Morgunblaðið - 13.05.1973, Qupperneq 20
20
MORGUNRLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1973
Vorsýning Myndlista-
og handíðaskólans
Prófum í Myndlista- og
handíðaskóia íslands er nú
k>kið og í hönd fer sumar-
frí. í gær var opnuð sýning á
verkum nemenda við skólann
þar sem reynt er að gefa yfir
lit yfir vetrarstarfið og ár-
angur þess. Sýningunni, sem
er opin frá kl. 14—22 iýkur
13. maí.
í hverri stofu verða fleiri
eða færri nemendur við
Verðlaunamynd Magnúsar Kjartanssonar — Mök.
vinnu og geta gestir spurt þá
út úr um skólann og sín við-
horf. i kaffistofu verða
reiddar fram veitingar, sem
nemendur sjá um, og á veggj-
horf. 1 kaffistofu verða
til sýnis myndlistarverk, sem
listamenn hafa gefið nemend
um i happdrætti, en ágóði
þess rennur í ferðasjóð nem-
emda. Þann 20. maí halda nem
endur til London og kynna sér
listalíf þar. 1 bókasafni verð-
ur sýndur kennslufræðiiegur
myndaflokkur er nemendur
teiiknikennaradeildar hafa unn
ið í vetur. Einnig verður til
sýnis kvikmynd, eftir einn
nemenda 4. bekkjar, Þorstein
Sigurðsson og nefnist myndin
Sigurðsson og nefmist myndin
— Áróður gegn hassi. — 1
myndmótunarstofu verða
sýnd nokkur verk, sem unnin'
voru á námskeiði þvi, sem
Jörgen Brun Hansen hélt á
vegum skólans í vetur.
Á sýningunni verða einnig
sýnd verk eftir nemendur er
AUGLVSINGASTOFA KRISBNAR 7.27
Kóróna föt
Kórónafótin, úr beztu efnum
og eftir nýjustu tízku, bera
allsstaðar af og eru eiganda sínum
til sóma, hvar sem hann kemur,
heima og á erlendri grund.
New Drip kallast þetta furðuverk, og er eitt af „mótívum“ í
myndlistardeild.
lendra listaskóla. Önnur sýn-
ingin er skriftarverkefni nem
enda í 1 istiðn aðarskólan um i
Osio, Statens handverks- og
kunstindustriskole, en kenn-
ari þeirrar greimiar, Helge Ott
ar Johanson, er Reykviking-
um að góðu kunnur sem graf
iker, Ottar sýndi m.a. i Norr-
æna húsimi í fyrravor. Hin
sýningin er frá listaskóla í
Bretlandi, sem heitir BoLton
College og sýnir verk barna
og unglinga, úr þeim skóla.
Stjórn Myndlista- og hand-
íðaskólans er mikil ánægja að
kynna verk erlendra lista
skóla og vonast til að meira
verði um slíkt í framtíðinni.
Síðastliðið haust tók skóL
inn þátt i keppnd í Luxem-
borg á vegum stofnunarinn-
ar — Safn 2000 —, sem
stuðlar að list í heiminum.
Af þeim fimm verðlaunum,
sem veitt voru, hlaut Magnús
Kjartansson, nemandi í
Myndlista- og handíðaskóian
um 4. verðlaun og má það
teljast athyglisvert. Verð-
launamynd Magnúsar nefndst
„Mök“.
Alls voru um 400 nemend-
ur í skólanum i vetur, þar af
100 í dagskóla, en hinir á
ýmsum námskeiðum. í skól-
anum eru 6 deildir, forskóli,
sem tekur 2 ár, myndlistar-
deild, kennaradeild, listiðna-
deild, bóknám og námskeið.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 13., 15. og 17. tbl. Lögbirtingablaðsins 1973
á Tjamargötu 4, Keflavík, þinglesinni eign Hjalta Svans Guð-
mundssonar, fer fram eftir kröfu Skattheimtu rikissjóðs. á eign-
inni sjálfri, fimmtudaginn 17. maí 1973 kl. 13.30.
Bæjarfógetnn í Keflavík.
Nauðungcruppboð
sem auglýst var í 13., 15. og 17. tölublaði Lögbirtingablaðsirts
1973 á Heiðarbrún 13, Keflavik, þinglesin eign Asgeirs Bene-
dikssonar, fer fram'eftir kröfu Skattheimtu ríkissjóðs á eign-
inni sjálfri, fimmtudaginn 17. mai 1973 kl. 2 e. h.
Bæjarfógetnn í Keflavík.
Nauðungaruppboö
Vegna vanefnda hæstbjóðanda á nauðungaruppboði hinn 9.
marz 1973 verða tvær sumarbústaðalóðir, merktar nr. 12 og
12 A úr landi Norðurbakka í Grímsnesi, Arnessýslu, þinglesin
eign Norðurbakka hf., seldar að nýju á nauðungaruppboði, sem
fer fram á eignunum sjálfum, fimmtudaginn 17. maí 1973 kl.
14.00.
Jónas Gústavsson, setuuppboðshaldari.
Nauðungaruppboð
Opinbert uppboð, sem auglýst var í 21., 24. og 26. tbl. Lög-
birtingablaðsins 1973 á eigninni Aðalstræti 14, Patreksfiiði. neðri
hæð (kjallara), fer fram samkvæmt ákvörðun skiptaráðandans
í Barðastrandarsýslu, hinn 18. maí nk.
Hefst uppboðið i skrifstofu embættisins kl. 16, en verður siðan
fram haldíð á eigninni sálfri.
Sýslumaður Barðastrandarsýslu.