Morgunblaðið - 03.04.1973, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 03.04.1973, Qupperneq 15
íslands, en hvarf frá þvi eftir skamman tíma. Þegar í menntaskóla var Ólaf ur allra manna leiknastur í teikn un og kom stundum fyrir, að við sem ekki var sú mennt léð, leit •jðum til hans og bæðum hanm að laga eina og eina mynd. — Getngum við aldrei bónieiðir til búðar, enda bötnuðu myndirnar þá stórum. Til hans var ætíð Jeitað, þegar bekknum var falið að standa fyrir kaffikvöldum eða árshátíð. Hlutu skreytingar Ólafs jafnan mikið lof dóm- bærra manna. Eftir nokkurt hlé á námi hvarf ÓJafur tll náms í byggingar- fræði við Stoekholms Tekniska Institut. Hann lauk þaðan prófi árið 1950. Á námsárum simurn i StokkhóJmi var hann formaður íslenzka stúdentafélagsins þar í borg um þriggja ára skeið. 1 þessum fáu kveðjuorðum hef ur nær eingöngu verið dvalizt við persónulegar m nningar um Ólaf úr skóla, enda munu aðrir rita um ævistarf hans. Þess má Þó geta, að veigamesti þáttur var fólginn í því að teikna hús og ýmsar opinberar bygg- ingar, sem risið hafa upp víða um land. Óiafur var maður vel kvænt- uir. Kona hans er Sigurbjörg Kristfinnsdóttir. Þau eignuðust eina dóttur barna, BergJjóru Sif. Hún lézt árið 1962, aðeins 6 ára gömul. Heimili þeirra hjóna var hin síðari ár að Reynimel 37. Er það rómað fyrir smekkvísi og giæsibrag. Áður var að því vikið, að Ólaf uir Júlíussoin var jafnan manna glaðstur og Ijúfur í kynnum. Við gamlir skólafélagar eigum hon- um margt að þakka, þegar hann er fallinn frá með sviplegum hæfti á góðum aldri . . . „og ef góður höfðingi fellur í frá, þá er eigi sem eins manns m'ssi, heldur er það mikil míssa öllum þeim, er af honum tóku upphald eða sæmdir.“ Ég flyt frú Sigurbjörgu og öðrum vandamönnum samúðar- íyllstu kveðjur. Runólfur Þórarinsson. Kveðja frá Lionsklúbbi Reykjavíkur Félagi okkar Ólafur Júlíussom hefur skyndilega og fyr'rvara- laust verið hrifinn burt af vett- vangi lífsins á bezta aldri. Við félagar hans í Lionsklúbbi MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDÁGUR 3. APRÍL 1973 15 Benedikt Gunnarsson við eina mynda sinna, en að sjálfsögöu er litagleðin talsvert meiri en í svart/hvítu myndinni h 'á okkur. Ljósmynd Mbl. Ól. K. M. Ljóðræna og litagleði eldlands Benedikt Gunnarsson, listmálari. opnar sýningu í Norræna húsinu Reykjavikur eigum á bak að sjá einum okkar ágætasta félaga og er okkur söknuður i huig við frá fall hans og við vitum, að vand fyllt verður sæt hans á meðal okkar. Enda þótt vera hans í kiúbbn- um okkar haíi ekki verið ýkja löng, hefur allt hans starf þar og framkoma verið með s'.íkri prýði, að fágætt mun vera í fé lagsstarfsemi nú á dögum. Ólafi var boðin innganga i klúbbimn 5. marz 1964 og hefuir siðan starfað þar af miklum dugnaðl og slnnt ýmsum embætt isverkum á þeim tima og meðal annars verið formaður klúhbs ins starfsárið 1969—1970. í félagsstarfsemi v'.ll það oft verða svo, að þeir sem starfa af dugnaði og alvöru, veijast til embættisverka, og þannig var því varið með Ólaf, að oft var til hans leitað og aldrei árangurs- laust. Ávallt tók hann þvi vel, þegar hann var valinn til að vinna vandasöm störf'og leysti hann þau öll af hendi með þeirri ósérhlífni og ljúfmenmsku, sem honum var eiginleg. Við minnumst þsssa ágæta fé laga okkar með virðingu og þökk. Eig'nkonu Ólafs, Sigurbjörgu Kristfinnsdóttur, og ættingjum hans vottum við okkar inrij^g ustu samúð á þessari erfiðu stund. Félagar i Lionsklúbbi Rvikur. Loðnan reyndist mikil búbót Vopnafirði, 29. marz. Til Vopnafjarðar hafa bor- izt tæp sex þúsund tonn af loðnu. Hefur gengið vel að vinna loðnuna og verksmiðjan reynzt afar vel, þrátt fyrir að- gerðarleysi undanfarin ár. Reyndist loðnan mikil búbót í atvinnuleysinu og er áætlað að útflutningsverðmæti afurð anna nemi milli 50 og 60 millj. kr. Vopnaf jarðarhreppur er eig- andi Síldarverksmiðju Vopna- f jarðar. — Fréttaritari. BENEDIKT Gunnarsson opn- aði máiverkasýningu i Norr- æna húsinu um helgina og sýnir þar 86 málverk auk past eiteikninga. Benedikt hefur haldið 5 einkasýningar í Reykjavik á árunum frá 1951 til 1968, en þá hélt hann tvær sýningar. Þá hefur hann einn- ig haldið einkasýningar i París, Akureyri og Kópavogi. Benedikt hefur og tekið þátt í f jölda samsýninga víða í Evr ópu, Ameríku og Ástralíu. Sýningin í Norræna húsinu er opin frá 31. marz til 8. april. Við hittum Benedikt að máli þar sem hann var að hengja upp myndir í sýningar sal Norræna hússins fyrir skömmu. Benedikt sagði að elztu myndirnar á þessari sýningu væru frá 1967, en þær síðustu nokkurra daga. Mikil ljóð- ræna er í myndum Bene- dikts, enda sækir hann fyrir- myndiimar í iandið sjálft, eld inn og sterkar andstæður. Hann sagði að margar mynd- irnar á þessari sýningu væru hálfgerður súrrealismi, lita- leikur i landinu, vélum og þvi sem fólk hefuir fyrir augunum hversdags. Þá eru einnig mannarriyndir, en Benedikt hefur talsvert málað af mannamvndum undanfarið. Benedikt kvaðst vera að byrja á hvi að setja manninn inn í myndimar sinar og í verkefnavali hafa ógnirnar og ranghverfan sótt á hann. Eld- urinn leikur hlutverk í mörg- um myndum og litbrigði dags og nætur. í stærstu myndinni, sem er mjög stór, er glóandi hraunkvika. Benedikt kvaðst vera að byrja núna á mvndaflokki, sem fjallaði um písl manns- ins, passjuna. Páskaegg fyrir fjolskylduna: Skiöaferd med Flu?félagi islands til Akureyrar ©g ísafjaróar Bjóðum hjónum, fjölskyldum, námsmönnum og hópum sérstök vildarkjör. Kynniö yður sérfargjöld Flugfélagsins. Allar upplýsingar veita ferðaskrifstofurnar og Flugfélagið. FLUGFÉLAC ÍSLANDS ÞJÓNUSTA - HRAÐI - ÞÆGINDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.