Morgunblaðið - 01.09.1973, Page 14
' 14r
iviUKUUi'muAjJiU — lAOUAKOAULU 1. SBPTEMBER 1973
Mikil aukning í
málningarsölu
— fólk tekur meira eftir ný-
máluðu húsunum en áður
MÁLINGARSALA hefur verið
prýðileg á þessu sumri, og hef-
ur verið auikning í sölu, hjá okk-
<ur þrátt fyrir tilkomu fleiri
málningarverksmiðja í líundinu,
sagði Ragnar Þór Magnús, fram-
kvæmda.stjóri hjá Málningu hf.,
er við ræddum við hann í gær.
Hann sagði, að óvenjumiikið
væri urn útimálun, og að sjálf-
sögðu hefðu málningarverk-
smiðjurnar notið góðs af þess-
ari málningargleði fól'ksins. Þó
svo að mikið væri málað í
Reyikjavík og næsta nágrenni, þá
virtist meira vera málað úti á
landi, allavega benti salan hjá
þeim til þess. Fólk virtist ætla
að haía hýbýli sín í sem beztu
ásigkomulagi á 1100 ára afmæJi
íslands byggðar.
— Hinu er svo etoki að neita
sagði Ragnar, að fólk telkur nú
mikið betur eftir nýmáliuðu hús-
unum en áður, því nú eru Is-
lendingar loksins famir að mála
í skemmtilegum og fjölbreyttum
iitum.
Hjúkrunarnemi og kennuri
Óska eftir 2ja—3ja herb. íbúð til leigu frá og með
1. okt., eða fyrr. Barnlaus og reglusöm. Fyrir-
framgreiðsla. Sími 35061.
Viöurkenning Fegrunarnefndar Reykjavíkur:
Kastalinn
Tízkuverzlunin Kastalinn við Bergstaðastræti 4 fékk við urkenningu fyrir snyrtilega
lóð og umgengni og skemmt ilega tilraun tii að gera gam alt umhverfi að nýtízkulegu.
Ljósm. Mbl. Kr. Ben.
Heildverzlun
sem hefur viðskiptasamband um allt land, vill
kaupa íslenzkar framleiðsluvörur.
Tilboð merkt: „Innlend framleiðsla — 4540“ legg-
ist inn á afgr. Mbl. fyrir 10. september.
Burnobúðin Aðnlstræti 3
Auglýsir
Vegna flutnings búðarinnar úr Aðai-
stræti 3 í Aðalstræti 16, verður rýming-
arsala á ýmsum smábarnafatnaði næstu
viku. Afsláttur á ýmsum vörutegundum.
Póstsendum um allt land.
Bnrnnbúðin Aðnlstræti 3
Vísindnstyrkir
Atlantshaisbnndalngsins
Atlantshafsbandalagið leggur árlega fé af mörkum til að styrkja
unga visindamenn til rannsóknastarfa eða framhaldsnáms er-
lendis. Fjárhæð sú, er á þessu ári hefur komið í hlut islendinga
í framangreindu skyni, nemur um 800 þúsund krónum, og mun
henni verða varið til að styrkja menn, er lokið hafa kandídats-
prófi í einhverri grein raunvísinda, til framhaldsnáms eða rann-
sókna við erlendar vísindastofnanir, einkum í aðildarrikjum
Atlantshafsbandalagsins.
Umsóknum um styrki af þessu fé — „NATO Science Fellow-
ships" — skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfis-
götu 6, Reykjavík, fyrir 22. september nk. Fylgja skulu staðfest
afrit próskírteina, svo og upplýsingar um starfsferil. Þá skal
og tekið fram, hvers konar framhaldsnám eða rannsóknir um-
sækjandi ætlar að stunda, við hvaða stofnanir hann hyggst
dveljast, svo og greina ráðgerðan dvalartíma. — Umsóknar-
eyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
30. ágúst 1973.
Námskeið í
hópkennslu
Rætt vid Arne Sjölund
„ÉG ER ákaflega ánægður með
þetta námskeið. Þátttakendurnir
komu með alveg rétta tilfinn-
ingu fyrir hópvinnu, og verkefni
mitt var að mestu að gera þá tii
finningu að hnitmiðuðum vinnu-
brögðuni." Þetta sagði Ame Sjö-
lund, danskur sálfrasðingur sem
í síðustu viku hélt hér sex daga
námskeið í hópvinnu og hópsál-
fræði fyrir íslenzka kennara á
vegum Fræðsluskrifstofu Reykja
víkur og Kennaraháskóla fslands.
Sjölund sagði í stuttu viðtadi
við Morgunblaðið, að námskeið-
inu væri einkum ætlað að leið-
beina um eðli hópkennslu og
hvernig henni væri bezt háttað,
en siík kennsla verður nú æ út-
Frú Húsmæðrnskóln
Reykjnvíknr
Kvöldnámskeið í matreiðslu hefjast 1. október. Inn-
ritun í dag 1. september frá kl. 9—14. Sími 11578.
SKÓLAST J ÓRI.
Óskum nð tnkn ú leigu
2ja herbergja íbúð frá og með 1. september eða
sem fyrst. Fyrirframgreiðsla ef óskað er. —
Sími 37737.
Múiakaffi.
Arne Sjölund.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.)
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar að Grens-
ásvegi 9. þriðjudaginn 4, september kl. 12—3. Til-
boðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
Sala varnarliðseigna.
breiddari, — hver væri hæfileg
hópstærð, hvemig hlutverk
kennarans breytist frá því að
vera einráður í að vera leiðbein-
andi, hvernig hópur verði bezt
gerður að virkri vinnuheild, án
þess þó að einstaklimgar fái ekki
að njóta sín o.s.frv. „Það er ekki
unnt að lesa sér til um hvernig
menn eiga að vinna saman. Það
lærist með æfingu," sagði Sjö-
iund.
En auk þess þarf kennari að
vera allvei að sér í svokallaðri
hópsálarfræði, og var hún annað
aðalviðfangsefni námskeiðsins.
Þau fræði byggja á þvi, að við-
brögð einstaklinga eru breytileg
eftir því í hvers konar hópi þeir
eru, að þvi er Sjölund sagði okk
ur.
Hann sagði að meðal helztu
kosta hópkennslu væri að hún
verkaði hvetjandi á nemendurna,
gerði þá virkari og um leið á-
hugasamari, og kennsluna meira
lifandi og fjölbreyttari, auk þess
sem samvinna af öllu tagi sé
áð verða æ stærri þáttur þjóð-
féiagsstarfsemi núímans. Og
samvinna felur i sér viðurkenn-
ingu á manni-num bæði sem fé-
lagsveru og sjálfstæðum ein-
stakling.
Arne Sjölund sagði, að slík
hópkennsla ryddi sér nú tii æ
meira ti-1 rúms, og á flestum
stigum náms. Kennararnir sem
sóttu þetta námskeið nú voru
þannig bæði úr gagnfræða- og
barnaskólum. Og hann tók sem
dæmi, að í háskólanum í Hróars-
keldu í Danmörku færi svo til
öll kennsla fram i hópum nú
orðið; gamla fyrirlestraformið
væri að mestu aflagt. Sjölund
sagði að hópkennsla ætti vel við
svo til allar námsgreinar.
Þátttakendur i þessu nám-
skeiði voru 24, og var það annað
námskeiðið sem Arne Sjölund
hefur haldið hér, hið fyrra var
á síðasta ári. 1 þetta sinn bauð
hann vinnu sína fram að kostn-
aðarlausu sem framlag vegna
erfiðleika Islendinga eftir gosið
í Vestmannaeyjum. Sjölund er
mjög þekktur sálfræðiingur á
Norðurlöndum, hefur m.a. skrif-
að kennslubók í hópsálfræði sem
komið hefur út í 10 upplögum í
heimalandi hans, og einnig verið
þýdd á norsku, sænsku og þýzku.
Hann starfar nú sjálfstætt, og
hefur haldið námskéið af þessu
tagi víða. Þetta námskeið var
þjálfunarnámskeið, og er ætlun
in að þeir kennarar sem þátt
tóku, geti haldið svipuð nám-
skeið fyrir starfsbræður slna
eftirleiðis.