Morgunblaðið - 01.09.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.09.1973, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1973 22*0-22* RAUOARÁRSTÍG 31 BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGARTÚM 29 BÍLALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 STAKSTEINAR Er Ólafur að missa tökin á Framsóknar- flokknum? Árásir Sambands ungra framsóknarmanna í Timan um í gær á formann Fram- sóknarflokksins or Kristin Finnbogason framkvæmda- stjóra Timans, eru einhverj- ar þær ofsafengnustu, sem nm getur hér á landi. Verður ekki séð annað en SUF hafi skorið upp herör gegn for- manni flokksins og ætli nú að láta sverfa til stáls. Er athygl isvert, að árásir þessar hefj- ast nú, skömmu eftir að Möðruvallahreyfingin var stofnuð. Kristinn Finnboga- son mun ekki hafa verið í Reykjavík undanfarna daga, og því hafa ungir framsóknar mann séð sér leik á borði að lauma árásargreininni í Tím ann enda eru ritstjórar blaðs ins að verða undirtyllur, sem fylgjast iítt með daglegum störfum blaðsins og hafa þar lítil áhrif, enda er það að mestu textaauglýsingar fram- kva-mdastjórans og þýddir langhundar. Átökin i Framsóknarflokkn um eru nú komin á svo alvar legt stig, að eðlilegt er að menn velti því fyrir sér, hvort Ólafur Jóhannesson sé að missa öll tök á flokknum. Það gefur glögga hugmynd um stöðu hans meðal yngri manna, að þeir skuli segja um hann: „Formaður flokksins hafði forystu um það ásamt Kristni Finnbogasyni um ó- lýðræðislegustu vinnubrögð, sem um getur í flokksstarfi Framsóknarflokksins.“ I»á er eftirtektarvert, að fram- kvæmdastjóri Tímans fær þessa einkunn: „Peningavald- ið lætur sér ekkert fyrir brjósti brenna og svívirðir griindvallarreglur lýðræðis- legs flokksstarfs." Þeir Kristinn og Óiafur sameina þannig i huga ungra framsóknarmanna tvo höfuð- ókosti stjórnmálaforingja. Mis beitingu peningavalds Og ást á ólýðræðislegum vinnu- brögðum. Þessar yfirlýsingar hljóta að verða til þess, að senn fari fram uppgjör í Framsóknarflokknum um á- greininginn. * Verður Olafur Ragnar rekinn? Fyrirgangur Ólafs Ragnars hefur vakið reiði margra af frumkvöðlum Framsóknar- flokksins. Telja þessir menn kominn tima til þess fyrir löngit að setja raekilega ofan i við hinn pastursmikla prófess or og benda honum á að í Franisóknarflokknunri verði ekki þessi vinnubrögð liðin ölhi lengur. Hitt er annað mál, hvort þeir hafi til þess afl, eins og málum er komið. Talsmenn þessa hóps benda á, að Ólafur Ragnar hafi fyr ir jól í fyrra staðið í samn- ingamakki með Birni Jóns- syni um að mynda ríkisstjórn, ef stjórn Ólafs Jóhannessonar hrykki frá völdum. Þá hafi að visu tekizt svo til, að stjórnar samstarfið rofnaði ekki, en Ó1 afur Ragnar hafi samt sem áður ekki slitið sambandi við Björn Jónsson, heldur unnið með honum að stofnun nýrra flokksbrota, sem gætu fleytt báðum á þing. Talsmennirnir segja ennfremur, að Samband ungra framsóknarmanna hafi ekkert gert annað síðustu fjögur ár, en berjast gegn for ystu flokksins og stefnu hans. Sambandið hafi hvað eftir annað ráðizt á ódrengilegan hátt að forystuhópi flokksins og ekki sé grunlaust um, að ýmsir af leiðtogum þess, hafi kosið aðra flokka i síðustu kosningum. _ Allt virðist nú benda til þess að komið sé að skuida- dögunum. Ekki er hægt á þessu stigi að spá nOkkru um það sem gerist, til þess eru valdahlutföllin of óljós. En vel geta spilin stokkazt þannig, að innan tíðar fái Ólafur Ragnar sömu meðferð og Jón í Stóradal og Hannes Jóns- son alþm. Þeir eru nefnilega orðnir margir framsóknar- mennirnir, sem vilja helzt af öllu reka Ólaf Ragnar og fylg ismenn hans fyrir fullt og allt úr Framsóknarfokknum. ►VEKHOIT 15ATEI. 25780 AVIS SIMI 24460 c- BILALEIGAN 51EYSIR CAR RENTAL BlLALEIGA JÓNASAR & KARLS Ármúla 28 —■ Sími 81315 ' HVAD UNGUR EVUR GAMALL. TEMUR ^ SAMVIMNUBANKINN FEREABlLAR HF. Bílaleiga. - Sími 81260. Tveggja manna Citroer. Mehari. F mm manna Citroen G.S. 8—22 manna Mercedes Benz hópferðabílar (m. bilstjórum). . SKODA EYÐIR MINNA. Shodh LEIGAN ^AUÐBREKKU 44-46. SfMI 42600. Islondsmdtið I. deild í dag kl. 14 leika á Njarðvíkurvelli ÍBV - Breiðablik Blikarnir berjast fyrir veru sinni í deildinni. Komið og sjáið spennandi leik. I.B.V. Grensássókn Guðsþjónusta verður í Safnaðarheímili Grensás- sóknar sunnudaginn 2. sept. n.k. kl. 11.00 f. h. Sr. Páll Pálsson, umsækjandi um prestsembætti safnaðarins messar. Útvarpað verður frá athöfninni á miðbylgju 1412 K.H.Z. 212 metrar. SÓKNAKNEFNDIN. ÍSLENZK FBÍMEBKI KARM fiskidœlur Höfum til afgreiðslu með stuttum fyrirvara frá verk- smiðju í Noregi, KARM fiskídælur í stærðunum 8—14 tommur. KARM fiskidæiur frá Karmöy Mek. Verksted hafa undanfarin ár verið settar í fleiri norska og fær- eyska fiskibáta, en dælur frá öðrum framleiðendum, samanlagt. Verð KARM fiskidæla er sérlega hagstætt. Leitið upplýsinga hjá okkur. VÉLASALAN HF., Garðastræti 6, símar 15401, 16341. Fjölbreytt úrvai íslenzkra frímerkja: Skildingafrímerki Aurafrímerki Kóngafrímerki Hópflug ítala, ónotað og stimplað á afklippu ísland komplett 1944—1972 í albúmi ög ótrú- lega margt annað. Við erum með söludeild á frímerkjasýningunni ISLANDIA ’73, sem er opin alla daga til sunnu- dags 9. september kl. 14 til 22. FRIMERKJAMIÐSTOÐIN, Skóiavörðustíg 21a, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.