Morgunblaðið - 06.10.1973, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1973.
LÍF OG LAND
Veigamikil og áhugaverð bók um vistfræði Islands
Sturla Friðriksson
Eitt af kortunum f bókinni, sem sýnir komur fsbjarna til Islands.
Eftir iðnvæðingu og síaukna
tæknidýrkun í hálfa aðra öld,
eftir tvær heimsstyrjaldir og til-
komu gereyðingarvopna, eftir
áratuga gegndarlausa og sívax-
andi sólundun náttúruauðlinda,
kvikra sem dauðra, eftir að
mengun i lofti, á láði og í legi, er
komin á það stig sem raun ber nú
vitni, er mönnum loks að verða
ljós't, að eitthvað verður að gera
til að stöðva þessa öfugþróun, sem
ógnar öllu lífi á okkar plánetu. Og
mönnum er-einnig að verða ljóst,
að 'til þess að aðgerðir beri ein-
hvern árangur, verða þær að
byggjast á aukinni þekkingu og
auknum skilningi á samfélögum
og sambúð lífvera, æðri sem
lægri, og samskiptum þeirra við
umhverfi sitt. Sú tiltölulega unga
fræðigrein, vistfræði (ökólogía),
sem um þessi efni fjallar, er ört
vaxandi, enda á mannkynið mikið
undir viðgangi hennar og
áhrifum.
Island er sérstætt og sérlega
áhugavert umhverfi lífs, ekki sizt
mannlffs, og vistfræði Islands
þarafleiðandi mjög áhugaverð.
Það er þvf fagnaðarefni, að út
skuli nú komin á íslenzku mynd-
arleg bók um þetta efni, bókin Líf
og land, með undirtitlinum: Um
vistfræði íslands. Höfundurinn,
Sturla Friðriksson, erfðafræð-
ingur, hefur um áratuga skeið
unnið að tilraunum með upp-
græðslu lands, m.a. á hálendi Is-
lands, þar að auki kannað af-
rakstur íslenzks gróðurlendis á
umliðnum öldum og áhrif veður-
fars og annarra ytri aðstæðna á
þennan afrakstur. Hann hefur
aukið verulega þá undirstöðu-
þekkingu, sem er forsenda skyn-
samlegrar framtíðarnýtingar á
gróðurlendi islands, gróðurlendi,
sem óviturlegt er að vanrtýta, en
allt að því glæpsamlegt að of-
nýta. Auk síns aðalstarfs hefur
höfundur unnið að rannsóknum á
því, hvernig gróður gæti hafa bor-
izt til þessarar afskekktu úthafs-
eyjar, en tilkoma Surtseyjar varð
tilefni þeirra rannsókna.
Enda þött veigamiklir kaflar f
bókinni, og e.t.v. þeir forvitnileg-
ustu, svo sem kaflarnir varðandi
hagræna vistfræði Islands, bygg-
ist að verulegu leyti á ofangreind-
um rannsóknum höf. sjálfs,
er bókin í heild almennt
rit um vistfræði tslands,
þannig skrifuð, að hún ætti
að geta verið jöfnum höndum
fræðslurit við almenningshæfi
og kennslubók í vistfræði í efri,
sérhæfðum bekkjum mennta-
skóla og einnig á háskólastigi.
Eftir inngangskafla um grund-
vallaratriði vistfræði kemur
kafli um flutning Iífs til lands-
ins og hallast höf. þar að þeirri
skoðun, að flestallar íslenzkar
plöntur hafi getað borizt til
landsins eftir að sfðasta jökul-
skeiði tók að linna. Síðan rekur
höf. framvindu íslenzkrar land-
vistar eftir ísöld og lýsir þar á
eftir vistum og vistkerfum lands-
ins, og þá einkum jarðvegi
ýmisskonar og gróður-
lendi. Miðhluti bókarinn-
ar fjallar um manninn í vist-
kerfi landsins og um áhrif veð-
urfarsbreytinga, náttúruhamfara
og annarra áfalla, einkum á
gróðurfar. Mikið af því, sem þar
er um fjallað varðandi Island, er
dregið saman úr ritum og rit-
gerðum, sem íslenzkir vísinda-
menn á viðkomandi sviðum hafa
skrifað á síðari áratugum. Hefur
höf. yfirleitt tekizt mætavel að
vinna úr þessu dreifða efni og
gefa heildarmynd af núverandi
þekkingu okkar.
Margt er hér, sem gefur tilefni
til ærinnar umhugsunar. Skal hér
aðeins nefnt eitt dæmi: Höf.
fjallar um jarðvegseyðingu og
gerir þvf efni góð skil, þótt betur
hefði mátt undirstrika þátt renn-
andi vatns í þessari eyðingu.
Sturla skrifar: ,,Á þeim rúmum
1000 árum, sem maðurinn hefur
búið hér á landi mætti því ætla,
að yfirborð gróðurlendis hafi
minnkað úr 40.000 fm í 20.000
fm.“ Er hann hér á sama máli og
flestir þeir aðrir, er á sfðari árum
hafa reynt að gera sér grein fyrir
umfangi þessarar jarðvegseyðing-
ar. En vert er að staldra við þess-
ar tölur. Þær eru óhugnanlegri en
menn gera sér almennt grein
fyrir. Sturla nefnir, að árlega
nemi þessi gróðurlendiseyðing
einum þúsundasta af þvf landi,
sem nú er gróið. Og það má setja
upp annað dæmi, sem gefur út-
komu, er í fljótu bragði virðist
harla ótrúleg, en mun þó nærri
réttu. Gerum ráð fyrir þvf, eins og
Sturla, að jarðvegseyðingin hafi
aðallega orðið á þúsund árum.
Gerum einnig ráð fyrir því, sem
ekki er fjarri réttu, að fbúatala á
Islandi í þessi þúsund ár hafi
verið að meðaltali 60.000. Þá
verður útkoman sú, að hver ein-
asti Islendingur, sem lifað hefur í
landinu í þessi þúsund ár, hefur
kostað landið að meðaltali heilan
fermetra gróðurlendis á hverjum
einasta degi lífs síns. Hver mann-
eskja, sem náð hefur fimmtugs
aldri hefur samkvæmt þessu kost-
að landið næstum tvo hektara
gróðurlendis.
Líffræðilegum áhrifum á vist-
fræði eru gerð ailítarleg skil í
sérstökum kafla og er þar einkum
athyglisvert það sem höf. hefur
að segja um áhrif afkasta vist-
kerfisins á fólksfjöldann í land-
inu.
Kaflarnir um hagræna vist-
fræði byggjast á þeim rannsókn-
um höf. sem áður er að vikið.
Lokakaflar bókarinnar fjalla um
mengun og náttúruvernd. 1
bókinni er mikið af ljósmyndum
og þeim yfirleitt vel völdum, en
prentun sumra þeirra ærið ábóta-
vant. Það hefur löngum verið
Ijóður á fslenzkri bókagerð,
hversu lftt er vandað til prent-
unar svart-hvítra mynda. Kort
eru allmörg og mjög til gildis-
auka. Gott kort segir oft meira en
langur texti og má sem dæmi úr
þessari bók nefna kortið er sýnir
komu ísbjarna til Islands á um-
liðnum öldum. Eins er f bókinni
mikið af línuritum og öðrum
teikningum. Eru lfnuritin mörg
góð og sum prýðileg, en aðrar
teikningar, sumar hverjar, ekki
alveg lausar við sérvizku og
nokkrar beinlfnis misheppnaðar.
Aftast f bókinni er ítarleg heim-
ildaskrá og mjög gagnleg plöntu-,
dýra-, örnefna- og atriðisorðaskrá.
Einnig er skrá yfir íslenzk heiti á
erlendum vistfræðiorðum. Þar er
talsvert um nýyrði og eru sum
þeirra Ifklega eftir höf. sjálfan,
þótt þess sé ekki getið. Ágætt
tiltæki er það, að nota hér orðin
þurrabúð og vosbúð í nýjum
merkingum, þ.e.a.s. um það sem á
ensku nefnist xeric habitat og
hygric habitat. En þær plöntur,
sem höf. kallar ylsælar, vegna
þess að þær dafna bezt við háan
hita, ættu víst öllu heldur að
nefnast kulsælar samkvæmt fs-
lenzkri málvenju.
En sleppum meiri sparðatín-
ingi. Hann breytir hvort sem er
engu um þá staðreynd, að bókin
Líf og land er mjög fróðleg, mjög
læsileg og mjög þarfleg bók.
Sigurður Þórarinsson
Haukur Ingibergsson.
HUOMPLOTUR
Karlakór Reykjavíkur
Islenzk þjóðlög.
LP, Stereo.
SG-hljómplöhtr.
■Þetta er fjórða platan í út-
gáfuflokki SG-hljómp’.atna og
Kartakórs Reykjavíkur tií
kynnjngar isienzkrl tónlist. Á
þrem himum fyrri voru tekin
fyrir lög eftir ákveðin tón-
Skáild en á þessari plötu he'fur
verið breytí út af þe'rri venju
og á plötunni getur að heyra
is’.enzk þjóðlög, þjóðiög, sem
IslenZk tónskáld hafa endur-
útsett svo og lög, sem samin
hafa verið við göm'Ul þjóð-
lagastef.
Þó að fyrri plötur kórsins
hafi verið góðar, þá er þessi
piata jafnvel ennþá betri og
hjálpast þar margt að. Söng-
ur kórsins er fráhær, bæði
hvað snertir blæbrigði og radd
gæði og er varla hægt að n'á
miklu meira en hér heyrist út
úr ekki fjölmennari kór en
Karlakór ReykjaVíkur er. 1
annan stað eru Cögin fjölbreytt
samsafn þess bezía, sem tiil
er af islenzkum þjóðlögum s.s.
ísland farsæ’.'da frón, Bára
iblá, 'Nú er ég giaður, Björt
mey og hrein, Ó mln- fiaskan
fríða, au'k Hesta- og Oleði-
vísina Jóns Leiifs o.fl. laga. 1
þriðja lagi eru útsetnlingar
l'aganna frá ýmsium komnar;
m.a. hefur eöngstjórinn, Páll
P. Pálsson útsett Bára Wlá á
skemmitiDegan hátt. 1 fjórða
la'gi er kórnum íisitavel stjórn-
að af Páli P. Pálssyni cg bregð
ur hamn nýjurn blæ á mörig
laganna með því að breyta út
af þeim túlkunarmáta, sem
venjulegast hefur verið við-
hafður er lögin hafa verið
flutt. Og það er trú min að
•l'engi verði til þessarar plötu
Vitnað, er Lslenzk 'þjóð’Jö'g ber
á góma i framtíðinni.
Chieago.
Chicago IV.
CBS/Fálkinn.
Það hefur ienigi farið það
orð af bandarisku hljómsvéit-
dnnd Chicago, að fáar hljóm-
sveitiir í poppinu gætu jafn-
azt á -við hana, hvað snerti
góðan hljóðfæraleik. Hljóm-
sveitin hefur ©tarfað í ein
fimm ár, en ekki hafa LP-
plötumar orðið margar, eða
u.þ.b. eiin á ári, en tffi þeirra
hefur þótt vel vandað. Hljóm-
svertarmennirnir semja lög
sin sjálfir og er Robert Lamm
þeirra stórtækastur. Tónli'st
Chioago krefst vandaðra út-
setninga og samstililts hCjóð-
færaieiks þar sem hijómsveiit-
in blándar saman improviser-
ingum og ákveðnum úitsetn-
inigum, og eru þessi atriði lít-
ið breytt f.rá fyrri hljómplöt-
um. Á þessari plö'tu er að
finna mörg góð 3ög, þótt
Feeiin’ stronger every day sé
þeirra þekktast. En það er
vissulega eng’n tilviljun, að
þessi plata var sú söiuhæsta
i Bandarikjunum i síðasta
mánuði.
Rúnar Gunnarsson
LP, Mono.
SG-hljómplötur
Það er ótvirætt, að á árun-
um um og fyrir 1970 var Rún-
ar Guimarsson einna mest á-
berandi éinstaklingurinin i dæg
'Urlagatónlist hérlendis. Kom
þar bæði til sérstæöur og
skemmtilegur söngstíli auk
þess sem Rúnar samdi mörg
lög sem vinsæl urðu. Etftir
1970 dró Rúnar sig að mestu
i hié enda var hann þá fariran
að ikenna þess sjúkdóms, sem
diró hamn' að lokum tffi dauða
á siðastliðnum vetri. Er það
vSssulega vel við hæfi, að SG-
hljómplötur skuli nú minnast
hins látna listamanns með út-
igáfu mlnningarhljómplötu
þar sem getur að heyra það
bezta, sem Rúnar lét eftir sig.
'Þegar hlustað er á lög Rún-
ars Gunnarssonar kemur i
ijós, að hann hefur verið eimn
af þessum fáu, sem hafa náð-
argáfuna til tónsmíða. Lög
eims og Gvendur á eyrinni,
Það er svo undarlégt með
urnga menni, Hvers vegna og
iFyrir þig sanna það.
Rúnar sðng og lék aðaliéga
með tvéim hljómsveitum, Dát
um og 'Hljómsveit Ólafs
Gauks og eru sex lög frá
hvonri hljómsveit á þessari
plötu. Til þess að þessi plata
hefði gefið fulHkomna mynd
af ferli Rúnars hefði þó þurft
að taka með þaiu lög hans
sem aðrir listamenn fluttu á
hljómplötum en það eru Pen-
ingar, sem Hljómar léku og
eitt bezta lag Rúoars, GJugg-
Imw, sem iFlowers fluttu. Einn
ig hefði verið áikjósanlegt að
taka með lag af seinustu plötu
Rúnars, sem úrt kom á siðasta
árí. Flest þessi lög eru ekki á
SG-menkinu og það er tekið
fram á plötuhulstri, að á þess
ari' plötu sé eingöngu um að
ræða lög, sem Rúnar skiidi
eftir sig hjá því fyrirtæki.
Eitt er þó öru'ggt; Rúnars
Gunnarssonar mun i framtið-
inmli verða mtonst sem eins af
okkar beztu dægurlagahöfund
um og skemmtffiegs söngvara.