Morgunblaðið - 06.10.1973, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 06.10.1973, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1973. 5 Það er mannlegt að skjátlast, þess vegna hefur Volkswagen tekið nýjustu tækni í sína þjónustu, og við bjóðum upp á tölvustýrðan bilanagreini- Ending. V.W. var ekki eingöngu hannaður með góða aksturseiginleika I huga, heldur einnig mikla endingu. Þessi tvö atriði eiga ekki svo lítinn þátt f hinu ótrúlega trausti, sem þessi bfll nýtur um víða veröld. Ódýrir skiptihlutir skiptivélar og gfr kassar með fullri verksmiðjuábyrgð jafnan fyrirliggjandi. Okumaður f góðu sæti, ekur vel. Þess vegna eru sætin f V.W. sérlega þægileg, og stiilanleg eftir þörfum ökumanns. ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN VOLKSWAGEN — ÁRGERÐ 1974 — LÆKKIHIVERÐ Jafnvel hinir óvenjulegustu hlutir geta orðið svo óaðskiljan- Iegir hinu daglega Iffi, að fólk veitir þeim ekki lengur neina athygli. Þetta hefur einmitt átt sér stað með V.W. Framleiðsla þessara bfla er nú komin yfir 17 milljónir. Þeir eru orðnir svo sjálfsagður hlutur, að fólki gleymist, hvaða kostum þeireru búnir. Þess vegna viljum við minna yður á aðeins nokkur þeirra atriða, sem hafa gert V.W. heimsfrægan: Stöðugt gæðaeftirlit. Frábær vinnubrögð. Ódrepandi vél Mikil ending. Örugg og ódýr varahluta- og skipti-hluta þjónusta. Sérhæfð viðgerðaþjónusta, með fullkomnum tækjabúnaði, t.d. tölvustýrðum bilanagreini. V.W. er alltaf endurbættur ár eftir ár. — Og allt þetta hefur verið endurbætt ár, eftir ár, eftir ár. Það eru því engin undur, að V.W. skuli vera vinsælasti bfllinn í sögu bifreiðaiðnaðarins. Það var einmitt þetta, sem við vildum minna yður á. HEKLAhf Laugavegi 170—172 — Sími 21240. Elliðaárdalur: Gróður, laxveiði, útivistarsvæði og skíðabrekkur Tillögur að skipulagi í Elliðaár- dal eru í undirbúningi. Hefur Vil- hjálmur Sigtryggsson skógar- fræðingur að undanförnu unnið að tillögum að skipulagi á svæð- inu frá Elliðaárbrúm að neðri stíflu, í samráði við borgarverk- fræðing og þróunarstofnun, og kynnti hann tillögur sínar á fundi Náttúruverndarnefndar borgar- innar nýlega. En hann og Reynir Vilhjálmsson, skrúðgarðaarkitekt eru byrjaðir á svæðinu neðan brúnna og út í sjó. Þetta kom m.a. fram í ræðu Elínar Pálmadóttur á borgarstjórnarfundi á fimmtu- dag, þar sem rætt var um Eiliða- ársvæðið. Sagði hún, að verkefnið hefði verið mjög ítarlega unnið og þvf skipt í ýmsa þætti, svo sem jarð- fræði dalsins, skógrækt, notkun dalsins, gangstíga, brýr, örnefni, Elliðaárstöð og Rafveituheimili, skipulag og tegundaval trjágróð- urs, Ártúnsbrekkur sem skíða- land, skólagarða, Ártúnsskóg og Blesugróf í suðurvangi Elliða- árdals. Um notkun Elliðaárdals hefur nú undanfarin ár verið að mestu tengd veiðimönnum. Elliðaárnar eru mikil laxveiðiá og ber að varð- veita hana og rækta sem bezt. I sambandi við breytingu gróðurs í hólmunum verður þvf að taka tillit til þessa veigamikla þáttar. Dalurinn er tiltölulega flatur, og oft næðir þar um í suðaustanátt, og er þá æði oft rigning. Með gróðursetningu trjáa myndi mikið draga úr áhrifum veðurs f dalnum. Vilhjálmur ræðir um gangstfga úr blöndu af rauðamöl og leir, sem fylgja legu landsins, en stígarnir liggi i lægðum, er hafa svipaða stefnu og árnar og eru líklega sums staðar gamlir vatnsfarvegir. Varðandi gróður- setningu er m.a. gert ráð fyrir, að gróðursett verði í grúppum eða gróðurlengjum, sem liggja langs eftir dalnum og hafi þær sömu stefnu og árnar, þó ekki nær þeim en 25 m, en það ætti að vera nægt svæði meðfram ánum fyrir veiði- menn. í svæðinu milli skógarbelt- anna og ánna telur Vilhjálmur rétt að gróðursetja loðvíði og gul- víði til að veita fuglum skjól til að verpa og gera þannig landið hlý- legra. Fjallað er um landið báðum megin upp frá ánum, t.d. skíða- land í Artúnsbrekkum og skóla- garða þar, en hins vegar Blesu- gróf og suðurhlíðar Elliðaárdals. Á síðast nefnda svæðinu er hug mynd Vilhjálms á þessa leið: Svæðið, sem er frá syðri kvfsl Elliðaánna að fyrirhuguðum Suðurlandsvegi annars vegar og suðurkvísl og Reykjanesbraut hins vegar, er til margra hluta nýtanleg. Það liggur f augum uppi, að það er svo nátengt Elliða- árdalnum, að þau tengsl má ekki rjúfa. Á þessu svæði væri tilvalið að hafa aðstöðu fyrir ýmis konar heilsurækt í tengslum við útivist- arsvæðið, svo sem útisundlaug, trimmbrautir, skautasvell, jafn- vel hesthús, því þá væri hægt að losna við hestamenn úr um- ferðinni með þvf að gera hesta- brautir upp með ánum að sunnan. Þarna er að mestu malarbotn og er þvf auðvelt að forma svæðið, eftir því sem þörf þykir. Æskilegt væri að gróðursetja í hæfilegri fjarlægð frá vegi gott grenibelti, sem myndi þá jafnframt draga úr hávaða frá veginum og mengun frá bifreiðum. Litkvik- mynd um íslenzkt skart Litkvikmynd um skart forn- manna, gull- og silfursmfðar á tslandi, fslenzka kvenbúninginn og silfursmfði f sambandi við hann. gull- og silfursmfðar f dag, hefur verið gerð á vegum Asgeirs Long kvikmyndatökumanns. Aðstoðuðu hann ýmsir aðilar við gerð myndarinnar, m.a. Björn Th. Björnsson, sem sá um, texta, tón- listina samdi Karl Sighvatsson, og tónlistarflutninginn önnuðust Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlfus- son og Ólafur Garðarsson, myndin var litgreind og hljóð- blönduð f London. Kvikmyndun, klippingu og ljóðsetningu annaðist Ásgeir Long^ Kvikmyndun hófst árið 1965.og fór að miklu leyti fram á Þjóð- minjasafninu undir leiðsögn Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar. Einnig er komið á gullsmíða- stofnun, og marga gripi varð að fá Iánaða hjá einkaaðilum. Asgeir hefur sjálfur staðið straum af öllum kostnaði við gerð myndarinnar. 1 ráði er að gera enska útgáfu og vinnur Bjarni Guðmundsson fyrrv. blaðafulltrúi að gerð enskrar þýðingar á texta. Félagssamtök og einkaaðilar geta fengið keypt eintök af þessari mynd, með takmörkuðum sýningarrétti og mun verð hvers eintaks vera nálægt 50.000.— krónum. Matvæla- frysting Hjá Kvenfélagasambandi Islands hefur komið út ný út- gáfa af bæklingnum „Frysting matvæla", að þvf er segir í fréttatilkynningu frá sam- bandinu. Bæklingur þessi kom út fyrst árið 1965 og hefur síð- an verið endurprentaður tvisv- ar, en f þetta sinn var hann allur endurskoðaður og færður f nýjan búning. Sigríður Kristjánsdóttir, hús- mæðrakennari og ritstjóri tíma- ritsins Húsfreyjunnar hefur tekið saman efnið f bæklinginn. Fyrsti raunverulegi borgarafundurinn um LANDHELGISMÁLIÐ Frummælendur: Lúðvik Jósepsson, Gunnar Thoroddsen, Fundarstjóri: Jón Sigurðsson. 0 Hver er staðan í landhelgismálinu í dag? 0 Á að færa út í 200 mílur fyrir árslok 1974? Q Hver er afstaðan til Haag-dómstólsins? 0 Á að semja við Breta? — Um hvað? 0 Hvernig heldur ríkisstjórnin á þessu lífs- hagsmuna-máli? 0 Er stjórnarandstaðan með undanslátt og úrtölur í málinu7 0 Eiga íslendinga. <*ð vinna að „motus vivendi" að ósk Heaths? 0 Hafa íslendingar hreinan skjöld í friðunar- aðgerðum? Hótel Saga, (Súlnasal), sunnudaginn 7. október kl. 14. Stúdentafélag Háskóla íslands Volkswagenvarahlutir eru ódýrir. Onýtt bretti, er þvl ekkert stórvandamál. Stór hjól þurfa færri snúninga en lltil.og þar með minna slit á dekkjum. Kr. 3.100.-, Afturbretti jafnvel enn ódýrara . . . Eftirlitsmenn á hvern V.W. og þeir verða að samþykkja hvern bíl áður en hann fer út únverksmiðjunni. Allt er gott, sem endar vel. Þér getið farið fram á gott verð fyrir notaða V.W. bllinn yðar. Því að notaður Volkswagen, er ekki full-notaður Volkswagen. Hin slétta botnplata verndar bilinn fyrir steinkasti, salti og auðveldar akstur við slæm Berið saman við aðra bila. skilyrði í snjó og aurbleytu. Hann gengur og gengur og gengur . . .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.