Morgunblaðið - 06.05.1973, Side 28

Morgunblaðið - 06.05.1973, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1973 Eliszabet Ferrars: Samíeríia i dauílsnri — Já, mjólkurflöskunni, sagði Rakel um leið og hún elti hann inn í setustofuna og settist á stólbrík, þannig að auðséð var, að hún ætlaði ekki að doka þarna lengi við. — Ég held ekki að hún hafi neina þýðingu. Og áður en hann gæti sagt henni af hugmynd sinni sem hann hafði íengið varðandi mjólkurflösk- una, sagði hún honum frá sinni hugmynd um arineldinn hjá Margot — að enginn eldur hefði verið kveiktur i herbergi Mar- got og enginn reykur komið úr reykháfnum allan eftirmiðdag- inn. Og það er ég alveg viss um — að eldurinn hefur verið kveiktur miklu seinna um dag- inn, eftir að svo dimmt var orð- i, að útilokað var að sjá reyk- inn og dregið hafði verið fyrir gluggana, svo að enginn gat séð neinn bjarma að innan. Paul stóð gleitt fyrir framan arininn. Hann vsir ókyrr og lang aði til að segja henni frá sinni eigin hugmynd, en hlUstaði samt á hana með athygli og þegar hún þagnaði, kinkaði hann ákaft kolli og sagði: — Já, já, það stendur allt heima — það var einmitt þetta, sem ég ætlaði að fara að segja. Það sem gerzt hefur þarna í húsinu, gerð ist áreiðanlega miklu seinna en við höfum haldið, vegna þess að þarna var enginn eldur — og það var skarplega athugað af þór — við verðum að segja Creed frá þvi — lika vegna mjólkurllöskunnar, sem við héld um að hefði verið tekin, eftir að þú varst þama og áður en ég kom. Raunverulega hefur hún aldrei verið tekin. Henni var bara stolið, það er allt og sumt. Og ég held, að Applinkrakkarn ir hafi stolið henni. Bernice sama sem sagði mér það fyrir skörnmu. Hún sagði mér bein- Mnis, að tvö þau litlu hefðu tek ið eitthvað, sem ungfrú Dalziel átti og fyrir það hótaði hún þeim öllu iUu og sagðist ekki ætla að hlífa þeim við vandræð um, ef slákt kæmi fyrir aftur. Og þetta þýðir, að hún hefur reynt eftir föngum að bjarga þeim frá skömminni i þetta skipti, og ég held nú, að hún hafi sett flöskuna við dymar hjá Brian. Þessi krakki er nú ekki sérlega greindur, en það lít ið er, þá er það undirferli og klókindi, og ég held, að hafi hún séð, að þau litlu ætluðu að fleygja flöskunni i matjurtagarð- inn, þá hafi hún óttazt, að það mundi beina gruninum að þeim, en hins vegar gæfi flaska á dyra þröskuldinum engar bending- ar. Hann þagnaði, brosti ákafur og hirifinn í senn á svipinn af þessajri tilgátu sinni, en ókyrrð- ist þó, er hann sá enga hrifn- ingu á Rakel. Á henni var að- eins að sjá efa og svo þreytu- hrukkur, sem oft eru óþarflega áberandi hjá konum á hennar aldri. — Skilurðu þetta ekki? spurði hann. — Það er óhugs- andi, að Brian hafi farið að taka þessa mjólk handa sjálfum sér — ég er viss um, að það kem ur engum í hug. Og þetta er sennileg skýring á þvi hvers vegna flaskan finnst við dym- ar hjá honum. — Jtá, ég skii það, sagði hún. — Bngum dytti í hug, að hann færi að stela mjólkinni. Eldíi mjólkinni! En hvað ætlarðu að í þýáingu Póls Skúlasonar. gera í framhaldi af þessari hug- mynd þinni? — Auðvitað ætla ég að segja Creed frá henni, sagði Paul. — Eða kannski væa'i betra, að þú segðir honum frá henni. Þú gæt ir hringt til hans og sagt hon- um frá eldinum í leiðinni. En við skulurn nú samt borða fyrst. Og svo, meðan þú ert að síma, held ég — held ég, að ég skreppi tii Applinfólksins. Mér gæti gengið betur en lögregl- unni að fá Bemice til að segja mér alla söguna. Og svo gæti ég um leið litið inn til Brians og athugað hvað honum finnst um þetta. Hann hafði haldið, að þetta mundi falla henni vel í geð. Hann gat ekki skilið í öðru, en henni mundi falla það vel, að hann gengi í lið með Brian. En Rakei leit bara órólega á hann, svo að honum fannst sem væri hún að gráti komin, og gekk síð an út. Paul velti þvi fyrir sér, hvað hefði komið fyrir hana, meðan hún stóð við í húsinu. Hjúkrunarkonur Fundur verður haldinn á Hótel Esju 7. maí 1973 kl. 20:30. Geðhjúkrunarnám í Skotlandi. Upplýsingar um námsstyrki. Fj áröflunardagur. Stjórn Reykjavíkurdeildar Hjúkrunarfélags íslands. Orðsending til kvennu írd leitarstöð B Athygli skal vakin á því, að konur á aldrinum 25— 70 ára og fengið hafa bréf undanfarna mánuði um að koma í skoðun ,geta komizt að fljótlega og sama gildir um þær, sem af einhverjum ástæðum hafa ekki fengið bréf. Dragið ekki að panta tíma í síma 21625 fyrir hádegi. KRABBAMEINSFÉLAG ISLANDS, Suðurgötu 22. velvakandi ^5 Velvak^ndi svarar í sima 10100 frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. £ Einhliða landhelgis- fréttir í Bretlandi Og hér skrifar Ingadís Har- aldsdóttir frá Hereford í Here- fordsskiri, Englandi: „Kæri Velvakandi. Já, það er gaman í Englandi núna. Við, þ.e.a.s. Island og ís- liendingar, erum bara alltaf i fréttum, bæði vegna Vest- marmaeyja og þorskins. Okkur hefur meira að segja tekizt, að komast á framsáðu „The Daiiy Miiror“, en þeir spara vana- lega sitt pláss fyrir forsíðu- fréttir eins og „Tom Jones kaupir nýja skó“! og eitthvað ámóta mikilvægt! Því miður, þrátt fyrir forsíð urnar, þá virðist mér fregnim- ar að heiman og þá sérstaklega um fiskinn helv . . . einhliða. — Eru engir enskir fréttamenn staddir á íslandi til að segja frá atburðunum? Ef þeir eru þama, hvað eru þeir þá að gaufa? Fréttirnar, sem við fáum hér í Bretaveldi eru eitthvað á þá leið, að Islendingar skjóti bæði alvöru- og falsskotum, skeri á net og almennt talað hagi sér sem verstu bandittar. Það er alltaf eitt, sem týnist í þessum fréttafliutningi hiinna hámennt- uðu fréttamanna, það er or- sök skotanna. Við heyrum álíka fréttir i útvarpinu, en Mike Magnússyni tekst alltaf að skjóta irm i, „ja, Islendingar segja, að togararnir hafi,“ o.s. frv. Svo koma æsispennandi samtöl við álíka maddonnur og Jónínu hans Jóns, sem býr i Hull og náttúrlega vill hún fá flota hennar hátignar til vemd ar Jóni, eins og áður var. Fréttaflutningi lýkur svo oftast með viðtali við formann togara eigenda, eða einhvem ámóta háttsettan fisk, og er hann þá svo öskureiður og æstur, að hann æpir bara á flotann!! —- 0 Kynna þarf málstaðinn betur Hvernig væri, að kynna mál- stað okkar Islendinga örlítið betur, t.d. halda blaðamanna- fund hjá sendiherranum í Lon- don, og bjóða „Englandspress- unni“, — eða er það engin „diplomatia"? Ég legg mig alla fram við að koma málstað okkar á fram- færi, skrifa í blöð (ekkert hef- ur birzt ennþá) og röfla við sem flesta, en það eru hara all ir, sem ég hitti, sammála mér után Indverji nokkur, en mér varð ekki skotaskuld úr að kristna hann. Þvi miður hef ég hvorki komizt í tæri við lafð- ina né lávarðinn (Tweedsmuir og Home), og svo eru það nátt úrlega blaðamennirnir. Með fyrirfram þakkiæti, Ykkar Ingadís Ilaraldsdóttir.“ 0 Prúðbúnir styrkþegar og verkamenn „Kæri Velvakandi! Það var ánægjuXegt og lær- dómsrikt að sjá 1. maí gönguna í sjónvarpiniu. Ánœgjufegt að sjá þessar gömlu kempur, sem glaðzt gátu yfir unnum sigri, og lærdómisiríikt að sjá árang- urinn af því, þegar hjólið er búið að snúasit meira en í hrtimg. Þar giat að Mrta menn, sem unnið höfðu hörðum hönd- um, og samt þurft að neiita sér um marga sjálfsagða hlutí eins og mennitnm, sem þedr margir hverjir áttu skdlið. Hinis vegar voru svo hinir, sem þessir verkamenn og margir aðrir höfðu lagt alllit upp i hendurnar á, svo að þeir þyrftu ekki að þræla. Þessir menn gianga prúð búniir og Xmarreiistir. Þeir geta það Mka, þvl að þestsir sem unnu, létu þá hafa styriði tíl niárns og þeir fóru út í lönd og hvað lærðu þedr þar? Jú, jú, þeir komu að visu próflausir heiim, en þeir höfðu Itert kommúnísk fræði og meira að segja trúðu á þau. Hvað sitendur i þessum ágætu fræð- um? Þar stendur meðai ann- ars, að maðurinn eigi að vera réttXauis gagnvart stjómarvöLd- um. 0 Málfrelsi skammtað í sæluríkinu Þar er engiinn verkfalilsréttiur og þar er ekká bam skammtaö frelsi og brauð, eins og stend- ur í kvæðinu, heldur alílit og sér staklega málfrelisi. Við l>rotí á því dugiar ekkert mlinna en fangabúðaviisit eða geðveikra- hæh. Islenzkir verkamenn, þið eigið ekM að færa kammúniisit- um vöOldin, þvi að þeir trúa þvi, að eniginn eigi að vera frjáls gerða siinina. Þið eiigið heldur að viinma með auðvaldinu, þvi að hjá þvi fáið þið rétt ykk- ar og með því er ved hægt að vinna og það virðir hvers manms rétt og frjálsræði. Eng- ir verkamenn i heiminum' i dag eru verr settir en verkamenn i kommúin istar í k ju m. Hvað miamgiir verkamenn hafa ekki reyint að flýja þaðain, þó að þeir ætitu yfir sér landaimæraverð- ina, sem hafa þá atvinnu að skjóta á hvem þann sem reyn- ir að flýja? Hvað er þetta vesal ings fólk í Suður-Víetnam og K'aimfoódíu, sem berst til síðasta manns til þess að fá ekM yfir sig kommúnistastjómina að gera? Það er að sýma heimdn- um i dag, að það verður að út- rýna kommúniismaimum t.il þess að MfvænJegt verði í veröldinni. Húsmóðir." Sn ur frá Pí K 'S LONDRE5 NEW-YOBS verður til viðtals í verzluninni á morgun, mánu- daginn 7. maí. SN YRTIVÖRUBÚÐIN, Völvufelli 15. — Sími 71644. Halló! Halló Rýmingarsala KVENKJÓLAR í úrvali frá 500 kr. - KVENSÍÐBUXUR 400 kr. - TOPPAR 500 kr. - KVENGAMMOSlU- BUXUR 500 kr. KVENPEYSUR í úrval 500 kr. - Stutt og síð PILS — GARDlNUEFNI alls konar og margt fleira. LILLA H/F., Víðimel 64 Sími15146 Bílastæði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.