Morgunblaðið - 01.09.1973, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1973
SAI BAI N Anne Piper: I Snemma í háttrinn
pins og er, sagði ég. — Svo að
ef yður er alvara að fjölga
.starfsfólki, þá...
Nú ljómuðu augun í honum i
fyrsta sínn.
— En sú heppni! sagði hann.
Þ*ví var það, að á hverjum
morgni klukkan tíu, fórum við
Jósep ásamt Flynh, til þess að
vera komin i skrifstofuna klukk
an hálfellefu, sem var þægileg-
ur timi.
Ég var sett yfir kjöltuhunda-
deildina og gaf ráðleggingar um
beizli og kápur og tízkuklipp-
ingu. Og vitanlega leysti ég úr
öllum vandamálum sem til mán
var vísað.
Gerald lét mig fá borð við
gluggann í skrifstofunni sinni,
af því að hann sagðist þurfa að
hafa mig við höndina, til að
spyrja mig ráða. Svo að ég fékk
tækifæri til að kynnast milli-
liðalaust öllum þessum skrýti-
um, sem sagðar eru um forstjór-
ann og einkaritarann.
Innan hálfs mánaðar var ég
farin að sitja á hnénu á honum
og gæla við yfirskeggið á honum.
— Gerald minn, hvemig í dauð
anum, ferðu að því, að halda
þessu biaði gangandi? Það vdrð
ist ekki hafa mikla útbreiðslu.
— O, ég hef það bara mér til
gamans, sagði hann. Það lækkar
heldur stóreignaskattiínn.
Og meira þurfti ég ekki að
vita.
Eftir mánuð bað hann min
og ég eignaðist enn einn heljar-
stóran trúlofunar-demantshring.
Ég var nú ekkert yfir mig
fegin tilhugsuninni um að eiga
að eyða ævinni við hlið Geralds,
en alltaf var það þó skárra en
matvörubúðin.
Hann smeygði á mig hringnum
í skrifstofunni og ég flýtti mér
til Jacks, til að sýna honum hann.
14. kafli.
Síðasta brúðkaupið.
Þá erum við kominn að degin
um i dag. Ég tók til við að skrifa
þetta niður, til þess að hafa af
fyrir mér alla þessa tilbreytinga-
lausu daga eftir fjórðu giftinguna
mína. Við erum búin að leigja
húsið hans Jaspars í Aix, i sex
mánuði. Hann hafði verið að gera
einhverjar tilraunir til að sætt-
ast við Jósep, og úr því varð
það, að hann fékk Jósep til að
fara til Frakklands og leigja hús
ið út. Við tókum svo húsið á
leigu, en Jósep var afskaptega
merkilegur í sambandi við þessa
sætt, og sagðist ekkert trúa á
hana fyrr en hann sæi Jaspar
alskapaðan. En annars er hann
mjög ánægður með starfið sitt
og ekkert á þeim buxunum að
fara aftur í þrældóminn i Holly
wood.
Því sit ég nú hérna á skugga
sælum garðhjallanum, undir kast
aníutrénu, með glas af vondu
bleki og andstyggilegan pósthús
penna, og reyni að skrifa ævi
söguna mína eftir föngum. Eins
og ég sagði í upphafi, er það
sannarlega skrýtið, hvernig atvik
in geta hagað sér. Sannarlega
ætlaði ég aldrei að giftast fjórum
sinnum, en eftir á að hyggja, fæ
ég ekki séð, hvernig ég hefði
getað sloppið við það.
Jack fer út að teikna eftir
morgunverð, með nesti í körfu
og flösku af víni, og kemur ekki
aftur fyrr en i kvöldmatinn,
svo að ég hef nægan tíma til
umráða.
— Elskan, sagði ég við hann
einn morgun. — Ég skil ekki,
hvað þú vilt með að eyða svona
mikilli vinnu í þetta fjall þarna.
Það hefur verið málað áður
og selzt aldrei.
— Elsku konan mín, sagði
hann. — Þú verður að hafa hem-
il á þessari ómerkilegu peninga-
sýki þinni. Nú er ég orðinn ný-
tizkumálari, og vil reyna að
í þýóingu
Páls Skúlasonar.
skilja Cézanne. Og mér er alveg
sama, hvort nokkur kaupir það,
sem út úr þesisu kemur.
En þær eru nú annars yndis-
legar þessar myndir sem eru að
smá safnast upp á vegginn í
svefnherberginu hans Jaspars,
og nú er Jack orðinn svo fræg-
ur, að svo virðist sem hvað sem
frá honum kemur, standi ekki
við stundinni lengur. En um leið
eru ferskjurnar ferskar, sólin
skín og vínið er gott.
Við fórum inn i borgina í gær-
kvöldi og sátum þar allt kvöld
ið í kaffihúsi við gosbrunninn.
Jaek var að teikna skrýtna fólk
ið við hin borðin, svo að ég
stal frá honum blýanti og fór að
pára með honum.
— Hvað ertu að gera, elskan?
Ertu farin að teikna?
— Nei, ég er að yrkja fyrsta
og siðasta kvæðið mitt, sagði ég.
— Það er einskonar þakk-
lætisóður, tileinkað uppáhalds
eiginmanninum minum.
— Hjálpi mér sagði Jack.
— Láttu mig heyra.
Þegar ég hafði lokið kvæðinu,
sagði hann: — Þakka þér fyrir.
En ég vona nú samt, að þú sért
œs
m SKIPHOLL
SÓLÓTRÍÓ
Matur frámreiddur frá'kl. 7.
Borðpantanír í síma 52502.
SKIPHÓLL, Strandgötu 1, Hafnarfirði.
velvakandi
Veivakandi svarar i síma
10100 frá mánudegi til
föstudags kl. 14—15.
0 Bréfaskipti fanga
A. skrifar:
„Nú fyrir skömmu var sú
spuming lögð fyrir fimm
manns í einu dagblaðanna,
hvort rétt væri að ritskoða
póst fanga. Einn þeirra, sem
spurningunni svöruðu, taldi
rétt og eðlilegt, að gæzlumenn
fanganna fylgdust með bréfa-
skiptum þeirra. Hinir fjórir
voru mótfallnir því, að slíkt
væri gert, — töldu það skerð-
ingu á mannréttindum, skerð-
ingu á persónufrelsi, aðgerð-
ir, sem minntu á lögregluríki,
og athæfi, sem væri ekki sæm
andi í lýðræðisþjóðfélagi.
Nú er mér spurn: Kemur
það einhverjum á óvart, að
fangelsun sé skerðing á pei-
sónufrelsi?
Hvað finnst mönnum tii
dæmis um það, að þeir, sem
af gefnu tilefni hafa verið
dæmdir til fangelsisvistar, hafi
frjálsar hendur til að stjórna
glæpastarfsemi úr fangelsinu?
Eða skipuleggja í samráði við
aðra flótta sinn úr fangelsinu,
veita viðtöku hverju þvi, sem
leynast kann í sendibréfum, svo
að eitthvað sé til tint. Brögð
hafa verið að því, að fangar
hafa komizt yfir fiknilyf,
þrátt fyrir strangt eftirlit.
Dettur virkilega einhverjum
í hug, að þetta eftirlit, sem
haft er með bréfaskiptum
fanga, sé vegna hnýsni og for-
vitni fangavarða, eða jafnvel
dómsmáiaráðherra ?
Nú er alls ekki verið að
mæla hér bót harðneskjuleg-
um refsiaðgerðum í fangels-
um, enda má minnast þess, að
íslenzk refsilöggjöf er ein sú
rýmsta og mannúðlegasta,
sem þekkist.
Hins vegar ber að vara við
þvi, sem virðist vera að verða
viðtekinn hugsunarháttur hér
— sem sé það, að menn, sem
gerzt hafa brotlegir við lögin
og síðan verið dæmdir eftir
þessum sömu lögum, séu gerð
ir að einhverjum heilögum
kúm, sem allt og allir eiga að
víkja fyrir. Það er ekki i anda
lýðræðis.
Vitaskuld á að géfa þess-
um ógæfumönnum tækifæri til
að bæta sig — en því miður
er mörgu ábótavant i þvi efni,
enn sem komið er.
Einn þáttur i slíkri endur-
hæfingu hlýtur að vera sá, að
þeir læri að rækta með sér
virðingu fyrir sjálfum sér og
öðrum.
Við skulum ekki gleyma þvi,
að tilgangurinn með þvi að
taka þá úr þjóðfélaginu um
lengri eða skemmri tima eft-
ir atvikum, er margþættur.
Eitt atriði í því sambandi er
að hlífa umhverfinu við nær-
veru þeirra.
Vonandi hafa mannúð,
brjóstgæði og vorkunnsemi
ekki slegið svo ryki í augun á
fólki, að það gleymist, að
margir afbrotamenn eru hættu
legir umhverfi sínu, í þrengstu
merkingu þess orðs.
A."
0 Sofið undir súð á
Flókadeild
Krist.ja.na Sigurmundsdóttir
skrifar:
1 síðastliðinni viku kom
fram í sjónvarpinu hópur
fólks, sem ræddi geðheilbrigð-
ismál. 1 þessum hópi voru þrír
læknar, félagsfræðingur og
sálfræðingur. Þarna var rætt
um meðferð geðsjúklinga,
breytingar og umbætur, sem
orðið hafa í málum þeirra á
síðustu árum.
Einn læknirinn lét þess get-
ið, að ennþá væri ýmsu ábóta-
vant, t.d. væri á Flókadeildinni
notazt við svefnherbemgi, sem
væru undir súð. Það er nú það.
Nú er það vltað mál, að
miki'll fjöldi fólks, vinnandi og
ábyrgir þjóðfélagsþegnar —
hefur svefnherbergi sin á rls-
hæðum húsa. Það þykir ekki
umtalsvert, og er það heldur
ekki meðan enn þekkjast hús
með því byggingarlagi á Is-
landi.
0 Er vistfólki á deildinni
vandara um en
almenningi?
Þessi orð læknisins um hús-
næðið gefa tilefni til ihugun-
ar. Þau benda til þess, að hús-
næði svipað því eða sambæri-
legt við það, sem mjög margt
vinnandi og sjálfbjarga fólk
býr í sé ekki boðlegt drykkju-
sjúklingum.
Það virðist vera svo, að þeg-
ar bæta á úr þvi, sem áður
hefur verið ábótavant, er litils
hófs gætt og vill ýmislegt þá
fara út í öfgar.
Spumingin er, hvort ekki sé
nokkuð langt gengið, þega-r
farið er að gera svo miklar
kröfur um húsnæði og aðbún-
að allan sjúklingum til handa,
að helzt er hægt að jafna við
hótel, sem eru þá ekki af ódýr-
ustu tegu-nd.
Hverjir borga? Eru það
ekki skattgreiðendur — einnig
þeir, sem i risíbúðum og kjöll-
urum búa?
Kristjana Sigurmundsdóttir."
0 Dýraspítalinn
Velvakanda hafa borizt tvö
bréf, þar sem sú skoðun er
látin í ljós, að borgarstjórinn
í Reykjavik ætti að veita við-
töku gjöf Marks Watsons, dým-
spítalanum. Þess má geta, að
bæði eru þessi bréf frá utan-
bæjarmönnum.
Velvakanda er ekki ljóst,
hvers vegna Reykjavíkurborg
ætti að beita sér fyrir starf-
rækslu dýraspítala, en eins og
ku-nnugt er, er skepnuhald
bannað í Reykjavik, nema
hvað hér er leyfilegt að hafa
gæludýr, önnur en hunda. Með
tilliti til þessa yrðu það að-
eins fáeinar dýrategundir, sem
orðið gætu aðnjótandi þeirrar
þjónustu, sem veitt yxði í slík-
um dýraspitala.
Hér fer á eftir annað þeirm
bréfa, sem áður var vitnaðtil:
„Rislítil og manndómssnauð
voru svör fjármálaráðherra er
hann stóð frammi fyrir þjóð-
inni i sjónvarpin-u vegn-a dýra-
spítalamálsins . . . Algert skiln-
ings- og virðingarleysi fyrir
dýravernd er hörmulegt, vita-
vert og alvarlegt þegar það
opinberar sig i höndum
manms, sem hefur úrslitavald
á æðstu stöðum.
Ég hef ekkl trú á, að þessi
framkoma verði ma-nninum til
álitsauka. Hefur þessi maður
staðið svo fast gegn útþenstlu
rikisbáknsins, að ein eða tvær
mtilljónir til eða frá, í nafni
mantnúðar og þjóðarsóma, rétt
læti slika fastheldni? Ég held
ekki.
Vill ekki borgarstjórinn í
Reykjavik bjarga andliti Is-
lendinga?
Hagiiar Halldórsson."
>^><><><><><>0<><><><>C> 0<><><><><C><><><><><><> <0><><><> <><><><><><><><><><>
Simi SS3SS
Opnar að Hjallabrekku 2 Kópavogi laugardaginn
1. sept. Við bjóðum yður nýlenduvörur, kjötvörur,
mjólk og mjólkurvörur.
Opið verður alla daga frá 9-8 nema sunnudaga.
Sendum heim.
Verið velkomin og reynið viðskiptin.
^0^>00<>0««XX>0^0<X>0000000000<>000<X>00000