Morgunblaðið - 17.04.1973, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 1973
KR tryggði sér aukaleik
með f rábærum varnarleik á móti IR
Enn einu sinni þairf aukaleik
4 körfuboitanum, tii þess að úr-
slit fáist. KR-ingar náðu að sigra
ÍR um helgina, og þau úrslit
vakia því að liðin eru jöfn að
stigum, 26 stág eru liðin með, en
það lið sem er *í þriðja sæti hef-
«r aðeins 18 stig. Auka-
ieikur um Isiandsmeistaratitiiinn
fer íram annað kvöld, og eir ekki
að efa að þá verður hasar á
Nesinu.
Það sem fyrst og fremst KR-
ingar unnu á í leiknum gegn IR,
var frábaer varnarleikur í fyrri
hálfleik. iR-ingar fengu aldrei
tækifæri til athafna, og maður
gegn manni vöm KR ver sem
veggur.
iR-ingar héldu í við KR fram-
an af fyrri hálfleiknum, en sið-
ar fór að siga á ógæfuhliðina,
liðið virkaði mjög ósannfærandi,
og KR-ingar voru ekki lengi
að ganga á lagið. Staðan breytt-
ist úr 16:14 um miðjan hálfleik-
inn í 30:18, og í hálfleik var
KR með yfirburðastöðu 42:25, og
er það staðreynd sem taiar sínu
máli, að IR skuii aðeins skora
25 stig í hálfleiknum, lið sem er
með yfir 90 stig að jafnaði í
lei'kjunum i vetur.
En ÍR-ingarnir voru ekki al-
deiiis á þeim buxunum að gef-
ast upp, byrjunin I síðari hálf-
leiknum var hreint frábær hjá
liðinu, og á fyrstu fimm
mán. skoraði ÍR 12:2, og staðan
var því 44:37, og aftur komin
spenna í leikinn. Stuttu síðar
náðu ÍR-ingarnir að jafna leik-
inn, og eftir það skiptust liðin
á um forustuna, munurinn var
oftast eitt stig, og það voru svo
KR ingarnir sem stóðu með pálm
ann i höndum í leikslok, — loka
tölurnar 67:66. Sigur KR trygg-
ir þeim úrslitaleik, og sá leik-
ur verður örugglega spennandi.
Ég minnist þess ekki að hafa
séð ísienzkt lið leika jafn sterk
an vamarleik eins og KR-ingar
gerðu í fyrir hálfleik þessa
leiks. Kristinn Stefánsson gekk
þá hreinlega berserksgang í vörn
inni, og fór þá iila með Birgi
Jakobsson sem varla fékk skot-
færi. Kæmist Birgir hins vegar
i skotfæri, þá var pressan það
mikil að skotið geigaði nær alit-
af. Það verður þó að segjast eins
og er, að þegar ÍR liðið fór að
leika sóknarleikinn af meiri
hraða í síðari háifleik, þá brotn
aði þessi varnarveggur KR ilii-
lega. Það er mjög erfitt að gera
upp á milii KR-inganna eftir
þennan leik, þeir áttu jafnan
leik. Beztir fundust mér þó Krist-
inn Stefánsson og Kolbeinn Páls
son. Kristinn sem vamarleikmað
ur, en Kolbeinn í sókninni. Þá
var Hjörtur Hansson einnig góð
ur, og Birgir Guðbjörnsson átti
gott come back.
„Það hlaut að koma að þvi að
þeir hættu að hitta“, sagði einn
áhangandi KR eftir þennan leik,
og átti þá við skyttur lR Agnar
Hjörtur Hansson skorar í leik ÍR og KR.
Þórhallur Jónasson og Sigurður Dagsson berjast um knöttinn i Ieik VaLs
tókst að slá knöttinn yfir.
og Víkings, Sigurði
Tvö glæsileg mörk
— er Víkingur og Valur
gerðu jafntefli
Valur og Víkingur Iéku i
Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu á laugardaginn og lauk
leiknnm með jafntefli, 1:1. Ekki
var þessi leikur neitt betri né
verri en vorleikirnir gerast, en
það sem lífgaði upp á hann
voru tvö gnllfalleg mörk.
Valsmenn sóttu undan vindi í
fyrri hálfleik og komust þá oft í
sæmilegustu marktækifæri sem
aðeins einu sinni tókst að nýta.
Á 10. mínútu fékk Jóhannes Eð
valdsson knöttinn um 30
metra frá marki Víkings og
skaut sannkölluðu þrumuskoti.
Diðrik i Víkingsmarkinu áttí
ekki möguieika á að verja skot-
ið, sem hafnaði ofarlega í blá-
hominu.
1 síðari hálfleiknum snerist
dæmið við og nú sóttu Víkingar
nær látlaust. Valsmenn áttu þó
annað veifið ágætar sóknarlot-
ur og t.d. var Hermann Gunn-
arsson óheppinn að skora ekki
er hann var kominn í gott færi
inni í teig Víkinga, algjörlega
óvaldaður. En þegar Hemann
eetlaði að hleypa af, rak hann
tána í móður jörð, féll við, en
boltinn skoppaði rólega í burtu.
Mark Víkinga kom á marka-
Framhald á bls. 11.
Barátta undir körfunni. Agnar Friðriksson nær frákastinu, en
Hjörtur Hansson gerir sitt bezta. Undir körfunni stendur Einar
Sigfússon.
Friðriksson og Bírgi Jakobsson.
Þeir hittu báðir mjög illa í þess-
um leik, en vair það ekki hin
sterka vörn KR sem orsak-
aði það. Þá lék Kristinn Jörunds
son langt undir getu, og að mínu
viti var Einar Sigfússon eini
maður liðsins sem lék vel. — Svo
er það úrslitaleikurinn ann-
að kvöld, og nú er bara að bíða
og sjá.
Kolbeinn Pálsson var lang
stighæsti maður þessa leiks,
hann skoraði 33 stig. Þrír leik-
menn voru svo með 16 stig, Hjört
ur Hansson fyrir KR, og þeir
Birgir Jakobsson oig Einar Sdg-
fússon fyrir ÍR. Þennan leik
dæmdu Erlendur Eysteinsson og
Hörður Túlinius, og yfir höfuð
komust þeir vel. frá verk-
efni sánu. gk.
ÞOR í 2.
Þórsarar áttu aldrei neina
möguleika í síðustu leikjum
sínum í 1. deild. Þeir léku
við Val og Ármann um heig-
ina, og máttu þola stórt tap í
báðum leikjunum. Valsmenn
unnu þá 111:66, og Ármenn-
ingar gerðu enn betur því
þeir unnu þá 102:44. Þar með
er lokið í bili veru Þórs í 1.
deild, og er ljóst að eitthvað
róttækt verður að gerast í
körfuboltamálum þeirra Ak-
ureyringa ef þeir ætla sér
einhvern hlut á þeim vett-
vangi í framtiíðinni.
Þórir Magnússon átti frá-
bæra leiki með Val um helg-
ina þegar liðið lék gegn Þór
og IS. Þórir gerði sér lítið
fyrir og skoraði 80 stig i þess
um b-’kj um. Þar með „stakk
hann alla aðra leikmenn móts
ins af“ í sambandi við skor-
un og var hann sá eini sem
náði því að komast yfir 300
stig í mótinu. AIls skoraði
hann 306 stig, en David De-
Þróttur —
Meistarakeppni KSf er nýlok-
ið, Litla bikarkeppnin vel á veg
komin og á föstudagskvöld-
ið hófst svo Reykjavikurmeist-
aramótið. Þannig rekur hvert
mótið annað, þar til fslandsmót-
ið hefst upp úr miðjum maí n.k.
Að þessu sinni taka þátt í
Reykjavikurmótinu, auk Reykja
ví'kurfélaganna, Vestmannaeying
ar, sem leika sem gestir.
Samkvæmt Mótabók KRR, sem
nýlega er komin út, á mótinu að
ljúka 14. mai n.k. með leik Ár-
manns og Þróttar og þar sem
leikir mótsins eru alls 21 verð-
ur leikið, svo að segja hvern ein
asta dag.
GamJi Melavöllurinn verð-
DEILD
vany var næstur rheð 280.
Agnar Fíriðriksson kom svo i
3. sæti með 275 stigl.
Flöskur flugu
Þegar leik ÍR og KR iauk,
kom fyrir atvik sem verður
að lita mjög alvariegum aug-
um. IR aðdáandi á áhorfenda
pöllum gerði sér lítið fyrir og
sendi tóma coca cola flösku
inn á völlinn, og smaí‘1 hún í
gólfið rétt við borð ritara.
Voiru dómarar leiksins að
koma að borðinu til að ganiga
frá leikskýrslu, og var flask-
an greinilega ætluð þeim.
Sökudólgurinn var sóttur af
húsverðinum upp á áhorf-
endapallana, og voru áhorf-
endur hjálplegir í þessu sam
bandi. Fékk flöskukastarinn
útreið slæma hjá fólkinu og
auk þess að hafa af þessu
slæma samvizku á hann yfir
sér kæru frá lögreglunni á
Seltjamamesi, en hún kom á
vettvang og tók skýrslu af at
burði þessum. gk.
Fram
ur því á næstunni sá staðurinn,
sem knattspyrnuunnendur munu
sækja til og vonandi verða leik
imir í mótinu skemmtilegir og
spennandi.
Segja má að úrslit fyrsta leiks
ins hafi komið nokkuð á óvart,
þvi þá léku Islands- og Reykja-
víkurmeistararnir 1972 Fram og
2. deildar liðið Þróttur.
Eftir hina mjög svo siöku
frammistöðu Framara i Meistara
keppni KSl, þar sem liðið tap-
aði öllum leikjum og skoraði
vart mark, var ekki fráleitt að
ætla, að nú mundi Fram sýna
getu sína og sigra. En það fór
á annan veg. Að visu voru Fram
Framhald á bls. 11.