Morgunblaðið - 30.03.1973, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1973
ÆfAIAim
BILALEIGA
CAR REIMTAL
V 21190 21188
14444 S 25555
14444 *Ek 25555
SKODA EYÐIR MINNA.
SHoaa
IStOJUt
AUÐBREKKU 44-46.
SIMI 42600.
Bílaleiga
GAR BENTAL
41660 - 42902
VéBapakkningor
Dodge '46—’58, b strokka
Dodge Dart '60—'70,
6—8 strokka
Fiat, allar gerðir
Bedforö, 4—6 strokka,
disilhreyfill
Buick, 6—8 strokka
Chevrol. ’48— ’7C, 6—8 str.
Corvair
Ford Cortina ’63—'71
Ford Trader, 4—6 strokka
Ford D800 ’65—’70
Ford K300 ’65—'70
Ford, 6—8 strokka, '52—’70
Singer - Hillma-i - Rambler
Renajlt, flestar gerðir
Rover, bensín- og dísilhreyflar
Skoda, allar gerðir
Simca
Taunus 12M, 17M ol 20M
Volga
Moskvich 407—408
Vauxhall, A—6 strokka
Willys ’46—’70
Toyota, flestar gerðir
Opel. allar gerðír.
þ. imm & co
Símar: 84515 — 84516.
Skeifan 17.
STAKSTEINAR
Jónas og
húsmæðurnar
Tilraunir Jónasar Arnason-
ar tíl þess að etja saman hús-
mæðrum úr Reykjavík og
austan úr Árnessýslu vöktu
almennan aðhlátur nú á dög-
unum. Þetta er að visu ekki
í fyrsta skipti, sem Jónas ætl-
ar sér að leika aðalhlutverk-
ið í sjónleik niðri í Alþingis-
húsi — en aldrei hefur hon-
um tekizt ver til en nú. Stað-
reyndin er nefnilega sú, að
húsmæður hvar sem er á land
inu, eru allar sammáia um þá
dýrtíð, sem nú rikir i land-
inu. Það skiptir ekki máli
hvort heldur er í sveit eða
borg, dýrtíðin skerðir allra
kjör.
Þjóðviljinn reynir nú með
góðri aðstoð undirritstjór-
anna á Tímanum að efna tíl
hatursherferðar á hendur
reykviskum húsmaöðrum og
velja þessi tvö blöð þeim öll
hin verstu nöfn. Reiði ritstjór
anna yfir því að húsmæður
skuli mótmæla verðbólgunni
á sér engfin takmörk, það
sanna fúkyrðin bezt.
Nú er það út af fyrir sig
táknrænt, að í stað þess að
taka mark á þeim aðiljum,
sem gerst vita um vöruverð
í landinu, — einfaldiega
vegna þess, að þeir eru sífellt
að kaupa ýmsar nauðsynjar,
þá er farið með langa talna-
dálka um það, að verðbólgan
sé svo og svo miklu minni en í
I ruguay og Chile eða jafn-
vel Danmörku.
En húsmóðir, sem kaupir í
matinn, les ekki Þjóðviljann
og Timann til þess að athuga,
hvað hún eigi mikið eftir af
heimilispeningunum. Hún
skoðar i veskið sitt, því að það
er bezti mælikvarðinn í þessu
efni.
Af hver ju
hækka erlendar
vörur?
Jónas Árnason verður sjálf-
sagt alla tíð vinsæll fyrir leik
rit sín og smáskrif ýmiss kon
ar um lífið og tilveruna. En
tæpast gerir nokkur sér von-
ir um, að hann skapi sér nokk
urn tínia sess í stjórnmála-
sögunni, allra sízt eftir árás-
ir hans á reykvískar húsmæð
ur. En sá maður nær heldur
ekki langt, sem trúir því, sem
Lúðvík Jósepsson segir um
verðlagsmál. Orðstír þessa
ráðherra er nú orðinn slíkur,
að kunnur athafnamaður og
forsvarsniaður í útgerðarmál-
um sagði, að hann tæki hér
ekki við einni einustu ávísun
frá Lúðvík Jósepssyni, nema
hann hefði kannað það áður,
að innstæða væri fyrir hendi.
Slíkt mark er nú tekið á orð-
heldni þessa ráðherra,
Lúðvík hefur nú undanfar-
ið hatdið langar ræður um að
verðlag hafi farið hækkandi
á erlendum vörum, og sú
hækkun sé aðalúndirrót verð-
bólgunnar hér á landi. Síðau
segir ráðherrann, að' íslenzka
ríkisstjórnin geti ekki borið
ábyrgð á hækkun þessara er-
lendu vara. Til þess ætlist
enginn.
En því miður fyrir Lúðvík
vill svo til, að ríkisstjórnin
ber töluverða ábyrgð á þeirri
hækkun erlendra vara, sem
orðið hefur. Ríkisstjórnin hef
ur á einu bretti hækkað allar
erlendar vörur um 10% með
gengislækkuninni fyrir jól.
Ríkisstjórnin hefur einnig lát
ið krónuna fylgja dollar og
með því hafa evrópskar vör-
ur hækkað meira eingöngu
fyrir tilstilli ríkisstjórnarinn-
ar. Og þegar þess er gætt, að
einn megintilgangur með
gengisla-kkun er einmitt að
hækka verð á erlendum vör-
um í þeim tilgangi að gera
viðskiptajöfnuðinn hagstæðari
er beinlínis hla>gilegt hjá Lúð
vík Jósepssyni að bera fyrir
sig verðhækkanir erlendra
vara. Verðhækkanir, sem
hann sjálfur ber ábyrgð á.
spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg unbiaðsins.
FORMAÐUK VIDLAGA-
S.JÓÐS EKKI Á VEST-
MANNAEYJAFUNDI
Inga Sigursteinsdóttir, Mel-
ási 9, spyr:
„Hvers vegna mætti for-
maður Viðiagasjóðs ekki á
V es t martnat>y ,ja f u ndin um á
Selfossi þ. 25. marz?“
Helgi Bergs, formaður
stjómar Viðlagasjóðs, svar-
ar:
„Vegtrua þess að ég var ekki
boðaður á fundimn. Hvorki
f u nd arboðendu r né neinn fyr-
ir þeirra hönd hafði gert mér
nein orð um að nærveru
minnar væri óskað.”
VIÐLAGASJÓDUR
Sigriður Jóhannesdóttir,
Tjamarbraut 19, Hafnarfirði,
spyr:
„1. Hve mikið fé er koimið
í Viðlaigasjóð?
2. Hvenær kemur oþinber
skýrslá í dagblöðunum um
hve mikið hefur verið greitt
úr sjóðmum og í hvað hefur
það fé farið?
3. Er hafnargerð í Grinda-
vík greidd úr Viðlagasjóði,
og ef svo er, hve mikið?”
Helgi Bergs, formiaður
stjórnar Viðlagasjóðs, svarar:
„1. í dag, 29. marz, var bú-
ið að greiða inn i sjóðinn 119
millj. króniur.
2. Ekkert liefur verið
ákveðið um það hvenær slík
skýrsla verður birt. Seðla-
bankinn armast bókhald Við-
lagasjóðs og gerir hálfsmán-
aðarlega skýrslu til ríkisend-
urskoðunarinamr um greiðsí-
ur í og úr sjóðnium. Auðvi'tað
mætti birta slíka skýrslu, en
hún myndd þó segja næsta
iítið, því að margar vikur
geta liðið áður ein reikningar
yfir kostnað, sem búið er að
stofna til, koma til greiðslu
og bókfærslu.
3. í samræmi við 4. töluíið
3. gr. laganna og 30. gr.
reglugerðar um Viðlagasjóð,
hefur verið ákveðið að bjóða
fram úr Viðlagasjóði rúm-
lega 40 millj. kr. lán til að
flýba hafnargerð i Grmdaivik
í þvi skynii að Vestmanmiaeyja-
bátar geti fengið þar þetri að-
stöðu. Ger-t er ráð fyrir að
iánið verði endiurgreitt á
næstu þrem árum og renini
þetta fé þá til amnarra út-
gjalda Viðla.g>asjóðs.“
STOFNUN HLUTAFÉLAGA
Ómar Sigurðsson, Bíldudal,
spyr:
„Hvaða skilyrði eru sett fyr
ir stofnun hlutaféiags? Eru
einhver- iágmarkseignarhlut-
föll? Er hluthöfum í sjálfs-
vald sett, hvar þeir skrá hluta
félagið, eða fer það eftir lög-
heimili hluthafa?”
Ásberg Sigurðsson, borgar-
fógeti, svararr
„1. T 1 að stofna hlutafélag,
þurfa ekki færri en fimm ein-
staklingar, sem eru lögráða
og fjár síns ráðandi, að gera
með sér samning um stofnun
hlutafélags, sem stofnsamn-
ingur heitir. Skal i honum
greina: Heiti félagsms, heirn-
ilisfang, tilgang og hlutafjár-
upphæð og þau atriði önnur,
sem um getur í 3. gr. laga um
hlutafélög nr. 77/1921. — Á
grundvelli þessa stofnsamn-
ings skal setja . félaginu sam-
þykkt r og kjósa stjórn þess.
2. Hlutafé hlutaféilagisins
greinist í hluti — hlutabréf,
— sem atkvæðisréttur fylgir.
Enginn getur átt minni hlut í
hlutafélagi en sem svarar
einu atkvæði.
3. Hlutafélag er sjáilfstæð
persóna að lögum. Það er hlut
höfum í sjálfsvald sett í hvaða
lögsagnarumdæmi landsins
hlutafélagið skuii starfa og
þar með hvar það skuli skráð.
Það fer því ekki eftir lögheim
ilium hluthafa félagsins.”
Jim Carpenter, borgar-
stjórnarmaður i Wolverhamp
ton í Englandi, hefur sent
borgarstjóranum, Arthur
Storer, bréf, þar sem lagt er
«1, að borgin heiðri hljóm-
sveitina SLADE, seni aðal-
lega er skipuð piltum frá
Wolverhampton. I bréf-
inu segir ui.a.: „Eins og yð-
ur er sennilega kunnugt hef-
ur popphljómsveitin, sem að-
aliega er skipuð piltum héð-
an, náð alþjóðlegum vinsæld
um. Þeir hafa verið
sendiherrar Wolverhamp-
ton i jafnfjarlægum löndum
og Ástralíu og Ameríku og
mér finnst, að hin framúr-
skarandi afrek þeirra séu
verð einhverrar viðurkenn-
ingar af borgarinnar hálfu.“
Og Carpenter borgarstjórn
armaður segir í viðtali við
Melody Maker, að þeir
Slade-félagar færi ríkinu
mikinn erlendan gjald-
eyri. Bítlarnir hafi á sínum
tíma verið sæmdir orðu frá
drottningunni og Slade séu
næstum því eins vinsælir. Og
hann klykkir út með þess-
ari setningu: „Ég veit, að ef
Úlfarnir vinna bikarkeppn-
ina (í knattspyrnu), þá
munu þeir verða heiðraðir af
borgaryfirvöldum, og hvers
vegna ekki að heiðra þessa
pilta?"
Dave Hill, einn
liðsmanna Slade.
skrautinu!
Takið eftir höfuð-
t