Morgunblaðið - 06.10.1973, Síða 10
JQ MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. OKTÖBER 1973.
bækur...bækur...bækur...bækur...bækur...bækur...bækur...bækur...bækur...bækur...bæki
JÓLABÓKA VER TÍÐIN
•
Utgáfubœkur Leifturs
og Isafoldarprentsmiðju
1 dag eru það bókaútgáfurnar
Leiftur og Isafoldarprent-
smiðjan, sem gera grein fyrir
sfnum útgáfubókum í haust.
Gunnar Einarsson forstjóri Leift-
urs veiti blaðinu eftirfarandi
upplýsingar um þær bækur, sem
hann sendir á markaðinn:
Af stærri bókunum skal fyrsta
telja fjórða bindið af sögu
Guðrúnar frá Lundi, Utan með
sjó. Guðrún er fyrir löngu búin að
vinna sér sess sem eitt vinsælasta
skáld íslenzkrar alþýðu, og á
háum aldri er hún enn afkasta-
mikill og virkur rithöfundur.
Óþarft ætti að vera að taka fram,
að hinar fjöimörgu bækur
Guðrúnar frá Lundi gegnum árin
hafa allar orðið metsölubækur.
Þá kemur fjórða og þar með
síðasta bindi Vestur-Skaftfell-
inga, hins mikla ritverks Björns
Magnússonar prófessors. Aftan
við bindið eru viðbætur og leið-
réttingar við þrjú hin fyrri bindi.
Auk þess eru í bindinu bæjanöfn
og býla í Vestur-Skaftafellssýslu
eftir stafrófsröð, bæjaröð i
ábúendatali í sýslunni, og boðleið
i Vík 1952. — Verk þetta er stór-
Einar Bragi — þjóðsagnir.
virki og meðal merkustu bóka,
sem út hafa komið hér á laridi.
Vegferðarljóð heitir ljóðabók,
sem Ingólfur Davfðsson, grasa-
fræðingur lætur nú frá sér fara.
Ingólfur er landsþekktur rit-
höfundur, og ferðasögur hans eru
með því skemmtilegasta af því
tagi. Hitt hefur mönnum ekki
verið jafn ljóst, að Ingólfur er
skáld gott, og margt, sem hann
yrkir, stórsmellið. Svona yrkir
hann meðal annars um flugfreyj-
urnar:
Hún Gunna er fegursta freyjan,
Fanngerður vitrasta meyjan.
Rannveig sú rikasta talin,
en Rósa af piltunum valin.
Varasöm er veröldin segir
Hersilía Sveinsdóttir, dóttir
Sveins á Mælifellsá. En bók með
þessu nafni sendir hún frá sér á
markaðinn þessa daga. Guðmund-
ur Gislason Hagalín las handritið
undir prentun og skrifar formála.
Þar segir hann m.a.: „Þótt
Hersilía væri orðin sjötug, þegar
hún hóf að skrifa sögurnar, sýna
þær engan veginn, að henni sé
farið að förlast að viti eða minni
— og ennþá síður að vilja til að
láta gott af sér leiða.“
Benedikt Arnkelsson hefur
þýttbók.sem hann kallar Égelsk-
aði stúlku. Hann segir: „Bókin
fjallar um efni, sem varðar allt
ungt fólk. Hér er talað af hrein-
skilni um ástina, réttindi hennar
og skyldur, um samskipti pilta og
stúlkna o.s.frv. Ótal spurningar
vakna og þeim er svarað hóglát-
lega, en af fullri einurð. Þess
vegna er bókin hreinasta gull-
náma, bæði ungu fóki og öllum
þeim, sem eiga að leiðbeina æsk-
unni, foreldrum, kennurum og
prestum."
Af barnabókunum eru þessar
að fara í bókaverzlanir, en barna-
og unglingabækur hafa löngum
verið í meiri hluta hjá Leiftri:
Tvær bækur um fullhugann og
undramanninn Bob Moran (25.
bókin heitir Arfur Gula skuggans,
sú 26. heitir Leynifélag löngu
hnífanna). Tvær bækur eru um
leynilögregludrengina Frank og
Jóa, 10. bókin um þá heitir Ævin-
týri um miðnætti, en sú 11. heitir
Meðan klukkan tifar. —
Af vinsælu Nancy-bókunum
koma tvær: Nancy og dularfulla
ferðakistan og Nancy og Mána-
steinsvirkið. Fyrir yngri börnin
eru þessar bækur að fara í bóka-
verzlanir: Moli litli 2. hefti. Moki
litli og Jói járnsmiður eru vinir
Guðjón Armann —
Vestmannaeyjar.
litlu barnanna. Þegar þau koma
niður að Tjörninni, þá minnast
þau Mola litla, sem siglir á papp-
írsbátnum sínum um alla Tjörn-
ina.
Guðrún frá Lundi — enn að
skrifa.
Svo er komin sagan Giggi og
Gunna, eftir Bergþóru Pálsdótt-
ur frá Veturhúsum í Eskifirði.
Bergþóra hefur áður sent frá sér
smásögur og söguna „Drengirnir
á Gjögri“. Patti fer f siglingu er
bráðskemmtileg saga. Söguheíjan
Þyrill er sonur rfkra foreldra, en
hann velur sér leikfélaga að sínu
skapi, án þess að skeyta um efni
foreldra þeirra eð stöðu í þjóð-
félaginu. Og um þá leikfélaga er
þessi smellna saga.
Einu sinni var — Stóra ævin-
týrabókin er nú komin í nýrri
útgáfu.
Fyrr á árinu komu út tvær
bækur, og nokkrar fleiri mun
Leiftur væntanlega senda frá sér
um næstu mánaðamót.
Ragnar Jónsson útgáfustjóri hjá
Isafoldarprentsmiðju, hafði þetta
að segja um bækur útgáfunnar f
haust:
Eftir fáeina daga kemur á
markaðinn Spænsk-Islenzk orða-
bók eftir bóndann Sigurð Sigur-
mundsson i Hvítárholti.
Þetta verður 12 arka bók með
drjúgu letri og má það teljast til
tíðinda, að bóndi í sveit setjist
niður og semji orðabók á jafn
f jarskyldu máli og spænskan er.
Þriðja bindi hins merka
ritsafns Ur byggðum Borgarfjarð-
ar, eftir fræðaþulinn Kristleif
Þorsteinsson á Stóra-Kroppi,
Þórhallur — frá Brynjólfi
biskupi og Ragnheiði.
kemur nú út að nýju. Þórður son-
ur höfundar hefur aukið við þetta
bindi ýtarlegri nafnaskrá.
Ritsafni Guðmundar
Danfelssonar bætist nú eitt bindi,
en það er Blindingsleikur. Sú bók
kom upphaflega út árið 1955 og
hlaut frábærar viðtökur lesenda
og gagnrýnenda. Höfundur ritar
eftirmála um tilorðningu sögunn-
ar og þær viðtökur, sem hún
glaut. Alls er ritsafnið nú orðið 7
bindi.
Gunnarsrfmur, þ.e. rfmur af
Gunnari Hámundarsyni, heitir
nýtt bindi f rimnasafni Sigurðar
Breiðfjörð, og er þetta 6. bindi
rimnasafnsins. Jóhann Briem list-
málari hefur myndskreytt allar
bækurnar, en umsjón með útgáf-
unni hefur Sveinbjörn Beinteins-
son.
I Þjóðsagnasafn Jóns Arnasonar
bætast við tvö bindi, Ævintýri,
fyrra og sfðara bindi, í umsjá
Óskars Halldórssonar lektors og
með myndum eftir Halldór Pét-
ursson listmálara. Þessi útgáfa af
úrvali þjóðsagna Jóns Arnasonar
hefur sannað, að ennþá er mikill
og vaxandi áhugi ungs fólks á
íslenzkum þjóðsögum.
I ritsafn Stefáns Jónssonar bæt-
ast að minnsta kosti tvö bindi, þ.e.
Sagan hans Hjalta litla og
Mamma skilur allt, enn er ekki
Utséð um, hvort þriðja bókin,
Hjalti kemur heim, kemst út á
þessu ári. Myndirnar i bækurnar
verða að þessu sinni eftir hinn
kunna rússneska listamann
Verensky. Einar Bragi skáld ann-
ast útgáfuná að öðru leyti.
Arni Óla sendir frá sér nýja bók,
en það er Grúsk þriðja bindi. Árni
er, eins og kunnugt er, allra
manna fundvisastur á forvitni-
lega hluti.
Brynjólfur biskup Sveinsson eftir
Þórhall Guttormsson sagnfræðing
heitir ný bók i flokknum um
Menn f öndvegi, en þar segir frá
hinum mikilhæfa biskupi f Skál-
holti og Ragnheiði, hinni fögru
dóttur hans.
Einar Bragi skáld kveður sér
hljóðs á nýjum vettvangi og
sendir frá sér þjóðsagnabók, sem
hann nefnir Þá var öldin önnur. 1
þessa bók hefur Einar Bragi týnt
saman og skráð ýmislegt af þvf,
sem hefur borizt upp í hendur
hans, þegar leið hans hefur legið
um bókasöfn á umliðnum árum.
Þetta er forvitnileg bók og frá-
bærlega vel skrifuð.
Veigamesta bókin hjá forlagi Isa-
Ómar — sveitin f nútfmanum.
foldar verður án efa bók um Vest-
mannaeyjar eftir Guðjón
Ármann Eyjólfsson skólastjóra
Stýrimannaskólans f Vestmanna-
eyjum. Guðjón Armann greinir
Arni Óla — grúskarinn.
ýtarlega frá byggðinni, sem hvarf
undir ösku og hraun f Heima-
eyjargosinu á þessu ári. Það má
segja um þessa bók, að hún sé að
öllu leyti unnin og samansett af
Vestmannaeyingum, og hefur
Guðjón Armann safnað ógrynni
fróðleiks um þá byggð og örnefni,
sem horfin eru fyrir fullt og allt í
þessum einstæðu náttúruham-
förum. Fylgja bókinni mörg kort
og uppdrættir af þvf. Guðjón
Ólafsson hefur teiknað myndir af
flestum þeim gömlu húsum og
býlum, sem þarna hurfu. Margar
litmyndir prýða bókina, teknar af
þeim Guðmundi Sigfússyni og
Sigurgeiri Jónassyni, af byggð-
inni fyrir og eftir gos og einnig^
náttúruhamförunum. Þar að auki
verða í bókinni nokkrar sjald-
gæfar myndir frá gamalli tfð.
Hversdagsleikur heitir skáldsaga
eftir Ómar Þ. Halidórsson.
Höfundur er kornungur maður,
búsettur á Selfossi.
Hann kvaddi sér hljóðs með ljóða-
bókinni Horfin ský fyrir 2 árum
síðan. Skáldsaga Ómars er
nútfmaleg skáldsaga úr sveitinni.
Jón frá Pálmholti sendir frá sér
ljóðabók, sem hann nefnir Undir
hamrinum. Jón er kunnur sem
ljóðskáld og skáldsagnahöfundur,
og bækur hans hafa alltaf vakið
óskipta athygli.
Tvær þýddar skáldsögur verða á
forlagi Isafoldar nú f haust. Mú
þar fyrst nefna metsölubókina
Ingólfur — úr grasafræði f ljóða-
gerð.
Odessaskjölin eftir hinn víðfræga
skáldsagnahöfund Fredericlt
Forsyth, en bókin „Dagur Sjaka-
lans“ eftir hann kom út f fyrra,
hjá Isafold.
Anitra, norska skáldkonan, er les-
endum að góðu kunn hér á landi
fyrir sögur sínar, en alls hafa 7
bækur hennar komið út á
fslenzku. Anitrubókin í ár heitir
Erfðasilfrið.
Isafold gefur út í ár nokkrar
barnabækur að venju. Ein þess-
ara bóka mun vafalaust vekja
verðskuldaða athygli, en það er
bók eftir þau hjónin Rúnu Gísla-
dóttur og Þóri S. Guðbergsson.
Bókin heitir Asta og eldgosið f
Eyjum og fjallar, eins og nafnið
bendir til, um Heimaeyjargosið,
flóttann frá Vestmannaeyjum og
lífið f Reykjavfk, séð með augum
Iítillar telpu, sem upplifir þetta
og tapar brúðunni sinni á flóttan-
um. Listmálarinn Baltasar hefur
gert margar litmyndir í bókina.
Bókin mun koma samtímis út í
Færeyjun og væntanlega síðar í
Noregi. Einnig koma út barna-
bækur eftir Herdfsi Egilsdóttur,
Kára Tryggvason og Þóri S.
Guðbergsson, þá kemur Litli
Dýravinurinn eftir Þorstein
Erlingsson, út að nýju.
Margar fleiri bækur eru í
undirbúningi, en eru misjafnlega
á veg komnar, og verður þeirra
getið síðar.