Morgunblaðið - 04.04.1973, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. APRlL 1973
Valdís tók myndirnar í Hamrahlíð og Grænuhlíð
SUMARGJÖF starfrækir fóstru-
skóla og: er námstíminn þar þrír
vetur og: eitt sumar. Inntökuskil-
yrði eru þessi:
1. Nemandi þarf að vera orðinn
átján ára.
2. Hann þarf að hafa gagn-
fræðapróf, landspróf eða önnur
sambærileg: próf.
3. Hann þarf að hafa hlotið
6,0 eða betur á ifagnfræðaprófi
í dönsku og: íslenzku.
Fyrsta námsárið er undirbún-
ing:sár. Frá 15. september til 1.
október er undirbúningsnámskeið
í uppeldisfræði, föndri o. fl. F’rá
þeim tíma og: til 1. maí starfar
riemi á barnaheimilum og: hefur
þá um 13.000 krónur I mánaðar-
laun.
f lok þessa undirbúning:stíma-
bils gang:a nemar undir próf í
uppeldisfræði o.fl., og: mun árang
ur þess og: meðmæli forstöðu-
kvenna skera úr um það, hvort
nemi fái áframhaldandi skóla-
vist.
Með 2. námsári hefst liið raun
værulega fóstrunám. 1. bekkur
hefst með bóklegu námi 1. októ
ber og lýkur í apríllok. Frá 1.
maí til 1. október stunda nemend
ur verklekt nám á barnaheimil-
um í Keykjavík. Feir hafa þá
laun.
Til þess að nemi komist upp í
II. bekk þarf hann að ljúka
prófi I bókiegum greinum ipeð
aðaleinkunninni 5,0 og lágmarks
einkunninni 5,0 í uppeldisfræði
og sálarfræði. I»á þarf nemi að
hljóta umsögnina „hæf“ í verk
lega náminu að sumri loknu.
Á 3. ári hefst II. bekkur þann
1. október með bóklegu náms
tímabili, sem lýkur með miðs-
vetrarprófi í janúarlok, en frá
1. febrúar til i. marz stunda
nemar \'erkleg:t nám á barna-
heimilum og leysa þar af hendi
ýmis uppeldisleg: verkefni, sem
teljast til prófúrlausna verk-
leg:a námsins. Frá 1. marz til 1.
maí er siðasta bóknámstímabilið,
en burtfararpróf eru haldin í
maí.
Skólagjald í Fóstruskóla Sum-
argjafar er um 3.500 krónur á
ári nema undirbúning:sárið. I»ar
sem heimav'ist er eng:in, verða
nemar að sjá sér fyrir fæði og:
húsnæði.
Hér eru námsgreinarnar: Ltpp
eldis- og: sálarfræði, líkams- og:
heilsufræði, meðferð ungbarna,
átthagafræði, næringaref nafræði,
félagsfræði, íslenzka, liljómlist,
,rrythmik“, framsögn, föndur,
teikning, smíðar, leikfangagerð,
barnabókmenntir.
L'msóknir um skólavist skulu
sendar Fóstruskóla Sumargjafar,
þar sem sérstök umsóknareyðu-
blöð eru fyrirliggjandi. Umsókn
inni fylgi: 1. Ltfyllt umsóknar-
eyðublað með eigin rithönd. 2.
Staðfest afrit af gagnfræða-,
landsprófs- eða stúdentsprófs-
skírteini. 3. Meðmæli frá vinnu-
væitanda, kennara eða skóla-
stjóra. 4. Passamynd af umsækj
anda. — l'msóknarfrestur er til
1. maí.
Atvinnumöguleikar fyrir lærð-
ar fóstrur kváðu vera miklir.
Bæði er skortur á fóstrum á
barnaheimilum og svo fjölgar
þessum heimilum óðum, bæði í
Keykjavík og úti á landi.