Morgunblaðið - 06.10.1973, Síða 32
LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1973.
Sjórinn logaði
á Hraunsvíkinni
Tækin til að
hlera NATO?
EITT rússnesku tækjanna, sem
fundust f Kleifarvatni, var stiilt á
tfðni tækja, sem NATO notar til
fjarskipta, og er þvf ekki loku
fyrir þa3 skotið að tækið hafi ver-
ið notað til hlerunar á fjarskipta-
sendingum frá Keflavfkurflug-
velfi, en þar eru tæki, sem senda
á þessari tfðni.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér, er
um þetta fjallað í skýrslu Lands-
símans um rannsóknina á tækjun-
um, en sýslumaðurinn í Gull-
bringusýslu kvaðst ekkert vilja
láta uppi um efni hennar að svo
stöddu annað en það, að tækin úr
vatninu væru flest rússnesk mót-
tökutæki og að ekki hefði verið
veitt leyfi Pósts og sima fyrir inn-
flutningi þeirra. Málið væri á
rannsóknarstigi og mjög fátítt
væri að birta í heild efni máls-
skjala á þvi stigi.
GRINOVfKINGAR urðu þess
varir um kl. 11 á fimmtudags-
morgun, að eldtungur og reykjar-
mökkur teygðu sig upp frá haf-
fletinum f Hraunsvfk austan við
Grindavfk. Var óregluleg hreyf-
ing á eldinum og datt mönnum
þvf fyrst f hug, að eldgos væri
hafið á sjávarbotninum. Var enda
skammt sfðan jarðskjálftar skóku
þorpið og eldgosið f Eyjum mönn-
um f fersku minni.
Halldór E. Sigurðsson, fjár-
málaráðherra, keilsa sendi-
herrafrúnni, en á myndinni
sjást einnig eiginkona Halldórs
og sovézki sendiherrann, herra
J. Kiritsienko.
Móttaka í sovézka sendiráðinu
SENDIRAÐ Sovétrfkjanna f
Reykjavfk hafði móttöku á
fimmtudaginn f tilefni af bvf.
að 30 ár voru liðin, frá þvf að
Island og Sovétrfkin tóku upp
stjórnmálasamband. Hér sést
Álafosslopi rennur
út á Norðurlöndum
ULLARVÖRUR Alafoss hafa átt
mikilli velgengni að fagna nú f ár
f tveimur Norðurlöndum — í
Danmörku og Noregi. Þannig hef-
ur sala á Alafossvörum aukizt um
50% á fyrstu sex mánuðum þessa
árs í Danmörku og stefnir stöðugt
upp á við. í Noregi verður einnig
um verulega sölu að ræða f ár, en
þetta er fyrsta árið sem Alafodd
kemst að ráði inn á markaðinn
þar. Einkum er það fslenzki lop-
inn, sem fer sigurgöngu á þessum
tveimur mörkuðum.
Alafossmenn vænta verulegrar
söluaukningar i Danmörku í ár,
eins og fyrr segir. Er það ekki sízt
fyrir þá sök, að annar umboðsaðili
Álafoss í Danmörku — Vilborg
Hansen — hefur nú í samvinnu
við fyrirtækið E. Jelstorf og
Haandarbejdets Fremme (fyrir-
tæki svipaðs eðlis og íslenzkur
heimilisiðnaður) hafið mikla
söluherferð þarlendis á íslenzk-
um plötulopa. Haandarbejdets
Fremme hefur nýlega gefið út
mjög myndarlega mynzturbók,
<§} HAANDARBrjDtTS f KfMVft
i
' ' m
Nogte af ' • ♦ **_-■ *%M
Kitsten! Holst's,
arbejder i ,
i.slándsk uld
Forsfða bæklings danska
heimilisiðnaðarfyrirtækisins með
mynzturuppskriftunum fyrir
íslenzku ullina.
þar sem einn fremsti tízkuteikn-
ari Dana, Kristen Holst, hefur
teiknað og útfært mynztrin, en
hún vinnur þar eingöngu úr fs-
lenzkri ull. Ber bæklingur þessi
Framhald á bls. 18.
Seldi fyrir 5,4 millj.
Skuttogarinn Bjarni Benedikts-
son, landaði f fyrsta skipti f gær
eftir fimm mánaða vélarbilun.
Skipið seldi f Ostende f Belgfu
152 lestir fyrir 160 þús. v-þýzk
mörk, eða 5,5 millj. fslenzkar.
Ef þessi sala Bjarna Benedikts-
sonar er borin saman við sölur
þær, sem hafa verið f Þýzkalandi
að undanförnu, þá kemur f Ijós.
að hún er mun lægri. Ekki er
samt hægt að segja að svo komnu,
að Ostende markaðurinn sé lé-
legri en sá þýzki, þar sem ekki
var vitað f gær, hvort fiskurinn,
sem Bjarni Benediktsson var
með, var góður eða lélegur.
Lögreglan í Grindavík hafði
samband við húsfreyjuna f ísólfs-
skála, skammt frá vfkinni, og
spurði hana um eldinn. Sá konan
eldtungurnar hækka og breiðast
út og þar sem hún var ein heima
óskaði hún þess, að hún yrði sótt
og flutt burtu. Fór lögreglan af
stað að Isólfsskála, en fól mönn-
um f Grindavík að hafa samband
við varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli og kanna hvort þar væri
frekari upplýsingar að fá. Fékkst
þá skýring á eldunum.
Varnarliðsþyrla hafði verið í
flugi, en átti við einhverja erfið-
leika að etja og losaði sig þvf við
allt umframeldsneyti f sjóinn, áð-
ur en hún hélt inn til lendingar.
Kveikti áhöfn þyrlunnar í elds-
neytinu á sjónum, en Grindvík-
ingum var ekki tilkynnt um þetta.
Eidurinn logaði aðeins í skamma
stund og sloknaði síðan sjálf-
krafa, en hafði þó áður kveikt
nokkurn ugg í brjósti Grindvík-
inga. Undiraldan lyfti logunum
sitt á hvað, þannig að úr fjarlægð
minnti þetta einna helzt á eldgos.
Selfoss hagg-
aðist ekki
Ekki tókst að ná Selfossi,
skipi Eimskipafélags lslands
af strandstað á Seyðisfirði f
gærkvöidi, þrátt fyrir
ftrekaðar tilraunir haggaðist
skipið ekki. Reykjafoss,
reyndi að draga Selfoss á flot,
skipið kom til Seyðisfjarðar
klukkan 17 f gær, og var þá
komið fyrir dráttartaugum á
milli skipanna.
A flóðinu f gærkvöldi,
byrjaði Reykjafoss að draga f
Selfoss, en ekkert gekk.
Enduðu björgunartilraunirnar
með því að dráttartaugin
slitnaði, og var unnið að því
sfðast er vitað var að koma
nýrri taug á milli skipanna.
Breytt hegðan brezku
togaranna á miðunum
LANDHELGISGÆZLAN
skýrði frá því f gær, að brezku
togararnir hefðu breytt hegðan
sinni frá þvf sem áður var. Þeim
hefur og fækkað á miðunum, en
allir veiða þeir við austur-
ströndina. Togararnir halda sig
nú mun utar en áður, og þegar
varðskipin koma að þeim, hífa
þeir flestir vörpur sínar ótil-
kvaddir og sumir hverjir sigla út
fyrir 50 mflurnar. Af þessum
sökum hefur ekkert borið til
tfðinda á miðunum, þar sem
ekki hefur verið nein ástæða til
neinna aðgerða.
AP-fréttastofan hafði það í gær
eftir brezku útgerðarfyrirtæki, að
varðskip hefði gert tilraun til
togvfraklippingar, en talsmaður
Landhelgisgæzlunnar, Hafsteinn
Hafsteinsson, sagði í gær, að ekki
hefði þurft að koma til neinna
slíkra aðgerða af áðurnefndum
ástæðum
Brezka útgerðarfyrirtækið
Consolidated Fisheries Ltd. í
Grimsby ásakaði i gær Land-
helgisgæzluna fyrir að hafa
áreitt brezka togarann Spurs,
sem fyrirtækið gerir út. Segir í
AP-skeytinu, að þessi atburður sé
hinn fyrsti, frá þvf að brezka
ríkisstjórnin ákvað að draga
verndarskip sfn til baka,
freigáturnar og dráttarbátana.
Varnarmálaráðuneytið í London,
svo og brezka sjávarútvegsráðu-
neytið sögðu í gær, að þau hefðu
engar staðfestar fregnir fengið af
þessum atburði. Togarafyrirtækið
sagði, að varðskipið hefði gert til-
raun til klippingar, en gat ekki
nefnt nafn þess. Framkvæmda-
stjóri útgerðarfélagsins, Dan
Lister sagði: „Ef fleiri slfk atvik
eiga sér stað, munum við kref jast
þess að flotinn komi aftur inn.“
Þegar Mbl. bar þessa frétt
undir Hafstein Hafsteinsson, tals-
mann Landhelgisgæzlunnar,
svaraði hann aðeins: „Til þess
hefur ekki þurft að koma, að til-
raun yrði gerð til togvíra-
klippingar.“
1 NTB- frétt, sem barst í gær-
kvöldi, er getið um eitt tilfelli,
þar sem varðskip varð að skipa
togara að hífa vörpuna. Togarinn
hlýddi.