Morgunblaðið - 06.10.1973, Síða 14

Morgunblaðið - 06.10.1973, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1973. Nýtt frysti- hús á Höfn AÆTLAÐ er, að teknir verði í notkun f janúarmánuði næstkom- andi vinnu- og tækjasalir f nýju frystihúsi, sem verið er að reisa á Höfn f Homafirði. Verður þá unnt að taka á móti loðnu til frystingar. Stærð hússins er sam- tals 6.700 fermetrar, en fram- kvæmdir hófust 1970, er sprengt var fyrir undirstöðum. 1 október 1972 eða fyrir ári voru teknar f notkun frystigeymslur fyrir l.ooo tonn ásamt sal fyrir frystivélar. Enn hafa ekki verið byggðar kældar hráefnisgeymslur fyrir 300 tonn, en áætluð afköst húss- ins miðað við 10 klukkustunda vinnu, eru 80 til 100 tonn á dag. Heildarkostnaður við byggingu hússins var áætlaður 30. júní 1972 200 milljónir króna að frádregn- um eigin vélum fyrirtækisins, sem fluttar verða úr eldra frysti- húsi. Eftir er að byggja hús, þar sem aðstaða verður til ísfram- leiðslu og bryggju, en aðeins á að verða 20 metra leið frá skipshlið til móttöku. Verða við uppskipun eingöngu notaðir lyftarar og færi- bönd við losun afla og lestun full- unninnar vöru. Húsið er teiknað I teiknistofu S.Í.S. Verkfræðiþjón- ustu annaðist Hönnun h.f. Eig- andi frystihússinser KASK. Ohagstæður vöru- skíptajöfnuður FYRSTU átta mánuði ársins er vöruskiptajöfnuður óhagstæður um einn milljarð 197 milljónir og 900 þúsund krónur. Vöruskipta- jöfnuðurinn f ágústmánuði var hagstæður um 80,4 milljónir, en f sama mánuði f fyrra var hann hagstæður um 67,2 milljónir. Til jafnlengdar f fyrra var hann óhagstæður um einn milijarð 476 milljónir og 600 þúsund krónur. Alls voru fluttar út vörur fyrir 18,1 milljarð, en innflutningur nam 19,3 milljörðum. Af útflutn- ingi var álmelmi að verðmæti 3,1 milljaðrur, en var á sama tíma í fyrra aðeins 317 þúsund krónur. Innflutningur á skipum nam 2,3 milljörðum nú, en 284 milljónuir í fyrra. Innflutningur til Álfélags- ins nam nú 1,2 milljörðum, en í fyrra 63 milljónum króna. Frá vinstri Kristmann Magnússon, framkvæmdastjóri, Halldór Pálsson, rafvirkjameistari og Magnús Þorgeirsson stjórnarformaður Pf aff hf. Ný þjónustumiðstöð Fyrirtækið Pfaff hefur opnað þjónustumiðstöð f nýbyggðu húsi fyrirtækisins á Bergstaða- stræti 11 og verður þar vara- hlutalager og þjónustustarf- semi varðandi þvottavélar, upp- þvottavélar og kælitæki, sem Pfaff selur, en saumavéla- og prjónaverkstæðið verður áfram á Skólavörðustfg 1-3, svo og skrifstofa og almenn sölustarf- semi. Deildarstjóri er Halldór Pálsson, rafvirkjameistari. Fyrirtækið Pfaff er gamalt og gróið f borginni. Það hóf starf- semi sína á Bergstaðastræti 7 árið 1929 og var þar fyrstu 10 árin, þar til það fluttist að Skólavörðustíg 1. 1949 var byggt húsið nr. 3 og ofan á húsið nr. 1. Stjórnarformaður Pfaff h.f. er Magnús Þor- geirsson, en framkvæmdastjóri er Kristmann Magnússon. Varahlutalager Pfaff hefur alltaf verið á Skólavörðustíg og sagði Magnús fréttamanni að þar væri til allt að 44ra ára gamlir varahlutir. Pf aff byrjaði að flytja inn Candy þvottavélar f desember 1967 og hafa verið fluttar inn hátt á 10. þúsund þvottavélar. Því var fljótt ljóst að koma þyrfti á fót sérstakri þjónustumiðstöð fyrir Candy heimilisvélarnar og var þá byrjað á byggingu hússins við Bergstaðastræti. Innréttingar varahlutalagers eru keyptar frá DanmörkU og Finnlandi. Húsið teiknaði Einar heitinn Sveins- son, húsameistari, en bygg- ingarmeistarar voru Þórður Þórðarson og Kristján Péturs- son. r Söfnunardagur SIBS á morgun, sunnudag taka f notkun 27 ný sjúkrarúm, og nýlega var sundlaug tekin f notk- un við endurhæfingarstöð staðar- ins. Og enn er byggt í Reykjalundi, og enn er brýn þörf f jár til þeirra framkvæmdd, sem allar miða að því, að aðbúnaður og þjónusta við sjúklinga verði sem fullkomnust. 3 ljóð bárust FYRIR nokkru rann út skila- frestur í samkeppni þeirri, sem þjóðhátíðarnefndir S- og N- Múla- sýslu efndu til f sameiningu um hátíðarljóð. Þrjú Ijóð bárust, en ákveðið var að framlengja skila- frestinn til 1. nóv. nk., en fleiri ljóð mættu fást með þeim hætti. Fulbright-nefndin á fundi. Ekið á bifreið Klukkan 14:30—15 á fimmtu- dag var ekið á bláa Toyota station- bifreið, D-57, á starfsmannastæð- inu vestan við hús Sambandsins að Ármúla 3. Skemmdir urðu á hægra frambretti hennar og virð- ist hafa verið bakkað á hana. Þeir, sem kynnu að geta gefið upplýs- ingar um ákeyrsluna, eru beðnir að láta lögregluna vita. Ný sundlaug var opnuð sl. sumar að Reykjalundi fyrir sjúkraþjálfun. Söfnunardagur S.I.B.S. er morgun, sunnudag, eða hinn svc kallaði „Berklavarnardagur' Allt frá árinu 1939 hefur fyrsl sunnudagur í október verið ti einkaður S.I.B.S. sem söfnunai dagur. A morgun verður blaði „Reykjalundur" og merki dagí ins selt um allt land. Merkin eri númeruð og gilda sem happ drættismiðar, og vinningar eri kvikmyndatökuvél, sýningarvé og fleiri tæki til 8mm. super kvik myndunar. I frétt frá S.I.B.S. segir að þai 34 ár, sem liðin eru frá fyrst Berklavamardegi, hafi nettótekj ur S.LB.S. af þessum söfmmum numið nærri 8,5 milljónum króna. Þó berklaveiki hafi verið á und- anhaldi síðustu ár, hafa verkefni 5.1. B.S. ekki minnkað. Strax og rúm losnuðu í Reykjalundi vegna brottfarar berklásjúkra, voru þau tekin til notkunar fyrir aðra hópa sjúklinga. Ef til vill hefur þörfin fyrir sjúkrarúmin I Reykjalundi aldrei verið jafn mikil og nú, ef marka má af þeim langa biðlista, sem nú er, eftir vist. Til þess að mæta þessari auknu þörf hefur 5.1. B.S. ráðist í frjárfrekar fram- kvæmdir að Reykjalundi. Um þessar mundir er t.d. verið að Styrkþegar valdir FULBRIGHT-nefndin kom saman til fundar hinn 19. septem- ber síðastliðinn til þess að velja styrkþega til náms í Bandarikjun- um skólaárið 1974-’75. Umsækj- endur að þessu sinni voru 30, og þeir sem fyrir valinu verða, hljóta ýmis konar styrki til náms við bandaríska háskóla að tillögu nefndarinnar til viðkomandi námsstofnana. Samningur um námsmanna- skipti milli Islands og Bandaríkj- anna var undirritaður árið 1964 og hafa 225 Islendingar og 58 Bandaríkjamenn hlotið styrki fyr- ir milligöngu Fullbrightstofnun- arinnar frá þeim tfma. Robert Boulter er framkvæmdastjóri Fullbright-stofnunarinnar á islandi, Frank Ponzi er formaður nefndarinnar og Þorsteinn Sæmundsson er varaformaður hennar. Heiðursformenn Fullbright- nefndarinnar eru Magnús Torfi Ólafsson, menntaniálaráðherra og Frederick Irving, sendiherra Bandaríkjanna á islandi. Vélsmiðja Hornafjarðar 1 október 1970 sameinuðust eftirtaldir aðilar á Höfn I Hornafirði um byggingu vél- smiðju: Vélsmiðjan Ás, Vel- smiðja Gísla Björnssonar, vél- smiðjan Neisti, ræktunarsam- bandið, búnaðarfélagið, kaup- félagið og útgerðarmenn á staðnum. Keypt var 1700 fm. stál- grindarhús frá Englandi og er hluti þeirrar byggingar á tveim hæðum, auk þess er við- bygging fyrir hitamiðstöð og eldsmiðju. Bílaverkstæðið var tekið í notkun síðastliðið vor, smurstöð nú i sumar og aðrar deildir taka til starfa nú í haust. Framkvæmdastjóri er Þórður Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.