verða hlutverkaskipti milli deiluað- ila. Á hinn bóginn gerir brezka stjóm in sér Ijóst, að Bretar hafa látið mót mælendum líðast að beita kaþólska minnihlutann misrétti, sem verður að taka endanlega fyrir. Reynslan sýnir, að það verður ekki tryggt nema með því að draga úr þeim völd um, sem mótmælendur höfðu áður en Bretar tóku i sínar hendur stjórn málanna á N-írlandi fyrir réttu ári og það þykir þeim eðlilega súrt i broti. Stjórnmálamenn sleppa víst aldrei fúslega fengnu valdi og forystu menn mótmælenda eru ekki líklegir «1 þess að taka því hljóðalaust, að Ulsterbúar missi verulegan hluta þeirrar sjálfsstjórnar, sem þeir hafa haft í hálfa öld. Áætianir brezku stjórnarinnar eru þesslegar, að N-írar verði til muna háðari þvi en áður, hverjir fara með völd i Bretlandi. Er ljóst að framkvæmd áætlananna muni í mörgum atriðum fara eftir þeim mönnum, sem hverju sinni gista Downing Street nr. 10 í London. Þessar áætlanir Breta hafa verið birtar sem Hvít bók. Hún verður lögð fyrir brezka þingið á næst- unni í frumvarpsformi og þarf ekki að efast um samþykkt þess frum- varps, því að forysta verkamanna- flokksins hefur þegar lýst sig fylgj- andi áætlununum. Nánar verður rætt um aðra helztu þætti þeirra I annarri grein.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.