Morgunblaðið - 06.10.1973, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1973.
Mallorkaveður
áVopnafirði
Veðrið hérna á Vopnafirði, er
eins og á Mallorca, og svona hefur
það verið sfðustu daga, hitinn
komst t.d. í 22 stig i fyrradag,
sagði Haraldur Gfslason, frétta-
ritari Morgunblaðsins á Vopna-
f irði f samtali við blaðið f gær.
Haraldur sagði, að slátrun væri
nú hafin og væntanlega yrði
slátrað 14-15 þúsund fjár. Slátrun
hefði gengið mjög vel, og þyngsti
dilkurinn hefði vegið 30.2 kfló, en
hann hefði gengið á Hólsfjöllum,
en þaðan koma vanalega einstak-
lega vænir dilkar.
Skuttogarinn Brettingur er nú
að veiðum og fer skipið væntan-
fega f siglingu.
Guðmundur
seldi 4500
kassa af síld
Það hugsa gott margir til næstu
loðnuvertfðar, og það er margur
útgerðarmaðurinn, sem setur allt
sitt traust á loðnuna. Vitað er, að
bátar, sem stunda loðnuveiðar á
komandi vetri, verða fleiri en
nokkru sinni áður. Vitað er um
nokkra báta af stærðinni 150-200
rúmlestir, sem eiga að stunda
loðnuveiðar með nót, og nú er
verið að lengja fjöldann allan af
stærri Ioðnuskipunum, og byggt
verður yfir dekk einhverra skipa.
Nú er svo til ákveðið, að byggt
verður yfir dekk afiaskipsins
Guðmundar RE. Skipið var, sem
kunnugt er, langaflahæsta skipið
á sfðustu loðnuvertíð, og fékk yfir
20 þúsimd lestir. Hrólfur
Gunnarsson, skipstjóri og annar
eigandi Guðmundar, sagði í við-
tali við Morgunblaðið, að skipinu
yrði lokað hérlendis. Stálvfk f
Arnarvogi mun smfða vfir-
bygginguna og verður hún sett á
skipið f hlutum. Mun það verk
hefjast í nóvember og á að vera
lokið fyrir áramót.
Sem stendur tekur Guðmundur
rúmar 600 tonn í lestar, en eftir
að skipinu hefur verið lokað,
getur það tekið um 800 tonn i
lestar.
Að sögn Hrólfs, var Guðmundui
væntanlegur til Skagen f Dan
mörku f gærkvöldi með 450<
kassa af sfld, sem skipið árri a<
selja f morgun.
36 kr. fyrir
síldarkílóið
Sfldveiðiskipin í Norðursjó eru
nú aftur byrjuð að selja í Dan-
mörku, en bræla hefur verið hjá
skipunum síðustu daga. Fimm
skip seldu f Hirtshals f gær, og
var meðalverðið á sfldinni yfir-
leitt mjög gott, eða allt upp f 36
krónur.
Þessi skip seldu i'gær: Gísli
Árni RE 192 kassar fyrir 217 þús.
kr., Náttfari ÞH 735 kassa fyrir 1
milljón kr., Ölafur Sigurðsson AK
1462 kassa fyrir 2.1 millj. kr.,
Rauðsey AK 1683 kassa fyrir 2.1
milljón kr. og Eldborg GK 1606
kassa fyrir 2 milljónir.
I dag áttu nokkrir bátar að selja
í Danmörku, og er búizt við góð-
um sölum.
5,7 milljónir
fyrir Miðfjarðará
Staðarbakka 5. október
Gerður hefur verið leigusamn-
ingur um Miðfjarðará, og er Mart-
in Petersen, Safamýri 18 Reykja-
vfk, léigutaki. Arsleiga er kr.
5.705.500.00 — fimm milljónir
sjöhundruð og fimmþúsund og
fimmhundruð krónur, — miðað
við að veiðitfmabilið sé frá 9. júnf
tii 15. ágúst.
Búið er að leggja olfumöl á 1.5
kflómetra langan vegarkafla á
Vopnafirði. Hefur bæjar-
bragurinn allur breytzt við það.
Að sögn Haralds, er ætlunin að
olfumöl verði lögð á jafnstóran
kafla á næsta sumri, og er þá ráð
fyrir gert, að lokið verði við að
leggja olfumöl á götur Vopna-
fjarðarkauptúns.
Nokkrir bændur f Vopnafirði
hafa komið að máli við forráða-
menn sveitarfélagsins, og óskað
eftir þvf að fá keypta olfumöl,
sem þeir ætla að leggja á heim-
reiðarnar að bæjum sfnum og á
hlöðin fyrir framan býlin.
Félag slökkvi-
liðsmanna í
Grindayík
Grindavfk 5. október
Þann 22. september s.l. var
haldinn stofnfundur Félags
slökkviliðsmanna f Grindavfk.
Stofnun félagsins og tilgangur er
að vinna að aukinni starfsþjálfun
slökkviliðsmanna og að auka
kynni meðal þeirra.
Hið nýstofnaða félag mun
sækja um aðild að Landsambandi
slökkvi li ðsm a nn a.
A vegum brunamálastofnunar
ríkisins verða haldin námskeið
fyrir slökkviliðsmenn í Reykjavík
og verða sendir þangað nokkrir
félagar hverju sinni, einnig munu
félagsmenn kynna sér störf ann-
arra slökkviliða eftir megni.
I slökkviliði Grindavíkur eru
nú 20 menn. Formaður félagsins
er slökkviliðsstjórinn Magnús
Ingólfsson.
Minningar-
gjöf til Dóm-
kirkjunnar
1 sumar færði frú Agnes
Guðmundsdóttir Dómkirkjunni
að gjöf kr. 50. þús., til minningar
um mann sinn dr. med. Árna
Ámason, héraðslækni, en hann
Iést 1. febr. 1971, hér f Reykjavfk.
Óskaði frú Agnes, að þessi upp-
hæð yrði lögð í „Gluggasjóð"
Dómkirkjunnar.
Fyrir þessa höfðinglegu gjöf
vilja forráðamenn Dómkirkjunn-
ar fytja frú Agnesi innilegustu
þakkir og hennar góða hug til
Kómkirkjunnar.
Dr. Arni Amason var þjóð-
kunnur maður fyrir læknisstörf
sín og rannsóknir í læknisfræði
og annað, sem hann ritaði um
heilbrigðismál.
Þá var hann ekki sfðúr kunnur
f^rir áhuga sinn á kirkju og
kristindómsmálum. Hann ritaði
fjöida greina um kristindómsmái
og flutti erindí um þau mál i
útvarp og á kirkjulegum fundum.
Þá ritaði hann bókina:„Þjóð-
leiðin til hamingju og heilla,“ sem
er safn af ritgerðum um kristileg
efni, og segir heiti bókarinnar
nokkuð til um efni hennar. Allt,
sem Dr. Ami ritaði um kristin-
dómsmál, var jákvætt og gjör-
hugsað, rökfast og mótað af bjart-
sýni og trúartrausti.
hingað, að loknum héraðslæknis-
störfum á Akranesi, var hann tíð-
ur gestur í Dómkirkjunni, ásamt
konu sinni.
Dr. Árni var fæddur í
Skildinganeskoti við Reykjavík
28. des. 1885, og fermdur í Dóm-
kirkjunni, og eftir að hann flutti
hingað, að loknum héraðslæknis-
störfum á Akranesi, var hann tfð-
ur gestur í Dómkirkjunni, ásamt
konu sinni.
Hann var grandvar maður til
orða og verka.
Óskar. J. Þorláksson
Tilþrif
í Fáskrúðs-
fjarðarhöfn
Fáskrúðsfirði 4. okt.
Fjögur vöruflutningaskip komu
hingað f dag' svo það var talsvert
við að vera í höfninni. Tvö sam-
bandsskip komu og lestaði annað
frosinn fisk, en hitt landaði fóður-
blöndu. Þá var Sæberg hér að
taka saltfisk og Hekla með vörur
og farþega.
— Albert.
— Langur biðlisti
Framh. af bls. 3
auðvitað væri þetta erfitt fyrir
það fólk, sem þyrfti að bfða, auk
þess sem í mörgum tilvikum ykist
bæklunin á meðan beðið væri
eftir aðgerðum. Þó hefðu að sjálf-
sögðu alvarlegri tilfellin for-
gangsrétt.
Mestur hluti þeirra sjúklinga,
sem fengið hafa meðferð á bækl-
unardeildinni, getur farið heim
að henni lokinni, en hinir fara á
Vffilstaði, Reykjalund eða á
heilsuhælið í Hveragerði.
Stefán Haraldsson kvaðst ekki
geta um það sagt, hvort sjúkra-
rými deildarinnar yrði aukið á
næstunni, en benti á, að sam-
kvæmt erlendum rannsóknum,
t.d. í Svíþjóð, væri talið, að þörf
væri á einu rúmi á hverja 2000
íbúa. Fyrir ísland ætti þörfin því
að vera 105 rúm.
— Varðarfundurinn
Framh. af bls. 19
málasambandi í „örfáa“ daga til
að kanna vilja Heaths, ef utanrík-
málanefnd féllist á það. Sagði
Matthías að það hefði verið at-
hyglisvert hvernig stjórnarliðið í
nefndinni hefði brugðizt við
bréfinu. Vildi meirihlutinn
ekkert mark taka á þótt forsætis-
ráðherra Bretlands skrifaði for-
FASTEIGNA-OC SKIPASALA
LAUGAVEGI 17
SÍMh 2 66 50
Til sölu m.a.:
í miðborginni
Járnvarið timburhús á
steyptum kjallara, sem er
kjallari 2 hæðir og ris,
samtals 10 herb. Selst í
einu eða tvennu lagi.
Hagstætt.
Við Hraunbæ
Góð 2ja herb. 65 ferm.
íbúð ásamt 1 herb. í kjall-
ara með sameiginl. snyrti-
herb. Skipti á 3ja—4ra
herb. íbúð möguleg.
Við Safamyri og
Laugarnesveg
Glæsilegar 4ra herb.
endaíbúðir. Mjög góðar
eignir.
3ja herb. íbúðir
víðsvegar í borginni, m.a.
við Efstasund, Nesveg og
víðar.
Góð einbýlishús og
sérhæðir í Kópavogi.
Opið frá kl. 10 til 17 í
dag.
sætisráðherra Islands og því ekki
séð ástæðu til að fresta slitum
stjórnmálasambands, heldur
skyldu þau fara fram strax
daginn eftir. Fulltrúar Sjalf-
stæðisflokksins í nefndinni, sem
eru Matthías og Jóhann Hafstein,
gerðu hins vegar þá bókun að þeir
vildu fresta slitunum til að hægt
yrði að kanna hvað vekti fyrir
Heath. Var forsætisráðherra sam-
þykkur því og gaf stjórnin Bret-
um því viku frest til að kalla út
flotann.
„Ólafur Jóhannesson lét ekki
meirihlutann segja sér fyrir verk-
um, heldur tók af skarið með
þeim afleiðingum að flotinn fór
út í dag,“ sagði Matthfas.
Kvað hann stjórnarandstöðuna
mjög ánægða með þau málalok og
að hann vonaðist til að ekkert
gerðist, sem komið gæti í veg
fyrir að forsætisráðherra færi til
London 15. okt. til að hitta Heath.
Eftir framsöguræður Gunnars
og Matthiasar urðu fjörugar
umræður og tóku til máls Pétur
Guðjónsson, Hjörtur Hjartarson,
Halldór Briem, Hannes Gizurar-
son, öm Clausen, * Geir
Hallgrímsson og Gunnar
Thoroddsen.
r
— Alafoss
Framhald af bls. 32.
heitið „Nogle af Kirsten Holst’s
arbejder i islandsk uld.
Búast Álafossmenn við, að
salan í plötulopanum eigi eftir að
aukast að miklum mun fyrir til-
stilli þessa bæklings, að því er
Magnús Pétursson hjá Álafossi
tjáði Morgunblaðinu. Hann sagði,
að m.a. hygðist Haandarbejdets
Fremmi gangast fyrir námskeið-
um fyrir konur, er vildu læra að
vinna úr plötulopanum, og væri
gert ráð fyrir að mikill fjöldi
sækti námskeiðið. Ein helzta
verzlun H.F. er á Strikinu í Kaup-
mannahöfn, og er þar sérstök
deild helguð plötulopanum fs-
lenzka.
Um söluna til Noregs sagði
Magnús, að Álafoss hefði á undan-
förnum árum gert nokkrar til-
raunir í þessu mikla framleiðslu-
landi ullargarns, en með heldur
misjöfnum árangri. Snemma á
þessu ári gerði Álafoss enn eina
tilraun til að koma garni sínu inn
á þennan markað, og sagði
Magnús að nú hefði brugðið svo
við að undirtektir voru mjög já-
kvæðar og salan til þessa hefði
farið fram úr björtustu vonum.
Sagði Magnús, að gert væri ráð
fyrir verulegri sölu á norskum
markaði í ár.
Hjartanlega þakka ég ykkur
öllum, nær og fjær, sem glöddu
mig og minntust mín á níutíu
ára afmæli mínu.
Guð blessi ykkur og varðveiti.
Ingibjörg Lárusdóttir,
Stekkjarholti 3,
Akranesi.
TJARNARBÚD
i
DISKOTEK
íkvöld kl. 9—2.
Plötusnúðar GRAHAM og GEIRI.
SJALFSTÆÐISFLOKKSINS
NORÐURLANOSKJÖRDÆMI EYSTRA
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins i Norðurlandskjör-
dæmi eystra verður haldinn i litla sal Sjálfstæðishússins á Akur-
eyri, laugardaginn 13. október n.k. og hefst fundurinn kl. 10:00
fyrir hádegi.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundastörf. Stjórnin
FUNDUR VERÐUR HALDINN
í Týr, félag ungra sjálfstæðismanna i sjálfstæðishúsinu Borgar-
holtsbraut, laugardaginn 6. okt. kl. 4.
Ungir sjálfstæðismenn fjölmennið.
Austur- SKanafellssýsia
Sjálfstæðisfélögin i Austur-Skaftafellssýslu boða til fundar að
Hótel Höfn sunnudaginn 7. október kl. 2 e.h.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Stjórnirnar.
Kðpavogsbúar
Bæjarfulltrúar sjálfstæðisf.
Axel Jónsson og Sigurður Helgason,
verða til viðtals laugardaginn 6. okt. kl.
2—4 i sjálfstæðishúsinu Borgarholts-
braut.
Sjálfstæðisfélögin i Kópavogi.