Morgunblaðið - 19.05.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.05.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAl 1973 „Leikrit geta í senn verið raunsæ og þó byggt á t. d. goðfræði- legum hugmyndum46 Rætt við Agnar í>órðarson um „Lausnargjaldið Nýtt íslenzkt leikhúsverk vekur jafnan forvitni og það á vissulega við um „Lausn- argjaldið" eftir Agnar >órð- arson, sem nú er sýnt í Þjóð- leikhúsinu. Þar eru settar fram samofnar hugmyndir — sóttar í goðafræðina — um baráttu jötna og ása. En sagan er færð til nútímans og á ytra borði gæti virzt, sem þarna væri höfundur aðeins að tefla fram innbyrðis átök- um fjölskyldu annars vegar og hins vegar árekstr- um vegna umhverfisvemdar. Ég spurði Agnar um hug- myndirnar að leikritinu, hvursu þær hefðu orðið til. — Ef ég hefði hugsað mér að skrifa um venjulega fjöl- skyldu, án nokkurrar dýpri merkingar, þá hefði ég gert það og á alit annan hátt. En til að gefa verkinu aukið gildi og stækka þá hug- mynd, sem með mér bjó, þá vildi ég gefa því víðara inn- tak. Höfundar eirts og Ar- taud hafa haft mikil áhrif á leikritun í Frakklandi, en hann vill endurnýja leikhús ið með því að leita aftur til upphafsins — hann tengir leikritið helgisiðum og blóti eða yfirþyrmandi atburðum. Að vera í leikhúsi er þá eig- inlega að taka þátt í nokkurs konar athöfn, sem bergmála gömul minni í hugarfylgsn- um manrtsins frá ómuna- tíð — og þá er hægt að nota fom, goðsöguleg mótív, sem gefa dýpt og skirskotun. Það er í rauninni ekkert nýtt, sem ég er að gera þama. Þessar aðferðir hafa erlend- ir höfundar reynt margir á undan mér. En svo ég víki að mínu verki, þá hefur goð- sagan um Baldur verið mér sérstaklega hugstæð. Þar er og að finna hliðstæðu við at- burði í nútímafjölskyiduiífi, ef við lítum á æsina, sem fjöl skylduna. Baldur tapast henni fyrir mistök. Eins og feður missa oft tök á sonum sínum fyrir mistök. Synimir eru ekki látnir — en horfn- ir sýnum — en eftir lifir von in um að sonurinn komi heim aftur, ef ailir samstiiliiast í þeirri ósk. Og þá verður mannlífið fagurt á ný. Þessi óskadraumur um fegurra mannlíf og endurkomu hins glataða sonar eða komu hins nýja manns er gamalt mótív, bæði i kristninni og í öðrum trúarbrögum. Bn þessir menn láta standa á sér. Við höldum kannski einn daginn, að nú sé Baldur kominn. Ein það er þá einhver anhar, sem kemur fram í nafni hans, eða í nafni ákveðins boðskapar. Mér hefði þótt verkið ris- minna, ef ég hefði horfið að því ráði að skrifa það öðru- vísi. Ég lit svo á, að þessi efni úr goðafræðinni séu þess virði, að þeim sé gaumur gef- inn og þeim gefið nýtt inn- tak. Þó að leikritið eigi að standa undir sér sem raun- sæisverk, þá mega menn hafa í huga, að þama er taiað um fleira en allra hversdagsleg- ustu hluti. I nútímanum eru alls konar goðsagnir á ferli, sem kallaðar eru pólitískar hugmyndir svo að átök fólks ins í leikritinu má allt eins heimfæra upp á slíkar hreyf- ingar. — Eru persónumar realisk- ar eða telurðu þær vera tákn fyrir þessar hugmyndir? — Þær em beggja bliands. Gró er hin sígilda móðir, sem alltaf vonar það bezta og vill umfram allt trúa, að sonur hennar sé ekki látinn. Hún er í senn einstaklingur og tákn þessara eiginda. Saumakonan er nokkurs konar sálusorg- ari. Hún veit margt um hagi fólks og er lagið að láta það tjá sig. Síðan kemur til atrið ið með kraftaverkið. Það er Agnar Þórðarson dálitið hættulegt, því að við vitum svo lítið. Ég er sjálfur tilbúinn að trúa þvi, að stúlk an hafi aðeins verið haldin „hysteriskri" lömun. En ég neita hins vegar ekki, að þarna hafi getað gerzt krafta verk, sem við köllum svo. Það verður hver að meta fyr ir sig. Fjöiskyldufaðirinn er í senn einstaklingur og tákn. Þar hafði ég í hugia höfð- ingjaveldi ása, sem eiga í vök að verjast gegn jötn- um. Hann horfir aftur, eins og bargarastéttin horfir aft- ur til 19. aldar, þegar hún lifði sitt blómaskeið. Hann vill sveigja umhverfið undir vald tækninnar og framfar- anna, sem hann kallar svo. Ég legg hins vegar ekki dóm á, hvort þar sé um framfar- ir að ræða. Þær hafa a.m.k. skapað ný vandamál, sem eng inn sá fyrir til skamms tíma. Sonurinn Grímur, — ef við tökum hann — þá lít ég ekki á hann sem neina Danna- manngerð, sem talar ein- hverja unglingamállýzku. Hann er nokkuð menntaður, er eiinmana og örlög Baldurs, bróður hans, eru hon- um hugstæð. Hann veltir mörgu fyrir sér. Hugsar heil mikið um mannlífið. Svo kem ur Logi inn á heimilið. Logi er eitthvað dökkur, bæði með skírskotun til jötna og einn- ig vegna þeirra fordóma, sem dökki liturinn kall- ar fram. Hann er fulltrúi múgsins í augum borgarans. Hann hefur strax áhrif á Grím og enda þeir hvor á annan og hjá Gró vekur hann móðurtilfinningar. En glímukappanum fyrrverandi stendur stuggur af þessurn fé lagsskap sonarins. Síðar — eftir að sagan um kraftaverk ið kemst í hámæli — koma við sögu tveir reiðir feður. Þeir eru ekki skrifaðir sem persónur. Ég hafði upphaf- lega hugsað mér þá sem kór, eins oig oft hefur verið gert að fornu og nýju — raddir fóiksins í háhýsinu. En ég hætti við það, þar eð mér fannst það myndi ekki falla inn í. En varðandii hugmynd- ir Gríms og Loga, þá er sama um þær og margra ungmenna í uppreisnarhug. Þær eru reikular, korna úr ýmsum átt um. Ég var í Frakk- landi 1968, þegar mest gekk á. Þá var mi'kið talað um nýj ar hugmyndir í röðum upp- reisnarfólksins. Sumir vildu hverfa aftur til einfaldara lífs, aðrir eitthvað annað, all ir voru andvígir neyzluþjóð- félaginu. Ég man, að einn af „Lífiö er kabarett“: „Með fulla ávaxtaskál, eða.. .66 Söngleikurinn Kabarett frumsýndur í í>jóðleikhúsinu „Ég heiti því að þessi ávaxta- skál skal aidrei verða tóm, hún skal verða full af ávöxtum á meðan ég lifi,“ segir einn af leikurunum í Kabarett. Þetta er fallegt fyrirheit og ham- ingjusamt, en það fer ekki ailt eins og ætlað er í því saman- safni fyrirbæra, sem við köll- um líf. Við fylgdumst með æfingpi á Kabarett í Þjóðleikhúsinu einn daginn, en dag eftir dag að undanfömu hafa staðið yfir strangar æfingar á þessum bandariska söngleik, sem hef- ur verið sýndur við miklar vin sældir og þá hefur nýleg kvik- mynd um efnið ekki hlotið verri dóma. Kabarett er sam- bliand af gamni og alvöru, ádeilu og kæruleysi þess, sem ef til viill byggir á víðsýnustiu heimspekinni. Sviðið er Berlín, Berlín fyr- ir nasismann og eftir að klær hans eru byrjaðar að krafsa inn í sál þjóðlifsins. Ungur bandarisikur rithöf- undur kemur til Berlínar til þess að fá næði til að skrdtfa skáldsögu, en það fer eins og með svo mairgar skáidsögur sem á að skrilfa, þær fiara ekki á b!að, það er ekki timá tii þess fyrir h versdagsiE fim u, skáldsögu hvers og eins. Æfingin líður. Heimur leik- hússins spinnur og spinnur. Enginn gluggi leyfir dagsbirt- unni að kíkja inn. Jörðin á fullri ferð, dagur og nótt, en leikhúsið heldur siínu striki. Sviðsmenn, ljósamenn, leik- Edda Þórarinsdóttir sem Sally, Sigmundur Öm Amgrímsson sem Clifford rithöfundur, Bessi Bjarnason sem siðameistarinn, Baldvin Halldórsson sem Schultz og Herdís Þorvaldsdóttir sem Fraulein Sneider. tjaldagerðarmenn, saumakonur leikarar og allir aðrir, sem leggja hönd á plóginn, skapa nýjan heim, nýja tímaskynjun. Menn hverfa á viit ævintýra, sorgar og giieði og þegar bezt lætur dansa saman stemning í saii og á sviði. Allir vilja hafa sína ávaxta- skál fuila þó að notið sé af veigum hennar. „Lífið er kab- arett“, segir Sally, unga fal- lega brezka stúlkan, sem ætlar sér það þrekvirki að l'áita vandamál heimsinis, flokka- kenningar og aðrar pestir fara fram hjá án þesis að iáta sér koma siikt vdð. Hún bað engan afsökunar, en hana kenndi tíl. Hún var eins og villiblómin, sem lifa bara sumarið, en spretta aftur að vetiri. Einstaka sinnum kallaði leik Framh. á bls. 23 Kabarett-dansmeyjamar í Klt-Kat klúbbnum. Ljósm. Mbl.: Kr. Ben.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.