Morgunblaðið - 30.03.1973, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.03.1973, Blaðsíða 32
ÁNÆGJAN FYU3IR ÚRVALSFERÐUM mtttttdþln&ifr nucivsmcDR ^^»22480 FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1973 Rauði krossinn: Kaupir hótel á 10,5 millj. Sjúklingar utan af landi fá þar gistiaðstöðu meðan þeir bíða læknismeðferðar RAUÐI kross Islands hefur fest kaup á Hótel Nesi að Skipholti 27 í Reykjavik, og er hugmynd- in að hafa þar gistiþjónustu fyrir sjúklinga utan af landi senn hér eru til læknismeðferð- ar. Kaupverðið er 10,5 milljón- ir króna og er þá innifalið í vesð inu húsgögn, teppi og fleira. Á Hótel Nesi er gistirými fyrir 26 manns. Gert er ráð fyrir að Rauði krossinn taki við hótelinu i júni. Eggert Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri RKÍ, sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að forráðamenn Rauða krossins hefðu lengi verið að velta þvi fyr ir sér með hvaða móti væri hægt að bæta aðstöðu sjúklinga utan af landi sem eru í Reykja- vík til læknismeðferðar, bíða eftir sjúkrarými vegna rann- sóknar eða eru undir eftirliti eft- ir aðgerð. Ennfremur ef sjúkling ar utan af landi þurfa að taka böm sín með sér gæti RKl með þessu móti veitt aðstoð. 25% hækkun GJÖLD með sérleyfisbifreiðum og hópferðabifreiðuim hafa hækk að utm 25% og gekk hækkunin í gi'ldi 22. marz sl. Samgönigumáia- ráðuineytið anmast um mál þess- ara aðila og sér póst- og síma- málastjómin um eftirlit á sér- Jieyfisleyfum og útreikninga á hækkun fargjaJda á ársgrund- velli. Sl. ár hækkuðu fargj&Jdin um 12%. Eggert sagði, að ekki hefði tekizt að fá hentugt húsnæði fyrr en nú, að Hótel Nes bauðst til kaups, og var gengið frá kaup samningum í sl. viku. Eggert sagði, að það hefði ýtt mjög und ir þessi kaup, að ýmsum aðilum sem vinna að heilbrigðismálum hefði litizt vel á þessa hugmynd og eins væri gert ráð fyrir gisti- heimili af þessu tagi í nýju frumvarpi um heiibrigðisþjón- ustu. Eggert sagði ennfremur, að fjármagnið sem gerði þessi kaup kleif væri afrakstur söfnunar- bauka RKl víðs vegar um land, og væri vonazt til að þetta söfn unarfé gæti staðið undir stofn- kostnaði og rekstrinum til að byrja með. Peysufatadagur Verziunarskóla fslands var í gær og það var föngulegnr hópur nngs fólks, sem setti svip á borgina, allir uppábónir eins og vera bar. Hér sjáum við nokkra úr hinum hressa og giaða hópi, en i fremstu víglínu á myndinni eru þríburastysturnar Inga, Margrét og Ásta Björnsdætur. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.) Hraunið á veggjum glæsileg- ustu frystihúsa landsins Hundruð milljóna verðmæti við hraunjaðarinri Vestmannaeyjum ■ gærkvöldi frá Elínu Pálmadóttur blaða- NC ERU það ekki miiljónir, heldur tngir eða hundruð miilj- óna, sem hratmið í Eyjum er að leggja undir sig í mannvirkjum. Hraunið liggur gióandi á veggj- um giæsilegustu fiskvinnslu- Frigg VE stjórnlaus undan brotsjó — Sigurður Gísli VE bjarg- aði áhöfninni Iwlákshöfn, 29. marz. VÉLBÁXURINN Sigurður Gísli kom hingað í dag með 5 manna áhöfn af Vestmannaeyjabátnum Frigg VE 316, sem fékk á sig brotsjó siiður af Grindavík í gær. Vél bátsins drap fljótlega á sér þegar sjór komst í olíuna og rak bátinn stjóralaiist að iandi. Var bátnrinn aðeins nm 1 mílu frá landi. Framhald á bls. 31. stöðva í lanilinu, Fiskiðjunni og Isfélaginu, sem er nýbúið að gera alit upp samkvæmt nýjustu kröfum bandariska markaðarins. Nú kl. 10 iiggur hraunkantur- inn um 20 metra hár á vegg Fiskiðjunnar og á hinu nýja salt hiísi fsfélagsins og hefur kveikt í því. Hraunstraumurinn gekk 50 metra fram á síðasta sólarhring í átt til hafnar, malandi undir sig húsin. Hin stóru og sterku fiskverkunarhús virðast þó veita góða mótstöðu sem síðasta hindrun í höfnina. En það eru ekki bara stóru vinnslustöðvarnar, lífæð fólks- ins á þesáufn stað, sem hraunið leggst á, heldur gleypir það líka lífsstarf fjölda einstaklinga. Á síðasta sólarhring hefur eldur- inn étið upp og molað 7 hús, Sjónarhól, Kuða, Framtíðina, Mjölgeymslu FES, Byggðarholt, Stíghús og Söluturninn. Um borð i Sæunni, sem leit- aði í var í óveðrinu, hitti ég Fékk 5 þús. kr. sekt fyrir „keðjubréfin I SAKADÓMI Reykjavíkur var fyrir nokkru kveðinn npp dóm- nr i öðru þeirra tveggja „keðju- bréfa“-mála, sem fyrir dómstól- nm hafa verið. 27 ára gamall Reykvikingur, sem hafði staðið fyrfr slíkri bréfakeðju og haft opna skrifstofu til að stjórna þeirri starfsemi, var dæmdur í 5.000 kr. sekt fyrir brot á lög- nm frá 1926 nm happdrætti, hlntaveitur og önnur happspil. Samkvæmt útreikningum trygg- ingafræðings virðist maður þessi hafa verið búinn að hafa tæpl. 300 þús. kr. tekjur á einni viku af því að reka þessa starfsemi. Það var 17. sept. 1970, sem maðurinn stofnaði til og hóf dreifingu svonefndra keðjupen- ingabréfa í Reykjavik og nefnd- ust bréfin O.K.-keðjubréf. Lét hann prenta 3000 keðjubréf, hvert í fjórriti, og fékk síðan 11 kunningja sina til aðstoðar við að koma keðjunni af stað. Hver þeirra manna, sem byrjuðu þátt töku í keðjuveltunni, keyptu bréf, sem á voru skrifuð fjögur nöfn og greiddi seljandanum 500 kr. fyrir, svo og þeim þrem- ur aðilum öðrum, sem skráðir voru á bréfið. Kaupandinn af- henti síðan seljandanum, þ. e. forstöðumanni O.K.-keðjunnar, bréfið og greiddi 200 kr. í rekst- urskostnað. Skrifstofa O.K. sá síðan um að rita nýtt keðjubréf Framhald á bls. 31. Vigni Sigurðsson, sem ko’m i land rétt til að sjá hraunið skella á vegg nýbyggingar sinnar og ógna heimilinu, 60 ára gömlu fallegu tveggja hæða timbur- húsi, sem heitir London og við hliðina á því er Hóll, álíka fall- egt og gamalt timburhús Frið- riks Jenssonar forstöðumanns Náttúrugripasafnsins og frú Magneu, sem hér eru og sögðust aldrei hafa haldið að hraunið kæmist svona nærri þeim. Alls eru um 250 hús komin undir hraun í Eyjum. Isféiagið hefur þarna hús- rými, sem er 8.000 fermetrar eða 32.000 rúmmetrar. Brunabóta- matið á húsunum er 85 milljón- ir króna og vélar voru metnar á 72 milljónir, en þær hafa þó flestar verið fluttar burt. Fisk- iðjan er í enn stærra húsrými, Framhald á bls. 31. Súrálskipi hlekktist á Heldur sjó vlð Skaftárós með fullfermi til Straumsvíkur SLYSAVARNAFÉLAGI íslands barst s'keyti laust eftir kl. 13 í gær frá flutninigasíkipiinu Rugia frá Kýpur, þar setm slkipið var gtatt um 25 sgómíiur suður af Dyrhólaey. Brotsjór hafði komið á skipið, komst þá sjór í fram- lestima er lúgur brotmuðu og loft- vetntíliair. Skipið er 3600 tonn að stærð með 3500 tonn af súráli tM Straumsvíkur. Að sögn Hann- esar Hafstein hjá Siysavamafé- iagi Isilands voru Landhelgis- gæzlan og vaimarliðið beðin utm að vera viðbúin með skip og fltig vélar, ef á þyrfti að halda, en um kl. 19 í gærfkvöldi kom aftur skeyti frá slkipinu þar sem það kvaðst statt 6 mílur austur af Skaftárósviía og var ætlunin að haida sjó í Meðaliandsbugtinini. 21 maður er á skipiinu, en varð- skip fylgist með skipinu. Togari tafðist — deilt var við vélstjóra ÞEGAR togarinn Karlsefni átti að fara á miðin sl. þriðjudags- kvöld varð að fresta förinni vegna þess að vélstjórinn neit- aði að gangsetja vélarnar. Ástæðan var sú að Vélstjórafé- lag Islands neitaði að láta mann inn fara á sjó nema að samið væri við hann sérlega. Það sem bar á milli voru atriði vegna þess að i nýju samningunum eru sérsamningar fyrir skuttogara og sér fyrir þá gömlu. Vildi Vél- stjórafélagið að nýju samning- amir virkuðu aftur fyrir sig. Sjópróf voru í málinu í gær, en ágreiningurinn leystist í gær- kvöldi og átti Karlsefni að halda á miðin í nótt ieið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.