Morgunblaðið - 17.04.1973, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.04.1973, Blaðsíða 1
Engin bronsverðlaun * — þrátt fyrir samþykkt HSI-þings — Við erum vissulega bundnir af samþykktum árs- þingsin.s, en að þessu sinni var óframkvœmanlegt að koma því við að veita brons- verðlaun i mótinu, sagði Ein- ar Mathiesen, formaður HSÍ á sunnudagskvöldið, er hann var að því spurður hverju það sætti að ekki væri fram- fylgt ákvörðunum ársþings- ins í fyrrahaust að veita bronsverðlaun í handknatt leiksmóti Islands. Einar Mathiesen sagði að þarna væri raunar um mjög viðamikið mál að ræða. Gera yrði „mót“ verðlaunapen- ingsins erlendis og ekki hefði unnizt tími til þess að gera það fyrir lok þessa móts. — Ég veit að það veldur mörg- úm vonbrigðum að ekki er út hlutað þriðju verðlaunum að þessu sinni, sagði Einar, — en þvi miður — það var ekk- ert hægt við því að gera. FH-ingar urðu þvi af verð- launum í 1. deildar keppninni að þessu sinni. En hörð var baráttan um silfurverðlaunin. Fyrir leik Fram og FH á sunnudagskvöldið var staðan sú að Fram gat náð FH að stigum með þvi að vinna leikinn, og eftir það skar markahlutfallið úr um hvort liðið skyldi hljóta verðlaun- in. FH-ingar höfðu hagstæð- ara mai kahlutfall, en hins vegar tókst Fram að vinna leikinn með svo miklum markamun að silfurverðlaun in urðu þeirra. Ekki munaði þó neana einu marki. Vonandi verður búið að búa svo um hnútana fyrir lok næsta Islandsmóts, að unnt verði að veita þriðju verðlaun. Flokkaíþróttameim eignast jafnan fá verðlaun á íþróttamannsferli sinum, en verðlaunapeningur getur og á að hafa mikið gildi fyrir íþróttamanninn, bæði sem minjagripur og eins til örvun- ar. : ' v' V;Wg': ' Kampakátir Íslandsmeistarar Vals að loknum leiknum við IR í fyrrakvöld. FrA vinstri. Fremri röð: Ólafur H. Jónsson, Þorbjörn Guðmundsson, Ólafur Benediktsson, Stefán Gunnarsson. Efri röð: Jón B. Ólafsson, Jón Karlsson, Jón Ágústsson, Gísli Blöndal, Ágúst Ögmundsson og Jóhaim Ingi. Valur íslandsmeistari 1. DEILDAR keppni íslands- mótsins í handknattleik er lokið. Á sunnudagskvöldið sigruðu Valsmenn ÍR-inga næsta örugglega og tryggðu sér þar með íslandsmeistara- titilinn. Eftir 17 löng ár og mikla baráttu flyzt nú ís- landsbikarinn í húsakynni Valmanna að Hlíðarenda, og ég hygg að allir séu sammála um það, að Valsliðið hafi fyllilega verðskuldað að fá hann þangað. Ekki leikur á tveimur tungum að Valur átti í vetur á að skipa bezta og heilsteyptasta liðinu í 1. deildar keppninni og þeir leikmenn, sem voru burðar- ásar liðsins, Ólafur Bene- diktsson, Ólafur H. Jónsson, Ágúst Ögmundsson, Bergur Guðnason, Stefán Gunnars- son, Gunnsteinn Skúlason og Jón Karlsson, voru allir í framúrskarandi góðri þjálf- un. Þórarinn Eyþórsson, þjálfari Valsmanna, má svo sannarlega vera stoltur. Hann tók við liðinu í fyrravor, ein- ungis af því að enginn þjálf- ari annar fékkst, og á þessu ári hefur hann skilað félag- inu tveimur Islandsmeistara- titlum. Þótt þáttur Þórarins sé stór, má ekki gleyma þeim grunni, sem Reynir Ólafsson lagði á tveimur síðustu ár- um, en að þeirri þjálfun hef- ur Valsliðið búið, ekki sízt í varnarleiknum. Valsmenn unnu mótið að þessu sinni með miklum sóma. Liðið tapaði aðeins tveimur leikjum, gegn Fram og ÍR í fyrri umferðinni, og hefur ekki tapað leik síðan í janúar sl. Markatala liðsins er óvenjulega glæsileg. Liðið skoraði 282 mörk en fékk á sig 198 mörk. Segir þetta sína sögu imi góðan varnar- Ieik Valsliðsins í vetur. fslandsmótið, sem lauk á sunnudagskvöldið, var á margan hátt skemmtilegt og sennilega hefur sá handknatt- leikur, sem það hafði upp á að hjóða, verið sá bezti, sem sýndur hefur verið hér á handknattleiksvertíð, ef á heildina er litið. Nú léku í fyrsta sinn átta lið í 1. deild, og það leiddi vitanlega til þess, að inn á milli komu „dauð“ leikkvöld. Áhugi fyr- ir mótinu var eigi að síður mjög mikill og aðsókn áhorf- enda yfirleitt góð. fslandsmót þetta markar að því leyti tímamót, að nú sigraði í fyrsta sinn í 2. deild- ar keppninni lið utan Reykja- víkursvæðisins. Það er Þór frá Akureyri sem flyzt upp í 1. deild. Að því verður að teljast fengur, þótt útgj^ld 1. deildar félaganna vaxi verulega við Akureyrarferð- irnar. íþróttafréttir Mbl. óska Valsmönnum til hamingju með fslandsmeistaratitilinn og Þórsurmn með þann merka áfanga, er þeir náðu í vetur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.