Morgunblaðið - 20.07.1973, Síða 17

Morgunblaðið - 20.07.1973, Síða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ — FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1973 MORGUNBLAÐIÐ — FÖSTUDAGUR 20. JÚLl 1973 17 Jltwgmlrlröife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúl Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóri og afgreiðsla Auglýsingar Askriftargjald 300,00 kr. hf. Árvakur, Reykjavlk. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10-100. Aðalstræti 6, slmi 22-4-30, á mánuði innanlands. I lausasðlu 18,00 kr. aintakið. Á greiningur er nú risinn **■ innan stjórnarflokk- anna vegna byggingarfram- kvæmda Seðlabankans. Lög- um samkvæmt er yfirstjórn Seðlabankans í höndum við- skiptaráðherra, sem fer með bankamálefni, og bankaráðs. Bankaráðið er að meirihluta til skipað fulltrúum stjórnar- flokkanna, og formaður þess er úr Samtökum frjálslyndra og vinstri manna. Lúðvík Jósepsson fer með bankamál- efni 1 ríkisstjórninni. Þessir aðilar ásamt bankastjórn bera ábyrgð á starfsemi bankans. Byggingarmálefni hans eru þar ekki undan- skilin. Nú hefur það á hinn bóg- inn gerzt, að stjórn Fram- kvæmdastofnunar ríkisins hefur beint þeim eindregnu tilmælum til stjórnar Seðla- banka íslands og ríkisstjórn- arinnar, að fyrirhuguðum framkvæmdum við húsbygg- ingu bankans á Arnarhóli verði frestað. En stjórnar- flokkamir fara með meiri- hlutavald í báðum þessum stofnunum. Og Lúðvík Jós- epsson ber að sínu leyti ábyrgð á þessum fram- kvæmdum, enda er honum löngu kunnugt um bygging- aráform bankans. Hann hef- ur á þessum tíma ekkert gert til þess að hindra fram- kvæmdirnar og hefur því í raun réttri samþykkt þær. í ályktun stjórnar Fram- kvæmdastofnunarinnar er bent á þá miklu og óumdeil- anlegu þenslu í fjárfestingu og á vinnumarkaði, sem nú á sér stað. Jafnframt er bent á viðamikil framkvæmda- áform ríkis og sveitarfélaga, sem fyrirhuguð eru á næstu árum. Stjómin telur, að brýnt sé að sýna fyllstu varkárni og aðhald í öðrum opinberum fram- kvæmdum. Með hliðsjón af þessum aðstæðum er skorað á ríkisstjórnina og banka- stjórn Seðlabankans að fresta umræddum framkvæmdum. Eins og fram kemur í viðtali við Magnús Jónsson í Morg- unblaðinu í dag voru allir stjórnarmenn Framkvæmda- stofnunarinnar sammála um, að allt of mikil þensla væri í þjóðfélaginu og því gæti vissulega verið eðlilegt að fresta þessari framkvæmd. Á fundi stjórnar Fram- kvæmdastofnunarinnar flutti Sverrir Hermannsson tillögu þar sem lagt var til, að stofn- unin tæki upp viðræður við Seðlabankann og ríkisstjórn- ina um frestun byggingar- framkvæmdanna. Sú tillaga var á hinn bóginn felld á jöfnum atkvæðum. Vissulega ættu það að vera eðlileg vinnubrögð að ríkisstofnanir hefðu ekki í hótunum hver við aðra, heldur leystu slík mál með viðræðum áður en gripið er til þess ráðs að samþykkja opinberar áskor- anir. Einkanlega með tilliti til þess, að sömu aðilar fara nú með stjóm landsmála og yfirstjórn þessara tveggja stofnana. Sérstaklega er athyglisvert, að Framkvæmdastofnunin neitaði að láta Morgunblað- inu í té tillögur full- trúa stjórnarandstöðuflokk- anna og greina frá, hvernig atkvæði hefðu fallið um þær. Þetta er gert með það eitt fyrir augum, að auðvelda dagblaðinu Tímanum að halda áfram rangfærslum sínum um það, að fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafi ekki haft skoðun á málum þessum, er þau voru til um- ræðu í stjórninni. Að því leyti er hór um mjög alvar- lega synjun að ræða. í lýð- ræðisríkjum er tillöguflutn- ingi stjórnar og stjórnarand- stöðu gert jafn hátt undir höfði. Núverandi stjórnar- flokkar hafa tamið sér önn- ur vinnubrögð. Fulltrúar stjórnarandstöðu- flokkanna sátu hjá við at- kvæðagreiðslu um tillögu þá, sem endanlega var samþykkt. Það er eðlileg afstaða með hliðsjón af því, að málatil- búnaður allur ber þess merki, að hér er um innbyrðis átök stjórnarflokkanna að ræða. Það er hreinn skrípaleikur, þegar fulltrúar stjórnarflokk- anna í einni ríkisstofnuninni eru að samþykkja mótmæli gegn ákvörðunum fulltrúa stjórnarflokkanna í annarri ríkisstofnun, án þess að við- ræður fari áðar fram um ágreiningsefnið, Stjórnarand- stöðuflokkarnir geta að sjálf- sögðu ekki farið að blanda sér í slík átök, sem nú virðast vera daglegt brauð. Meginatriði málsins er það, að allir stjórnarmenn Fram- kvæmdastofnunarinnar voru sammála um, að þenslan í þjóðfélaginu væri of mikil og af þeim sökum væri rétt að draga úr opinberum fram- kvæmdum. Fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins hafa bent á, að þetta sjónarmið ætti við fleiri framkvæmdir en ein- vörðungu byggingu Seðla- bankahússins. Tíminn, málgagn Ólafs Jó- hannessonar, segir í gær, að samþykkt Framkvæmda- stofnunarinnar sé fyrst og fremst beint gegn Lúðvík Jósepssyni. Lúðvík Jóseps- son hefur á hinn bóginn lýst sig ábyrgðarlausan, en varp- að sökinni á fulltrúa Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, sem er formaður bankaráðs Seðlabankans. Þannig er nú háttað samkomulaginu á bænum þeim. FR AMKV ÆMD AST0FNUNIN GAGNRÝNIR LÚÐVÍK FYRIR SEÐL ABANK AB YGGIN GUNA Agnar Guðnafon: Aukin votheysverkun - bætt af koma Erfiðlega hefur gengið hér á landi að fá bændur til að auka votheysverkun. Á siðast liðnu ári voru um 8% af heild ar heyfengnum hirt í vothey. I þeirri sveit þar sem mest er verkað í vothey er það um 80% af heyfengnum, en þar sem minnst er hiart i vothey er það innan við 1%. Vest- firðir hafa skarað fram úr, og þá sérstaklega Stranda- sýsla, en i þeirrti sýslu eru tæp 60% af heyfengnum hirt í vothey. Ýmislegt hefur verið skrif- að um ágæti votheysins und- anfama árátugi, en því miður hafa einnig verið skrífaðar greinar og haldin erindi um hið gagnstæða, þar sem votheys- verkunin hefur verið for- dæmd. Þessi neikvæða afstaða til votheysverkunarinnar hef- ur valdið íslenzkum landbún- aði stórfetldu tjóni, með því að koma i veg fyrir eðliilega þróun í nútima heyverkun. Eðlileg þróun hefði verið sú, að að mainnsta kosti um helmingur heyfengs ætti á þessu ári að vera verkaður sem vothey. Stefna ber að því, að á næstu árum verði 75% af heyfóðrinu vothey, en með sömu afstöðu tii votheysins og ríkir hér á landi þá eru sáralitiar likur á, að votheys- verkun aukist nokkuð veru- lega á næstu árum. KOSTIR OG GALLAR VOTHEVSINS Lyktin: Lengi vel þótti lyktin svo slæm af votheyi, að menn þóttu varla húsum hæfir, nema þá heima hjá sér, sem gáfu vothey. Staðreyndin er sú, að iiila verkað vothey, lykt ar mifcið, en vel verkað vot- hey er næstum lyktarlaust, að eins súr-sæt lykt, sem ekki loðir við menn, þótt þeir taki upp tuggu. Hvanneyrarveiki: Óttin við votheysveiki hef- ur aftrað mörgum sauð- fjárbóndanum frá því að verka vothey, en með bættri verkun er litlu meiri hætta á, að sauðfé veikist af votheys- gjöf en öðru fóðri. Hjá bænd um í Strandasýslu eru nú til tölulega fátíð vanhöld, sem skrifast á kostnað votheysins. Þyngsli: Votheyið er þungt í meðför- um! Það er rétt, en við fóðrun á votheyi er auðvelt að koma við tækni, sem léttir verulega undir. Bygginga- og bútækni- ráðunautur Búnaðarfélags íslainds, leiðbeinir bændum á hvern hátt auðveldast sé að koma við tæknibúnaði í sam- band-i við fóðrun á votheyi. Því miður er enniþá alltof lítið tillit tekið til flutinings á votheyi úr geymslu á jötu, þegar votheysigeymsluturni eða gryfju er ákveðinn stað- ur. Það er sjálfsagður hlutur að miða staðsetningu votheys- geymislunmair víS það að auð- velit sé að gefa úr henmá. Votliey er ólystngt : Margir bændur halda þvi fram, að erfitt sé að fóðra á votheyi allan gjafartímann, því iy.sta rleysi fari að gera vart við sig, þegar kemur fram á. Þetta er eflaust rétt ef vot- heyiið hefur verkazt i'ila, t.d. úr sér sprottnir hafrar, hirtir rennblautir, verða ekki étn- ir af neinni skepnu með góðri lyst, og a’.gjörlega sniðgengn- ir ef völ er á öðru fóðri. Þar sem eingöngu er fóðrað á góðu votheyi og kjamfóðri hefur lystarleysis ekki orðið vart. Enda gæti það búskaparlag ekki gengið, sem svo viða er tekið upp í Noregi og Dan- mörku, að fóðrn nautgripi alt árið, jafnt vetur sem sumar eingöngu á votheyi og kjam- fóðri, ef það væri takmark- aður tírni, sem hægt væri að fóðra á því. Erfitt og seinlegt að hirða í vothey? Þessi kenning um erfiðan heyskap, stafar frá gamalli tíð, þegar öllu var mokað með kvísl, troðið í gryfjurnar með Víða erlendis er vothey verkað í stórum stálturnum. Það krefst mikils tæknibúnaðar. f góðum flatgryfjum getur vot- lieysverkun tekizt ágætlega, og þurrefnistup ekki miklu meira en í stálturnunum, en kostar mun minna. (Ljósm. A. G.) likamsþunganum og síðan sett á grjótfarg með miklum erfið ismunum. Með tilkomu sláttu- tætara hefur heyskapurinn orðið auðveldur, ennfremur eru heyhleðsluvagnar afka-sta miki.l tæki, en galli er á, að Framh. á bls. 21 Dr. Þorsteinn Sæmundsson, stjarnfræðingur: Góðum málstað hæfa aðeins góðar baráttuaðferðir EINS og kunnugt er, fylgir Morgunblaðið þeirri meginreglu að birta ekki í heild efni, sem flutt hefur verið í ríkisútvarp- inu, og þá sízt erindi, sem flutt hafa verið í þættinum um dag- inn og veginn. Að þessu sinni er þó brugðið frá þessari reglu og birt erindi það, sem Þorsteinn Sæmunds- son, stjarnfræðingur, flutti í þættinum um daginn og veginn 9. júlí s.I. Þar sem erindið hef- ur verið freklega rangfært og misfarið með efni þess, telur Morgunblaðið ástæðu til að les- endum gefist kostur á að kynna sér það í heild. Enda álítiir Morg unblaðið, að þær skoðanir, sem fram koma í erindinu, séu um margt hinar athyglisverðustu. Fyrirsögn og millifyrirsagnir eru blaðsins. Ritstj. WATERGATEMÁLH) ÞAÐ mál sem hæst hefur borið í eiíendum fréttum undanfarið, er hneykslismál það í Bandarikj- unum, sem kennt er við Water- gate. Þótt mál þetta snerti okk- ur Isiendmga ekki heint, og við séum aðeins áhorfendur að því sjónarspili, sem þarrna fer fram, getur það vissulega verið okkur tilefni til nokkurrar íhugunar. Rannsókn Watergatemálsins er ekki lokið og því of snemmt að fullyrða, að hve miklu leyti sjálfur forseti Bandaríkjanna er flæktur í hneykslið. En hver sem niðurstaðan verður um það atr- iði, hefur Watergatemálið fært okkur enn eina sönnun þess, hve mikíl nauðsyn það er að standa vörð um grundvallarhugsjónir lýðræðisins og berjast gegn spillingu og misbeitingu valds, jafnvel í grónum lýðræðisríkj- um. Þáttur bandarískra dagblaða í því að fletta ofan af Water- gatehneykslinu er lofsverður og mjög til fyrirmyndar. Þótt málið í heild sé þungur álitshnekkír fyrir bandaxisk stjórnvöld, ber það um leið vott um styrk bandarísks stjómmála- kerfis, því að það sannar, að jafnvel valdamestu menn kerfis- ins geta hvenær sem er átt von á því að verða að standa skil gerða sinna gagnvart almenningi og hiutlausum dómstólum. 1 þessu er fólgin mikil trygging, sem nauðsynleg er' hverju þjóð- félagi, sem villl varðveitr raun-. verulegt lýðræði. Mál eins og Watergatemálið gæti aldrei kom ið upp í ríkjum þar sem prent- frelsi og annað tjáningarfrelsi skortir. Að visu ber það við i siíkum ríkjum, að ráðamönnum er rutt úr vegi og alþýða manna fær þá að heyra ýmsar sögur af vaidníðsíiu þei)rra og spflliingu, en himiir nýju valdhafar eruvenju lega jafn óhultir fyrir gagmrýni og fyrirrennarar þeirra voru, meðan þeir höfðu völdin. Hættan á spiMingu og misbeit- ingu valdsins er hvað mest í þeim ríkjum, þar sem allt vald er á eiinni hendi, stjórnvald, dómsvald og fjármálavald. Eins og brezki sagnfræðingurinn Ac- ton komst að orði: „Vald leiðlr gjarnan til spiEingar, og algjört vald leiðir til algjörrar spiliing- ar.“ Þessi sannieikur vLH oft gleymast þeim mönrmm, sem berjast fyrir meira miðstjórnar valdi til þess að geta ráðið bót á meinum þjóðfélagsins. Sé með- aiið of sterkt, grtur lækningin reynzt hættulegri en meinsemd- in, sem útrýma skal. AÐHALD DAGBLAÐA Fréttir af WatergatemáMnu !eiða hugann að því, hvar við ís- lendingar séum á vegi staddir um aðhald í opinberri stjóm- sýslu. Því miður held ég, að miik- ið skorti á, að við séum nægi- lega vel vakandi í þeim efnum. Jafnvel almælt hneykslismál, sem' snerta opinbera embættis- menn og embættisrekstur, kom- ast varta í fréttadáJka dagblaða, og þó að þau geri það endrum og eíns, er málunum sjaldnast fylgt eftir af neinmd hörku. Sum- ir vilja skýra þetta þannig, að bönd kunrtingsskapar og frænd- semi ráði meiru hér í fámenninu en títt er með stærri þjóðum, og verði til þess að menn sleppi fremur við hegningu. Einniig hef ég heyrt þá skýringu, að islenzk dagblöð séu yfirleitt svo nátengd stjómmálaflokkunum, að hend- ur blaðamanna séu að miklu leyti bundnar. Þeir megi ekki ráðast á samherja blaðs síns i stjórnmálum, og ef þeir saki and- stæðinga um misferlli, verði litið svo á, að það sé gert í pólitisk- um tilgangi. Fleiri atriði koma að sjálfsögðu tii greina, svo sem ótti við hugsanlegar hefndarað- gerðir gegn pólitískum aðstand- endum blaðsins. Hvort sem þetta eru meginástæðumar fyrir lin- kind dagblaðanna eða ekki, er ég viss um, að það yrði til mik- 1 illa bóta, ef íslenzk dagblöð gætu orðið óháðari stjórnmálaflokkun- um en nú er. Hugmyndin uim öfl- ugt ísienzkt dagblað, óháð stjórn máiaflokkum, er ekki ný, en því miður virðast vera takmörkuð skilyrði fyrir útgáfu slíks blaðs hér á landi. Að óbreyttum að- stæðum virðist mér full þörf á að hvetja ísienzka bl-aðamenn tii að halda vöku sinni og veita það aðhald, sem dagblöðin ein geta veitt í opinberri stjórn- sýslu. SKOÐANAFRELSI Ekkert mál hefur tekið meira rúm í fréttum hérlendis að und- anförnu en iandhelgiismáMð. Er það að vonum, þar sem um mik- ið hagsmuniamál er að ræða fyr- ir aila landsmenn. Flest bendir nú tid þess, að úrslit iandhelgis- deilunnar munii verða íslending- um í vil, og að þau málalök geti ekki veri'ð mjög langt undan. Mun það verða 1 andsimönmiurm miki'ð fagniaðarefnii, þegar þeim áfan.ga er náð. Ég tel víst, að flestir af ekki allir íslendingar, sem komnir eru til vits og ára, hafi frá upp- hafí fylgzt með framvindu land- hel-gismálsins og óskað þess, að úrslitin yrðu þjóðinni hagitæð. Þar hafa tvinnazt saman eigin- hagsmunarsjónarmið og þjóðern istilfinning, en þessa tvo þætti getur verið erfitt að greina í sundur á stundum. Eðliílegt var, að landsmenn væru frá önd- verðu nokkurn veginn sammála um endanlegt markmið í land- helgismálinu. Hins vegar var ekki hægt að ætlast til, að þeir yrðu jafn sammála iirn, hver væri bezta leiðin að hinu setta marki. Þar var eðlilegt, að skoð- anir yrðu skiptar, ekki síður í þessu málii en öðrum. Krafan um órofa samstöðu iandsmanna, ekki aðeins um markmið heíd- ur einnig um leiðir í þessu máli, krafa, sem sett var fram af fuld- komiinni óbilgiirni, var að mínu viti bæði heimskuleg og skaðleg. Hún leiddi fljótlega til þess, að frjáls skoðanaskipti i málinu urðu illmöguleg; skoðanir, sem féMu ekki alveg að hinni opin- beru línu, voru úthrópaðar þeg- ar í stað og taldar jafnast á við landráð. Með þessum orðum er ég ekkii að deila á neinn sérstak an sitjórnmálaflokk öðrum frem ur, því að ég tel, að þeir beri hér allir nokkra sök. Hinn einhMða og stóryrti mál- flutninigur, sem dunið hefur í eyr um íslendinga í sambandi við landhelgi'smálið, hefur haft þau áhrif að æsa upp tdl ofstækis jafnvel gæfustu og grandvörustu menn. Fjöldinn aMur af mörnn- um talar nú eins og hann sé sannfærður um, að máistaður Is- lands sé heilagur, og allar að- gerðir hijóti að réttlætaist af því, en málstaður andstæðinganna hinn fyrirlitlegasti og þeir nán- ast ótíndiir giæpamenn, sem skömm og svívirða sé að semja við. I augum þessara manna er landheigisgæzlan orðin að eisris koniar krossfara'ligli, sem engutn Hðst að gagnrýna; talsmenn gæzlunnar eru áiitnár óskeikuMr í túlkun sinni á atburðum, og mönnum er jafnvel ráðlagt að hlusta ekki á frásagni'r gagnað- Ma. Dæmi er um það, að orð manna hafi verið vegin og met- in eftir þvi, hve mikið þeir hafi iagt í landhelgiissjóð, sem stofn- aður var í þeim tilgangi að þjappa landsmönnum saman um málstaðinn. öfgarnar ganga svo langt, að iesendur skrifa dagblöðum og heimta, að lokað sé fyrir brezkt sjónvarpsefni, en aðrír kvarta yfir þvi, fullir vand- lætingar, að hljómurinn í klukk- um HaMigrímskirkju sé óþjóðleg- ur og minni á sjálfan erkióvin- inn, Jón bota. Því miður eru þessi viðbrögð manna ekki öll þess eðlis, að hægt sé að henda gaman að þeim. Nægir þar að minna á að- súginn að brezka sendiráðinu og þau skemmdarverk, sem þar voru unnin. Ég vona, að flestir hugsandi menn geti verið mér sammála um, að ofstæki af þvi tagi, sem ég hef nú lýst, sé Is- lendingum einungis til vansæmd ar. Vissulega eigum við að halda á málstað okkar með festu, en okkur ber jafnframt að gæta fyllsta heiðarleika 1 málflutn- ingi og forðast ábyrgðarlausar aðgerðir og óþörf stóryrði. SAMNINGSROFIÐ Góðum málstað hæfa aðeins góðar baráttuaðferðir, en það er skoðun mín, að baráttuaðferðir íslendinga í landheigisdeMunni hafi i ýmsum atriðum verið á- mæliisverðar og til þess f'allnar að sikaða málstaðinn og álit þjóð- arinnar út á við. Fyrstu mistökin voru að mín- um dómi þau, að Islenddnigar skyidu ganga á gerðan samning við Breta um að skjóta iand- helgisdeilunni til Alþjóðadóm- stölsins 1 Haag. Um þetta sagði svo í samningi Breta og Islend- inga frá 1961: „Ríkisstjórn Is- lands mun halda áfram að vinna að framkvæmd áætiunar Alþing- is frá 5. mai 1959 varðandi út- færsiu fiiskveiðilögsögunnar við Island, en mun tiikynna rlkis- stjórn Bretlands slíka útfærslu með sex mánaða fyrirvara, og rísi ágreininguir um sMka út- færslu, skal honum, ef annar hvor aðiíli óskar, skotið ti’l Al- þjóðadómstólsins.“ Tilvitnun lok- ið. Rétt er að undirstrilka, að sa’mningurinn fól ekkl i sér, að Islendingar þyrftu að bíða með útfærslu þar til samþykki Al- þjóðadómstólsins væri fengið, en þeir skuidbundu sig til þeos að Þorsteinn Sænmndsson. bera útfærsluna undir dómstól- inn, væri þess óskað. Þetta heít var ekki efnt, og gengum við Is- lendingar þannig á bak orða okk ar. Ég segi „við lsiendinigar“, þvi að állir erum við á vissan hátt þátttakendur í gerðum hverrar réttkjörinnar ríkisstjórn ar, ekki sízt í samskiptum henn- ar við önnur ríki. Samningsrofið færði Bretum vopn i hendur. Það gaf átyliu til að ætla, að við tryðum ekki nægi- lega á málstað okkar til að verja hann fyrir dómstóM; það lýsti virðingarieysi okkar á Alþjóða- dómstólnum og Sameinuðu þjóð- unum og hlaut að rýra filiit okk- ar I augum þeirra manna, sem einhvers mátu orðheldni og gerða sammnga. Hvað sem land- helgismálinu liður, er það alvöru- mál fyrir smáþjóð eins og Is- lendinga, ef hún ætlar að litite- virða samninga við önnur riki. Með þvi fyrirgerir hún rétti sín- um til gagnrýni, ef aðrar þjóðir ætla að brjóta samninga á henni. Og Islendingar munu áreiðan- lega þurfa á þvi að halda í fram- tíðinnii að geta treyst á samn- inga, sem þeir gera við önnur ríki. Sú röksemd, að við höfum ekki verið bundn.r af samningn- um frá 1961, af því að þetta hafi verið nauðungarsamni.ngur, fær engian veginn staðizt. Þeir for- ráðamenn, sem samninginn gerðu fyrir okkar hönd, voru annarrar skoðunar. Bjarni Benedi'ktsson, þáverandi ráðherra og síðar for- sætisráðherra, komst svo að orði árið 1970, níu árum eftdr undirritun samniingsinis, að samn ingurinn 1961 væri eimhver stærsti stjómmálasigur, sem Is- lendingar hefðu fyrr og síðar unnið. Nauðungarsamningur var þetta ekkd. íslendingar voru í sókn í máiinu, en Bretar í vörn, þrátt fyrir öll herskipin, sem þeir gfitu teflt fram. Jafnvel þótt svo hefði ekki veríð, og við hefðum verið í lakari aðstöðu, hefði það eitt ekki nægt tM að ómerkja samminginn. Það er sjaldnast, að aðiiar standi jafnt að vígi á aM- an hátt, þegar gengið er til samn- inga. Það gerir þetta mál enn verra, að erfitt er að sjá nokkra skyn- samlega ástæðu fyrir þvi að brjóta umræddan samnimg. Að- staða Is'lendinga gat á engan hátt versnað við að leggja mál- ið undir úrskurð Alþjóðadóm- stólsins, eins og sarmið hafði ver- ið um. Samnimgsrofið kemur ekki í veg fyrir, að dómstóllinn fjalld um málið og kveði upp sinn úrskurð. En með afstöðu sinni hafa íslendingar lýst van- trausti á eigin málstað og van- trausti á Alþjóðadómstólinn, eins og áður var sagt. Ég er þeirrar skoðunar, og styðst þar meðal annars við álit brezkra aðila, að íslendingar hefðu að öll- um líkindum unnið mál sitt fyr- ir dómstólnum í Haag, ef þeir hefðu vaiið þann kostinn að flytja máMð þar. En ef svo ólik- lega hefði farið, að við hefðum tapað málinu, og úrskurðurinn hefði orðið okkur svo óhagstæð- ur, að forvígismenn þjóðarinnar hefðu talið útilokað að hlíta hon- um, stæðum við þó ekki verr en við gerum nú. Við hefðum að minnsta kosti sýnt vilja okkar til að standa við gerða samnimga, og sýnt, að við bærum fyrir- fram traust til Alþjóðadómstóls- inis, í stað þess að hafna úrskurði hans að óreyndu. IÍÖKSEMDIR FYRIR ÚTFÆRSLUNNI Ég sagði áðan, að samnings- brotið hefði verið fyrstu mis- tökin af okkar hálfu í landhelg- ismálinu. Önnur mistökin voru þau, að röksemdir Islendinga fyrir útfærslu landhelginnar skyldu ekki vera settar fram á nægilega sanmfæramdi hátt. Rök- semdirnar eru í eðii sínu tvær. Önnur höfðar til réttar hvers rikis tii að nýta fisikimið útii fyr- ir ströndum slnum. 1 þvi sam- bandi er auðvelt að vísa til þró- unar annars staðar í heiminum, bæði hvað snertir fitekveiðilög- sögu og nýtingu auðlinda á hafs- botni. Slík rök hafa verið sett fram á fuilnægjandi hátt af ís- lands hálfu, að ég hygg. GaMinn er bara sá, að þeim má mæta með öðrum rökum, sem visa til hefðar í fiskveiðum og nauð synjar þjóða tll að nýta fjarlæg fiskimiið tM að fullnægja þörfum þegna sinma. Okkur kann ti'l dæmis að þykja ósanngjamt, að Sovétrikin Skuli senda stórflota tU veiða á fjariæg fiskimið. En skyldi þegnum Sovétríkjanna ekki þykja það jafn ósanngjamt, ef allt í ein>u ætti að fara að banna þeim að afla fæðu á þenn- an hátt? Afstaða Sovétríkjanna til útfærslu landheiginnar talar sínu máii um þetta. Á slíkum hagsmunaágreiningi verður eng- in iausn fundin með einfaldri tilvitnun i lýðræði eða réttlæti. Ef úrskurðurinn ætti að fara eftiir höfðatöiu eða þörf að- iila fyrir betri lífskjör, stæðum við Islendingar sennilega höil- um fæti. Þá er komið að hinrm röksemd- inni fyrir útfærslu iandheiginn- ar, en það er sú röksemd, sem vitnar tM nauðsynjar á verndun fiskistofnanna. Þetta er sú rök- semd, sem hlýtur að vera sterk- ust frá alþjóðlegu sjónarmiði, og henni verður ekki i móti mælt. Það hlýtur að vera í þágu alira þjóða, bæði Islendinga og ann- arra, að fiiskiistofnaimir vilð land- ið séu vemdaðir sem bezt má verða. Og engum dytet, að því máli hlýtur að vera bezt borgið í höndum Islendinga sjálfra, af því að þeir eiga aila afkomu sína undir ftekveiðunum. Þess vegna hefðu Islendingar, um leið og þeir færðu út landheigina, átt að setja fram fastmótaðar áætlanir um, hveraig þeir ætl- uðu að vernda fiskimiðin, hvaða takmarkanir þeir ætluðu að gera á ei’giin afla á næstu árum, o.s. frv. Þetta var ekki gert, og í samniingaviðræðum við Breta hafa íslendingar aldrei viljað ræða neinar takmarkanir á eig- in afla. Þvert á móti var gert heyrinkunnugt, að Islendingar væru að semja um smíði 40 nýrra togara. Niiðurstaða hinna erlendu viðmælenda okkar hlaut að verða sú, að verndunartalið væri markleysa, og að Isiend- ingar sæktust aðeins eftir stærri sneið af þeirri köku, er til skipt- anna væri. Þessi veila í málflutn- imgi Islendimga er mjög alvar- ieg. Og það bætir ekki úr skák, að það skuli fréttast, að islenzk yfirvöld gangi nú í berhögg við ráðleggingar íslenzkra fi&kifræð- inga, þegar leyfi eru veitt tii veiða innan gömiu landhelgimn- ar. En þrátt fyrir það, hvernig á þessum málum hefur verið hald- ið af okkar hálfu, hefur málstað- ur íslendinga fengið furðu góð- Framh. á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.