Morgunblaðið - 06.10.1973, Qupperneq 1
32 SIÐUR
224. tbl. 60. árs.
LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1973.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ný stjórn í
Argentínu
— þegar Peron tekur við
Buenos Aires, 5. okt. AP
Stjórn Argentfnu hefur sagt af
sér, til þess að Juan Peron, hinn
nýkjörni forseti landsins, geti
myndað nýja stjórn, þegar hann
Morðí
Boston
— vegna kyn-
þáttahaturs
Boston, 5. okt. AP-NTB
Óhugnaleg morð ungra
blökkumannasveita á tveimur
hvftum manneskjum f Boston,
hafa skapað þar f borg
andrúmsloft ótta og öryggis-
leysis og eru lögregluyfirvöld
uggandi um, aðtil meiri háttar
átaka kunni að koma milli
hvftra og svarta íbúa f
borgarinnar.
Á miðvikudag lézt 24 ára
gömul kona eftir að hópur
ungra blökkumanna hafði
neytt hana til að hella yfir sig
bensíni og kveikt í. Á
fimmtudag var 65 ára gamall
maður grýttur og stunginn til
bana af sveit 30—40 blakkra
unglinga, þar sem hann sat að
fiskveiði á árbakka. I hvorugt
skipti var sjáanleg önnur
ástæða til morðanna en
hörundslitur fórnarlambanna.
Tveir aðilar aðrir hafa orðið
fyrir árásum, ung kona var
stungin hnífi í andlitið og mið-
aldra maður liggur I sjúkra-
húsi milli heims og helju eftir
að hafa fengið hnífstungu í
bakið. Sjónarvottar voru að
öllum þessum atburðum, en
þeir hafa ekki þorað að gefa
sig fram af ótta við hefndar-
ráðstafanir blökkumanna.
Atburðir þessir hafa orðið f
hverfinu Roxbury, þar sem
flestir íbúar eru blökkumenn.
Sömuleiðis hafa á þessum
slóðum verið tíð slagsmál milli
unglingahópa hvítra og
svartra.
tekur formlega við embættinu 12.
október.
Mjög hefur verið róstusamt sfð-
ustu daga f Argentfnu og laun-
morð tíð. Er sýnt, að miklar
væringar eru með róttækustu
öflunum f röðum perónista til
hægri og vinstri, og drepa þeir
óspart menn hvorir fyrir öðrum.
Stúdentar í Buenos Aires hafa
síðustu fjóra daga haft öll völd í
háskólanum þar, en hann er einn
hinn stærsti í S-Ameríku. Fyrr-
verandi rektor skólans, Rodolfo
Puigoores, þótti heldur róttækur
fyrir smekk Perons og var settur í
embættið f hans stað prófessor i
tannlækningum, dr. Alfredo
Banti, hægfara peronisti.
Stúdentar brugðu við skjótt og
sfigðu, að mannaskiptin væru til-
ræði heimsvaldasinna við háskól-
ann, og í dag sagði dr. Banti af
sér.
Boðar 10%
hækkun á
matvælum
íUSA
Washington, 5. okt. AP
Helzti efnahagssérfræðingur
Nixons Bandarfkjaforseta, dr.
Herbert Stein, hefur boðað
Bandarfkjamönnum, að þeir megi
búast við allt að 10% hækkun á
matvörum næsta hálfa árið. Telur
Stein engar líkur til þess, að unnt
verði að stemma stigu við verð-
bólgunni f landinu fyrr en f
fyrsta lagi f lok ársins 1974.
Mynd þessi var tekin sl.
miðvikudag f hófi þvf hinu
mikla, sem Henry Kissinger,
utanrfkisráðherra Bandarfkj-
anna, hélt um 400 diplómötum
og konum þeirra f Metropolitan
listasafninu f New York.
Kissinger er þarna að heilsa
Ingva Ingvarssyni, sendiherra
Islands hjá Sameinuðu þjóðun-
Fordæming á kynþátta-
stefnu S-Afríkustjórnar
New York, 5. okt. AP-NTB
# Fulltrúar blökkumanna f
Afrfku gengu af fundi allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna f dag,
Schönau undir
stjórn Rauða
krossins?
Vfnarborg, 5. okt. AP
Bruno Kreisky, kanslari Aust-
urrfkis lét svo um mælt í dag, að
hann mundi gjarnan fallast á að
Rauði krossinn eða önnur virt al-
þjóðasamtök tækju við stjórn
Schönau-búðanna þar sem sovézk-
ir Gyðingar hafa viðdvöl meðan
þeir bíða fars til Israels.
þegar forseti þingsins, Leopold
Benites frá Equador, úrskurðaði,
að Hilgard MuIIer, utanrfkisráð-
herra S-Afrfku, skyldi leyft að
halda ræðu sfna á þinginu.
# Áður hafði verið samþykkt
tillaga, sem sendinefnd Sýrlands
lagði fram, þar sem vefengt var
umboð sendinefndar S-Afrfku til
að sitja allsherjarþingið. For-
setinn úrskurðaði hins vegar, að
Ifta skyldi á samþykktina sem ha-
rða fordæmingu á stefnu stjórnar
S-Afríku f kynþáttamálum og
„ný og alvarlega viðvörun tiL
hennar“, eins og hann komst að
orði en sagði að með henni yrði
ekki komið f veg fyrir þátttöku
sendinefndarinnar s-afrfsku í
störfum þingsins.
# TiIIaga Sýrlands var sam-
þykkt með 72 atkvæðum gegn 37,
en 13 sátu hjá.
Mál þetta hefur verið mjög um-
deilt innan vébanda Sameinuðu
þjóðanna árum saman, en ekki
fyrr verið tekin til þess svo
ákveðin afstaða. Undirrótin er sú,
að Afríkumenn vefengja rétt
stjórnar S-Afríku til að fara með
málefni og mæla fyrir munn
blökkumanna f S-Afriku, sem eru
í margföldum meirihluta miðað
við hvíta menn, sem hafa þar öll
völd.
Hilgard Muller átti að ávarpa
illsherjarþingið í gær, en þegar
íann ætlaði að hefja mál sitt,
kröfðust fulltrúar Afríkuríkja
þess, að fundi yrði frestað, unz
úrskurður lægi fyrir um gildi
kjörbréfa sendinefndar lands
hans. Málið var sett í kjörbréfa-
nefnd, sem samþykkti með 5 atkv.
gegn 4, að kjörbréfin skyldu gild.
Því vildu Afríkumenn og stuðn-
ingsmenn þeirra ekki una, og
varð niðurstaðan sú, að tillaga
Sýrlands var lögð fram á þinginu.
Agnew stefnir blaðamönnum
Washington, 5. okt. AP-NTB
Lögfræðingar Spiros T.
Agnews, varaforseta Bandarfkj-
anna, stefndu f dag fyrir rétt
nokkrum bandarfskum blaða-
mönnum og gerðu þeim að leggja
fram hljóðritanir og afrit af sam-
tölum, sem þeir hafa átt við opin-
bera embættismenn um mál vara-
forsetans.
Önnur helztu tfðindi f máli
varaforsetans eru þau, að dóms-
málaráðuneytið hefur boðið full-
trúadeild Bandarfkjaþings að
endurskoða þær ásakanir, sem
bornar hafa verið á Agnew, ef svo
skyldi fara, að hæstiréttur úr-
skurðaði, að hann skyldi ákærður.
Blaðamennirnir, sem stefnur
fengu i dag, voru frá helztu dag-
blöðunum á austurströndinni,
Washington Post, Washington
Star New, New York Times, New
York Daily News og CBS frétta-
stofunni. Sömuleiðis var vikurit-
inu TIME stefnt og þess krafizt,
að upplýst yrði, hver skrifað hefði
grein eða veitt upplýsingar, sem
þar var að finna um, að Agnew
ætti yfir höfði sér að verða stefnt
fyrir rétt í Maryland. Stefndu
var gert að mæta fyrir rétti í
Baltimore í Maryland nk. fimmtu-
dag og hafa með sér umbeðin
gögn.
Talsmenn blaðanna, sem frétta-
mennirnir vinna hjá, líta svo á, að
krafa varaforsetans um, að þeir
gefi upp heimildir sínar og frum-
gögn, sé stjórnarskrárbrot og haf a
lýst því yfir, að þeir séu reiðubún-
ir að halda uppi harðri baráttu
fyrir rétti blaðamanna til að leyna
heimildum sínum.
Lögfræðingar Agnews, — og
hann sjálfur, — hafa haldið því
fram, að bandaríska dómsmála-
ráðuneytið hafi gefið blöðunum
upplýsingar um mál hans, en af
þess hálfu er þeirri staðhsefingu
visað á bug. Elliott Richardson,
dómsmálaráðherra, hefur ákveðið
að senda lögfræðing ráðuneytis-
ins til þess að vera við réttarhöld-
in yfir blaðamönnunum, ef af
þeim verður, og er það talið
benda til þess, að hann búist eins
við, að Agnew stefni einhverjum
embættismönnum ráðunejdisins.
Skjót viðbrögö
Sovétlögreglu
Moskvu, 5. okt. AP
Sveit lögreglumanna hleypti
í dag upp andófi fimm Gyðinga
fyrir utan bækistöðvar sovézka
innanríkisráðuneytisins og tók
höndum þrjá bandarfska blaða-
menn, sem urðu vitni að þvl og
reyndu að festa á filmu það,
sem fram fór.
Gyðingarnir voru að taka
undan kápum sínum heimagerð
spjöld, þar sem á stóðu mót-
mæl i gegn synjunum yfirvalda
við beiðni þeirra um að flytjast
til ísraels, þegar óeinkennis-
klæddir leynilögreglumenn
komu á vettvang og handtóku
fimmmenningana.
Blaðamennirnir, sem með
fylgdust, voru frá UPI og
TIME. Leynilögreglumennirnir
réðust á þá, og andartaki síðar
voru einkennisklæddir
lögreglumenn komnir í spilið.
Voru blaðamennirnir hraktir
yfir götuna að ráðuneytisbygg-
ingunni, og ráku lögreglumenn
eftir þeim með því að spyrna
knjám í bök þeirra.
Þegar kom I anddyri bygging-
arinnar, voru fréttamennirnir
yfirheyrðir, en þeim síðan
sleppt. Þá sátu Gyðingarnir þar
eftir og biðu yfirheyrslu.
Þetta er I annað sinn á hálf-
um mánuði, sem yfirvöld beita
valdi gegn bandariskum frétta-
mönnum, sem fylgjast með and-
ófi Gyðinga í Sovétrikjunum.
23. sept. sl. var fréttamaður AP
að taka mynd af einum Gyðingi,
sem var að mótmæla við höfuð-
stöðvar kommúnistaflokksins í
Moskvu. Filman var tekin úr
myndavél hans, og honum
meinað að hafa samband við
bandaríska sendiráðið